Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Side 32
A
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
5M 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
Viðbótarlífeyrissparnaður
Loforð er loforð
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Öflugir jarðskjálftar fyrir Norðurlandi:
Utilokum ekki
eldgos eða
stærri skjálfta
segir Ragnar Stefánsson
Stór jarðskjálfti, um 5,5 á
Richterskvarða, varð í gærkvöld
kl. 18.48 djúpt út af mynni Eyja-
fjarðar. Fannst hann viða um
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLfNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
EIGI 5KAL HALTUR
GANGA...!
gígum á hafsbotni og merki um
gos. „Einnig fylgjumst við með
hvort virknin færist eitthvað til
en hún hefur ekki gert það enn-
þá,“ segir Ragnar Stefánsson.
Upptök skjálftans voru djúpt út
af mynni Eyjafjarðar um 100 km
frá landi eða um 45 km NNV af
Grímsey og um 30 km SSA af Kol-
beinsey. Upptökin eru norðarlega
í svokölluðu Tjörnesbrotabelti.
Skjálftinn fannst allt frá Sauðár-
króki i vestri til Þistilfjarðar í
austri og langt inn í innsveitir
EyjaQarðar.
Norðurland en mikill fjöldi eftir-
skjálfta yflr tveir á Richter, eða
um 100 talsins, hafa komið í kjöl-
farið í gærkvöldi og í nótt, sá
stærsti um kl. 1 í nótt, um 4 stig á
Richter. „Þetta gæti verið fyrir-
boði stærri tíðinda," segir Ragnar
Stefánsson jarðskjáiftafræðingur.
„Þessi eftirskjálftahrina heldur
áfram með þeim hætti að ekki er
hægt að útiloka að um eitthvert
framhald verði að ræða. Við erum
að fylgjast með þvi hvort þetta
geti hugsanlega þróast yflr í eld-
gos eða eitthvað stærri skjálfta á
þessum slóðum. Við útilokum það
ekki.“ Ragnar segir ekki dæmi um
eldgos á þessum slóðum á söguleg-
um tíma en þarna sé þó fullt af
Hélt eitthvað í skrúfunni
Steingrímur Jóhannesson, skip-
stjóri á Votaberginu SU-10 frá
Eskifirði, segir að fjölmargir bátar
hafl orðið varir við skjálftann.
Þeir voru þá á rækjumiðum í
Sléttuneskanti tugi sjómilna frá
upptökum skjálftans.
„Við vorum staddir norðaustur
af Grimseynni þegar við fundum
nokkur högg. Ég hélt fyrst að eitt-
hvað hefði komið í skrúfuna og
svo var um fleiri skipstjóra á þess-
um slóðum. Það kom titringur á
bátinn en það var suðvestan kaldi
þegar þetta var og maður áttaði
sig ekkert á því að um jarðskjálfta
væri að ræða.“ Steingrímur ségir
að áhöfn hans hafi ekki orðið vör
við neina fleiri skjálfta .
Ansi mikill hristingur
Þorlákur Sigurðsson, fyrrver-
andi oddviti i Grímsey, segist hafa
fundið vel fyrir stóra skjálftanum
í gær. „Það var ekki hægt að kom-
ast hjá því. Við vorum hér uppi á
lofti hjónin en allt skalf í skápum
og öðru lausadóti. Það féll þó ekk-
ert niður, en það var ansans ári
mikill hristingur í húsinu, manni
fannst þaö ganga svolítið til. Mér
fannst skjálftinn standa dálítið
lengur yflr en maður er vanur og
seinni hluti skjálftans var skarp-
ari ef svo má segja. Ég fann svo
líka skjálfta um eittleytið í nótt en
þá lá ég út af og var að lesa í blaði.
Hann var um 4 á Richter."
Ekki hefur orðið vart við nein-
ar skemmdir á húsum í Grímsey.
-HKr.
Liggur fótbrotinn á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri
Guðmundur Valtýsson komst í hann krappann þegar hann fótbrotnaði við upphaf gangna sl. sunnudag. Hann lét þó á
engu bera og leitaði ekki læknis fyrr en síðdegis. Guðmundur reyndist ökklabrotinn og gekkst undir aðgerð á
sjúkrahúsinu í gær. Hann er á batavegi.
Harður gangnamaður í Laxárdalsfjöllum:
Lauk gongum
fotbrotinn
„Þetta var erfiður dagur, því
verður ekki neitað. Ég vildi samt
ljúka mínu dagsverki, annað kom
ekki til greina," segir Guðmundur
Valtýsson gangnamaður sem slasað-
ist illa þegar Bólhlíðingar smöluðu
Laxárdalsfjöllin á sunnudaginn.
Guðmundur, sem var austasti
maðurinn í göngunum og gekk Víði-
dalinn, lenti með hest sinn niður í
keldu framarlega í dalnum, svokall-
aða Kjaftalaut, þar sem Skagfirðing-
ar skipta göngum. Hesturinn lenti
ofan á Guðmundi og kramdi fót
hans illa. Þetta gerðist um níuleytið
að morgni, fljótlega eftir að smölun
hófst.
Guðmundur komst á bak að nýju,
náði að haltra fyrir hesta sem hann
var með til reiðar og hélt áfram
smalamennskunni eins og ekkert
hefði í skorist, þrátt fyrir að vera
ansi hrjáður, og jukust verkimir í
fætinum er leið á daginn.
Honum var boðið að fara heim úr
göngunum þegar búið var að ná
safninu saman en hann afþakkaði
og vildi ljúka sínu dagsverki.
Þegar komið var til réttarinnar i
Bólstaðarhlið á fjórða timanum um
daginn veittu menn því eftirtekt að
annað stigvél Guðmundar var mun
sverara en hitt. Sjálfur kveðst hann
hafa vitað allan daginn að hann
hlyti að vera fótbrotinn.
Fótur Guðmundar reyndist stokk-
bólginn og þótti réttast að fara nið-
ur á Blönduós og leita læknis. Á
röntgenmynd kom í ljós að maður-
inn var fótbrotinn rétt fyrir ofan
ökkla. Guðmundur gekkst undir að-
gerð í gær og var brotið neglt sam- í
an. Hann sagðist í samtali við DV í'
gær allur vera að hressast.
Guðmundur, sem er frá Eiríks-|
stöðum, er undanreiðarforingi I
þeirra Bólhlíðina á Eyvindarstaða-
heiði. Hans verður án efa sárt sakn- (
að í smalamennskunni í haust,
enda, að sögn bænda þar um slóðir,
með magnaðri smalamönnum, vel(
ríðandi og með góðan hund sér tilj
aðstoðar. Framganga Guðmundar í
göngunum að þessu sinni þykir
hörð og ekki neytti hann neins í{
göngunum til að deyfa verkina.
Gangnapeli hans var ósnertur og
þáði hann ekki boð frá öðrumj
gangnamönnum.
-ÞÁ/aþ
Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkir riftun á rekstrarsamningi:
Nýr skólastjóri við Áslandsskóla
Talaðu við okkur um
Fræðsluráð Hafnarfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að sett-
ur verði nýr skólastjóri, Erla Guð-
jónsdóttir, við Áslandsskóla. Jafn-
framt samþykkti fræðsluráðið að
lagt verði til við bæjarstjóm Hafn-
arfjarðar að hún yfirtaki nú þegar
þann rekstur Áslandsskóla sem ís-
lensku menntasamtökin hafa haft
með höndum. Tillagan var sam-
þykkt með þremur atkvæðum full-
trúa Samfylkingarinnar gegn at-
kvæðum tveggja fulltrúa sjálfstæðis-
manna.
Erla Guðjónsdóttir, hinn nýi
skólastjóri sem fræðsluráðið gerir
tillögu um, starfar sem matsfulltrúi
á skólaskrifstofu Hafnarfjarðarbæj-
ar. Hún hefur meðal annars gegnt
starfi skólastjóra á Álftanesi.
Gert er ráð fyrir að Erla taki við
stjómartaumum í Áslandsskóla um
leið og bæjarstjóm samþykkir sam-
þykkt fræðsluráðsins að segja upp
samningum við íslensku mennta-
samtökin um rekstur skólans. Erla
er sett tímabundið í starfið en
fræðsluráð samþykkti jafnframt á
fundi sínum tillögu þess efnis að
bæjarstjóm auglýsi þegar stöðu
skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
við Áslandsskóla.
Að loknum fundi fræðsluráðs í
gær áttu fulltrúar þess fund með
kennurum og foreldrum bama í Ás-
landsskóla.
Að sögn Magnúsar Baldurssonar
fræðslustjóra voru þar rædd næstu
skref skólastarfsins ef til uppsagnar
samningsins kæmi. Kennarar hefðu
á fundinum lýst því yflr að þeir
væm reiðubúnir til að starfa af full-
um krafti og gera skólann enn betri.
Foreldramir hefðu óskað eftir þvi
að fá að vera með í ráðum.
í dag kemur bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar saman til fundar þar sem
tekin verður afstaða til tillagna
fræðsluráðs.
-JSS
Auðbrekku 14, sími 564 2141
BYSSUR
SPORTVORUGERÐiN
SKIPHOLT 5 562 8383
!
I