Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002
M
agasm
DV
Elsti jarðarbúínn
elskar „sheikinn"
Englnn er eldri í veröldlnni en Kamato Hongo frá Japan sem er nýoröin 115
ára gömul. Þessi mynd var tekin af henni á afmælisdaginn en þá var hún
nývöknuð eftir tveggja sólarhringa svefn.
Limmósínan er stór og glæsileg, 12 metra löng.
12 metra löng limmósína
Þennan einkennilega bíl
rakst blaðamaður Magasíns
á í New York á dögunum.
BOlinn er af gerðinni
Lincoln Navigator og er
eins og sést á myndinni í
stærri kantinum. í bílnum
er pláss fyrir 10 farþega sem
geta haft það huggulegt
meðan þeir horfa á sjón-
varpiö eöa njóta tónlistar úr
ofvöxnum græjumun. Eig-
andi bílsins er fyrirtæki í
New Jersey og að sögn bíl-
sljórans er billinn pantaður
langt fram í tímann. Hvort
þessi ágæta bifreið gæti
komist yfir Hellisheiði í
skafrenningi og ófærð er
alveg á huldu.
Billy Joel vantar eiginkonu
Söngvarinn heimskunni, Billy Joel, hyggst leigja sér íbúö fljótlega á
Manhattan og lokka í hreiður sitt framtíðar eiginkonu. Söngvarinn er
á biðilsbuxunum sem aldrei fyrr og segist ekkert þrá heitara en konu
sem hann elski og sem elski hann.
„Ánægjulegustu stundir lífs
míns voru þegar samvistir mínar
við konur gengu vel. Þegar ég var
ástfanginn og einhver var ást-
fanginn af mér. En einhvem veg-
inn hafa öll mín sambönd farið í
vaskinn. Fyrir það er ég reiður
sjálfum mér og ég iðrast margra
hluta,“ segir hinn breimandi Billy
Joel og bætir við: „Mér hafa
hlotnast margar stórar viöur-
kenningar á mínum ferli sem
söngvari. Þær koma þó engan
veginn í stað góðrar konu. Þú
ferð ekki heim með verðlaunin.
Þú sefur ekki hjá verðlaunum og
verðlaun hugga þig ekki þegar
illa gengur og eitthvað bjátar á.
Og ég eignast ekki böm með verð-
launum. Ég þrái góða konu og að
stofna fjölskyldu. Ég þrái það
heitara en nokkuð annað að verða
Bllly Joel ætlar aö ná sér í konu áctfanmnn «
fljótlega, hvaö sem þaö kostar. B
Kamato Hongo er orðin elsta
kona heims og reyndar elsti jarðar-
búinn í dag en hún varð 115 ára
gömul þann 16. september sl.
Hongo fæddist þann dag árið 1887.
Hún er í stöðugri gæslu lækna en
heilsuhraust miöað við hinn háa
aldur. Helst er að heyrnin sé farin
að gefa sig og skyldi engan undra.
Hongo er japönsk og býr á eyj-
unni Kyushu. Hún eignaðist sjö
börn og á í dag 20 bamabarnaböm.
Sex börn hennar eru á lífi en elsta
dóttir hennar lést fyrir um tveimur
áram og þá um nirætt.
Lifnaðarhættir Hongo eru nokk-
uð með öðrum hætti en við eigum
að venjast. Hún sefur gjarnan í tvo
sólarhringa og vakir í tvo sóiar-
hringa. Og ef taka á til uppáhalds-
fæðu hinnar öldruðu konu þá má
nefna að hún elskar „sheik“ eða
mjólkurhristing.
Hongo varð elsti íbúi jarðarinnar
þann 20. mars sl. Þá lést Maud
Farris-Luse frá Michigan í Banda-
ríkjunum en hún var þá 115 ára og
56 daga gömul.
Japanir hafa lengi getað státað af
langlífi. Þess má geta að elsti karl-
maður heims er Japani. Sá heitir
Yukichi Chuganji og er 113 ára gam-
all. Og eitthvað virðist gott að búa á
eyjunni Kyushu því hinn aldni karl-
maður býr einnig þar.
Timberlake sér eftir
Britney Spears
Justin Timberlake, söngvari
hljómsveitarinnar NSync, er niður-
brotinn maður eftir að upp úr sam-
bandi hans við söngkonuna Britney
Spears slitnaði fyrir skömmu.
Á dögunum leitaði Timberlake til
þekktrar
sjónvarps-
stjörnu í
Bandaríkj-
unum. Sá dá-
leiddi Tim-
berlake tví-
vegis í þeirri
von að það
mætti hjálpa
honum við
að komast
Justin Timberlake.
yfir aðskiln-
aðinn við
söngkonuna
fogru.
Sá sem dá-
leiddi Tim-
berlake hef-
ur meðal
annars
hjálpað Geri
Halliwell og
Robin Willi-
ams á erfið-
um tímum. Nýjustu fréttir af Tim-
berlake eru þær að hann er farinn
að hitta leikkonuna Alyssa Milano
reglulega þannig að eitthvað virðist
dáleiðslan hafa haft að segja.
Britney Spears.
Roomba
í rykinu
Nú er það dekur á dömurnar
og Roomba í rykinu. Sama
tækni og notuð var á sprengju-
svæðum og í bardögum í
Afganistan er nú mætt heim i
stofu til að ryksuga!
Vélmennið er sextán sentí-
metra hátt og í laginu eins og
fljúgandi diskur. Hann kallast
Roomba, er fyrsta fjöldafram-
leidda vélmennið og kom á
markaðinn f Bandaríkjunum
fyrr í vikunni. Roomba er falur
fyrir 200 dollara eða um 15 þús-
und krónur. Sjónvarpsboltakall-
arnir geta nú verið lausir við
kellinguna á ryksugunni á laug-
ardögum, beint fyrir framan
imbann.
Fredriksson
me&
heilaæxli
Marie Fredriksson, söngvari í
hljómsveitinni Roxette, var í
skyndi flutt á sjúkrahús í Stokk-
hólmi í síðustu viku. Hún hafði
fallið í yfirlið. Niðurstöður rann-
sókna sýna að um lítið heilaæxli
er að ræða. Fleiri rannsókna er
þörf áður en ákvörðun um með-
ferð verður tekin.
Súpermann
sýnir bata-
merki
Christopher Reeve, sem varð
frægur fyrir að leika Súper-
mann, sýnir óvænt batamerki
eftir sjö ára lömun. Samkvæmt
nýlegum skýrslum getur Reeve
nú hreyft fmgurna, úlnliðina og
fótleggi, hann finnur heitt og
kalt, svo og snertingu á 65% lík-
ama sins.
„Um er að ræða óvæntan bata
og alveg ófyrirséðan," sagði Na-
omi Kleitman, stjórnandi rann-
sókna á hryggjarmeiðslum. „í
Ijósi vísindanna er stórmerkilegt
að ná bata og skynjun svona
löngu eftir slys,“ segir Reeve
sem slasaðist 1995. Hann kastaö-
ist af hestbaki og lenti á höfðinu.
Hann hálsbrotnaði og 75% taug-
anna sem bera boðin frá heilan-
um skemmdust svo hann var
lamaður frá hálsi og niður.
Sóðalegir
söngvar
Hrokafulli grínhundurinn
slær f gegn. Um ræðir hand-
brúöu sem hristi vel upp í liðinu
á MTV verðlaunahátíö í síðasta
mánuði. Hundurinn er nú við
upptökur á plötu sinni Come
Poop with Me sem á íslensku
myndi útleggjast Komdu með
mér að kúka.
Að sögn mun vera á plötunni
fullt af sóðalegum söngvum. Út-
gáfudagur hefur ekki verið
ákveðinn en hann verður f vetur
á vegum Warner Bros Records.
Sum lögin eru víst ekki mikið
merkilegri en Prumpulag Dokt-
ors Gunna. íslendingar eru
greinilega alltaf á undan með
alla hluti. -ABH
Russell Crowe slóst
vió karatekonu
Leikarinn góðkunni, Russel Crowe,
lenti í miklum vandræðum f fyrradag
á veitingastað i Bandaríkjunum.
Crowe, sem þekktur er fyrir mikla
skapsmuni, lenti þá í útistöðum við
hóp drykkjumanna. í hópnum var
kona sem er þekktur karatemeistari og
samkvæmt bandarískum netmiðlum
áttu samskipti Crowes og karatemeist-
arans að hafa verið býsna fjörleg.
Þeim sem sáu bar saman um að einn
drykkjumannanna hefði ráðist að
Crowe með sóðalegu orðbragði og það
hefði nægt til að raska ró leikarans.
Áflogunum lauk með því að einka-
þjálfari Crowes kom þremur drykkju-
mannanna í gólfið en ekki fylgdi frétt-
um hvort lögregla hefði verið kvödd á
staðinn til að skakka leikinn.
Russel Crowe lenti í áflogum
við kvenkyns karatemeistara.