Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 agasm DV FH-konur fögnuðu 30 ára Íslandsmeistaratltlí í knattspyrnu: Fótboltagleði í Firðinum Fyrstu Islandsmeistarar í kvennaknattspyrnu áriö 1972, lið FH ásamt Kristófer Magnússyni þjálfara og Albert Guö- mundssyni, þáverandi formanni KSI. Fremri röö frá vinstri: Katrín Danivalsdóttir, Guörún Júlíusdóttir, Anna Lísa Sig- uröardóttir, Brynja Guömundsdóttir, Bima Bjarnason, Gyða Úlfarsdóttir og Svanhvít Magnúsdóttir. Aftari röö frá vinstri: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Margrét Brandsdóttir, Kristjana Aradóttir, Sigfríöur Sigurgeirsdóttir, Sædís Arndal, Sigrún Siguröardóttir, Ólöf Guömundsdóttir og Sesselja Friöþjófsdóttir. Aftari röð frá vlnstri: Gyöa Úlfarsdóttir, Brynja Guömundsdóttir, Kristjana Aradóttir, Margrét Brandsdóttir, Anna Lísa Slguröardóttir. Fremri röð frá vinstri: Sædís Arndal, Ólöf Guömundsdóttir og Guörún Júlíusdóttir. „Það var ákaílega gaman að hittast og við erum auðvitað stoltar af því að vera þessir brautryðjendur í kvennaknattspyrnunni á íslandi," seg- ir Kristjana Aradóttir í Hafnarfirði. Um sl. helgi komu saman fræknar FH- konur en þær voru i því liði félagsins sem vann fyrsta íslandsmeistaramótið í kvennaknattspyrnu utan- húss en það var árið 1972. Þennan leik fyrir þrjátíu árum léku þær á gamla mal- arvellinum við Vallargerði í Kópavogi og öttu þar kappi við lið Ármanns. Lyktir urðu 2-0 fyrir FH. Margret Brandsdóttir og Sædís Arndal meö blkarinn. Sædís Am- dal, Gyöa arsdóttlr og Ólöf Guö- mundsdóttir. Saga kvennakattspymunnar á Is- landi er ekki ýkja löng. Fyrsta óopin- bera heimsmeistarakeppnin í kvennaknattspymu var haldin árið 1970.1 kjölfar þess komust þessi mál á hreyfmgu hér heima og beitti Albert Guðmundsson þáverandi forseti KSÍ sér í málinu. Hafa sumir nefnt hann faðir kvennaboltans á íslandi. „Við byijuðum á því að hittast uppi á Kaplakrika og síðan fórum við í gönguferð á Helgafell, sem er hér í ná- grenni bæjarins," segir Kristjana þeg- ar hún lýsir þessum skemmtilega degi. Að fiallgöngu lokinni var farið í sund og gufubað og síðan hittust vinkon- urnar heima hjá Kristjönu og Þorgeiri Inga Njálssyni, eiginmanni hennar. Þar vora gamlar minningar rifjaðar upp. Kristjana segir að þær fótbolta- konumar hafi upphaflega iagt helst stund á handbolta en síðan hafi þjálfari þeirra, Kristófer Magnús- son, skráð liðið til þátttöku í fót- boltamóti. Þar gekk þeim svona prýðisvel að íslandsmeista- titill vannst. Það sama gerð- ist síðan árin 1974 til 1976 en þá var æft undir leið- sögn Helga Ragnars- sonar. Gleðin heima hjá Kristjönu og Þorgeiri Inga stóð fram und- ir morg- un og þar kættust konur með því 1 móti sem FH-ingum er einum lagið. Anna Lísa Siguröar- dóttir meö lukku- bangsann Kára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.