Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2002, Blaðsíða 9
9
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2002______________________________________
J3V Útlönd
Bandaríkjamenn tjá sig um aðgerðir ísraela í Ramallah:
Umsátrið um Ara-
fat ekki hjálplegt
REUTERSMYND
Palestínumenn styðja forseta sinn
Þúsundir Palestínumanna þustu út á götur borga og bæja á Vesturbakkanum og
Gaza ígær til aö lýsa yfir stuöningi viö forseta sinn, Yasser Arafat. ísraelsher situr
um höfuöstöövar hans og hefur nær lagt þær í rúst.
ísraelskir hermenn skutu
fjóra mótmælendur til bana í
gær þegar þúsundir Palestínu-
manna flykktust út á götur á
Vesturbakkanum og Gaza til
að mótmæla umsátri isra-
elskra hersveita um höfuð-
stöðvar Yassers Arafats í Ram-
allah.
Mótmælaaðgerðimar bloss-
uðu upp laust eftir miðnætti í
fyrrinótt og héldu fram um
miðjan dag í gær. Þær eru
fyrsta merki um stuðning al-
mennings við Arafat frá því
ísraelskir skriðdrekar og jarð-
ýtur lögðu til atlögu gegn höf-
uðstöðvum hans. Aðstoðar-
menn Arafats telja að aðgerð-
imar geti komið í bakið á ísra-
elum.
ísraelar hertu tökin á Arafat
í gær og rufu bæði síma- og raf-
magnslínur til höfuðstöðva
hans. Þá héldu hermenn áfram
að leggja byggingar í höfuð-
stöðvunum í rúst og stendur
nú ekkert eftir annað en sjálf
skrifstofubygging forsetans.
Arafat lét engan bilbug á sér
finna í gær og hét því að gefast
aldrei upp fyrir Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Israels. Þá neitaði
Arafat að framselja rúmlega fimm-
tíu meinta harðlínumenn sem ísra-
elar segja að haldi til í höfuðstöðv-
unum.
„Við munum draga palestínska
fánann að húni yfir múrum, kirkjum
og moskutumum í Jerúsalem. Megi
guð gera mig að píslarvotti," sagði
Arafat í símasamtali við ísraelskan
þingmann af arabaættmn en því var
útvarpað í ísraelska sjónvarpinu.
Bandarisk stjómvöld endurtóku í
gær áhyggjur sínar af aðgerðum
ísraela og sögðu þær „ekki hjálpleg-
ar“ friðarferlinu.
Þjóðir heims hafa fordæmt fram-
ferði ísraela við höfuðstöðvar
Arafats og hafa krafist þess að um-
sátrinu verði aflétt þegar í stað.
RAFGEYMAR
Engar tímapantanir.
Komdu núna!
MAXl
REYKJAVIK • AKUREYRI BÍLAVAKTIN
Opnanlegir að neðan
ðryggisgler
Valin Pine viður
Stíllanleg öndun
Tvöföld vatnsvörn
ÁLYAK
Stórhöfði 33 • Sími: 577 4100
Fax: 577 4101* www.altak.is
o Alveg einstakt
4 mlsm. Útfærslur
Gámaverð
2.900 kr.
Gámaverð:
990 kr.
Svart-hvitt
Gámaverð:
990 kr.
Gyllt
Gámaverð:
1.490 kr.
Gámaverð:
2.900 kr.
Gámaverð
6.900 kr.
Messing og svðrt m Gámaverð:
Gámaverð: t 990 kr.
3.900 kr. p 1 W