Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2002, Blaðsíða 24
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Viðbótarlífeyrissparnaður
AllianzfíTí)
Loforð er loforð
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Ingibjörg um Davíð:
Þetta er della
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
„Þetta er bara
della sem maður
nennir eiginlega
ekki að eiga við,“
segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri um
þau orð Davíðs
Oddssonar forsæt-
isráðherra í þætt-
inum íslandi í dag
á Stöð 2 í gær-
kvöld að hún hefði staðið á bak við
skoðanakönnun um hugsanlegt fram-
boð hennar til Alþingis.
Davíð sagði í þættinum að upplýst
hefði verið í fjölmiðlum nýverið að
Ingibjörg Sólrún hefði haft frum-
kvæði að könnuninni. Gera verður
ráð fýrir að hann hafi verið að vísa til
forsiðufréttar í Fréttablaðinu nýverið
um að borgarstjóri hefði vitað af
könnuninni áður en hún var gerð.
Ingibjörg Sólrún hefur ekki tjáð sig
um fréttina en hafði áður neitað því
að hafa vitað af könnuninni.
„Mér finnst að hún hafi sýnt Össuri
[Skarphéðinssynij afskaplega mikla
fyrirlitningu og virðist líta á hann
sem engan mann fyrst hún hagar sér
eins og hún gerir gagnvart honum,“
sagði Davíð í þættinum í gær og bætti
við: „Þetta fólk er í mægðum, en það
virðist bara vera mægt í aðra áttina."
„Það er mér að meinalausu þótt for-
sætisráðherra stundi hugarleikfimi,"
! "Sagði Ingibjörg Sólrún við DV í gær-
kvöld. -ÓTG
Börn send heim
Lögreglan í Reykjanesbæ hafði í
nógu að snúast um helgina og snerti
á mörgum flötum mannlifsins. Nokk-
uð var um ölvun og óspektir og
þurfti lögreglan að fjarlægja mann af
stórdansleik í Grindavík þar sem
hann hafði lent ítrekað í slagsmál-
um. Hann gisti fangageymslur fram
á gærdaginn.
Þá hafði lögreglan afskipti af
grindvískum ungmennum sem brutu
reglur um útivistartíma. Börnin
voru send heim. Auk þess voru mörg
, börn staðin að því að hjóla án hjálms
en að sögn lögreglu virðist sem mik-
ið sé farið að slakna á hjálmanotkun
barna og veður uppi sú hugmynd að
hjálmarnir séu púkalegir. -jtr
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLfNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRAUÐ
ÞETTA ERU
SÓMAPILTAR!
UV-MriNU PUK
Mánudagur er ýsudagur
Þeir voru aö landa aflanum á Faxagaröi í gær, á sunnudag, tveir sjómenn úr Grundarfiröi. Þarna var þorskur og ágæt
ýsa í þlastkörunum þeirra sem áreiöanlega selst vel í fiskþúðunum í dag. Mánudagur er frá fornu fari ýsudagur, jafn-
vel eftir aö kílóveröið fór uþp fyrir veröiö á lamþakjötinu. Aflinn vargóöur og meöferöin eins og þest veröur á kosið,
góöir kassar og vel ísað í þá.
Undarleg ferð réttindalausra manna á trillunni Katrínu GK:
Grunur leikur á til
raun til smygls
- málið áfram í rannsókn lögreglu
Mennimir tveir, sem sigldu rétt-
indalausir á Sómabátnum Katrinu
GK-817 og gerð var víðtæk leit að á
laugardagsmorgun, eru grunaðir um
tilraun til smygls. Að sögn lögregl-
unnar í Vestmannaeyjum hafa skýr-
ingar mannanna á ferðum þeirra
verið ótrúverðugar og er málið
áfram í rannsókn vegna gruns um
smygltilraun. Samkvæmt upplýsing-
um DV hefur annar mannanna áður
verið viðriðinn fikniefnamál.
Mennimir fóm úr Reykjavikur-
höfn um kvöldmatarleytið á fóstudag
en vanræktu að melda sig inn til til-
kynningarskyldu á tilsettum tíma
um kvöldið, að eigin sögn vegna van-
þekkingar. Hvorugur þeirra hefur
réttindi til að stýra bát og tóku þeir
trilluna, sem er frá Vogum á Vatns-
leysuströnd, á leigu. Þeir greindu til-
kynningaskyldunni frá því að þeir
hygðust halda til Grundarfjarðar og
var það í samræmi við það sem þeir
sögðu eiganda bátsins, að þeir ætl-
uðu að stunda sjóstangaveiði og
skotveiði við Snæfellsnes.
Þangað fóra þeir aldrei heldur
héldu þess í stað suöur fyrir land.
Ástæðuna sögðu þeir síðar við lög-
reglu vera að veðrið væri betra fyrir
sunnan. Þá sögðust þeir hafa ætlað í
hringferð um landið. Mennimir
höfðu meðferðis næga olíu til þess að
sigla til Færeyja og til baka og þeir
vom með kort sem merkt hafði ver-
ið inn á ákveðin staðsetning við eyj-
amar. Athygli vekur sú ákvörðun
mannanna að drekkhlaða bátinn af
olíu fyrir meinta hringferð þegar
hana er hægt að kaupa í hverri höfn.
Um 70 björgunarsveitarmenn leit-,
uðu að trillunni og vora þrír björg-
unarbátar ásamt þyrlu lagðir í leit-
ina. Upphaflega var ekki vitað hveij-
ir væru um borð eða hversu margir
þeir væra. Þegar það kom i ljós gekk
lögreglunni illa að fá upplýsingar frá
ættingjum um tilgang og aðdragand-
ann að leigu á trillunni. Vaknaði þá
grunur um smygl og var málið í kjöl-
farið rannsakað út frá þeirri hlið.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum er málið allt hið dular-
fyllsta en ekki hefur sannast á menn-
ina brot á öðram lögum en siglinga-
lögum. Þeir mega eiga von á því að
verða sektaðir fyrir þau brot.
Valgeir Eliasson, upplýsingafull-
trúi Slysavamafélagsins Landsbjarg-
ar, segir kostnað Slysavamafélags-
ins vegna leitarinnar nema hátt í
tvær milljónir króna í heildina en þá
er ótalinn sá tími sem 70 björgunar-
sveitarmenn gáfu í sjálfboðavinnu.
-jtr
Einkavæðing 1991-2002:
Einkavætt fyrir 36,6 milljarða
- 66 milljarðar enn bundnir í fyrirtækjum sem byrjað er að selja
Frá því ab skipuleg einkavæðing 39 milljarða enn bundna í Símanum.
hófst fyrir rúmum áratug hafa ríkis- í DV á morgun verður itarleg
fyrirtæki verið seld fyrir 36,6 millj-
arða króna á núvirði. Um er að
ræða 29 fyrirtæki sem ríkið hefur
átt að öllu leyti eða að hluta.
Ríkið á enn eignir bundnar i fimm
þeirra fyrirtækja sem byijað er að
selja - Landssímanum, Landsbank-
anum, Búnaðarbankanum, íslenska
járnblendifélaginu og íslenskum að-
alverktökum - og nemur mark-
aðsvirði eignarhlutar rikisins í þess-
um fyrirtækjum 66,4 milljörðum
króna samkvæmt skráðu gengi í
Kauphöll íslands. Sé framgangur
einkavæðingar lagður á þennan
mælikvarða má því segja að einung-
is þriðjungur starfsins sé að baki.
Mestu munar um hve illa gekk að
selja Landssímann enda á ríkið tæpa
fréttaskýring um einkavæðingu þar
sem m.a. er rifjuð upp gagnrýni Rík-
isendurskoðunar á framgang ein-
stakra mála á liðnum árum. Einnig
kemur fram það mat Þórðar Frið-
jónssonar, forstjóra Kauphallar ís-
lands og fyrrverandi Þjóðhagsstofu-
stjóra, að hlutabréfamarkaðurinn
og efnahagslifið almennt ráði við að
fyrrgreind fyrirtæki verði seld á
tveimur misseram eða svo - tíma-
setningar séu ekki vandamál út frá
efnahagslegum sjónarmiðum. -ÓTG
Landssíminn
Dráttur á sölu Símans veldur mestu
um þaö aö enn á eftir aö selja tvo
þriöju hluta þess sem ríkiö á í fyrir-
tækjum sem sett hafa veriö á sölu.
Leikhússtjóri:
Yfirlýsing leikara
um gjaldþrot
orðum aukin
Guðjón
Pedersen.
Guðjón Peder-
sen, leikhússtjóri
Borgarleikhúss-
ins, segir að það
sé orðum aukið
að leikhúsið
stefni í gjaldþrot.
Hann er því
ósammála áskor-
un sem félags-
menn í Félagi ís-
lenskra leikara og
Félagi leikstjóra á íslandi sendu ný-
verið borgarfúlltrúum í Reykjavík.
Eins og DV greindi frá í síðustu
viku lýsa félagsmenn í bréfi sínu
áhyggjum af erfiðri fjárhagsstöðu
Leikfélags Reykjavíkur. Guðjón Ped-
ersen segir að öllum hafi verið ljóst
um langt skeið aö staðan sé erfið en
að þetta bréf sé orðum aukið. Samn-
ingaviðræður standi yfir við borgar-
yfirvöld um að renna stoðum undir
rekstur leikhússins. Viðræðurnar
séu á viðkvæmu stigi.
Edda Þórarinsdóttir, formaður
FÍL, sagði í samtali við DV í gær að
téð áskorun hefði ekki verið send
borgarfulltrúum og vonandi þyrfti
ekki að koma til þess. Staða leikfé-
lagsins væri erfið en unnið væri að
því að ná samningum við borgina.
Að öðra leyti vildi hún ekki tjá sig
um málið.
DV fékk staðfest á ný í samtölum
við tvo borgarfulltrúa í gærkvöld að
áskorunin hefði verið send út ásamt
undirskriftum fjölda félagsmanna.
Ekki náðist hins vegar í Eddu Þórar-
insdóttur á ný til þess að bera undir
hana misræmið. -ÓTG
Beygur í
Grímseyingum
Ragnar
Stefánsson.
Grímseyingar
hafa flestir
hverjir tekið
brothætta hluti
úr hillum og
gluggum og fjar-
lægt þunga hluti
sem geta valdið
hættu. DV ræddi
við Steinunni
Stefánsdóttur í
Grimsey í gær-
kvöldi og spurði um jarðskjálft-
ana. „Fólki er ekki sama og svolít-
ill beygur i mörgum," sagði Stein-
unn og bætti við að eyjarskeggjar
biðu þess nú að öll hætta liði hjá.
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur býr í Svarfaðardal.
Hann sagði í gærkvöldi að gær-
dagurinn hefði verið rólegur.
Núna eru umbrotin komin suð-
austur fyrir Grimsey í 5 kílómetra
fjarlægð á 8 til 10 kílómetra dýpi.
Skjálftinn í gærmorgun var innan
við 3 á Richters-kvarða.
Ragnar er annars bjartsýnn á
að Grímsey sleppi frá eldvirkn-
inni í höfunum í kring. „Sagan
segir ekki frá neinum meiri hátt-
ar skemmdum sem orðið hafa í
eynni af völdum jarðhræringa.“
-JBP
Bifreiðaverkstœði Grafarvogs
Gylfaflöt 24-30, 112 Reykjavík j:
S. 577-4478, Fax: 577-4478
Allar almennar bflaviðgerðir
Þjónustuaðili fyrir Bflabúð Benna