Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2002, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002
17
Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Aðalritstjéri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
A&stoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Skaftahlið 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sfmi: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugeró og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eöa fýrir myndbirtingar af þeim.
Út í hom
Ríkisstjórn ísraels mun að óbreyttu
mála sig út í horn í samfélagi þjóðanna.
Umsátur ísraelshers um höfuðstöðvar
Arafats er enn eitt dæmið um hvemig
ríkisstjórn ísraels missir hægt en örugg-
lega stuðning helstu bandamanna. Vonir
um frið hafa því miður enn einu sinni
beðið skipbrot.
Allt frá 1948 þegar Ísraelsríki var stofn-
að, að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna, hefur þetta litla ríki
gyöinga þurft að reiða sig á stuðning alþjóðasamfélagsins en
fyrst og fremst á Vesturlönd og þá á Bandaríkin sérstaklega.
Linkind Bandaríkjastjómar í garð ísraels á sér ekki aðeins
sögulegar skýringar heldur ekki síður pólitískar, þar sem sam-
tök gyðinga í Bandaríkjunum eru öflugir pólitískir þrýstihóp-
ar sem stjórnmálamenn hafa talið nauðsynlegt að taka tillit til.
En aðfarir ísraelshers síðustu daga hljóta að kalla á endur-
skoðun á stefhu Vesturlanda og þar með Bandaríkjanna í mál-
efnum ísraels og Palestínu. Vesturlönd hafa gripið inn í gang
mála af minna tilefni. Því miður munu líkur á að friður skap-
ist fyrir botni Miöjarðarhafs ekki aukast svo lengi sem stjóm-
völd í ísrael telja sig eiga stuðning Bandaríkjanna vísan.
ÖU ríki hafa þann rétt að verjast utanaðkomandi ógnun -
það er skylda hverrar ríkisstjómar að vernda borgarana.
Þennan rétt eiga ísraelsmenn en þeir geta ekki misbeitt hon-
um með þeim hætti sem gert hefur verið. í gegnum árin hafa
gyðingar notið samúðar og stuðnings íslendinga sem annarra
Vesturlandabúa. Enginn, nema sá er upplifir, getur gert sér í
hugarlund hvernig það er að lifa í stöðugum ótta við grimmd-
arverk fólskulegra hryðjuverkamanna. Gegn slíkri ógn verður
að berjast af fullri hörku. En í baráttunni gegn hryðjuverkum
er ekki hægt að beita öllum tiltækum ráðum á kostnað
óbreyttra borgara. Engin þjóð ætti að hafa meiri skilning á
þessu en ísraelsmenn.
í leiðara DV í apríl síðastliðnum sagði meðal annars: „Veg-
urinn til varanlegs friðar milli ísraels og Palestínu er langur og
þyrnum stráður. Báðar þjóðimar era sundraðar, jafht pólitískt
og trúarlega, þar sem öfgamenn ráða ferðinni. En vonin um
frið og frelsi liggur fyrst og fremst í því að ísraelar sjálfir nái
áttum og knýi Ariel Sharon frá völdum og komi hófsömum
mönnum skynseminnar til valda. En vonin felst einnig í því að
Vesturlönd og þá fyrst og fremst Bandaríkin taki skýra afstöðu
og grípi til aðgerða til að stöðva glæpaverk ísraelshers."
Það þjónar ekki hagsmunum ísraela að gera lítið úr Arafat.
Hagsmunum gyðinga er ekki þjónað með því að draga allan
pólitískan mátt úr leiðtoga Palestínumanna. Hagsmunir ísra-
ela liggja þvert á móti í því að byggt verði upp öflugt lýðræð-
isríki í Palestínu og að Palestínumönnum sé sýnd virðing full-
valda þjóðar.
„Stoltur af stelpunum“
Árangur íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu er
glæsilegur þó draumurinn um
ævintýri á heimsmeistaramót-
inu í Kína á komandi ári hafi
ekki orðið að veruleika. Árang-
urinn er glæsilegur og langt
umfram þær væntingar sem gerðar voru.
Uppgangur kvennaknattspymunnar hér á landi hefur verið
ævintýri og smátt og smátt hefur almenningur fengið áhuga,
eins og berlega kom í ljós þegar íslenska liðið tók á móti lands-
liði Englendinga í Laugardalnum fyrir skömmu.
„Ég er mjög stoltur af stelpunum. Þær hafa sýnt miklar
framfarir og eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna,“ sagði Jör-
undur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari í viðtali við DV í gær.
Undir þessi orð skal tekið og landsliðinu óskað til hamingju
með glæstan árangur.
Óli Bjöm Kárason
DV
Skoðun
Rannveig
Guömundsdóttir
alþingismaöur
Samfylkingarinnar
Kjallari
Peningar og völd
Einkavœðingarnefnd fundar vegna tilboða í Landsbanka og Búnaðarbanka. - „En
spurningin sem vaknar er hvort þetta hafi verið í fyrsta sinn sem Steingrímur Ari
kynntist grímulausu valdinu eða hvort þetta hafi verið kornið sem fyllti mœlinn
hjá vönduðum manni,“ segir Rannveig m.a. ígrein sinni.
Steingrímur Ari kynntist grímulausu
valdinu eða hvort þetta hafi verið
kornið sem fyllti mælinn hjá
vönduðum manni. Menn minnast
þess að Hreinn Loftsson sagði líka af
sér sem formaður einkavæð-
ingarnefndar vegna deilna við
forsætisráðherrann.
Einkavæðing fyrir hvern?
Ríkisstjórnin vill losa mikla
fjárbindingu almennings í
ríkiseignum svo unnt sé að nota féð
til annarra þarfa, svo sem að greiða
niður skuldir ríkisins. En peningar
og vald fara saman og það er alveg
ljóst að ríkisstjórninni er umhugað
um að stýra því hvert peningavaldið
rennur með einkavæðingunni.
Steingrími Ara finnst að aðrir
áhugasamir kaupendur hafi verið
sniðgengnir þrátt fyrir hagstæðari
tilboð fyrir ríkissjóð.
Samson ehf. er tilbúið að kaupa allt
að 45% hlut í Landsbankanum og
verðmætið getur verið um 12
milijarðar króna. Þetta er hátt
hlutfall og miklir fjármunir. Aftur og
aftur hefur það blasað við að stjórn-
arflokkamir skipta með sér
samkvæmt gömlu helminga-
skiptareglmmi - einn fyrir mig, ann-
ar fyrir þig. Meira að segja oíbýður
fulltrúa ríkisstjórnarinnar sem þó
hefur kynnst flestum afkimum
fjármálavaldsins gegnum veru sína í
f] ármálaráðuneytinu.
Samfylkingin vill fara aðra leið í
einkavæðingunni. Hún vili tryggja
dreifða eignaraðild aö bönkunum.
Þingflokkur Samfylkingarinnar fór
fram á að ásakanir í afsagnarbréfi
Steingríms Ara yrðu ræddar í
efnahags- og viðskiptanefnd og málið
verður rætt þar þegar
Ríkisendurskoðun hefur lokið
umfjöllun sinni og skilað áliti.
Samfylkingin vill að sölu verði fre-
stað þar til úttekt lýkur.
Um þetta verður kosið
Oft fær maður að heyra að
stjórnmál snúist um völd og peninga
- að skara eld að sinni köku. Þannig
er það ekki. Stjórnmál snúast um að
fylgja þjóðfélagsþróun og sníða
afskipti ríkisins að þeim veruleika
sem þróunin ber í sér.
Stjórnmálaflokkar hafa ólík stefnu-
mið. Jafnaðarmenn viija réttlátt
þjóðfélag þar sem einkahagsmunir
víkja fyrir almannahagsmunum - þar
sem er eitt þjóðfélag fyrir alla. Að
hvert einasta mannsbam geti átt
aðild að þekkingarsamfélaginu og
mennta- málin byggist á þeim
veruleika. Allir njóti viðunandi
heilbrigðisþjónustu. Atvinnu- og
efnahagsmál beinist alltaf að
almannahag og jafnræði.
Þaö sem blasir við þegar fólk
fylgist með stjórnarverkunum er að
flokkshagsmunir og sérhyggja er í
fyrirrúmi. Að helmingaskiptareglan
lifir. Enn og aftur einn fyrir þig og
einn fyrir mig. Þess vegna er fólk tor-
tryggið. Þess vegna treystir fólk ekki
á að einkavæðing ríkiseigna byggist á
almenningseigninni og almanna-
hagsmunum. Valdið og notkun þess
hefur blasað við á síðustu árum.
Fingur þess beinast að öllum sem
voga sér að andmæla. Þessu þarf að
breyta. Um þetta verður kosið.
„Nýjasta dæmið um
einkavæðingarklúður
ríkisstjórnarinnar er
fyrirhuguð sala
Landsbankans. Afsögn
Steingríms Ara Arasonar,
sem sagði af sér í
einkavæðingarnefndinni út
af vinnubrögðum hefur
vakið mikla athygli. Hann
hefur kosið að tjá sig ekki
frekar um málið vegna
þess trúnaðar sem hann
hefur undirgengist í
nefndinni."
Öllum er þó ljóst af yfirlýsingum
hans að atburðarásin fram að
ákvörðuninni um að ganga til samn-
inga við eignarhaldsfélagið Samson,
sem ekki átti hæsta tilboðið, hefur
verið skrautleg. Spurt er hvers vegna
í ósköpum ekki var gengið til
viðræðna við þann sem átti hæsta
tilboðið.
Það eru hörð orð frá manni sem
kemur úr innsta hring
Sjálfstæðisflokksins og hefur starfað
á æðstu stöðum stjórnsýslunnar
þegar hann segir: „Ég hef setið sem
fufltrúi fjármálaráðherra í fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu frá
árinu 1991 og aldrei kynnst öðrum
eins vinnubrögðum.“ Svo mörg voru
þau orð. Og Steingrímur Ari lagði
áherslu á að hlutlaus aðili færi í
saumana á málinu.
En spurningin sem vaknar er hvort
þetta hafi verið í fyrsta sinn sem
Einkavœðingartrúboð ritstjóra DV
„Segir enda Ríkisendurskoðun, að kaup Trygginga-
stofnunar á þjónustu sjálfstætt starfandi sérfrœði-
lœkna hafi ekki byggst á mati fyrír þörf á þjónust-
unni, auk þess hafi Tryggingarstofnun af ýmsum
ástœðum ekki fullkomið vald á þróun útgjalda vegna
sérfrœðihjálpar. “
Mikil umræða hefur verið
í þjóðfélaginu um heil-
brigðismál síðustu vikur'
vegna fjárhagsvanda
Landspítalans - háskóla-
sjúkrahúss. Það dylst
engum sem fylgst hefur
með málinu að vandi
spítalans er að fjárfram-
lög ríkisins eru of knöpp
miðað við þau verkefni
sem stofnuninni eru falin.
Aukin fjárframlög eru
óhjákvæmileg hvernig
sem á málið er litið.
Ritstjóri DV, Óli Bjöm Kárason,
er á öðm máli. Aukin fjárframlög
heita á hans máli í leiðara 30. ágúst
sl. fjáraustur sem hann varar við og
telur að lausnin sé að auka sam-
keppni inncm kerfisins og gera sam-
komulag við einkaaðila um þjón-
ustu. Þetta er ítrekað í leiðara 2.
september með þeim orðum að
vandinn sé ekki fjársvelti heldur
samkeppnisleysi og skipulagt of-
beldi gagnvart einkarekstri með til-
heyrandi sóun. Afleiðingin sé svo
verri lífskjör en ella. Ritsfjómar-
grein 31. ágúst heitir Rándýrt ráð-
leysi og lýkur á þessum orðum:
„Vandinn felst ekki í því að framlög-
in séu skorin við nögl. Hann felst í
því að þeim er sóað.“
„Útgjöld umfram fjárlög"
Á dögunum kom út skýrsla Ríkis-
endurskoðunar um samninga Trygg-
ingastofnunar við sjálfstætt starf-
andi sérfræðilækna. Þar er úttekt á
einkavæðingunni í heilbrigðiskerf-
inu. Niðurstöðurnar eru sláandi.
Gagnstætt því sem ritstjóri DV held-
ur fram þá gilda samkeppnislög.
Ákvæði þeirra laga hafa girt fyrir að
takmarka hafi mátt aðgang ein-
stakra lækna að samningi við
Tryggingastofnun. Sérfræðilæknir
tilkynnir einfaldlega að hann hafi
hafið störf og fær sjálfkrafa saming
við stofnunina, óháð því hvort þörf
er á fleiri sérfræðingum á viðkom-
andi sviði. Segir enda Ríkisendur-
skoðun að kaup Tryggingastofnunar
á þjónustu sjálfstætt starfandi sér-
fræðilækna hafi ekki byggst á mati
fyrir þörf á þjónustunni og auk þess
hafi Tryggingastofnun af ýmsum
ástæðum ekki fullkomið vald á þró-
un útgjalda vegna sérfræðihjálpar.
Niðurstaðan er að útgjöld sjúkra-
trygginga hafa vaxið ár frá ári og á
tímabilinu 1997-2001 jukust þau um
133% og voru umfram fjárlög öll
árin. Það er mikil hækkun á aðeins
Qórum árum - dæmi: Útgjöld vegna
klínískra sérfræðilækna aukast úr
662 mkr. í 1.547 mkr. Ýmsar skýring-
ar eru á þessum hækkunum eins og
gengur en samt er einkareksturinn
þama í hnotskum, það kerfi sem rit-
stjóri DV, Óli Bjöm Kárason, vill
taka upp. Samkeppni er milli sér-
fræðinga og útkoman er skýr: vax-
andi útgjöld sem erfitt er að hemja.
Spumingin er þessi: Loksins þegar
ritstjórinn tekur fyrir í skrifum sin-
um umrædda skýrslu Rikisendur-
skoðunar, hvenær sem það nú verð-
ur, mun hann þá tala um sóun í sér-
fræöingakerfmu? Og verður hann
sammála Ríkisendurskoðun sem tel-
ur að endurskoða verði hvort eðli-
legt sé að samkeppnislög nái til heil-
brigðisstétta og ef ekki - hvemig vill
hann koma á sem hagkvæmustum
kaupum á heilbrigðisþjónustu?
75% starf - 22,5 mkr.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram að dæmi eru um að sér-
fræðingar séu í starfi á opinberri
sjúkrastofnun en samt með um-
fangsmikinn einkarekstur. Nefnd
eru dæmi um mann í 75% starfi sem
fær 22,5 mkr. í brúttógreiðslu frá
Tryggingastofnun, annar er í 100%
starfi og fær 22,8 mkr. Þetta getur
ekki gengiö; að menn séu á báðum
stöðum.
Ríkisendurskoöun gerir athuga-
semd við þetta og bendir á að í Dan-
mörku eru sérfræðilæknum settar
skorður. Þeim er óheimilt að vera
samtímis í sjálfstæðum rekstri og i
fullu staifi á sjúkrahúsi hins opin-
bera. Greiðsluþátttöku hins opinera
eru auk þess miklar skorður settar í
Danmörku gegnum tilvísunarkerfi
og takmarkanir á fjölda meðferða
sem taka m.a. tfl einstakra sjúk-
linga. Hver er afstaða ritstjórans til
þessarar athugasemdar? Hvaða
skorður vill hann setja á frelsi
manna til að gera út á ríkissjóð?
Þögnin er æpandi.
Heilbrigðisútgjöld lítið aukist
Staðreyndin er nefnilega sú að
skv. tölum Þjóðhagsstofnunar hafa
útgjöld hins opinbera tfl heilbrigðis-
mála ekki vaxið mikið síöustu árin.
Útgjöldin árin 1988 og 1989 voru
7,3-7,4% af landsframleiðslu. Frá
1990-1998 voru útgjöldin hvert ár
lægri og voru á bilinu 6,8% til 7,1%.
Tvö næstu ár hækkaði hlutfallið og
var árið 2000 um 7,6% af landsfram-
leiöslu sem er siðasta árið sem tölur
eru tfltækar um.Hækkunin verður
að mestu skýrö með launahækkun-
um í kjölfar svonefndra aðlögunar-
samninga árið 1998 sem fjármála-
ráðuneytið gerði.
Athyglisvert er að framlög til al-
mennra sjúkrahúsa, sem eru stærsti
liðurinn í opinberum heilbrigðisút-
gjöldum, eru árið 2000 lægri en var
árin 1987-89, mælt sem hlutfafl af
landsframleiðslu. Heilbrigðisútgjöld
hafa í raun ótrúlega lítið aukist sið-
ustu 15 árin. Því fer nefnilega fjarri
að þessi málaflokkur einkennist af
stöðugum fjáraustri eins og Óli
Bjöm Kárason heldur fram. En hvað
gera menn ekki til þess að koma
óorði á kerfið og ýta undir einka-
rekstur?
Sandkom
sandkorn@dv.is
Klceðning (aðallega úr)
Bæjarstjóm Kópavogs hefur sem
kunnugt er ekki viljað fara aö for-
dæmi Reykjavíkurborgar og banna
einkadans eða kjöltudans á nektar-
dansstöðum. Gárungar hafa af
þessu tilefni minnt á að oddviti
sjálfstæðismanna í bæjarstjóminni,
Gunnar I. Birgisson, rekur fyrir-
tækið Klæðningu. Gerð er tiflaga um að í þakkarskyni
við Gunnar og varðstöðu hans um atvinnufrelsi nektar-
dansmeyja verði nafni nektardansstaðar bæjarins
breytt og hann nefndur Afklæðning ...
Vinstri hcegri snú á kreik
Snorri Ásmundsson vakti athygli fyrir skörulega
frammistöðu sem leiðtogi stjóm-
málahreyfingarinnar Vinstri hægri
snú í borgarstjómarkosningunum í
vor.
Sjálfsagt hefur atvinnutilboðum
rignt yfir Snorra en hann hefur kos-
ið að hefja sjálfstæðan rekstur.
Hann hefur stofnað símaráðgjafar-
þjónustu og heitir því að „leysa
vanda fólks og fyrirtækja með ýms-
um hætti".
í tilkynningu er Snorra meðal annars talið það til
tekna að hann sé í góðu sambandi við æðri máttarvöld.
„Ef Snorri hefur ekki svarið við vandanum sjálfur, hef-
ur harm samband við dulræn öfl sem aðstoða hann í leit
að sannleikanum ...“
Snorri mun vera við símann núna og ráögjöfin kost-
ar þrjú hundruð krónur á mínútuna ...
Ummæli
S®8Sii
■ ' ■
Mægð í aðra áttina
„Hún stóð fyrir [skoðanakönnuninnij
sjálf, aðeins örfáum vikum eftir að hún
hafði lofað kjósendum allt öðrum hlut-
um. [...] Mér finnst að hún hafi sýnt
össuri afskaplega mikla fyrirlitningu
og virðist líta á Össur sem engan mann,
fyrst hún hagar sér eins og hún gerir
gagnvart honum. [...] Þetta sem borgar-
stjóri gerði meö sínum félögum gagnvart Össuri er allt
með miklum ólíkindum. Þetta fólk er í mægöum, en
það virðist bara vera mægt í aðra áttina."
Davíö Oddsson i íslandi í dag
Hugarleikfimi
„Þetta er bara della sem maður nenn-
ir eiginlega ekki að eiga við. Það er
mér að meinalausu þótt forsætisráð-
herra stundi hugarleikfimi."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í DV
Ekkert samráð
„Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum að borgar-
stjórinn í Reykjavík hafi komið að undirbúningi
og/eða vitað um skoðanakönnun sem Kreml.is lét gera
í lok águst sl. Þetta er einfaldlega rangt. KREML.IS
hafði frumkvæði að gerð könnunarinnar og hafði sam-
band við GALLUP vegna gerð hennar. Ekki var haft
samráð við borgarstjórann í Reykjavík né tittnefnd
könnun borin undir hann.“
Ritstjðrn Kreml.is
Þar til rétt niðurstaða fæst ...
Það þurfti nú engan Nostradamus til að sjá þetta
fyrir. Eins og margir höfðu spáð þá á nú að leggja svo
kallaðan Nice-samning aftur undir þjóðaratkvæði á ír-
landi. [...] Ef tillaga um aðild að Evrópusambandi er
felld í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá er kosið aftur. Ef að-
ild að einstökum sáttmála, svo sem Maastricht-sátt-
málanum eða Nice-sáttmálanum, er felld í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, þá er kosið aftur. Ef aðild að mynt-
samstarfi er felld í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá er kosið
aftur. En ef slík tillaga er samþykkt, hvað þá? Þá er
aldrei kosið aftur. Þegar menn einu sinni eru komnir
inn í Evrópusambandið, þá er engin leið út. Stað-
reyndin um Evrópusambandið er einfaldlega sú að
það sleppir aldrei neinu sem það einu sinni hefur
komist yfir.“
Vefþjóöviljinn á Andriki.is
Þaö tapar alltaf einhver
Bubbi
Mortens
tóntistarmaöur
Kjallari
Eitt skref til hægri. Hann
sá vinstri öxl andstæö-
ingsins síga eitt sek-
úndubrot og vissi hvað
kæmi næst, vinstri krók-
ur. Á sama augnabliki lét
hann höggiö ríða. Hægri
höndin þaut þráöbein,
beint í mark.
Hann fann hvemig kraftur höggs-
ins leiddi upp eftir handleggnum,
frá öxlinni niður eftir bakinu, niðm-
í hælana. Hann sneri sér við og
gekk í átt að hominu sínu, án þess
að líta um öxl. Hann vissi hvað
verða vildi.
Hann rétti hendumar upp í átt til
himins, eins og hann væri að segja
takk fyrir, Guö.
Takk fyrir þessa hnefa, takk fyrir
að ég skuli vera sá sem er uppistand-
andi. Harm heyrði hann aldrei falla,
gnýrinn frá fólkinu yfirgnæfði allt
hljóð en hann vissi að hann stæði ekki
upp. Ljósið í honum hafði slokknað
áður en hann kyssti strigann.
Að „sjá“ höggið
Klukkustund seinna sat maður í
búningsherbergi ásamt konu
sinni og tveimur sonum. Þjálfar-
inn, gamafl maður um sjötugt,
sagði í huggandi tón: „Þú gast
ekki séð það koma. Enginn mann-
legur máttur hefði getað séð þessa
hægri hönd hjá honum í kvöld.
Þú gerðir þitt besta“.Staðreyndin
var sú að taugaviðbrögðin voru
orðin sekúndubroti hægari en
þau voru áður, og í atvinnu-
mannahnefaleikum skilur það á
milli hvort þú „sérð“ höggið eða
ekki.
gleðin og fjörið var. Sá eldri
sagði: „Þú hefðir átt að sjá hann
þegar hann var upp á sitt besta.“
Og teygði sig eftir glasi sem var
á bakka við hliðina á þeim. Sá
yngri sagði: „Ég sá hann á spólu
þegar hann barðist við...“ en
lauk ekki setningunni, heldur
brosti til ungrar konu sem var
að koma inn og eins og fluga sem
sækir i ljósið hvarf hann í átt til
hennar. Sá gamli tautaði viö
sjálfan sig: „Ég sá alla bardagana
hans. Hann var góður...“
Eitt tap og þú varst kominn á . ,wll ...
byrjunarreit. Eitt tap og þú varst ÁS- i/>J, Hfiy®®- 'V;' JP^' I minningu Greg Page
gleymdur áður en þú stóðst upp -sSSfe «í» Atvinnumannahnefaleikar er
eftir rothöggið. Eitt tap og efinn HMp / •;* |HKk , ■ J eifiðasta íþróttagrein sem stund-
kom iskaldur og byrjaði að naga H|^Á Æ!r Æ HÉHÉiáP^ .jjj uð er i hciminum og i dag geri ég
sjálfið. Synirnir horfðu á pabba F ötx. . |1 .JHB undanþágu og skrifa í minningu
sinn, hetjuna, eins og þeir væru t .■■•jÉm mjm boxara sem heitir Greg I’age.
að horfa á draug og sáu skvndi- yjjHÉgHra •. ;/■;■?¥ Wm r' . 1| Hann baröist á árunum frá
lega gamlan inann sitja meö liang- ’ «g|g&U|H jf ™ i 1978 2001. Hann barðist fyrir lifi
andi höfuð og I sínu bardaga
Og eiginkonan fann ltversu ^á seinasta Þið þekkið þenn-
mikið hann þjáðist fyrir að þau an boxara ekki neitt, fæstir gera
skyldu sjá hann svona nakinn í -1 það nema kannski harðasti
ósigrinum. I Hi' ■ ■.Æfrr :-•; .« jár kjarninn sem fylgist með þessari
Verkirnir voru komnir, lungun I S I íþrótt
loguöu, höfuðverkurinn þungur og jBHBr’®'‘'¥S ' mr Hann náði því að verða heims-
massifur. bauö upp á þríréttaða IH^JHff|fffif%W ' tti* meistari stutta stund
máltíð, ógleði með sjóntruflunum, ^HBHBIHÍllÍ BrúÍM* - ‘-_______'____________ | Konan hans sagði, að hann
ógleði með vægu máttleysi, ógleði Tafck fvrir hewa hnefa takk fvrir að ée skuli vera sá sem er heföi farið að berjast afturtU að
með brotnu sjáifstrausti. Nýrun .iaKK Tvnr Pessa nneja, taKK jyrir ao eg SKuu vera sa sem er þau gætu borgaö skuldir En j
dingluðu laus í orðsins fyllstu merk- uppistandandi. Hann heyrði hann aldrei falla, gnýrinn frá folk- þessari íþróttagrein eru gamlir
ingu. Það blæddi enn úr skurði fyr- • yfirgnœfði allt hljóð en hann VÍSSÍ að hann stœði ekki upp. menn faUbyssufóður fyrir þá
rr ofan hægra augað sem var sokkið fJ * 1 J \ ^ yngn, ems og í hmu daglega lifi
og bólgið, eitt, tvö rifbein brotin. Ljósið í honum hafði slokknað áður en hann kyssti Strigann. vmnumarkaðarins.___________________________
Hnúamir skinnlausir, bólgnir á kafi
í ísfotu. - Hann var gamall maður í
heimi hnefaleikanna.
Hann var góður...
Niðri í bæ, á hótelinu, þar sem
þau gistu, beið fjöldi af fólki, vinir
og blaðamenn en stemningin var
ekki sú flottasta sem sést hafði.
Menn reyndu samt að halda
höfði.“Hann barðist drengilega,"
sagði eldri blaðamaður. „Hann gerði
sitt besta,“ sagði hann við yngri
kollega sirm sem hafði mætt fyrir
slysni því hans maður hafði unnið.
Hann var á leiðinni þangað sem
Mér fannst hann eiga það skfl-
ið að í landi sem hann sennilega hef-
ur aldrei heyrt um væri til maður
sem vissi hver hann væri og hefði
séð hann berjast, þó að hann komi
aldrei til með að frétta það.