Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Page 1
IKpi3ll
wfgjb; <ÚMá
HÖFUM ALLA BURÐI TIL AÐ STANDA
OKKUR í SUPER CUP. BLS. 29
!On
LT»
DAGBLAÐIÐ VISIR
245. TBL. - 92. ARG. - FOSTUDAGUR 25. OKTOBER 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Tryggvi Jónsson í Helgarblaðsviðtali:
Baugur ekki hafinn
yfir réttmæta gagnrýni
í Helgarblaði DV á morgun verð-
ur ítarlegt viðtal við Tryggva Jóns-
son, sem hættir um mánaðamótin
sem forstjóri Baugs eftir fjögurra
ára starf hjá félaginu. Hann hefur
sem kunnugt er keypt meirihluta í
Heklu í félagi við aðra fjárfesta. í
viðtalinu ræðir Tryggvi meðal ann-
ars um ímynd Baugs, lögreglurann-
sóknina á hendur
sér og stjórnarfor-
manni félagsins,
matvöruverð og
sóknarfærin í
Heklu, en einnig um
Bitlana og Hag-
kaupsbandið.
Tryggvi segir eng-
an skugga hafa borið á samstarf sitt
við eigendur Baugs. „Þvert á móti
hafa þeir stutt mig í hvívetna frá
því að ég sagði þeim að þessi breyt-
ing væri orðinn raunhæfur mögu-
leiki. Þeim flnnst eðlilegt að menn
vilji spreyta sig i eigin rekstri."
Hann segir margt í gagnrýninni á
Baug óréttmætt og órökstutt. Fyrir-
tækið sé hins vegar ekki hafið yflr
gagnrýni og sumt kunni að eiga við
rök að styðjast.
Um meintar þvingunaraðgerðir
Baugs gegn heildsölum segir
Tryggvi: „Það hefur ekki verið
stefna Baugs að beita heildsala
þvingunum eða hótunum. Það kann
að vera að einhverjum einstakling-
um innan fyrirtækisins hafi orðið of
heitt í hamsi - það höfum við heyrt.
í fyrra setti Baugur sér eigin reglur
um samskipti við heildsala, eftir
þeim hefur verið farið og heildsalar
segjast í kjölfarið flnna gjörbreytt
viðhorf frá Baugi. Þannig hefur rétt-
mæt gagnrýni leitt af sér lærdóm og
úrbætur." -ÓTG
Ráðherra
ri
Árni Mathiesen sjávarútvegsráöherra gekk síöasta spölinn í skólann meö dætrum sínum eftir aö hafa lent í árekstri á mótum
Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.
Árni M. Mathiesen:
Töluverður
skellur
„Ég var að tala i símann og ekki
að fylgjast mikið með akstrinum og
brá því illa því þetta var töluverð-
ur skellur. En það sluppu allir
ómeiddir og ég tók á það ráð að
drifa stelpurnar í burtu og beint í
skólann enda ekki langt að fara,“
sagði Ámi Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra við DV eftir að ráðherra-
bíll hans hafði lent í árekstri á hin-
um umdeildu gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar um áttaleytið í morgun.
Ámi var farþegi í ráðherrabílnum
ásamt tveimur dætrum sínum en
bílstjóri hans var við stýrið. Engan
sakaði í árekstrinum.
Áreksturinn varð þegar bílstjóri
Áma var um það bil að taka beygju
vestur Miklubraut. Kom þá bíll ak-
andi Kringlumýrarbrautina úr
gagnstæðri átt og lenti á ráðherra-
bílnum með nokkrum skelli.
Ámi haföi ætlað að skutla dætr-
um sínum í skólann og ákvað að
ganga með þeim siðasta spölinn.
Síðan skundaði hann beint á fund í
ráðuneytinu og átti síðan að mæta
á ríkisstjórnarfund.
Ámi bar sig vel eftir árekstur-
inn og sagði merkilegt að lenda í
þessu í lok kjördæmaviku þar sem
miklar umræður hefðu verið um
umferðamál. Þá hefði verið heit
umræða um nákvæmlega þessi
gatnamót. „Ég fer þama um mörg-
um sinnum á dag og þekkti ástand-
ið á gatnamótunum því vel en
svona atvik kemur manni alltaf í
opna skjöldu,“ sagði Ámi.
-hlh
TÓNLISTARDAGAR
DÓMKIRKJUNNAR:
Litil
listahátíð
með stórt
hjarta
14
FÓKUS í MIÐJU
BLAÐSINS:
íslensk
fegurð í
Lúxemborg
PHILCOU
Heimilistæki
Lífevrissparnaður I I Landsbankinn