Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Page 8
HVlTA HÚSIÐ / SlA 8 ______________________________________________________FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 Fréttir DV DV-MYND HARI Rústir einar viö Laugaveginn Hrollur fer um fólk þegar þaó lítur inn í hinar brunnu íbúöir aö Laugavegi 40 og 40a - nánast allt er ónýtt, sviöiö til ösku og jafnvel á kafi í vatni. Söfnun hefur fariö af staö þar sem iandsmenn sýna samhug. Stuðningur við íbúana sem misstu allt sitt í brunanum: Söfnun, leiksýn- ingar og þakklæti íbúum á Laugavegi sem misstu aleigu sína í brunanum um helg- ina hefur borist ýmis stuðningur frá almenningi og fyrirtækjum. Söfnun er í gangi og ýmislegt er í bígerð í menningarlífinu sem styrkja mætti þá sem sárt eiga um að binda t.a.m. leiksýningar. „Við viljum koma á framfæri þakklæti fyrir stuöninginn," sagði stuðningsmaður við DV. Margir hafa hringt til fólksins, boðað komu sína og veitt ýmsa aðstoð, ekki síst á þann hátt að gefa húsgögn, föt og ýmislegt ann- að - allt sem hugsanlega getur að gagni komið fyrir þá sem allt missa. „Þetta er allt milli himins og jarðar,“ sagði stuðningsmaður- inn. Ef fólk vill leggja inn á reikning þá heitir hann: Ásta, Gunna, Linda. Kennitalan er 180374-5079 en númerið er 1150-05-409500. Rannsóknin heldur áfram Lögreglan heldur áfram að rannsaka málið. Margir hafa spurt með hvaða hætti sá sem lög- reglan grunar um íkveikju hafi komist inn í portið þar sem eldur- inn kviknaði. Maðurinn hefur sjálfur gefið þær skýringar að portið hafi verið ólæst en þar eru tvöfaldar dyr. Þetta kemur reynd- ar heim og saman við framburð vitna enda sáu þau manninn halda rakleiðis gegnum dymar og inn í port, um 20 minútum áður en eldsins varð vart. Dyrnar voru læstar Maðurinn kveðst sjálfur hafa ætlað að kasta af sér vatni en hætt við. Hann hafi tekið bol sem var þarna. Þetta kemur heim og saman við það sem íbúar hafa borið. Á hinn bóginn segjast íbú- ar telja öruggt að dyrnar hafi ver- ið læstar. Ekki er hægt að komast inn í portið nema gegnum um- ræddar dyr, sem ávallt eiga að vera læstar. Baka til verða menn að fara niður háa veggi til að slíkt sé unnt en það er ekki á færi nema algjörra sérfræðinga, sam- kvæmt upplýsingum DV. Hinn grunaði sagði við DV í gær að hann hefði tekið bolinn með sér - reyndar talið að hann hefði þar með sennilega gerst brotlegur. Hann var handtekinn með bolinn i fórum sínum. -Ótt Já, þú færö eina tölvu Linda Þar sem Opnum kerfum var kunnugt um aö Linda Blöndal, einn íbúanna á Laugavegi 40a, heföi misst allt sitt og hefði ávallt notaö Hewlett Packard tölvu var ákveöiö aö gefa henni eina nýja. við kröfur Norðmanna. Norges Fiskarlag telur að Noregi beri 80% af síldarkvótanum i ljósi út- breiðslu síldarinnar síðustu misserin en kvóti Norðmanna er nú um 57% af heildarkvótanum. Ef aðeins sé litið til þeirra svæða þar sem síldin veiðist þá eigi Norðmenn og Rússar einir rétt á því að stunda veiðamar. Samningaviðræður um kvóta úr norsk-íslenska síldarstofninum eru í hörðum og að því er virðist illleysan- legum hnút. -GG Norsk-íslenski síldarstofninn: Norðmenn vilja íslendinga út Norges Fiskarlag, samtök sjó- manna og útgerðarmanna í Noregi, telja að aðeins Noregur og Rússland hafi rétt tU veiða úr norsk-íslenska sUdarstofninum. Það stafi að því að aðeins þessi lönd geti talist eiginleg stramjríki þegar sUdin er annars veg- ar. Þetta kemur fram i Fiskeribladet en þar er rætt við Jan Birger Jörgen- sen frá Norges Fiskarlag sem tók þátt í samningaviðræðunum um skiptingu sUdarkvótans í Pétursborg í Rúss- landi í síðustu viku. Jörgensen segir að þess sé vænst að norsk stjómvöld sýni festu í samningaviðræðunum og leiði þær tU lykta þannig að útkoman verði ásættanleg. Það verði að hafa það þótt ekki takist samningar fyrir áramót ef ekki verði komið tU móts Síldarlöndun Forsvarsmenn Norges Fiskarlag telja aö íslendingum beri ekki neinn kvóti í norsk-íslenska síldarstofninum, aöeins Norömönnum og Rússum. l 1 f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.