Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Page 21
21 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 DV r Tilvera Helen Reddy 61 árs Söngspíran Helen Reddy er afmælisbam dagsins. Hún skaust ð stjömuhimin- inn er hún söng óaðfínnanlega lagið „I don’t know how to love him“ eftir Andrew Lloyd Webber. Eftir það hefur hún gefið út fjölmargar hljómplötur og unnið til fjölda verðlauna fyrir söng sinn og þar á meðal hin virtu Grammy verðlaun. xiuamumi u -$1 Gildir fyrir laugardaginn 26. október Vatnsberinn (20. ian,-i8. febr.i: ■ Ótti sem þú hefur bor- ið í brjósti við niður- stöðu ákveðins máls reynist ekki á rökum reTstur og þú getur tekið gleði þína á ný. Fiskarnir (19, febr.-20. mars): Misskilningur kemur lupp á vinnustað þínum og á eftir að leiða af sér leiðindi og það tek- ur tima að leiðrétta þau. Happa- tölur þínar eru 8, 34 og 35. Hrúturinn (21. mars-19. aprii): . Þú hugar að sumarfríi 'þínu og þar er um marga kosti að velja. Þú þarft að sinna öldruðum og sjúkum og það tekur töluverðan tíma. Nautlð (20. apríl-20. maí): Þú lætur gamlan draum rætast og sérð ekki eftir því. f félags- lífinu verður mikið um að vera á næstunni. Happatölur þínar eru 6, 9 og 35. Tyíburarnír (21. mai-21. iúní): Þú tekur þátt í leik 'sem gefur þér aukið sjálfstraust. Þú verður leiðandi í samskiptum við vini þína. Happatölur þínar eru 7, 9 og 30. Krabblnn (22. iúní-22. iúin: Gamall vinur skýtur kupp kollinum og á eft- ir að hafa heihnikil ____ áhrif á gang mála hjá þér á næstunni. Einhver biður þig um greiða. Uónlð (23. iúií- 22. áeústl: ■ Þú ert mun bjartsýnni en þú hefúr verið lengi og tilbúinn að takast á H við flókin verkefni. Þér verður ágengt í heilsuræktar- átaki þínu. Mevian (23. áeúst-22. sepU: A. Garðvinna tekur mikið af tíma þinum og ef þú ^^V^l-átt ekki garð þá ein- ^ f hvers konar útivinna. Náttúrubamið í þér kemur upp á yfirborðið. Vogln (23. sept.-23. okt.): J Þú þarft að vanda þig í Oy samskiptum þínum við \ f erfiða aðila og er samt r f ekki víst að það dugi til farsælla samskipta. Sumir eru bara svona. Sporðdreklnn (24, okt.-2l. nóv.): Þú kynnist einhverjum sem á eftir að hafa pmikil áhrif á þig. Ekki er ólíklegt að ástin komi verulega við sögu á næst- unni. Bogmaðurinn (22. nðv.-21. des.): ÍÞér gæti sinnast við 'ástvin þinn, en með ró- legum viðræðum verð- ur hægt að leysa úr þeim vanda, enda er hann á mis- skilningi byggður. Stelngeltln (22. des.-19. ian.): Þú verður beðinn að ráðleggja vinum þín- um í máli sem ekki er auðvelt viðfangs. Gættu þess að gleyma engu sem þú þarft að gera. Sextugur Hilmar B. matreiðslumeistari Hilmar Bragi Jónsson matreiðslu- meistari, starfsmaður hjá Iceland Seafood Corporation, búsettur i Williamsburg í Virginlu I Banda- ríkjunum, er sextugur í dag. Starfsferill Hilmar fæddist á ísafirði og ólst þar upp til fimm ára aldurs hjá föð- urömmu sinni og föðursystkinum á Ljárskógum til tólf ára aldurs og síðan hjá móður sinni í Keflavík. Hilmar lauk námi sem mat- reiðslumaður frá Hótel- og veitinga- skóla íslands 1966. Hann var mat- reiðslumaður á Hótel Loftleiðum í fjögur ár, eitt ár yfirmatreiðslumað- ur á Hótel Esju og í ellefu ár veit- ingastjóri á Hótel Loftleiðum. Hilmar stofnaði og ritstýrði tíma- ritinu Gestgjafanum 1981-88, ásamt konu sinni, og stofnaði og rak Mat- reiðsluskólann okkar 1988-90. Hann hefur unnið ýmis verkefni, aðallega fyrir Iceland Seafood i Bandarikjun- um og íslenskar sjávarafurðir hér á landi. Hilmar sá um veislur fyrir forseta íslands um margara ára skeið frá 1981, einnig fyrir Útflutn- ingsráð íslands, Flugleiðir og fleiri aðila á erlendum vettvangi og hefur starfað fyrir Iceland Seafood Cor- poration í Bandaríkjunum sl. átta ár. Hilmar er meðlimur og einn stofnenda Klúbbs matreiðslumeist- ara og var forseti hans í átta ár, meðlimur í Club des Chefs, forseti Chaine des Rotisseurs á íslandi, meðlimur í Nordisk Kokkechefs Federation og WACS. Hann hefur unnið til guUverðlauna fyrir mat- reiðslu og hlotið ýmsar aðrar viður- kenningar. Fjölskylda Hilmar kvæntist 16.11. 1963 Elínu Káradóttur, f. 23.7. 1942, fyrrv. ráðs- konu forseta íslands á Bessastöðum. Jónsson Foreldrar hennar: Kári Þórðarson, fyrrv. rafveitustjóri í Keflavík, og Kristín Elín Theodórsdóttir hús- móðir. Börn Hilmars og Elínar: Jón Kári, f. 30.10. 1965, viðskiptafræð- ingur í Reykjavík; Gyða Björk, f. 13.1. 1969, nemi við KHÍ. Systkini Hilmars, sammæðra: Magnús Brimar Jóhannsson, flug- stjóri i Reykjavík; Hanna Rannveig Sigfúsdóttir, húsmóðir í Hafnar- firði; Drífa Jóna Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjómar Keflavíkur; Sjöfn Ey- dís Sigfúsdóttir. tollvörður í Hafnar- firði; Snorri Már Sigfússon, búsett- ur í Reykjavík. Foreldrar Hilmars: Jón Jónsson, f. 28.3. 1914, d. 7.10. 1945, skáld, kennari og meðlimur í MA kvartett- inum, og Jónína Kristín Kristjáns- dóttir, f. 3.5. 1922, húsmóðir og leik- stjóri. Fósturfaðir Hilmars: Sigfús Krist- jánsson, tollfulltrúi. Elín, kona Hilmars, varð sextug þann 23.7. sl. í tilefni afmælanna eru þau hjónin nú stödd um borð í Camival Inspiration á siglingu um Karíbahafið. Valdimar Óskarsson fyrrv. sveitarstjóri á Dalvík Valdimar Óskarsson, skrifstofu- maður og fyrn'. sveitarstjóri, Lækjasmára 2, Kópavogi, er áttræð- ur í dag. Starfsferill Valdimar fæddist á Hverhóli í Skíðadal og ólst þar upp og á Dal- vík. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri 1945, og verslunarprófi frá VÍ 1948. Valdimar starfaði á skrifstofu KEA á Dalvík 1948-49, var starfs- maður hjá Dalvíkurhreppi 1949-53,, sveitarstjóri Dalvíkurhrepps 1954- -64, fyrsti sveitarstjóri landsins. Valdimar rak verslun á Dalvik 1955-61. Hann flutti suður 1964, var skrifstofustjóri yfirfasteignamats- nefndar í Reykjavik 1964-72 vegna Aðalmats fasteigna á íslandi 1970, starfrækti bókhaldsskrifstofu í Reykjavík 1973-96 og sá m.a. um út- reikning fasteignagjalda fyrir fjöl- mörg sveitarfélög á landinu. Valdimar var umboðsmaður Brunabótafélags íslands 1959-64, formaður sóknarnefndar á Dalvík 1954-62, stjómarformaður Útgeröar- félags Dalvíkinga hf. 1959—64, for- maður Ungmennasambands Eyja- fjarðar 1952-56, formaður ung- mennafélagsins Víkverja í Reykja- vík 1965-73 og formaður Glímusam- bands íslands og formaður Svarf- dælingafélagsins í Reykjavík og Ey- firðingafélagsins í Reykjavík. Fjölskylda Valdimar kvæntist 1.12.1950 Val- gerði Marinósdóttur, f. 5.12.1927, d. 18.3.1963, húsmóður. Hún var dóttir Marinós Þorsteinssonar, bónda og oddvita í Engihlíð í Árskógshreppi, Eyjafjarðarsýslu, og k.h., Ingibjarg- ar Einarsdóttur Jjósmóður. Valdimar kvæntist 28.7. 1984, Gerði Þorsteinsdóttur, f. 4.5. 1936, húsmóður. Hún er dóttir Þorsteins E. Þorsteinssonar, bónda og báta- smiðs á Hálsi í Dalvikurbyggð, og Jófríðar Þorvaldsdóttur húsfreyju. Börn Valdimars og Valgerðar eru Fjóla Bergrós, f. 1951, maki Ómar S. Karlsson, f. 1949; Ingimar Berg- steinn, f. 1952, d. 1995, maki Bjarn- veig Pálsdóttir f. 1954; Óskar Bragi, f. 1955, maki Jónína Ólafsdóttir f. 1955; Snjólaug Björk, f. 1956; Einar Bjarki f. 1960. Böm Valdimars og Gerðar eru Aðalsteinn, f. 1969; Sigurbjöm, f. 1972, en sambýliskona hans er Jón- ína Ólafsdóttir, f. 1973; Lilja, f. 1976, en sambýlismaður hennar er Vil- hjálmur R. Vilhjálmsson, f. 1977. Systkini Valdimars: Aðalsteinn, f. 1916, d. 1999; Kristín, f. 1920, búsett í Dæli í Skíðadal; Friðrikka Elísabet, f. 1925, búsett á Dalvík; Ástdís Lilja, f. 1934, búsett í Syðra-Holti í Svarf- aðardal; Ámi Reynir, f. 1934, búsett- ur á Dalvík. Foreldrar Valdimars voru Óskar Kristinn Júlíusson, bóndi og vega- verkstjóri á Kóngsstöðum í Skíða- dal, og Snjólaug Aðalsteinsdóttir, húsfreyja þar. Valdimar dvelur nú á Hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Sextug Allir íþróttaviðburðir í beinni á risaskjám. Pnnl. Enður matseðill. Tökum að nkkur húpa, starfsmannafélög. Stnrt ng gntt dansgnlf. Ambjörg María Sveinsdóttir, húsfreyja á Tjöm n á Mýrum við Hornafjörð, er sextug í dag. Starfsferill Ambjörg María fæddist á Sauðár- króki og eyddi þar æskuárunum. Hún fluttu til Homafjarðar 1960 og gifti sig þar sama haustið. Þau hjónin bjuggu að Sveinafelli í Nesjum i tíu ár, þá í Ámanesi og loks í Hæðargarði í Nesjahverfi. Fjölskylda Eiginmaður Ambjargar var Am- bjöm Sigurbergsson, f. 21.2. 1936. Hann er sonur Sigurbergs Ámason- ar og Þóru Guðmundsdóttur. Arn- björg og Ambjöm slitu samvistum. Böm Ambjargar og Ambjörns eru Sigurbergur Ambjömsson, f. 28.10.1960, búsettur á Hauganesi við Eyjafjörð, en kona hans er Sigríður Þóra Traustadóttir og eru synir þeirra Jón Óli og Ámi Björn; Har- aldur Sveinn Ambjömsson, f. 19.7. 1962, búsettur í Gimli í Kanada en kona hans er Marie Ann og eru böm þeirra Dana María, Heiða Lynn og Jónas Davíð; Jóhanna Val- gerður Ambjömsdóttir, f. 6.4. 1965, búsett á Homafirði, en maður henn- ar er Brooks A. Hood og eru böm hennar Ambjöm Þórberg Kristjáns- son, Elisabeth María Hood, Alex- ander Jósep Hood og Robert David Hood; Bjarki Þór, f. 10.5. 1968, bú- settur á Homafirði, en dætur hans eru íris María Bjarkadóttir og Frið- björg Helga Bjarkardóttir. Systkini Ambjargar em Fjóla Ragnhildur Hólm Sveinsdóttir, f. 1932, d. 2000, var búsett á Sauðár- króki, en eftirlifandi maður hennar er Gísli Gunnarsson; Valgerður Nikólína Sveinsdóttir, f. 1.6. 1935, búsett í Kópavogi, en maður hennar Gunnar Haraldsson; Ingólfur Jón Sveinsson, f. 9.12. 1937, búsettur á Lágmúla á Skaga, en kona hans er Anna Pálsdóttir; Haraldur Jóhann Sveinsson, f. 1.3. 1939, d. 1953. Foreldrar Ambjargar voru Sig- valdi Þorsteinn Sveinn Nikódemus- son, f. 30.9. 1908, nú látinn, búsettur á Sauðárkróki, og k.h., Pálmey Helga Haraldsdóttir, f. 14.10. 1909, nú látin, húsfreyja. Foreldrar Sveins voru Nikódem- us Jónsson og Valgerður Jónsdóttir sem bjuggu í Fljótum í Skagafirði. Foreldrar Pálmeyjar voru Harald- ur Sigurðsson, Eyfirðingur að ætt, og Jóhanna Álfheiður Bergsdóttir, ættuð úr Suðursveit. Ambjörg tekur á móti vinum og vandamönnum í Pakkhúsinu á Höfn laugard. 26.10. frá kl. 18.00. Ekta fiskur ehf J S. 4661026 J Utvatnaður saltfiskur; áti beina, tilaðsjóða. Sérútvatnaður saltfiskur; án beina, til að steikja. Saltfisksteikur (Lontos) jyrir veitingahús. Bæjarlind 4 • £01 Kópavngur • 5ími 544 5514 f v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.