Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Blaðsíða 1
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 251. TBL. - 92. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
Magnús Þorsteinsson, viðskiptafélagi Björgólfsfeðga:
Kaupir
I Atlanta
meirihlutann
á 2,5 milljarða
Magnús Þorsteinsson,
viðskiptafélagi Björgðlfsfeðga,
stefnir að þvi að kaupa meirihluta
í Flugfélaginu Atlanta, sem er í
eigu hjónanna Arngríms
Jóhannssonar og Þóru
Guðmundsdóttur. Samkvæmt
heimildum DV mun kaupverðið
vera um 2,5 milljarðar fyrir rétt
liðlega 50% hlut. Hlutafélag í eigu
Magnúsar, Pilot Investment, mun
halda um meirihlutann. Búist er
við að endanlega verði gengið frá
kaupsamningi á næstu dögum.
Arngrímur Magnús
Johannsson. Þorsteinsson.
Flugfélagið Atlanta í Mosfells-
bæ rekur í dag 22 breiðþotur í
leiguflugi viða um heim.
„Ég get staðfest það að ég fer
fyrir ákveðnum hópi fjárfesta sem
hefur áhuga á að kaupa meiri-
hluta í Atlanta," sagði Magnús
Þorsteinsson í morgun. Hann
lagði þó áherslu á að ekkert væri
frágengið en fundur aðilanna var
haldinn í gær án þess að samning-
ar tækjust. Búnaðarbanki íslands
hefur unnið að milligöngu i kaup-
unum.
Magnús Þorsteinsson vildi ekki
nefna til sögunnar félaga sina í
þessum samningnum en DV hefur
heimildir fyrir því að félagar hans
i Samsonhópnum, Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor
Björgólfsson, séu ekki þeirra á
meðal.
Innan starfsliðs Atlanta olli það
nokkrum óróa þegar kvisaðist út
um þessi viðskipti en Magnús Þor-
steinsson sagði í morgun að í
þessu efni væri ekkert að óttast.
„Þetta er fallegt og gott fyrirtæki
með afbragðs starfsfólk og verði af
þessum kaupum vona ég að þau
Þóra og Arngrímur verði áfrani
við stjóm ásamt sínu góða starfs-
fólki,“ sagði Magnús. Sjálfur er
hann mikill flugáhugamaður og
segist haldinn mikilli flugdellu.
Hann muni þó ekki taka við starfi
í fyrirtækinu ef af kaupunum
verður.
Ekki náðist í fmmherjana Am-
grím Jóhannesson og Þóru Guð-
mundsdóttur konu hans í morgun.
Fyrirtækið stofnuðu þau árið 1986
og hefur starfsemi þess gengið æv-
intýralega vel.
-JBP
21 barn
fórst í
jarðskjálfta
Lítil von er um að fleiri finn-
ist á lífi í rústum skóla í bæn-
um San Giuliano di Puglia á
Ítalíu sem hrundi í öflugum
jarðskjálfta í gærmorgun, þeim
öflugasta sem hefur riðið yfir
landið síðan 1997. Að minnsta
kosti tuttugu og þrír hafa þegar
fundist látnir, þar af tuttugu og
eitt barn.
Sex barna og eins kennara
var enn saknað í morgun og
töldu björgunarmenn, sem
grófu i rústunum með berum
höndum í alla nótt, að litlar lik-
ur væru á að þau væru enn á
lífi. Björgunarmenn sögðu að
skólinn, sem var reistur á sjötta
áratug síðustu aldar, hefði ver-
ið illa byggður.
„Það er erfitt fyrir bömin að
lifa svona lengi við þessar að-
stæður,“ sagði Ernesto Ang-
elotti, starfsmaður almanna-
varna, við fréttamann Reuters í
morgun.
Örvæntingarfullir foreldrar
biðu milli vonar og ótta í alla
nótt eftir fréttum af bömum
sinum sem enn voru undir
skólarústunum. Fólkið grét há-
stöfum og einn faðir féll í yfir-
lið af geðshræringu. -gb
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 13 í DAG
FÓKUS í MIÐJU
BLAÐSINS:
Karlar
fá líka
hrukkur
BLAÐAUKI UM
HANDFRJÁLSA SÍMA:
Frægafólkið |
notar
handfrjálsan |
búnað
17
Greiösluþjónusta
Landsbankinn