Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Blaðsíða 32
Smíðjuvegi 60 (Rauö gata) ■ Kópavogi
Sími 557 2540 - 554 8350
Allar almennar bílaviðgerðir
á öllum tegundum bifreiöa
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
Vönduö vinna - aöeins unnin af fagmönnum
Loforð er loforð
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Sinfónían og Sálin:
Uppselt á
augabragði
Gríðarlegur áhugi er á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands og Sál-
arinnar hans Jóns mins núna í nóv-
ember. Strax í haust seldist upp á þá
sem auglýstir voru 22. nóv. og var
þá bætt við aukatónleikum daginn
eftir. Þar sem allir miðar á aukatón-
leikana seldust upp á augabragði
hefur þriðju tónleikunum nú verið
bætt við til að mæta þessari miklu
eftirspum þann 21. nóvember kl.
19.30. Miðasala á þá tónleika hefst í
dag hjá Sinfóniuhljómsveitinni.
Fasteignasalinn í Holti:
Greiddi ekki laun
Starfsfólk Fasteignasölunnar
Holts í Kópavogi fékk ekki laun
greidd fyrir októbermánuð áður en
eigandinn gekk á fund Ríkislög-
reglustjóra og viðurkenndi á sig
tugmilljóna króna fjárdrátt. Sam-
* kvæmt upplýsingum DV er starfs-
fólk að leita réttar síns vegna þessa
en maðurinn hafði ekki greitt laun
á réttum tíma svo mánuðum skipti.
Rannsókn lögreglunnar heldur
áfram. Samkvæmt upplýsingum DV
beinist hún að mun Öeiri þáttum en
fjárdrætti. t DV á morgun koma fram
ýmsar upplýsingar um með hvaða
hætti maðurinn lék á opinbera aðila
áður en hann kom sjálfur fram og
upplýsti hvaö gerst hefði. -Ótt
ef*
Handfrjáls dagur
Þeir sem ekki nota handfijálsan
búnað þegar þeir tala i GSM-síma
geta, frá og með deginum í dag, feng-
ið 5000 króna sekt. Lögregla er með
nokkum viðbúnað vegna fullnaðar
gildistöku laga um handfrjálsan bún-
að í bílum og því eins gott að vera
með réttu græjumar undir stýri. ít-
arleg umfiöllun um handfrjálsan
búnað er að fmna á bls. 17-24. -hlh
J -r Í ‘ j \ - - ’\
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.5ecuritas.is
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
DV-MYND TEITUR
Forstjórasklptl
Forstjóraskipti uröu hjá Vátryggingafélagi íslands í dag þegar Axel Gíslason lét af störfum. Viö tók Finnur Ingólfsson,
fyrrverandi seðlabankastjóri. Hér sést Axel afhenda Finni lykla aö forstjóraskrifstofunni meö óskum um velfarnaö í
nýju starfi.
Hlutfall erlendra ríkis-
borgara úr 2,1% ■ 3,4%
- síðustu tíu ár - fæstir í Norðausturkjördæmi
Erlendir ríkisborgarar búsettir hér
á landi er nú um 9.700 eða 3,4% lands-
manna en fyrir tíu ámm vom þeir um
5.400 eða 2,1%. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í svari félagsmálaráð-
herra við fyrirspum Kristjáns L. Möll-
ers um þróun ibúafjölda síðast liðin
tíu ár.
Þegar litið er á þróunina eftir kjör-
dæmum kemur I ljós að í Reykjavík
hefur hlutfall erlendra ríkisborgara
hækkað úr 2,3% í 3,9%; í Suðvestur-
kjördæmi úr 1,7% í 2,6%; í Suðurkjör-
dæmi úr 2,2% í 3,9%; í Norðvestur-
kjördæmi úr 2,7% í 3,7% og í Norð-
austurkjördæmi úr 1,4% í 2,3%.
Áberandi er hve hlutfallið er hátt
víða á Suðumesjum; 8,5% í Gerða-
hreppi, 7,1% í Sandgerði og 5% í
Grindavík. Það er einnig hátt víða á
Snæfellsnesi; 7,6% í Grundarfirði, 7,5%
i Snæfellsbæ og 6,1% í Stykkishólmi.
Á Vestfjörðum er hlutfallið lang-
hæst í Tálknafjarðarhreppi; þar eru
erlendir ríkisborgarar 67 af alls 372
íbúum eða 18%. Þetta er raunar hæsta
hlutfall í nokkru sveitarfélagi á land-
DV-MYND JULIA IMSLAND
Erlendir ríkisborgarar koma til Hafnar
Árið 1997 komu 25 flóttamenn til Hafnar í Hornafiröi. Átta þeirra eru búsettir
þar enn. Myndin var tekin viö komu fólksins til Hafnar.
inu. í Vesturbyggð er það 6,6% og 6%
á ísafirði. Viðlíka hlutfóll finnast ekki
aftur fýrr en austur á Raufarhöfh,
11,8%, og Þórshöfn, 8%.
Á höfuðborgarsvæðinu er hlutfallið
hæst í Reykjavík eða 3,9% en lægst í
Mosfellsbæ, 1,9%. Fleiri dæmi um fjöl-
menn sveitarfélög þar sem hlutfall er-
lendra ríkisborgara er lágt eru Vest-
mannaeyjar með 1,5%, Borgarbyggð
með 1,7%, Blönduósbær með 1,7%,
Akureyri með 1,3%, Húsavík með
1,3%, Ólafsfjarðarbær með 0,8% og
Austur-Hérað með 1,3%. -ÓTG
Ibúar strandbyggða í rútu í verslanir
- verslunarstaöur um aldir nú án allrar þjónustu
„Þetta er ágæt leið fyrir okkur
íbúana til að geta keypt á góðu
verði okkar vörur en mikið fmnst
mér það nú vera dapurt að við verð-
um að fara hingað upp eftir tfi að
komast í verslun með góðu vöruúr-
vali,“ sagði Ingibjörg Magnúsdóttir,
íbúi á Stokkseyri, ein af 13 íbúum
Stokkseyrar og Eyrarbakka sem
notfærðu sér rútuferö i boði Krón-
unnar á Selfossi í gærmorgun. Rúta
frá Guðmundi Tyrfingssyni sótti
hópinn og keyrði fólkið að verslun
Krónunnar.
Mörgum íbúum byggðanna á
ströndinni þykir það vera mikil aft-
urfór að þurfa að fara út úr stöðun-
um til að versla í verslunum með
nægilegt úrvíd á lágu verði. Um ald-
.1»
i r
DVMYND NJÖRÐUR HELGASON
13 þáðu bobiö
Stokkseyringar í rútunni á leiö í
kaupstaöinn í gær.
ir var Eyrarbakki einn helsti versl-
unarstaður landsins. Þar var ein
helsta höfn landsins um aldir. Allt
frá árinu 1100 hefur hún verið
helsta höfn á Suðurlandi og allt
fram að síðari heimsstyrjöld.
Blómatími Eyrarbakka var frá alda-
mótum 1800 fram á fyrstu áratugi
síðustu aldar. Bændur komu þang-
að víða að með vörur stnar.
Nú er búið að loka verslunum og
bankaútibúum þar, pósthúsið er í
skoðun og almenningssamgöngur
hafa dregist svo saman að það er
orðin tveggja daga ferð fyrir íbúa til
höfuðborgarinnar.
„Þetta er allt í lagi og ég kem til
með að notfæra mér feröimar, síð-
an er það bara gaman að fara svona
saman í hóp í búðina,“ sagði Eyr-
bekkingur í Krónunni í gærmorg-
un. -NH
Lögbann á aö- ^
gerðir sjómanna é
Sýslumaðurinn i Kópavogi hefur
að kröfu útgerðar flutningaskipsins
Estime, sem Atlantsskip hefur á
tímaleigu, sett lögbann við aðgerð-
um sem forysta samtaka sjómanna
hafði boðað til að hindra losun og
lestun skipsins sem kemur til hafn-
ar í Kópavogi í dag, fóstudaginn 1.
nóvember. Með lögbanninu er
tryggt að engin töf verður á sigling-
um og afgreiðslu Estime og að þjón-
usta Atlantsskipa við viðskiptavini
sína mun ekki raskast.
Stefán Kjærnested, framkvæmda-
stjóri Atlantsskipa, segir að undan-
farin fjögur ár hafi forysta samtaka
sjómanna reynt með ólögmætum að-
gerðmn að hindra afgreiðslu skipa
Atlantsskipa, síðast við komu skips-
ins Bremer Uranus í síðustu viku til
Njarðvikurhafnar. Af yfirlýsingum
forystu samtaka sjómanna í fjölmiðl-
um er ljóst að aðgerðir gegn Atlants-
skipum eru hvorki byggðar á lögum
né kjarasamningum heldur er mark-
miðið það eitt að koma í veg fyrir að
erlendar áhafnir séu á þeim flutn-
ingaskipum sem islensk skipafélög
hafa í siglingum. Hér sé á ferð ein-
hvers konar pólitísk andstaða við
það fjölþjóðlega samfélag, sem ís-
lenskt þjóðfélag er nú hluti af, og hef-
ur í fór með sér aukið frelsi í flutn-
ingi vinnuafls milli landa. -GG
Suðurnes:
„Afskaplega
kvíðvænlegt“
„Þetta er afskaplega kvíðvæn-
legt,“ sagöi Sigrún Ólafsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri á
heilsugæslunni á Suðurnesjum, eft-
ir brotthvarf allra heimilislækna
þaðan í gær. Hún sagði að hjúkrun-
arfræðingar hefðu verið settir á
vaktir. Þeir leiðbeindu fólki um
hvert það gæti snúið sér, það er á
læknavaktir í Kópavogi og í Reykja-
vík. Læknar á sjúkrahúsinu sinntu
einungis sjúklingum þar, svo og al-
gerum neyðartilfellum. Eitt slíkt
hefði komið upp í nótt varðandi
sykursýkisjúkling. Læknir á sjúkra-
húsinu hefði annast það.
Sigrún sagði að fjölgun hjúkrun-
arfræðinga á vöktum nú væri ekki
verk heilbrigðisráðherra. Það hefði
verið unnið heima í héraði.
„Það hefur enginn talað við okk-
ur hér úr ráðuneytinu né leiðbeint
okkur með eitt eða neitt. Þetta getur
ekki gengið svona því að þeir sem
helst þurfa að leita til læknis, aldr-
aðir, sjúkir og fólk með smábörn,
eiga ekkert auðvelt með að keyra
Reykjanesbrautina fram og til
baka.“ -JSS
Sjá bls. 2
CAFÉ
P R l S T 0
- Góð tónlist -
Margróniaóar súpur í hódeginu
- Hódegisréttir -
Opið virka daga 10—23
laugardaga og sunnudoga 12-18
- Nœg bttastœði -
Hlíðarsmári 15, sími 555-4585,
sama húsi og Úrval/Útsýn
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
;
/
/
/