Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002
Fréttir DV
Edduverðlaunin:
Hafið fær tólf tilnefningar
til Edduverðlauna
Verölaunin afhent
Bjarni Ingvar Árnason hjá Hótel
Óöinsvéum og Gunnar Felixson,
forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar.
Forvarnarverðlaun TM:
Óðinsvé fékk
Varðbergið
Forvarnarverðlaun Tryggingamið-
stöðvarinnar hf., Varðbergið, voru
veitt í gær og komu að þessu sinni í
hiut Hótel Óðinsvéa. Jafnframt hlutu
Ljósvirki ehf. og Rydenskaffi hf. viður-
kenningu fyrir forvarnir.
Varðbergið er veitt árlega þeim við-
skiptavinum TM sem þykja skara
fram úr á sviði forvarna gegn óhöpp-
um og slysum. Ákvörðun um að veita
Hótel Óðinsvéum verðlaunin í ár
byggist á mati sérfræðinga TM, sem
telja forvamir þar með því besta sem
gerist hér á landi og að hótelið sýni
öðrum fyrirtækjum gott fordæmi að
þessu leyti.
Samgönguráðherra var viðstaddur
afhendingu Varðbergsins ásamt
brunamálastjóra og slökkviliðsstjóra
höfuðborgarsvæðisins. Varðbergið var
veitt í fyrsta skipti árið 1999 en þá
hlaut Slippstöðin á Akureyri verð-
launin. Borgarplast á Seltjamamesi
fékk verðlaunin árið 2000 og á síðasta
ári féllu þau i skaut Umslags hf.
Glerlistamennimir Sigrún Ólöf
Einarsdóttir og Sören S. Larsen
hönnuðu verðlaunagripinn í ár. -aþ
- Magnús Magnússon fær heiðursverðlaunin
Tilnefningar til íslensku kvik-
mynda- og sjónvarpsverðlaunanna
voru kynntar í gær. Flokkarnir eru
margir og eru þrjár tilnefningar í
flestum. Sú kvikmynd sem ber höf-
uð og herðar yfir aðrar í tilnefning-
um er Hafið og hlaut hún alls tólf
tilnefningar, meðal annars sem
besta kvikmynd, besta handrit,
besti leikstjóri og sjö leikarar úr
myndinni fengu tilnefningu. Mun
meiri skipting er í flokki sjónvarps-
efnis enda um mun víðara svið að
ræða.
Auk Hafsins vora tilnefndar sem
besta kvikmynd Fálkar og Regína.
Það vekur nokkra athygli að aðeins
Baltasar Kormákur, leikstjóri Hafs-
ins, skyldi fá tilnefningu í flokki leik-
stjóra. Sjö tilnefningar 1 leikaraflokk-
um segir nokkuð um frammistöðu
leikara í Hafínu. í aðalhlutverki fá til-
nefningu Gunnar Eyjólfsson, Hilmir
Snær Guðnason (sú tilnefning er
einnig fyrir leik i Reykjavík Guest-
house Rent a Bike), Elva Ósk Ólafs;
dóttir og Guðrún S. Gísladóttir. í
aukahlutverki fá tilnefningu fyrir
leik í Hafinu Sigurður Skúlason (sú
tilnefning er einnig fyrir Gemsa),
Herdís Þorvaldsdóttir og Kristbjörg
Kjeld. Aðrir leikarar sem fá tilnefn-
ingu era, í aðalhlutverki, Keith
Carradine í Fálkum og Halldóra Geir-
harðsdóttir í Regínu, í aukahlutverki
Jón Sigurbjörnsson i 20/20, Þorsteinn
Guðmundsson í Maður eins og ég og
Sólveig Arnarsdóttir í Regínu.
Hafið
Fær langflestar tilnefningar. Á myndinni er Gunnar Eyjóifsson í hlutverki Þórðar. Gunnar fær tilnefningu til
Edduverðlaunanna fyrir leik í aðalhlutverki.
Tvær stuttmyndir era tilnefndar,
Litla lirfan ljóta og Memphis, og
fimm heimildamyndir, Tyrkjaránið,
Hver hengir upp þvottinn? Noi, Pam
og mennirnir þeirra, Möhöguleikar
og I skóm drekans.
Sjónvarpsefni er skipt í tvo hluta.
í flokknum Leikin sjónvarpsverk fá
tilnefningu Áramótaskaup RÚV, I
faðmi hafsins og 20/20. í flokki sjón-
varpsþátta: Sjálfstætt fólk, HM 4-4-2,
Af fingrum fram, Fólk með Sirrý og
ísland i bítið.
Heiðursverðlaun eru veitt árlega.
í þetta skiptið fær þau hinn kunni
sjónvarpsmaður Magnús Magnús-
son, sem hátt í fjörutíu ár hefur ver-
ið meðal þekktustu andlita hjá
bresku sjónvarpsstöðinni BBC og
stjórnað þekktum spumingaþætti,
sem og öðrum þáttum um ýmsan
fróðleik.
Hverjir verða svo þess aðnjótandi
að fá Edduverðlaunin kemur í ljós
sunnudaginn 10. nóvember, þegar
þau verða afhent við hátíðlega at-
höfn í Þjóðleikhúsinu. -HK
verður haldið laugardaginn
2. nóvember kl. 13.30
í húsnæði Vöku hf. að Eldshöfða 6.
Svæðið verður opnað kl. 11.00.
Þar verða meðal annars eftirfarandi
bílar og tæki boðin upp:
Montana tjaldvagn '01
Toyota Corolla '01
Nissan Terrano II '00
Toyota Avensis '00
Nissan Patrol '00
Renault Clio '99
Nissan Patrol '99
Peugeot 306 '99
MMC Pajero '99
VW Golf '99
Toyota Corolla '99
Peugeot Partner '98
AlfaRomeo145 '98
Toyota Corolla Wagon '98
VW Golf '97
Renault Mégane '97
DVJHYND HARI
Lykill skiptir um hendur
Páll Pétursson ávarpaði viðstadda við opnun nýja sambýlisins í gær og
afhenti síðan hveijum og einum lykil að sinni íbúð. Fjöldi gesta var
viðstaddur athöfnina sem var afar hátíðleg.
Nýtt sambýli opnað við Hólmasund 2:
Sex ungmenni taka
viö lyklavöldunum
Sex fötluð ungmenni fengu í
gær afhentar íbúðir sinar í nýju
sambýli við Hólmasund 2 i
Reykjavík. Páll Pétursson flutti
ávarp og afhenti siðan unga
fólkinu lykla að íbúðum sinum.
Fjölmennt var við opnunarathöfn-
ina í gær.
Sambýlið er byggt af Hússjóði
Öryrkjabandalagsins samkvæmt
sérstöku samkomulagi við félags-
málaráðuneytið sem leigir húsið
fyrir starfsemi Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur.
Áð sögn Björns Sigurbjömsson-
ar, framkvæmdastjóra Svæðis-
skrifstofu, er nýja sambýlið allt
hið glæsilegasta og framkvæmdir
hafa gengið eins og best verður á
kosið. fbúarnir em á aldrinum 18
til 25 ára.
íbúðimar eru sex talsins, með
eldhúsi, snyrtingu og stofu, en
auk þess er sameiginlegt rými í
húsinu þar sem er að finna eld-
hús, borðstofu, setuhús, þvotta-
hús, geymslu og aðstöðu fyrir
starfsfólk.
Fyrr á árinu hafa sambærileg
sambýli verið opnuð á þremur
stöðum í Reykjavík - alls hafa 17
fótluð ungmenni fengið íbúðir og
í næsta mánuði er fyrirhugað að
opna nýtt sambýli fyrir fimm
íbúa við Skagasel. í Skagasel
munu flytja einstaklingar sem
áður hafa dvalið á Landspítalan-
um í Kópavogi.
Síðustu misseri hefur verið
mikil uppbygging hvað varðar bú-
setu fatlaðra bæði hér i Reykjavfk
og einnig á Reykjanesi. Bjöm seg-
ir í bígerð að breyta húsnæði við
Holtaveg 27 í skammtímavistun
og einnig sé annars húss leitað í
sama tilgangi. Vonir standa til að
hvort tveggja geti verið til reiðu
við upphaf næsta árs. -aþ