Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Side 15
15
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002
DV__________________________________________________________________________________________________Menning
Syndir feðranna
DV-MYND HARI
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur
Hún skiptir um sögusviö og aöalpersönu og er þar með komin meö upphafiö aö nýrri og
betri sögu. Eöa hvaö?
Hjarta, tungl og bláir fuglar
eftir Vigdísi Grímsdóttur er
sjáifstætt framhald skáldsögunn-
ar Frá ljósi til ljóss sem út kom
á síðasta ári. I þeirri bók skilur
lesandinn við aðalpersónuna,
Rósu, í Nýju Mexíkó. Þangað fer
hún frá Islandi með nýfæddan
son sinn til að hitta Lenna fóður
sinn sem yfirgaf hana 10 árum
fyrr. Lenni fór frá Rósu undir
því yfirskini að láta draum sinn
rætast en það er aðeins hálfur
sannleikurinn. Hina raunveru-
lega ástæðu fær lesandi að vita í
lokalínum sögunnar og sú vit-
neskja vekur bæði óhug og undr-
un.
Bókmenntir
í Hjarta, tungli og bláum fugl-
um lætur höfundurinn eins og
ekkert hafi iskorist og reynir um
stimd að blekkja lesandann á
svipaðan hátt og í fyrri bókinni.
Hann skiptir um sögusvið og að-
alpersónu og er þar með kominn
með upphafið að nýrri og betri
sögu. Eða hvað? Hér er það son-
ur Rósu, nýr Lenni, sem segir söguna en hún ger-
ist í unaðslegu umhverfi fjallaþorpsins Madrid.
Þar er lífið ævintýri líkast, loftið ilmar af blóm-
um og eplum og menn njóta lífsins léttklæddir í
hita og sól. Fólkið lifir á gæðum náttúrunnar,
hannar listilega gripi sem seldir eru túristunum
í Santa Fe og allir virðast góðir, glaðir og sáttir
við sitt. Rósa liggur reyndar í þunglyndi í tvö ár
samfleytt eftir komuna til Madrid en það er auka-
atriði vegna þess að hún fmnur hamingjuna á
nýjan leik eftir að sjálf María guðsmóðir vitrast
henni!
Að öðru leyti er allt í lukkunnar velstandi:
Lenni og Flora, eiginkona hans, huga að þörfum
drengsins Lenna sem er flesta daga ánægður með
það sem á yfirborðinu sýnist vera áhyggjulaus
tilvera. Drauma sína, væntingar og þrár ræktar
hann af alúð með stúlkunni Editu sem er kraft-
mikil og uppfinningasöm og kynnir honum síðar
unaðssemdir ástárinnar. Rödd Editu ómar
stöðugt í eyrum hans og segir honum kost og löst
á hans nánustu en stundum kærir hann sig ekki
um að hlusta og reynir að forða sér. En það er
einmitt í gegnum rödd Editu sem lesandinn áttar
sig á að i Madrid er ekki allt með felldu. Edita sér
í gegnum áralangan lygavef fullorðna fólksins og
reynir að forða Lenna frá því að verða sömu
blekkingu að bráð.
Bamið Lenni er eins og móðir hans alið upp í
æðruleysi sem aöallega felst í að sætta sig við
hvað sem er. Öll uppvaxtarárin
þarf hann að þola hlutleysi og
eigingirni móður sinnar og
drykkjusýki Floru lærir hann
að afgreiða sem hverja aðra
þörf. í bamsaugum Lenna er
Flora ímynd kærleikans og
stöðug uppspretta ævintýra-
legra sagna sem sefa tímabund-
ið óskilgreindan sársauka hans.
Edita áttar sig hins vegar á þvi
að ævintýrin eru bara uppspuni
og ragl, til þess hugsuð að slá
ryki í augu drengsins og því
reynir hún stöðugt að fá hann
til að sjá það sem hún sér: Fulla,
skítuga, aumkunarverða og var-
hugaverða kerlingu.
Á sama tíma og Edita slær tón
sannleikans í Nýju Mexíkó
harnrar Lúna, listmálarinn
snjalli, sama tón á íslandi. Hún
er æskuvinkona Rósu sem með
reglulegu millibili sendir nýj-
ustu fréttir frá íslandi í formi
litríkra málverka með árituðum
skilaboðum. Edita er aldrei kát-
ari en þegar málverk berst frá
íslandi enda dýrkar hún Lúnu
skilyrðislaust. Þá dýrkun skilur lesandinn ekki
til fulls fyrr en í lok sögunnar þegar raddir
kvennanna renna loksins saman.
Frá ljósi til ljóss er áhrifamikil bók og Hjarta,
tungl og bláir fuglar gefur henni ekkert eftir. Líkt
og þar sannar undurfagur textinn að fylgifiskar
yfirdrepsskapar og látaláta eru botnlaus depurð
og sársauki sem fátt getur sefað nema kannski
sannleikurinn. Syndir feðranna fara hvergi þótt
þær séu færðar í annan og skrautlegri búning.
Sigríður Albertsdóttir
Vigdís Grímsdóttir: Hjarta, tungl og bláir fuglar. JPV-út-
gáfa 2002.
Þórunn og Nanna
Nú fá þær að vera með í Veislunnl.
Þórunn Lárus-
dóttir í Veisluna
Þær breytingar hafa orðið á hlut-
verkaskipan á sýningu Þjóðleik-
hússins á Veislunni að Nanna Krist-
ín Magnúsdóttir er tekin við hlut-
verki Evu af Brynhildi Guðjónsdótt-
ur, sem verður frá að hverfa um
sinn vegna anna í öðrum sýningum,
og Þórunn Lárusdóttir leikur
Michelle frá og með þessari viku.
Með önnur hlutverk fara Hilmir
Snær Guðnason, Arnar Jónsson,
Rúnar Freyr Gislason, Elva Ósk
Ólafsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Inga María Valdimarsdóttir, Yapi
Donatien, Stefán Jónsson, Kjartan
Guðjónsson, Erlingur Gíslason,
Þóra Friðriksdóttir og Baldur
Trausti Hreinsson. Píanóleikari í
sýningunni er Jóhann G. Jóhanns-
son.
Veislan eftir Thomas Vinterberg
og Mogens Rukov hefur verið sýnd
fyrir fullu húsi frá því hún var
framsýnd í april sl. Þýðandi verks-
ins er Einar Kárason, lýsing er í
höndum Björns Bergsteins Guð-
mundssonar, Filippía I. Elísdóttir og
Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir sáu
um búninga en sú síðarnefnda er
jafnframt höfundur leikmyndar.
Leikstjóri er Stefán Baldursson.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavikur
STÓRA SVIÐ
SÖLUMAÐUR DEYR
e. Arthur Miller
3. sýn., rauð kort - í kvöld kl. 20
4. sýn., græn kort - su. 3/11 kl. 20
5. sýn., blá kort-fö. 8/11 kl. 20
Fi. 14/11 kl. 20
HONKl UÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir aíla fiölskyíduna.
Su.3/11 kt 14
Su. 10/11 kl. 14
Su. 17/11 kl. 14
KRYDDLEGIN HJÖRTU
e. Laura Esquivel
Lau 2/11 kl. 20
Fi 7/11 kl. 20
Fö 15/11 kl 20
Lau 30/11 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR
MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Lau. 9. nóv. kl. 20 - 60. sýning - AUKAS.
Lau. 16. nóv. kl. 20 - AUKASÝNING
Fim. 21. nóv. kl. 20 - AUKASÝNING
Fö. 29. nóv. kl. 20 - AUKASÝNING
NÝJASVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
Frekar erótUkt leiktrit íprem þáttum
e. Gabor Rassov
í kvöld kl. 20. UPPSELT
Lau. 2/11 kl. 20
Fi. 7/11 kl. 20
Lau. 9/11 kl. 20
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 15. nóv.Jd. 20 - AUKASÝNING
ALLRA SÍÐASTA SINN
15.15 TÓNLEIKAR
Eþos. Þórður Magnússon.
Lau 2. nóv. CAPUT
ÞRIÐJA HÆÐIN
HERPINGUR eftirAudi Haralds
HINN FULLKOMNI MAÐUR
eftir Mikael Torfason
Frumsýning í kvöld kl. 20 UPPSELT
su 3/11 kl. 20, fi 7/11 kl. 20, fö 8/11 kl. 20
SUSHI-NÁMSKEIÐ
með Sigurði og Snorra Birgi
Má. 4/11, þri. 5/11 kl. 20
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakesþeare
í samstarfi við VESTURPORT
Frumsýning mi. 6/11 kl. 20
Leikfélag Reykjavíkur
Midasala 568 8000
Listabraut 3 -103 Reykjavík
Föstudagur 1. nóvember kt. 20.00
TÍBRÁ: Píanótónleikar Vovka Ashkenazy
Rapsódíur og fantasíur eftir Brahms, Estampes
eftir Debussy og átta prelúdíur eftir
Rakhmanínov.
Verð kr. 1.500/1.200
Sunnudagur 3. nóvember kt. 20.00
Skellir og smellir, utgáfutónleikar
Valgeirs Guðjónssonar
Bestu lög Valgeirs í nýjum útsetningum
Valgeirs og Jóns Olafssonar. Flytjendur auk
þeirra: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Helgi Bjömsson,
Sigurður Flosason o.fl.
Verð kr. 2.000/fyrir MasterCard
korthafa kr. 1.600
er kl. 20.30
Blokkflaututónleikar
Utgáfú- og afinæhstónleikar Gísla Helgasonar.
Flytjendur auk Gísla: Sophie Schoonjans,
harpa, Tómas Tómasson, bassi, og Þórir
Baldursson, píanó.
Verð kr. 1.500/1.200
Listasafn Islands
Fríkirkjuvegi 7, við Tjömina
www.listasafn.is
Þrá augans
Saga Ijósmyndarinnar 1840-1990
Um 200frummyndir
Salir, safnbúð og kafflstofa, opið 11-17.
Viðamikil fræðsludagskrá.
Síðasti sýningardagur 3. nóv.
Pharmaco er aðalstyrktaraðili
Listasafns islands 2002-2003
www.pharmaco.is
kvebch
Isikruípjuí'im a ssrainrti
fös. 1. nóv. kl. 21.00 UPPSELT
fös. 1. nóv. kl. 23.00 (aukasýning)
sun. 3. nóv. kl. 21.00 UPPSELT
fös. 8. nóv. kl. 21.00 örfá sæti
fös. 8. nóv. kt. 23.00 (aukasýning)
tau. 9. nóv. kl. 23.30
Vesturport, Vesturgötu 18
Miðasala fer fram í Loftkastalanum,
sími 552 3000 - www.senan.is
Styrktarsýning
Tveir félagar í Vesturporti,
Ásta Hafþórsdóttir og
Agnar Jón Egilsson,
misstu allt sitt í brun-
anum á Laugavegi og I
kvöld kl. 23 verður
sérstök sýning á Kvetch
til styrktar þeim. Ásta
vann gervi og búninga í
Kvetch en Agnar Jón er
einn af stofnendum
Vesturþorts og skrifaði
leikritið Lykill um hálsinn sem sýnt var þar í fyrra.
Miðaverð er 2.200 krónur og allur ágóði rennur til þeirra tveggja.
Miðasaian er í Loftkastalanum, sími 552 3000, og í Vesturporti klukku-
tíma fyrir sýningu.
GRETTISSAGA www.hhh.is
Saga Grettis.
Leikrit eftirHilmar Jótisson byggt á Grettissögu
Fös. 1. nóv. kl. 20, örfá sæti
Lau 2. nóv kl. 20, nokkur sæti
Fös. 8.nóv. kl. 20, laus sæti
Lau. 9. nóv. ld. 20, laus sæti
Lau. 16. nóv. kl. 20, nokkur sæti
Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur
Sun. 3. nóv., uppselt
Mið. 6. nóv., uppselt
Fim. 7. nóv., aukasýning, örfá sæti
Sun. 10. nóv., uppsclt
Þri. 12. nóv., uppselt
Mið. 13, nóv., uppselt
Sun. 17. nóv., uppselt
Þri. 19. nóv., uppselt
Mið. 20. nóv., uppselt
Sun. 24. nóv., uppselt
Þri. 26. nóv., örfá sæti
Mið. 27. nóv., örfá sæti
Sýningamar á Sellófon hefjast kl. 21.00
Miðasala í síma 555-2222