Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Page 2
2 Fréttir Maður ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellda líkamsárás: Olnbogabraut og skar sömu konu á háls - árásarmaðurinn hefur áður verið sakfelldur í manndrápsmáli 47 ára Reykvikingur hefur verið ákærður fyrir tilraun til mann- dráps annars vegar og stórfellda líkamsárás hins vegar, allt gegn sömu konunni, fyrrum sambýlis- konu sinni, en atburðimir áttu sér stað í júli og maí. Sami maður var á áttunda áratugnum sakfelldur i manndrápsmáli og afplánaði refs- ingu fyrir það. Réttað verður í báðum árásar- málunum á næstunni. Fyrri árásin átti sér stað aðfaranótt 13. maí. Þar er maðurinn ákærður fyrir að hafa ráðist á konuna og slegið hana margsinnis í höfuð og líkama en einnig að hafa slegið höfði hennar utan í vegg, auk þess að hafa mis- þyrmt henni með öðrum hætti. 30-40 spor í höfuð Sauma þurfti konuna 30-40 spor í höfuð og andlit eftir árásina. Hún nefbrotnaði, tognaði á hálsi og hlaut mar og sár viða um líkamann auk þess sem fingur skaddaðist. Þótt fyrri atlagan kunni að virka alvarleg þá var sú síðari enn verri. Þar er ofbeldismaðurinn ekki ákærður fyrir stórfellda líkamsárás heldur hreina og klára tiiraun til manndráps. Manninum er gefið að sök að hafa sunnudagskvöldið 28. júlí veist með ofbeldi að sömu konu á heimili hennar á Boðagranda, brotið hægri upphandlegg hennar og skorið hana með hnífi á augabrún en einnig á háls. Konan hlaut þar djúpt 4,7 sentímetra langt sár en slagæð og bláæð skárust í sundur. Eftir þessa árás var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald og situr hann enn inni. Konan fer fram á 1,5 milljónir króna í miskabætur fyrir síðari árásina en þar mátti litlu muna að verr færi en raun bar vitni. Þegar héraðsdómur mun fjalla um þessar ákærur mun manndráp- ið sem maðurinn var áður dæmdur fyrir ekki hafa áhrif þar sem of langt er um liðið til slíks. Á hinn bóginn mun dómurinn líta til sak- arferils eins og ávallt er gert þegar um sakamál er að ræða. -Ótt DV-MYND GVA Styttlst í flutning Framkvæmdir viö nýjar höfuöstöövar Orkuveitu Reykjavíkur viö Réttarháls eru á lokastigi, enda er stefnt aö því aö Orkuveitan flytji þangaö um miöjan næsta mánuö. Flutningar eru þegar hafnir; bæöi tölvudeild fyrirtækisins og rekstrarstjórn - sem stýrir raforkukerfunum - eru byrjaöar aö flytja sinn búnaö yfir. Húsiö er tignarlegt aö sjá og minnir helst á skipsbrú. Þaö stendur hátt og gnæfiryfir þegar horft er á þaö neöan af Vesturlandsvegi, en þegar komiö er upp aö því viröist þaö ekki jafn óskaplega stórt og úr fjarlægö. Fólk afskaplega skilningsríkt - segir eini heilsugæslulæknirinn á Suðurnesjum DV-MYND HILMAR BRAGI Frá borgarafundl vegna hellsugæslumála í Reykjanesbæ Þórarinn Baldursson læknir hóf störf á heilsugæslunni á Suöurnesjum ígær. Hann sagöi aö nóg heföi veriö aö gera og starfsfólk reyndi aö ieysa úr vanda sjúklinga fremur en senda þá til höfuðborgarinnar. Brauð í svínafóður Töluverðar umræður hafa verið í þjóðfélaginu um hátt brauðverð og m.a. hafa Neytendasamtökin krafiö Landssamband bakarameistara um svar, sem birtist í DV fyrir nokkru. Vegna krafna smásöluverslana um að hillur verslana séu alltaf fullar af brauðvörum verða afföll eðlilega nokk- uð há. Kolbeinn Kristinsson, framkvæmda- stjóri Myllunnar-Brauð, segir að um 8 til 9% brauðsins seljist ekki og sá kostnaður hafi áhrif á verðið sem allur annar kostnaður. „Það er vissulega rýmun í öllum matvælum og þetta er öðmvísi háttur en í öðrum löndum þar sem hillur eru aðeins tómar rétt fyrir lokun. Þessi krafa um fullar hillur er skiljanleg frá sjónarhomi smásalanna en með auk- inni vinnslutækni og hreinlæti hafa brauð lengra geymsluþol. Við erum með ágætar tætaravélar sem einnig aðskilja brauðið frá plast- umbúðunum. Það er líka betra að koma því þangað fyrir eitthvað verð en þurfa að kosta til fórgunar á því,“ seg- ir Kolbeinn Kristinsson. -GG „Dagurinn var ágætur. Við end- urskipulögðum starfshættina. Þetta gekk bara vel. Það var alveg fullt, en ég hef oft séð það miklu verra. Fólk var afskaplega skiln- ingsríkt og var ekkert að leita með erindi sem máttu bíða.“ Þetta sagði Þórarinn Baldurs- son, heilsugæslulæknir á Suður- nesjum, í samtali við DV í morg- un. Hann hefur að undanfomu starfað á sjúkrahúsi Heilbrigðis- stofnunar Suðumesja. I gærmorg- un flutti hann sig hins vegar um set og tók við starfl heilsugæslu- læknis á heilsugæslustöðinni. Hann er eini læknirinn sem starfar á heilsugæslunni nú, eftir að tiu heilsugæslulæknar hættu stöifum þar. „Flestir sem ég skoðaði voru veikir og svo kom fólk sem vant- aði lyfin sín,“ sagði Þórarinn. Að- spurður um framhaldið sagði hann að starfsfólk heilsugæslunn- ar tæki nú „einn dag í einu.“ Hann kvaðst alls ekki vilja vísa fólki til höfuðborgarsvæðisins vegna ástandsins, heldur myndi starfsfólk heilsugæslunar reyna að leysa úr öllum vanda. Þórarinn sagði að starfshætt- irnir hefðu verið endurskipulagð- ir að því leytinu til að nú tækju hjúkrunarfræðingar á móti þeim sem leituðu aðstoðar. Eins sæju þeir um tímabókanir. „En við verðum að fá fleiri lækna héma inn,“ sagði Þórar- inn. „Ég get ekki verið endalaust á vakt. Við reynum að bjarga því sem má ekki bíða. Ég held að okk- ur eigi að takast það.“ Spænskur læknir hefur sótt um stöðu hjá Heilsugæslunni auk kambódísks læknis sem búsettur er hérlendis. Þá mun hafa borist umsókn frá lækni í arabalöndum. Fundur heilbrigðisráðuneytis og heilsugæslulæknanna sem eru hættir störfum hefur verið boðað- ur eftir hádegi í dag. -JSS ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 Guðjón efstur? Guðjón Hjörleifs- son, fyrrverandi bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, hef- ur sagt sig úr upp- stillingamefnd Sjálfstæðisflokks- ins í Suðurkjör- dæmi. Hann mun koma til greina i eitt af efstu sæt- um listans í kjördæminu. - Mbl. greindi frá. Holtsmál verða bætt íbúðalánasjóður ætlar að bæta viðskiptavinum sínum tjón sem þeir urðu fyrir vegna fjársvikamáls fasteignasala í Kópavogi á dögun- um. Sérstök úrskurðarnefnd á að leggja mat á bótaskyldu sjóðsins og bætur í hverju tilviki fyrir sig. Leit hætt Leit hefur verið hætt að manni á rauðum Isuzu Trooper-jeppa sem leitað hefur verið síðustu daga og lýst var eftir. Hefur lögregla fengið staðfest að maðurinn hafi verið á ferð um Vestfirði um helgina og því er ekki lengur óttast um hann. 500 tonn af kjúklingum Móar og aðrir kjúklingaframleið- endur sem framleiða undir merkj- um Móa framleiða 180-200 tonn af kjúklingum í desembermánuði. Reykjagarður reiknar með að fram- leiða um 200 tonn af kjúklingum í desember, íslandsfugl á Dalvík um 50 tonn og ísfugl í Mosfellsbæ 60-70 tonn. - Mbl. greindi frá. Leiðakerfi breytt Strætó BS vinnur nú að þróun samgöngumiðstöðvar á höfuðborg- arsvæðinu í tengslum við endur- skoðun á leiðakerfi fyrirtækisins. Stefnt er að því að draga úr akstri strætisvagna um 15 til 20% án þess að skerða þjónustu. - RÚV greindi frá. Störfum fækkar Æ meira hlutfall af afla sem berst á land í Vestmannaeyjum er flutt til vinnslu annars staðar. Árs- störfum i fiskvinnslu hefur fækkað um helming á árinu og íbúum í Eyjum hefur fækkað stöðugt und- anfarinn áratug. - RÚV greindi frá. Vegur um Arnkötludal Lokið er undirbúningsathugun- um á vegagerð milii Hólmavíkur og Gilsfjarðar um Arnkötludal og Gautsdal. Um yrði að ræða 24,6 km veg í flokki Cl, sem er vegur í hæsta gæðaflokki. Áætlaður kostnaður við < aUa þætti vegarlagningarinnar er um 686 milljónir króna. - BB greindi frá. Bólusett gegn krabbameini Tiiraunabólusetning gegn HPV- veiru, sem getur orsakað leg- hálskrabbamein, hefur gengið vel. Milii 7.500 og 8.000 konur á aldrin- um 18-23 ára hafa fengið boð um að taka þátt í verkefninu. Byrjað var að bólusetja gegn veirunni í ágúst. í -HKr. Haldiö tíl haga Ranglega var farið með fóðurnafn Konráð Lúðvikssonar, yfirlæknis á Heilbrigöisstofnun Suðurnesja, í frétt um málefni heilsugæslunnar á Suðumesjum sem birtist í DV í gær. Þá var mishermt að borgarafundur sem fram fór á Suðumesjum hefði | verið haldinn að áeggjan Hjálmars | Árnasonar þingmanns. Hið rétta er að Víkurfréttir efndu til fundarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.