Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 4
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 Fréttir DV Breytingar á húsaleiguviðmiðun hjá Félagsbústöðum: Dæmi um 60% hækkun og líka 60% lækkun - allt leiguverð er nú miðað við samræmt fasteignamat Félagsbústaðir hf. hafa að undan- fornu verið að senda leigjendum Fé- lagsbústaða bréf um breytingar á leigu sem í sumum tilfellum er mjög mikil. Hefur þetta valdið talsverð- um titringi og fjölmargir hafa haft samband við Félagsbústaði vegna málsins, sérstaklega þeir sem verða fyrir hækkunum sem geta í einstök- um tilfelium numið yfir 60%. „Ég er öryrki," sagði kona sem leigir hjá Félagsbústöðum. „Ég sé ekki fram á að geta haldið jól eftir þessa hækkun. Endar ná einfaldlega ekki saman." Hún sagði að leigan hjá sér hækkaði úr rúmlega 33 þús- undum á mánuði í nærri 48 þúsund 1. desember. Síðan hækki leigan aft- ur um 12% 1. mars og fari þá í 53.550 krónur á mánuði. Hluti vegna vaxtahækkana Sigurður Kr. Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Félagsbústaða, segir að þessar breytingar hafi verið sam- þykktar í félagsmálaráði 15. okóber og búið sé að kynna málið í blöðum og ljósvakamiðlum. Fyrir helgina var fólk að fá send til sín bréf sem sýnir hversu mikil hækkunin eða lækkunin raunverulega veröur hjá hverjum og einum. Breytist leigan frá og með 1. desember og síðan aft- ur 1. mars, en þá hækkar leiga flestra íbúðanna um 12%. Kemur Flugfélag íslands: Farþegum fjölgar í inn- anlandsflugi Þrátt fyrir minnkað framboð og færri áfangastaði en í fyrra fjölgaöi far- þegum í innanlandsflugi Flugfélags ís- lands í októbermánuði um 1,1%, úr 21.795 farþegum í fyrra i 22.030 i ár, á meðan sætanýting félagsins jókst um 0,8 prósentustig. Sætanýting hjá Flugfélagi íslands hefur batnaö um 6,1% fyrstu níu mán- uði ársins og á þátt í verulegum bata á afkomu fyrirtækisins ásamt og með kostnaðarlækkun og mikilli hagræð- ingu á flestum sviðum starfseminnar. Hjá Flugleiðum-Frakt voru flutningar í september 14,5% minni en á fýrra ári og fyrstu níu mánuðina er þessi sam- dráttur 12,6%. FIugleiðir-FVakt eiga þess ekki kost að draga saman framboð í sama mæli og Flugleiðir og Flugfélag Islands, sem hefur áhrif til hins verra á afkomu fyrirtækisins. -GG Reykjavík Félagsbústaðir hf. eiga og reka 1.400 leiguíbúöir fyrir skjóistæbinga sína. Flestir íbúanna eru lágtekjufólk og margir eru öryrkjar. Verulegar breytingar veröa um mánaöamótin á leigukjörum sumra íbúöanna vegna nýrra viömiö- ana viö útreikninga húsaleigunnar. Leiga 500 íbúöa mun iækka, en leigan hækkar á 900 íbúöum Félagsbústaöa. það til vegna þess að félagslegt leiguhúsnæði var á 1% vöxtum frá íbúðalánasjóði fram til ársins 2001. Frá þeim tíma hækkuðu þessir vext- ir upp í 3,5%. Það þýðir kostnaðar- auka fyrir Félagsbústaði sem metn- ir eru á 12% hækkun leiguverðs frá 1. mars. Að vísu mun þessi 12% hækkun koma strax til fram- kvæmda hjá þeim leigjendum sem munu njóta lækkunar á húsalegu samkvæmt nýju reglunum. Vissulega sárt hjá mörgum „Það er eðlilegt að þetta veki við- brögð, enda eru flestir af okkar leigjendum lágtekjufólk og með um og yfir eina milljón króna í tekjur á ári. Það er því vissulega mjög sárt hjá mörgum að horfa fram á hækk- un húsaleigu. Á móti kemur að fólk á rétt á húsaleigubótum sem geta numið allt að helmingi leiguverðs og er þá miðað við tekjur og fjöl- skyldustærð." Þá hefur félagsmála- ráð samþykkt að veita því fólki tímabundna aðstoð sem verður illa fyrir barðinu á hækkun húsaleigu 1. desember. Miöaö við fasteignaverð Sigurður segir leiguverðið sam- kvæmt nýju fyrirkomulagi sem nú er verið að kynna ganga út frá því að fasteignamat sé lagt til grund- vallar útreikningi á leigunni. Fast- eignamatið var samræmt og endur- skoöað á siðasta ári og telur Sigurð- ur að fasteignamatið sé því besti grundvöllurinn til að tryggja að sambærilegar íbúðir séu á sambæri- legu verði. Áður var miðað við kaupverð sem hækkaði síðan miðaö við neysluvísitölu. Fasteignaverð í Reykjavík hefur siðan 1997 verið að hækka um 50-60%, en neysluvísital- an hefur ekki hækkað nema um 20% á sama tíma. Hefur þetta skap- að mikið misræmi á leigu milli íbúða. Þá greiðir Reykjavíkurborg raun- kostnað við rekstur húsnæðisins niður um þriðjung að sögn Sigurð- ar. Hann segir dæmið um 60% hækkun, eins og nefnt er hér að framan, í raun nokkuð sérstakt. í því tilfelli urðu þau mistök að við- komandi fjögurra herbergja íbúð var leigð út á mun lægra verði en sambærilegar íbúðir í sama húsi. Með fasteignamatsviðmiðuninni er þetta leiðrétt. Þannig hækkar leigan hjá sumum og það er notað til jöfn- unar þannig að hjá þeim sem áður greiddu mjög háa húsaleigu lækkar að sama skapi. 4,75% af fasteignamati Þessi svokallaða jöfnun miðast við 4,75% af fasteignamati viðkom- andi íbúðar. Dæmi um þriggja her- bergja íbúð sem í dag er með mjög háa leigu eða 61.985 krónur á mán- uði. Hún mun miðað við 4,75% af fasteignamati verða leigð á 39.243 krónur. Mismunurinn er 22.742 krónur sem leigan lækkar 1. desem- ber. Þann fyrsta mars mun leigan síðan hækka um 12%, eða um 4.709 krónur. Leigan verður því eftir þá hækkun 43.952 krónur sem er 18.033 krónum minna en áður. Um 500 íbúðir munu njóta lækkunar húsa- leigu, en 900 íbúðir munu hækka vegna þessa. -HKr. Könnun Gallup sýnir aö DV heldur sínu striki í harðnandi samkeppni: DV Magasín mest lesið allra vikurita - lestur á Morgunblaöinu hefur dregist saman DV Magasín er mest lesna viku- ritið samkvæmt könnun Gallup á Dekrað eintak K o m i ð Skoðið Prófið BMW 320ia Coup* tyiMt,0&,20Ol, 2000cc véh 2 ðýtn, §iðitfkípttíf, syatttít, ektnn 25,þ V£L MEÐ FARIN BÍU ->3.950it> 575 1230 Séö og heyrt Viöskiptabl. Mbl. Fókus Vikan Opiö mán-fös 09-18 og lau 10-16 GrjóthéUI 1 bflalsnd.ls notkun fjölmiöla í heila viku í október sem kynnt var í gær. Meðal íbúa í Reykjavík sögðust 57,4 prósent hafa lesið siðasta tölublað DV Magasíns í könnunarvikunni. Lest- ur DV Magasíns á höfuð- borgarsvæðinu öllu mældist hins vegar 55,6 prósent. AUs sögðust 47,7 prósent þeirra sem tóku þátt í könnuninni á land- inu öllu hafa lesiö eða flett síðasta tölublaði DV Magasíns. 54,7 prósent sögðust hafa lesið eða flett síðasta tölublaði Dagskrár vikunnar en hún kemur hins vegar út hálfsmánaðar- lega. DV Magasín ber höfuð og heröar yfir önnur vikurit. 31 prósent sögð- ust hafa lesið eða flett síðasta tölu- blaði Séð og heyrt, 29,9 prósent Við- skiptablaði Morgunblaðsins, 26,8 prósent Fókus og 16,5 prósent Vik- unni. DV heldur sínu striki þrátt fyrir tilkomu fríblaðs á dagblaðamarkað- inum og harðnandi samkeppni um lesendur. Meðallestur DV í könnun- arvikunni er 31,5 prósent eins og hann var könnun Gallup í mars síð- Lestur vikurita - skv. könnun Gallups 16.-22. október 2002 DV-Magasín astliðnum. Meðallestur Morgun- blaðsins hefur minnkað um 2,7 pró- sentustig, fer úr 60 í 57,3 prósent. Meöallestur Fréttablaðsins, sem dreift er ókeypis til lesenda, mæld- ist 51,8 prósent en var 44,4 prósent í mars. Fréttir eru mest lesna efni DV. Sé tekið dæmi af mánudagsblaði DV könnunarvikuna sögðust 98,2 pró- sent hafa lesið innlendar fréttir blaðsins og 95,8 prósent erlendar fréttir. 64,1 prósent sögðust hafa les- iö DV Sport en 76 prósent sé aðeins litið til karla. Lestur iþróttanna er mestur í aldurshópnum 20-24 ára eða 91,3 prósent. -hlh Stelngrímur J. Sigfússon. Hjálmar Árnason. Hvað er kjölfesta? í fyrirspurnar- tíma ráðherra á Alþingi í gær spurði Steingrím- ur J. Sigfússon forsætisráðherra hvort honum fyndist sala á hlut ríkisins í Búnað- arbankanum til S- hópsins svonefnda fela í sér mikla kjölfestu, í ljósi þess að hópurinn virt- ist ekki eiga peninga, borgaði ekki strax fyrir hlutinn, óljóst væri hvort borgað yrði í erlendum gjaldeyri, inn- byrðis skipting á eignarhlut væri ekki gefin upp, leynd hvíldi yfir þeim er- lenda banka sem stæði að kaupunum með hópnum og innan hans hefði ver- ið háð mikil valdabarátta. Steingrim- ur visaði til skilgreiningar orðabókar Menningarsjóðs á orðinu „kjölfesta". Davíð Oddsson skaut því að í svari sínu, að hann teldi Steingrím J. vera kjölfestuna í vinstri-grænum, en lagði í kjölfarið áherslu á að engin hluta- bréf yrðu afhent fyrr en greitt hefði verið fyrir þau. Ósáttur við áfrýjun Hjálmar Áma- son beindi þeirri spurningu til Geirs H. Haarde, hvort hann teldi að skerpa þyrfti á ákvæðum þjóð- lendulaganna. Til- efnið var, að það kom Hjálmari á óvart að ríkið skyldi áirýja nið- urstöðu úrskurðamefndar um þjóð- lendumál í tilteknu ágreiningsmáli í Árnessýslu. Þetta taldi Hjálmar and- stætt þeim yfirlýsta vilja Alþingis að þinglýstar eignir landeigenda yrðu virtar. Geir taldi ekkert skorta á að lögin væra skýr. Þar kæmi frarn að málsaðilar mættu skjóta málum tii dómstóla. Það hefðu tvö eða þrjú sveitarfélög gert og sömuleiðis ríkið varðandi einn af sjö úrskurðum sem kveðnir hefðu verið upp vegna mála í Árnessýslu. Geir sagði óhjákvæmilegt að fá úrskurð Hæstaréttar í því máli til að samræmi væri tryggt í sambæri- legum annars staðar á landinu. Viðbótarlán í óvissu Ögmundur Jón- asson spurði fjár- málaráðherra hvort tekin hefði verið ákvörðun um að veita íbúða- lánasjóði lánsfjár- heimild vegna við- bótarlána þar sem heimildir fyrir þetta ár væm upp- urnar og ekki hægt að veita fleiri íbúðarkaupendum viðbótarlán. Geir sagði að um það hefði ekki verið tekin ákvörðun en málið væri til „vinsamlegrar umfjöll- unai-“ í tengslum við gerð fjárauka- laga fyrir þetta ár og fjárlög fýrir næsta ár. ögmundur taldi að umsækj- endur um viðbótarlán ættu inni yfir- lýsingu frá Geir um hvers væri að vænta en Geir sagði ómögulegt að gefa slíka yfirlýsingu enda engin ákvörðun verið tekin. Kemur mér ekki við Kolbrún Hall- dórsdóttir spurði Valgerði Sverris- dóttur um fréttir þess efiiis að er- lendir verktakar, sem gert hefðu til- boð við tiltekna verkþætti í tengsl- um við virkjunar- framkvæmdir, hefðu dregið tiiboð sín til baka. Valgerður sagðist ekki vita hvers vegna tilboðin hefðu verið dregin til baka. Slik mál vörðuðu ekki ráðuneytið heldur Landsvirkjun, sem væri sjálfstætt fyrirtæki. -ÓTG nundur anasson. Kolbrún Halldórsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.