Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 DV Fréttir Krefjast samningsréttar Fulltrúaráð Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna, sem í eru 1.100 félagar, 300 í aðalstarfi og 800 i hluta- starfi, harmar þá afstöðu fjár- málaráðuneytisins að sjúkra- flutningamenn í hlutastarfi hafi ekki samningsrétt þar sem þeir hafi annað starf að aðalstarfi. Það sé með öllu óskiljanlegt og um leið óþolandi að fjármálaráðherra telji þessa stétt manna ekki þurfa að njóta þeirra sjálfsögðu mann- réttinda að semja um sín kaup og kjör. Skorað er á fjármálaráð- herra að endurskoða afstöðu ráðuneytisins og fela samninga- nefnd ríkisins að hefja nú þegar samningaviðræður við Lands- samband slökkviliðs- og sjúkra- flutn ingamanna. Fulltrúaráðið átelur einnig að ráða sem skólastjóra Brunamála- skólans einstakling sem enga reynslu hefur af brunamálum og þekkir ekki til þarfa slökkviliða og slökkviliðsmanna. Það sé brot á 6. gr. reglugerðar um Bruna- málaskólann. Nýr skólastjóri er Elisabet Pálmadóttir efnaverk- fræðingur sem m.a. hefur starfað að innra eftirlit með vatnsveit- um. -GG Ökukennarar hafa þrýst á að fá æfingasvæði í 20 ár: Menn komast ekki upp úr hjólförunum - segir formaður Ökukennarafélags íslands - málið verður rætt á umferðarþingi Enn virðist langt í landþráðan draum ökukennara um aö fá akst- ursæfingabraut á höfuðborgar- svæðinu. Málið hefur verið til Um- ræðu í mörg ár en ekkert þokast í átt að framkvæmdastiginu þrátt fyrir að allir séu sammála um að málið sé mjög aðkallandi, og lausn margra vandamála í umferðinni. Á umferðarþingi árið 2000 skrif- uðu fulltrúar dómsmálaráðuneyt- is, Reykjavíkurborgar, Vegagerð- ar ríkisins, Sambands íslenskra tryggingarfélaga og Ökukennara- félags tslands undir yfirlýsingu þess efnis að þau byndust samtök- um um það að þau ætluðu að standa fyrir byggingu akstursæf- ingasvæðis í Gufunesi, á gömlu öskuhaugunum. Búið sé að tala um þetta í yfir 20 ár. Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags íslands, segir að það þokist jafn lítið með akst- ursæfingabraut og mislæg gatna- mót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, en hvoru- tveggja sé afar brýnt. „Það var reynt að fá sveitarfé- lögin sjö á höfuðborgarsvæðinu til þess að standa sameiginlega að þessari framkvæmd með þessum aðilum, en þau töldu sér það ekki Á fleygiferð í hálkunni Þessi mynd er af einni af 32 hálkubrautum sem til eru í Danmörku og er þessi viö Amager. fært. Á meðan komast menn ekki upp úr hjólförunum og spóla bara keðjulausir á sumardekkjum. Þetta mál er rætt aftur og aftur, m.a. við dómsmálaráðherra, en það virðist ákaflega erfitt að koma því af stað. Ráðherra hefur sagt að það sé hið versta mál að málið komist ekki upp úr hjólförunum, en það þarf að koma þessu inn í kennsluprógramm vegna öku- kennslu. Þá væri stutt í það að við hættum að spóla. Þar sem þessari kennslu hefur verið bætt við úti í heimi hefur það skilað sér í bætt- um akstursferli ökumanna. Það þarf því ekki að fjölyrða um það að það er mikil þörf á svona braut,“ segir Guðbrandur Boga- son. Kostnaðartölur hækka Björn Friðfinnsson, ráðuneytis- stjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir að málið hafi í sífellu verið að hlaupa á undan þeim þar sem kostnaðartölur hafi sífellt verið að hækka eftir að búið var að finna einhverjar fjármögnunarleiðir. „Við skrifuðum bréf á miðviku- dag til Umferðarstofu og báðum þessa nýju stofnun að taka málið til endurskoðunar og skUa okkur skýrslu um málið. Síðustu kostn- aðartölur hljóðuðu upp á 165 millj- ónir króna. En það er fengin lóð á gömlu öskuhaugunum í Gufunesi. Ég vona að málið verði rætt á Um- ferðarþingi sem verður haldið í næstu viku,“ segir Björn Frið- fmnsson. -GG / •• Allur hagnaður rennur til líknarmála. Hlustað með andakt Þeir Guömundur Hallvarðsson, alþingismaöur og formaöur samgöngunefndar, Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, ogÁrni M. Mathiesen sjávarútvegsráöherra hlusta á þaö sem fram fer á Sjómannaþinginu. Þing Sjómannasambands íslands: Vill endurvekja Kvótaþing Nýlokið þing Sjómannasambands íslands ítrekaði fyrri afstöðu gegn auðlindagjaldi á sjávarútveginn og krefst þess að ákvæði þar um í lög- unum um stjórn fiskveiða verði afnumið áður en það kemur tO framkvæmda. Þingið ítrekar jafn- framt þá skoðun að banna eigi út- gerðarmönnum að eiga viðskipti með veiðiheimOdir. Meðan útgerð- armönnum er heimOt að leigja afla- mark krefst þingið þess að slík við- skipti eigi sér stað á Kvótaþingi. Þingið gagnrýnir samninganefndir VSFÍ og LÍÚ fyrir að hafa gengist fyrir afnámi Kvótaþingsins á síð- asta ári. Jafnframt skorar 23. þing Sjómannasambands íslands á sjáv- arútvegsráðherra að setja Kvóta- þingið aftur á fót hið fyrsta eða af- nema heimOdir útvegsmanna tO að versla með veiðiheimOdir. Af öðrum samþykktum má nefna að krafist er þess að lög verði sett um fjárhagslegan aðskOnað veiða og vinnslu; mótmælt er þeim mál- flutningi formanns LÍÚ að laun sjó- manna séu of há og þess vegna þurfi að gera breytingu á hlutaskiptakerfi sjómanna; fagnað er að vinna eigi að því að fram fari reglubundin könnun á launum sjómanna; fagnað er samkomulagi sem gert var miOi SSl og SA f.h. LÍÚ og félagsmálaráð- herra staðfesti um starfsmenntamál sjómanna og að hægt sé að hefja hvalveiðar í vísindaskyni eftir inn- göngu íslands í Alþjóðahvalveiði- ráðið; krafist er þess að íslensk launakjör gOdi sem lágmarkskjör í öUum fostum áætlunarsiglingum tO og frá landinu; fagnað er átaki Sigl- ingastofnunar í útgáfu kynningar- bæklinga fyrir sjómenn um ýmis ör- yggismál og lýst er furðu á þeirri ákvörðun stjórnvalda að skera nið- ur þegar of lítinn skipakost Land- helgisgæslunnar. Sævar Gunnarsson, Grindavík, var endurkjörinn formaður Sjómanna- sambands íslands og Konráð Alfreðs- son, Akureyri, varaformaður. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.