Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002
DV
Þetta helst
HEILDARViÐSKIPTI 3.247 m.kr.
Hlutabréf 572 m.kr.
Húsbréf 909 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
| Kaupþing 384 m.kr.
0 Islandsbanki 54 m.kr.
© Grandi 34 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 Íslandssími 2,4%
Q Hl.br.markaðurinn 1,1%
0 Bakkavör MESTA LÆKKUN 0,9%
0 Skeljungur 2,1%
0 Landsbankinn 1,9%
0ÍAV 1,5%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.312
- Breyting -0,22%
Atvinnuleysi
eykst
Atvinnuleysi jókst verulega í októ-
ber frá mánuðinum á undan og mæld-
ist 2,5% en hafði verið 2,2% í október.
Meðalfjöldi atvinnulausra var um
10,9% meiri í október en í september
eða töluvert meira en árstíðabundin
sveifla, en síðustu tíu ár hefur at-
vinnuleysi aukist um 5,6% milli þessa
mánaða. Árstíðabundið versnar
ástandið á vinnumarkaði að jafnaði
yfir vetrarmánuðina, þannig er árs-
tíðasveiflan miðað við síðustu tíu ár
þannig að atvinnuleysi hefur aukist
um 9,5% frá október til nóvember.
Vinnumálastofnun telur því líklegt að
atvinnuleysi aukist í nóvember og
verði á bilinu 2,7-3,0%. Nú þegar er
atvinnuleysi tvöfalt meira en fyrir
ári.
Afkoma SS
batnar
Rekstrartap Sláturfélags Suður-
lands fyrstu níu mánuði ársins var
14,5 milljónir, en á sama tímabili árið
áður var 103 milljóna króna rekstrar-
tap. Bætt afkoma stafar fyrst og
fremst af lækkun fjármagnsgjalda
vegna gengishækkunar krónunnar.
Rekstrartekjur Sláturfélags Suður-
lands voru 2.667 milljónir á fyrstu níu
mánuðum ársins 2002, en 2.353 millj-
ónir á sama tíma árið áður og aukast
um rúm 13%. Rekstrargjöld án af-
skrifta námu 2.546 milljónum á fyrstu
þrem ársfjórðungum ársins 2002 sam-
anborið við 2.238 milljónir árið áður
og aukast um tæp 14%. Hagnaður fyr-
ir afskriftir var því 121 milljón á móti
115 milljónum á sama tima í fyrra.
Hlutdeild i afkomu hlutdeildarfé-
laga var neikvæð um 28 milljónir en
jákvæð árið áður um 2 miiljónir. Að
teknu tilliti til skatta nam tap af
rekstri tímabilsins 14,5 milljónum
króna en var 103 miiljónir árið áður.
í frétt frá félaginu segir að afkom-
an verði að teljast óviðunandi og ein-
kennist af mikiili verðsamkeppni og
offramboði á kjöti á markaðnum sem
hafði neikvæð áhrif á afkomu félags-
ins. Þá er bent á að afkoma Sláturfé-
lagsins hefur jafnan verið þyngst
framan af árinu en best á síðasta árs-
fjórðungi. Þetta stafar m.a. af afkomu
afurðadeildar en umsvif hennar
aukast við haustslátrun sauðfjár. Að-
haldi verður áfram beitt í rekstri fé-
lagsins, en gripið hefur verið til hag-
ræðingaraðgerða til að draga úr út-
gjöldum auk þess sem fjárfestingar
hafa verið dregnar saman. Gert er ráð
fyrir að framangreindar aðgerðir og
aðstæður á markaði muni leiða til
bættrar afkomu Sláturfélagsins á sið-
asta ársfjórðungi.
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaðiö
Skýrr hf.:
Tap af hlutabréfaeign
dregur afkomuna niður
Skýrr hf. var rekið með 31 millj-
ónar króna tapi fyrstu níu mánuði
ársins. Tapið skýrist fyrst og fremst
af niðurfærslum vegna lækkunar á
hlutabréfum í eigu Skýrr hf. og
Teymis hf., en félögin voru samein-
uð frá og með 1. júlí sl.
Sé eingöngu horft til reksturs
móðurfélagsins, Skýrr hf„ sjást mik-
il batamerki í rekstrinum. Rekstrar-
tekjur móðurfélagsins námu alls
1.418 milljónum króna og jukust um
7% milli ára. Hagnaður fyrir af-
skriftir var 230 milljónir samanbor-
ið við 161 milljón á sama tíma í
fyrra. Hins vegar nemur sérstök
niðurfærsla hlutabréfaeignar 102
milljónum króna á tímabilinu,
vegna lækkunar á markaðsgengi
skráðra hlutabréfa í eigu félagsins.
Á sama tímabili í fyrra nam niður-
færslan samtals 238 milljónum
króna. Þessi niðurfærsla í ár skýrist
að stærstum hluta af lækkun á bréf-
um í Columbus IT Partner. Hagnað-
ur móðurfélagsins fyrir skatta
fyrstu níu mánuði ársins nemur alls
um 40 milljónum og þar af er hagn-
aðurinn fyrir skatta síðustu þrjá
mánuði 30 milljónir sem sýnir að af-
koman hefur batnað verulega síð-
ustu mánuði.
í frétt frá Skýrr kemur fram að
rekstur Teymis ehf. hefur gengið
mjög erfiðlega á tímabilinu, bæði
hér á landi og jafnframt hjá Teymi
A/S í Danmörku. Tap timabilsins
frá 1. júlí til 30. september sl. nam
alls um 20 milljónum króna. Gripið
hefur verið til aðgerða til þess að
snúa rekstrinum við og mun sumt
af því skUa sér fljótlega inn í rekst-
urinn og annað þegar líða tekur á
næsta ár.
Á tímabUinu var jafnframt ákveð-
ið að gjaldfæra sérstaklega 45 mUlj-
ónir vegna eignarhluta í dóttur- og
hlutdeUdarfélögum, sem voru í eigu
Teymis hf. Þar vegur þyngst 30
milljóna króna gjaldfærsla vegna
Teymis A/S auk 15 mUijóna vegna
hlutdeUdarfélaga. Þetta er gert í
varúðarskyni tU að mæta hugsan-
legum áfoUum vegna erfiðleika í
rekstri þessara félaga. AUs eru því
gjaldfærðar á timabUinu 67 mUljón-
ir króna vegna Teymis ehf. og
þeirra félaga sem áður voru í eigu
Teymis hf.
Ágæt afkoma hjá
Opnurn kerfum
Hagnaður samstæðu Opinna
kerfa hf. fyrstu níu mánuði ársins
var 158 miUjónir króna. Á sama
tíma í fyrra var 204 mUljóna króna
tap af rekstrinum. Hagnaður fyrir
afskriftir eykst úr 341 mUljón í 601
mUljón krónu. Veltufé frá rekstri
hækkar úr 186 milijónum í 476 mUlj-
ónir króna.
Aíkomubatinn er í takt við aukin
umsvif samstæðu Opinna kerfa hf„
en hún samanstendur af móðurfé-
laginu, Opin kerfi Sweden AB, sem
er eignarhaldsfélag Datapoint
Svenska AB, Skýrr hf„ Tölvudreif-
ingu hf. og Enterprise Solutions AS.
Rekstrartekjur samstæðunnar juk-
ust um 78% mUli tímabUa og eru nú
um 7.478 miUjónir króna. Veltu-
aukningin kemur að mestu frá
starfseminni erlendis sem bættist
við samstæðuna í desember 2001.
Rekstur samstæðunnar er að mestu
í samræmi við áæUanir en helstu frá-
vik snúa að því að afkoma Skýrr hf. er
lakari en ráð var fyrir gert vegna sér-
stakra niðurfærslna á hlutabréfaeign
félagsins. Áætlanir samstæðu Opinna
kerfa hf. fyrir rekstrarárið 2002 gerðu
ráð íyrir hagnaði fyrir skatta yfir 400
mUljónir króna. Forráðamenn félags-
ins telja nú að vegna niðurfærslu
hlutabréfaeignar verði hagnaður
lægri eða um 300 mUljónir króna fyr-
ir skatta.
Xfmælis-tilboö/
í tilefni 60 ára afmælis okkar bióðum við
frábærar steypuvinnuvélar á tilboði.
Vélar frá Stow, Technoflex og Fast Verdini
Líttu við o§ skoðaðu úrvalið, tilboðið
stendur til áramóta
Vibrasleðar
frá kr: 142.500.- stgr. m/vsk
Tlötuslípivélar 1
bensín og rafmagns,
verðfrákr: 201.800.
stgr. m/vsk
IVibraréttskeiðar
verð frá kr: 73.000
’stgr.m/vsk
Steinsagir með blaði
verð frá kr. 292.500.- stgr, m/vsk
Víbratorar með w
barka og haus
verð frá kr: 64.900.- stgr. m/v:
Jarðvegsþjöppur^^^^
verð frá kr:.212.350.-stgr m/v:
iTverdiniI
........ pí /
'eONOFUEX
t*ORCAlMSSON &CO
Ármúla 29- 108 Reykjavík 5538640 - www.thco.is