Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 12
12 __________________________________________________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 Útlönd DV Árásir á Gaza-borg aðra nóttina í röð - vopnafundur í höfuðstöðvum öryggissveitanna í Gaza REUTERSMYND Fuglinn hreinsaður Sjófuglar á norövesturströnd Spánar hafa oröiö olíumenguninni úr olíu- skipinu Prestige aö bráö. Olíuskipið brotn- aði í tvennt und- an Spánarstönd Olíuskipið Prestige, sem er skráð í Panama, brotnaði í tvennt undan norðvesturströnd Spánar klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma. Umhverfisvemdarsinnar höfðu var- að við þessu og hrikalegum afleið- ingum fyrir lífríkið ef tugir þús- unda tonna af olíu lækju í sjóinn. Skipið var dregið inn í portú- galska efnahagslögsögu i gær og var vonast til að hægt yrði með því að koma í veg fyrir að skipiö brotnaði. Fimm þúsund tonn af olíu höfðu þegar lekið úr oliuskipinu og valdið griðarlegu tjóni á ströndum Galiciu- héraðs á Spáni. Þykk olíuskán ligg- ur i fjörunum og fjöldi fugla hefur orðið olíunni að bráð. Gjöful fiski- mið eru á þessum slóðum. Sjötíu þúsund tonn af olíu voru i skipinu þegar leki kom að því í miklu óveöri fyrir helgi. Ef öll sú ol- ia færi í sjóinn yrði skaðinn tvisvar meiri en varð þegar skipið Exxon Valdez brotnaði undan Alaska 1989. ísraelskar skriðdrekasveitir gerðu í nótt árásir á Gaza-borg aðra nótt- ina í röð og hófust þær um miðnætti í gærkvöld með sprengjuárásum or- ustuþotna á nokkrar byggingar í borginni. Að sögn sjónarvotta kom til harðs skotbardaga milli palestínskra byssumanna og ísraelskrar skrið- drekasveitar innan borgarmarkanna og sögðu talsmenn ísraelska hersins að komið hefði verið að þeim þar sem þeir voru að undirbúa eldflauga- árás á sveitina. „Okkur tókst að koma í veg fyrir að þeim tækist að skjóta sprengjuflaug- unum að okkur,“ sagði talsmaður ísraelska hersins, en að minnsta kosti þrír úr liði Palestínumanna munu hafa særst hættulega í bardaganum. Þetta geröist eftir að ísraelsk her- sveit hafði ráðist að höfuðstöðvum palestínsku öryggissveitanna í borg- inni, sem íraelar segja að hýsi vopna- verksmiðju fyrir palestínska hryðju- verkamenn. Er þetta í fyrsta skipti síðan yfirstandandi ófriður hófst sem árás er gerð á byggingamar og sagði talsmaður ísraelska hersins að við leit hefðu fundist þar sprengjur sem not- aðar hafa verið gegn skriðdrekum, Qassam-flugskeyti og tæki til sprengjugerðar auk annara léttvopna. „Vopnafundurinn sannar bein tengsl öryggissveitanna við palest- ínska hryðjuverkamenn og ljóst að ör- yggissveitir þeirra stuðla frekar að í Disneyfréttum getur |iu séð allt jftai ittjfasia I itstaiieimi Ittsireg Dlaney-fréttum 2002 er dreift fímmtudaginn 21. nóve á höfuöborgarsvæðinu, Keflavik, Borgarnesi og Selfossi. af Dlsney-fróttum í nóvember og desember á oftirtöldum t Öllum útibúum Búnaöarbanka íslands á landsbyggöinni, McDonald’s veitingastóðunum, SAM-blóunum í Reykjavík, Akureyri og Keflavík og hjá Krakkaklúbbi DV. Skemmdir kannaöar Palestínskir öryggisveröir kanna skemmdir í höfuöstöövum öryggissveitanna í Gaza-borg í gær. hryðjuverkum en að koma í veg fyrir þau,“ sagði einn talsmanna hersins. Árásin á höfuðstöövarnar stóð í heilar þrjár klukkusfimdir og var lít- ið af þeim uppistandandi á eftir. Talsmaður palestínskra stjórn- valda vísar ásökunum ísraela á bug og segir það ekkert nýtt að þeir noti þessa afsökun fyrir árásum. Það geri þeir reyndar cdltaf þegar ráðist sé gegn opinberum byggingum. Á Vesturbakkanum skaut palest- ínskur byssumaður ísraelska konu til bana í nágrenni Kochav Has- hachar-landtökubyggðarinnar í út- jaðri Ramallah, þar sem hún var á heimleið í bil sfnum. ísraelski Verkamannaflokkurinn mun í dag kjósa sér nýjan leiðtoga fyrir þingkosningarnar sem fram fara í janúar og er fyrirfram búist við harðri baráttu milli þriggja fram- bjóðenda sem eru þeir Binyamin Ben-Eliezer, núverandi leiðtogi flokksins, Amram Mitzna, borgarstjóri Haifa og Haim Ramon, fyrrum ráðherra. REUTERSMYND Bond mættur í bælnn Ofurnjósnari hennar hátignar, James Bond 007, kom til London ígær þegar nýja myndin, Die Another Day, var fumsýnd meö viöhöfn, aö viöstaddri Elísa- betu drottningu. Hér eru þau Pierce Brosnan og Halle Berry, aöalleikarar myndarinnar, og hafa fulla ástæöu til aö skælbrosa. ISLENSKA Lísa Páls kynnir j nýju kl. 22.10 á þriðju Norskt varð- skip í björtu báli úti fyrir Álasundi Norska varðskipið Orkla er nú í björtu báli við Lebseyjarrif úti fyrir norska bænum Álasundi á Suður- Mæri. Lögreglan í Álasundi fékk tilkynningu um eldinn klukkan sjö í morgun, en þrjátíu og tveggja manna áhöfn er á skipinu og hafa 25 þeirra þegar yfirgefið varðskipið í björgunarbátum. Ferjumar, Fjörtoft og Solskjær eru á svæðinu og hafa bjargað þeim varðskipsmönnum sem þegar hafa yfirgefið skipið og einnig sveima björgunarþyrlur yfir svæðinu. Ekki er vitað tU að slys hEifi orðið á mönnum en sjö af áhöfninni eru enn um borð í skipinu til að berjast við eldinn. Fleiri skip og bátar eru á leið til hjálpar áhöfninni til að bjarga varðskipinu. -GÞÖ James Coburn látinn Kvikmyndaleik- arinn og ósk- arsverðlaunahafinn James Cobum lést af völdum hjarta- áfalls á heimilu sínu í Kalifomiu í gær, 74 ára að aldri. Cobum lék í fjölda kvikmynda á 40 ára ferli sínum en þekktastur er hann fyrir leik sinn í ýmsum hasarmyndum. Ógnir í Ástralíu Áströlsk stjómvöld sögöust í morgun hafa fengið upplýsingar um hættu á hryðjuverkum í landinu á næstu tveimur mánuðum. Talið er að hótunin tengist al-Qaeda. Lítil samúð í Róm íbúar Rómar sýndu Giulio Andreotti, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, litla samúð í gær eftir að hann var dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir að fá mafiuna til að drepa fyr- ir sig blaðamann. Bush til Prag í dag George W. Bush Bandaríkjafor- seti heldur til Prag í dag þar sem hann mun sitja leiðtogafund NATO og reyna að afla sér stuðnings Evr- ópuþjóða við yfirvofandi árásir á Irak til að búa bandalagið undir baráttuna við hryðjuverkaöílin. Gíslatökumaður tekinn Spænska lögreglan hefur hand- tekið 17 ára ungling sem tók 20 skólanemendur í gíslingu í gær og krafðist rúmlega eitt hundrað millj- óna króna í lausnargjald. Bin Laden var það heillin Rannsókn banda- rísku leyniþjónust- unnar hefur leitt í ljós að það er Osama bin Laden sjálfur sem talar á hljóðupptöku sem arabísk sjónvarps- stöð sendi út um daginn. Þar með er ljóst að hinn hundelti bin Laden var að minnsta kosti enn á lífi í október. Konan fær ekki sæðið Hæstiréttur Bandaríkjanna úr- skurðaði í gær að fangelsisyfirvöld í Kalifomíu hefðu ekki brotið rétt fanga eins með því að meina honum að senda konu sinni sæði úr sér svo hún gæti orðið þunguð. Ölprinsinn Karl Karl Bretaprins hefrn- verið kjörinn öldrykkjumaður ársins vegna ötullar baráttu sinnar fyrir því að bjarga sveitakrám frá því að deyja drottni sin- um. Það var nefnd breskra þingmanna sem veitti prinsinum þennan mikla heiður. Kemst þótt hægt fari Bandarískum konum í háum stöðum stórfyrirtækja fer fjölgandi en að það ku víst ganga ofurhægt. ESB stækkar 1. maí 2004 Evrópusambandið ákvað í gær að söguleg stækkun þess til austurs tæki gildi 1. maí 2004, á frídegi verkalýðsins. Þá var ákveðið að nýju ríkin, væntanlega tíu talsins, tækju fullan þátt í kosningum til Evrópuþingsins í júní 2004.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.