Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Side 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002
PV_______________________________________ ~ Útlönd
Vopnaeftirlitsmenn SÞ komnir til Bagdad:
Aukin spenna vegna
loftárása bandamanna
Hans Bllx og Mohamed El Baradei vlö komuna til Bagdad.
Þeir Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlits SÞ og Mohammed El Baradei,
yfirmaöur Alþjðða kjarnorkumálastofnunarinnar, munu funda áfram meö
íröskum embættismönnum í dag.
Poul Nyrup Rasmussen
Fyrrum forsætisráðherra Danmerkur
sagður ætla að hætta sem formað-
ur Jafnaöarmannafiokksins.
Poul Nyrup hætt-
ir sem formaöur
jafnaðarmanna
Nú er komið að skuldadögum fyr-
ir Poul Nyrup Rasmussen, leiðtoga
danskra jafnaðarmanna og fyrrum
forsætisráðherra. Hann ætlar að til-
kynna í dag að hann láti af for-
mannsembættinu og taki þar með af-
leiðingunum af sögulegum ósigri
flokksins í kosningunum í fyrra.
Danska blaðið Politiken segir í
dag að Nyrup ætli að greina frá
þessu á skyndifundi framkvæmda-
stjómar jafnaðarmannaflokksins þar
sem eini dagskrárliðurinn er að boða
til aukaþings til að kjósa nýjan for-
mann.
Ákvörðun Nyrups kemur í kjölfar
endumýjaðrar gagnrýni á forystu
hans, nú síðast í tengslum við samn-
ingaviðræðurnar um fjárlögin.
Heimildarmenn Politiken telja lík-
legast að Mogens Lykketoft, fymun
utanríkisráðherra, verði kjörinn for-
maður í stað Nymps. Þrir aðrir hafa
þó verið nefndir til sögunnar.
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna, sem komnir eru til Bagdad,
funduðu strax í gær með íröskum
embættismönnum í fyrsta skipti síðan
vopnaeftirliti var hætt fyrir fjórum
árum.
Á sama tíma eykst spennan vegna
ítrekaðra loftárása breskra og banda-
rískra orustuþotna á írösk skotmörk á
flugbannssvæðinu i norður- og suður-
hluta landsins sem koma á versta
tíma, þegar vopnaeftirlit er að hefjast.
Þrátt fyrir það var Hans Blix, yfir-
maður vopnaeftirlitsins, ánægður
með árangurinn af fundinum og sagð-
ist vonast til þess að framhald yrði á
því þegar hann ásamt Mohamed E1
Baradei, yfirmanni Alþjóða kjarn-
orkumálastofnunarinnar, IAEA, hittir
Amir al-Saadi, helsta hernaðarráð-
gjafa Saddams Husseins, á fundi í dag.
„Auðvitað einkenndi spenna fund-
inn í gær, sem er eðfilegt í byrjun eft-
ir fjögurra ára hlé, en ég tel þó að okk-
ur hafi miðað áfram og vona að fram-
hald verði á því í dag,“ sagði Blix, sem
eflaust á eftir að flnna fyrir aukinni
gagnrýni íraskra embættismanna
vegna loftárása Breta og Bandaríkja-
manna, en i gær gerðu orustuþotur
þeirra hörðustu árásir á flugbanns-
svæðinu í langan tíma.
Um þrjátíu vopnaeftirlitsmenn eru
þegar komnir til Bagdad og vinna þeir
nú að undirbúningi eftirlitsins, en að
sögn Blix mun þeim fjölga í um fimm-
tfu þann 27. nóvember nk.
Að sögn talsmanns bandaríska
hersins voru loftárásirnar í gær svar
við síendurteknum árásum íraka á
eftirlitsvélar yfir flugbannssvæðinu,
en um helgina hefðu þeir skotið bæði
flugskeytum og vamarflaugum að vél-
um á eftirlitsflugi.
„Loftárásunum í gær var beint að
þremur loftvamamannvirkjum á suö-
ursvæðinu og á jafnmörg á norður-
svæöinu," sagði talsmaðurinn.
Talsmaður bandarískra stjómvalda
sagði í gær að árásir íraka væm skýrt
brot á nýrri ályktun Öryggisráðs SÞ
og tók Donald Rumsfeld varnarmála-
ráðherra í sama streng og sagði þær
óásættanlegar. „Þrátt fyrir að um brot
sé að ræða á ályktuninni tel ég ólík-
legt að farið verði fram á frekari að-
gerðir," sagði Rumsfeld og bætti við
að það væri í höndum Bandaríkjafor-
seta og öryggisráðs SÞ að ákveða
hvort írökum verði refsað.
írösk stjómvöld, sem aldrei hafa
samþykkt flugbannssvæðið sem ein-
hliða var ákveðið af Bandaríkjamönn-
um, Bretum og Frökkum til vemdar
Kúrdum á norðursvæðinu og sjíta-
múslimum á suðursvæðinu eftir
Persaflóastríðið árið 1991, sögðu í gær
að orustuvélar bandamanna hefðu
gert árásir á íbúðabyggð í Nineveh-
héraði, í um 400 kílómetra fjarlægð
frá Bagdad, en ekkert var minnst á
mannfall.
Mótmæli í Teheran
íranskir námsmenn hafa mótmælt
dauðadómi yfir háskólakennara.
íranskir náms-
menn berjast við
afturhaldsöflin
Þúsundir íranskra námsmanna,
sem krefjast pólitískra umbóta,
lentu í gær í átökum við róttæka
múslíma á götum Teheran, höfuð-
borgar Irans.
Um það bil fimm þúsund náms-
menn komu saman í tækniháskóla
borgarinnar til að mótmæla dauða-
dómi yfir háskólakennaranum Has-
ham Aghajari sem hefur leyft sér að
gagnrýna klerkastjómina.
Sjónarvottar sögðu að hundruð
harðlínumanna hefðu ruðst inn í
fyrirlestrasalinn þar sem náms-
mennimir hlýddu á ræður og hróp-
uðu vígorð gegn stjórnvöldum.
Það var eins og við manninn
mælt að allsherjarslagsmál brutust
út en enginn meiddist alvarlega.
„Vandi okkar er ekki aðeins sá að
við viljum að dauðadóminum yfir
Aghajari verði hnekkt. Tjáningar-
frelsið og frelsið almennt eiga undir
högg að sækja," sögðu stúdentarnir.
Heilsteyptur hugsjónamaöur
/
Birgi Armannsson í 6. sætiö!
Birgir Ármannsson er aðstoðarframkvæmdastjóri Verslunarráðs islands og gefur kost á sér i prófkjöri reykviskra sjálfstæðismanna. - www.birgir.is
i
I,
Birgir Armannsson er traustur
málsvari frjálslyndra og öfgalausra
viöhorfa, sem byggjast á trú á
ábyrgö og frelsi einstaklingsins.
Hann hefur yfirgripsmikla þekkingu á
gangverki atvinnulífsins og vill hafa
hagsmuni heimilanna í fyrirrúmi.
Slíka menn þurfum viö á þing!