Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÚVEMBER 2002 y Tilvera x>"v Stór stund Timo Koponen, sendiherra Finnlands ð íslandi, og Hanna Saila, ritari í sendiráöinu. Anægð með daginn Sigurður Þórir Sigurösson myndlistarmaöur var fyrstur til aö hengja upp myndir sínar í Klassís. Hér er hann ásamt Kristínu Geirsdóttur listakonu t.v. ogJennýju Ármanns- dóttur, eiginkonu sinni. Verslunin Klassís opnuð: Finnskt skart í aðalhlutverki DV-MYNDIR E.ÓL. Nýbúin að opna Kristín Eiriksdóttir, eigandi Klassís, á milli þeirra AlfLarsson, frá Lapponia í Helsinki, t.v. og eiginmanns síns, Lars Stahl. Brógagrrrýní Háskölabíó - Das Experiment ★ ★★ Tilraun sem breytist Það var margt um manninn og mikið um dýrðir á Skólavörðustíg 8 þegar nýja skartgripaverslunin Klassís skart - gallerý var opnuð sl. fóstudag. Eigandinn er Kristín Ei- ríksdóttir. Hún er fyrst íslendinga til að setja fókusinn á finnska skart- gripi frá fyrirtækinu Lapponia Jewelery sem hefur verið við lýði frá 1960 og er þekkt fyrir glæsilega hönnun, enda með flmm heims- þekkta skarthönnuði á sínum snær- um. Myndlistarmenn verða einnig með sölusýningar í Klassís og sá fyrsti er Sigurður Þórir Sigurðsson. Innréttingar í versluninni eru úr mahóní og gleri og að hluta til ís- lensk smíði frá miðri síöustu öld. -Gun. í martröð Fangar og fangaverðir Þaö tekur ekki leikmenn langan tíma aö lifa sig inn í hlutverkiö. Eðli mannsins hefur löngum ver- ið vísindamönnum ráðgáta og marg- ar tilraunir gerðar með eðlið sem viðfangsefni. Það virðist ekki ætla að takast (sem betur fer) að reikna manninn út, hvemig hann hagar sér við hinar ýmsu aðstæður. Fyrir þrjátíu árum var gerð tilraun með háskólanema i Stanford-fangelsinu í Bandaríkjunum. Þar var þeim skipt í tvo hópa, fangaverði og fanga. Var ætlunin að kanna mannlegt eðli við slíkar aðstæður. Tilrauninni var hætt eftir sex daga þar sem hópur- inn þótti sýna viðbrögð sem ekki hafði verið reiknað með. Það sem færri vissu var að vísindamennim- ir sem stóðu í tilrauninni voru einnig famir að hegða sér öðruvísi en þeir áttu að hegða sér. Það er lauslega á þessari tilraun sem þýski leikstjórinn, Oliver Hirschbiegel, byggir kvikmynd sina Das Experiment. Hann færir sögu- "r sviðið til Þýskalands og auglýsir eft- ir þátttakendum í slíka tilraun. Það sem kannski í byrjun gerir það að verkum aö myndin fer ekkert vel af stað er sú staðreynd að það er ekk- ert sem kemur á óvart. Við vitum, hvort sem við höfum lesið okkur til um efni myndarinnar eða ekki, að þessi tilraun mun fara úr böndun- um. Þá er kynning á aðalpersón- unni, Tarek (Moritz Bleibtreu), fyrr- um blaðamapni og núverandi leigu- bílstjóra, ekki til þess fallin að byggja upp spennu. Það er svo ekki fyrr en hópurinn er kominn í „fang- ^ elsið" og búið er að skipta liði að það fer að hitna í kolunum. Svið- setningin er gróf og köld og þegar líða fer á myndina er ekki laust viö að grilla megi í þá þýsku þjóð sem aðhylltist nasismann í hegðun ein- stakra „fangavarða". Það myndast fljótt mikil spenna milli „fangavarða" og „fanga“ og upphafsmaðurinn í þessari spennu, sem verður að martröð, er Tarek, sem tekur ekki hlutverk sitt hátið- lega í upphafi og storkar Berus (Justin von Dohnanyi), sjálfskipuð- um foringja „fangavarðanna“. Nú kemur atburðarás sem hvorki leik- hópurinn sem er í þessu fyrir pen- ingana eða vísindamennirnir gerðu ráð fyrir. Das Experiment er ákaflega sterk kvikmynd og um leið sjokkerandi. Er ekki laust við að upp í hugann komi sú hugsun að þegar maðurinn lendir í aðstöðu sem er ekki hluti af því umhverfi sem hann þekkir þá er lítill munur á grimmu rándýri sem snýst til vamar og okkur. Veiki hlutinn í þeirri uppbyggðu spennu sem á sér stað innan „fangelsisins" eru vísindamennirnir, sem eru óljósar persónur og er óraunsæið mest þegar sá litli hópur er i sög- unni. Nokkuð er um lausa enda, sér- staklega hvað varðar einstaklinga. „Fangaverðir" sjást fara út og inn, voru einhverjir þeirra valdir fyrir- fram eða ekki? Ef svo er þá er til- raunin að sjálfsögðu ekki marktæk og svo er einn klefafélagi Tareks í eitthvað allt öðrum erindagerðum en að ná sér í peninga. Svona mætti halda áfram að telja upp ýmislegt sem veikir myndina. Þá er loðin hliðarsagan um stúlkuna sem Tarek kynnist. Eftir stendur þó að Das Ex- periment er sterkt og áhrifamikið drama. Leikstjóri: Oliver Hirschbiegel. Handrit: Don Bohlinger, Christoph Darstadt og Mario Giordano. Kvikmyndataka: Rainer Klausmann. Tónlist: Alexander Buben- heim. Aðalhlutverk: Moritz Bleibtreu, Justin von Dohnanyi, Christian Berkel, Maren Eggert og Egar Selke. Vrnsæfcfstu kvikmyndírnar Harry Potter í sérflokki Ekki náði nýja Harry Potter- myndin, Harry Potter and the Chamber of Secret, að fara upp fyr- ir Harry Potter and the Scorcer’s Stone i aðsókn fyrstu helgina í Bandaríkjunum, en var nálægt því, halaði inn 87 milljónir dollara á móti 90 milljónum sem fyrsta mynd- in náði inn. Framleiðendur myndar- innar geta þó ekki verið annað en ánægðir með þessar tölur og ljóst er að hún stefnir vel yfir 200 milljóna dollara markið. Þá hefur hún hlotið mikla aðsókn á Bretlandseyjum. Hér á landi verður myndin frum- sýnd á föstudag. í kvöld er forsýn- ing í Háskólabíói. Um er að ræða boðssýningu. Aðsókn var góð á aðrar kvik- myndir og hafa 8 Mile, The Santa Claus 2 og The Ring fengið góða að- sókn. Brosið hlýtur samt að vera breiðast á aðstandendum The Big Fat Greek Wedding, sem er að sigla yflr 200 milljóna dollara markið. HELGIN 15.-17. NOVEMBER ALLAR UPPHÆÐIR i ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA. SÆTI FYRRI VIKA Tmu. INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLiM BÍÓSALA O _ Harry Potter and the Chamber.... 88.357 88.357 3682 e 1 8 Mile 19.344 84.440 2496 o 2 The Santa Claus 2 15.102 82.517 3346 o 3 The Ring 10.662 100.684 2882 o _ Half Past Dead 7.820 7.820 2123 o 6 My Blg Fat Greek Wedding 4.713 199.574 1812 o © 5 Jackass: The Movie 3.875 59.377 2413 4 1 Spy 3.806 30.734 2611 o 10 Frida 2.914 8.661 519 © 7 Sweet Home Alabama 2.233 121.886 1469 © 13 Bowllng For Columblne 1.263 8.798 248 © 9 Femme Fatale 1.248 5.688 1066 © 11 Punch-Drunk Love 1.210 16.500 867 © 8 Ghost Ship 1.117 28.250 1175 © 14 Star Wars: Attack of the Clones 909 307.022 58 © _ Far From Heaven 902 1.253 54 © _ Real Women Have Curves 520 2.608 147 0 12 Red Dragon 507 92.472 552 © 17 Barbershop 502 74.794 725 © _ El crimen de padre Amaro 496 496 43 Vínsæfustcj myrrdböntfín Máttur Hugh Grants er mikill Harry Potter og leyniklefinn Emma Watson, Rupert Grint og Daniel Radcliffe leika hetjurnar þrjár. Mynd þessi kostaði smáaura miðað við Hollywood-myndir og er þegar komin á spjöld sögunnar sem mest sótta „óháða“ kvikmyndin frá upp- hafi. -HK Rómantíska gamanmyndin About a Boy hafði betur gegn stóru kvikmyndunum, Spider- Man og Star Wars H: Attack of the Clones og er í efsta sæti mynd- bandalistans þessa vikuna. Þetta kemur nokkuð á óvart þar sem um tvær mjög vinsælar ævintýra- myndir er að ræða. Það er sjálf- sagt Hugh Grant sem hefur þetta mikla aðdráttarafl. About a Boy er gerð eftir skáld- sögu Nicks Homby en hann skrif- aði Fever Pitch og High Fidelity, sem urðu að vinsælum kvikmynd- mn. Myndin fjallar um Will Light- man (Hugh Grant), ungan mann, sem hýr í London og lifir góðu lífi af tekjum af vin- sælu jólalagi sem fað- ir hans samdi. Til að sýna fram á að hann sé ábyrgur borgari og einnig til að prófa kvenfólkið sem hann umgengst, þykist hann vera einstæður faðir. Þessi ákvörðun hans hefur bæði kosti og galla. Þegar hann kynnist hinum tólf ára Marcos og tekur hann upp á sína arma þarf hann allt í einu að hugsa um annað en sjálfan sig. Auk Hugh Grant leika í About a Boy Toni Collette og Rachel Weisz. -HK About a Boy Hugh Grant leikur hinn ábyrgöarlausa Will Lightman. VIKANll. 17. NÓVEMBER FYRRI VIKUR SÆTI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) ÁUSTA 0 _ About a Boy isam myndbönd) 1 O 1 Splder-Man (SkIfan) 3 o _ Star Wars II: (skj'fan) 1 o 2 40 Days and 40 Nights (sam myndbönd) 3 o 3 Monster’s Ball (myndform) 2 o 4 Showtime (mam myndböndj 6 o 6 My Blg Fat Greek Wedding (myndform) 10 o 5 John Q (MYNDF0RM) 4 , o 7 Mothman Prophecies (sam myndbóndi 5 ! 0 8 ísöld (skífan) 4 j © 9 Ali G Indahouse (sam myndbönd) 4 j © 10 What the Worst Thing.... (skífanj 7 j © n Hart’s War iskífan) 5 j © 12 Queen of the Damned isam myndböndj 3 : © 20 24 Hour Party People (sam myndbönd) 2 j © 16 All about the Benjamins (myndform) 5 i © 15 K-PaX (SAM MYNDBÖND) 8 © 14 Don’t Say a Word (Skífan) 12 1 © 13 Panic Room iskífan) 8 0) ■«»ÍF _ Collateral damage (sam myndböndi 8 i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.