Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Blaðsíða 21
21 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 DV Tilvera m Jodie Foster fertug Leikkonan og leik- stjórinn Jodie Foster á stórafmæli í dag. Hún kom fyrst fram tveggja ára gömul. Sló siðan í gegn á barnsaldri í kvik- myndum á borð við Bugsy Malone og Taxi Driver og fékk óskarstilnefningu fyrir Taxi Driver. Foster er einstök barnastjama að því leyti að hún varð enn stærri stjama á fullorðinsárum. Hefur hún leikið í hverri gæðamynd- inni af annarri og er mjög eftirsótt. Hún fékk óskarinn fyrir Accused (1988) og Silence of the Lambs (1991). Foster er útskrifuð með meistarapróf í bókmenntum frá Yale-háskólanum. Glldir fyrir miðvikudaginn 20. nóvember Vatnsberlnn (20. ian,-l8. febr.l: ■ Þú átt skemmtilegan dag fram undan og hver veit nema að ást- in leynist á næstu grösum. Náinn vinur þinn þarfnast þín. Fiskarnlr (19, febr.-20. mars): Þér gengur vel að ráða I fram úr minni háttar vanda og þú hlýtur mikið lof fyrir. Þú gengur í gegnum erfitt timabil í ástarmálum. Hrúturinn (21. mars-19. apríh: . Deilur í fjölskyldunni f hafa mikil áhrif á þig. Þær eru þó ekki eins _ alvarlegar og á horfð- ist og í kvöld verður allt fallið í ljúfa löð. Nautið (20. apríl-20. maíl: Ekki vera að reyna að sýna fram á yfirburði þína í tíma og ótíma, litillæti er líklegra til að vekja aðdáun. Ekki er ólíklegt að þú farir í óvænt ferðalag. ■ mauflmu -V : Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): Þú gætir þurft að fresta ’ einhveiju vegna breyttr- ar áætlunar á síðustu stundu. Það verður létt yfir déginum, jafnvel þó þú lendir í smávægilegum Uldeilum. Krabblnn (22. iúní-22. iúií): Það er lítið að gera í I félagslífinu um þessar mundir og það er gott þar sem kominn er i þú takir þig á í námi eða starfi. Forðastu kæruleysi. Llónlð (23. iúlt- 22. ágúst): Það er mikið að gera hjá þér um þessar mundir. Þér gengur þó vel með allt sem þú tekur þér fyrir hendur og hefúr gaman af því sem þú ert að gera. Mevlan (23. áeúst-22. sept.l: Ekki vera of fljótur að dæma fólk og felldu allan vafa um ágæti ^ , r einhvers honum í hag. Kvöldið verður rólegt. Vogin (23. SRDt.-?S. nkt.l: Það er gott að eiga góða vini og þú þarft mikið á þeim að halda um þessar mundir. Ekki vera feiminn við að leita til þeirra. Sporðdreklnn (24, pkt,-2i, nw.l: [ Farðu út og gerðu eitt- | hvað sem veitir þér út- |rás, þá á þér eftir að líða : betur. Kýldu á það sem : áð gera f stað þess að eyða orkunni í það að vera með áhyggjur. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.): LÞér hættir til að vera of f fús til að fóma þér fyrir aðra og í dag ættir þú að hugsa meira um sjáífairþig? Reyndu að klára hluti sem þú hefur verið að draga lengi. Stelngeltln (22. des.-19. ian.i: Þú ert í góðu skapi í dag og færð góðar hug- myndir. Hresstu upp á minnið varðandi ákveðin atriði sem eru að líða þér úr minni. þúþi Minningartónleikar um Svanhvíti Egilsdóttur á morgun í Hafnarborg: Pað var mikill glans í kringum hana - segir Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona Guörún „Svanhvít bauð alltaf upp á sterkt kafii, taldi það holl- ara en þunnt,“ segir Jó- hanna Þórhallsdóttir söng- kona um leið og hún rennir kraftmiklu kafii í bolla Guð- rúnar Egilson og blaða- manns DV. Svanhvít sú sem vitnað er til var Egilsdóttir, söngkona og prófessor, og stundin er helguð henni. Guðrún hefur nefnilega ný- lokið við bók um þessa merku konu og Jóhanna stendur fyrir minningartón- leikum um hana í Hafnar- borg annað kvöld. Þar munu vinir Svanhvítar og fyrrum nemendur koma fram, svo sem Ingveldur Ýr, Snorri Wium, Björk Jónsdóttir, 4Klassískar og Léttsveit Reykjavíkur. Auk þess mun Guðrún lesa upp úr nýju bókinni, Tvístirni - Saga Svanhvítar EgUsdóttur. Fyrsti kvenprófessor- inn „FerUl Svanhvítar EgUs- dóttur var mjög merkur og það má furðulegt heita hversu hljótt hefur verið um hana hér á landi,“ segir Guðrún og heldur áfram: „Hún varð fyrst ís- lenskra kvenna prófessor við erlend- an háskóla er hún réðst að Tónlist- arakademíunni f Vinarborg þar sem hún kenndi mörgum af helstu stór- söngvurum síns tíma.“ Guðrún kveðst hafa orðið að fara út um vfðan vöU tU að afla heimUda um lif Svanhvítar. „Hún ólst upp í Hafn- arfirði og var nemandi í fyrsta ár- gangi Tónlistarskólans hér. Þær voru tvíburar, hún og Nanna EgUsdóttir söngkona en voru aðskUdar íjögurra mánaða gamlar. Svo hittust þær í stríðinu í Þýskalandi og lokuðust þar inni.“ Innt eftir einkamálum Svanhvítar upplýsir Guðrún aö hún hafi verið tvígift. Fyrst giftist hún prentara sem hét Óskar Guðnason. Þau fóru saman tU Berlínar fyrir stríð en hjónabandið entist ekki lengi. Síðan giftist hún Jan Morávek og þau fluttust hingað heim en eftir farsælt samband í nokkur ár varð mjög dramatískur skUnaður mUli þeirra. Eftir það bjó Svanhvít að mestu erlendis, eða frá 1956, sam- fleytt. En um áttræðisafmælið sitt, 1994, keypti hún hús í Hafnarfírði sem hún dvaldi i af og tU síðustu fiögur árin sín og hún kvaddi lífið hér á landi í nóvember 1998.“ Haföi miklu aö miöla Þótt Guðrún hafi skrifað um Svan- hvíti bók kveðst hún ekki hafa kynnst henni persónulega í lifanda lífi. Það gerði hins vegar Jóhanna. „Fundum okkar bar saman seint á mínum námsferli og hennar kennaraferli. Hún var mjög sterkur karakter með frábæra söngtækni og það var svo mikUl glans í kring um hana. Hún var líka feiknagóður píanisti sem var sér- stakt fyrir söngkennara. Ég finn að í Eiga samelginlegt áhugamál Egilson, kennari og rithöfundur, og Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona halda minningu Svan- hvítar Egilsdóttur á loft, hvor á sinn hátt. minni söngkennslu styðst ég við margt af því sem hún miðlaði mér og hafði ég þó fína kennara áður, bæði hér á landi, í London og á Ítalíu. Ég var í góðu sönglegu ástandi og það var gaman að fara lengra með henni,“ seg- ir Jóhanna og bætir við: „Mér fannst líka frábært hjá henni að fara út tU frekara náms um fertugt, ná að verða svona mikUl fag- maður og gerast prófessor við eina flottustu tónlist- arakademíu í Evrópu." Stokkið hjalla af hjalla Guðrún kveðst hafa verið í fullri kennslu uppi í Versl- unarskóla þegar hún var beðin að skrifa bók um Svanhvíti. „Ég ætlaði ekkert út i þetta en þegar ég fékk þessa beiðni kom verkfaU og ég fór að kíkja á verkefiiið. Þá var þetta svo spennandi að ég stökk hjaUa af hjaUa og gat ekki stoppað. Mér fannst Svanhvít leiða mig aUan tímann því ég var aUtaf að rekast á fólk sem hafði kynnst henni og eitt- hvað sem minnti á hana. „Það sýnir líka hvað þræðir frá henni lágu víða,“ skýtur Jóhanna inn í. „Vertu ekkert að gera lít- dv-mynd gva jQ ýj. ancHegu áhrifunum. Þetta var aUt eitt ævintýri og það veit ég að tónleikarn- -c ir verða líka á miðvikudags- kvöldið," segir Guðrún og Jóhanna tekur undir það: „Þeir eru lika ókeypis og öUum opnir meðan húsrúm í Hafnarborg leyfir." -Gun. AIH semþú þarft er í einni ium.ijjj samstæðu: heimabíó, DVD, útvarp, geislaspilari og öflug hljómtæki! DCS-303 kr. DVD spilari, útvarp og Dolby Digital/DTS magnarÞSpilar DVD/CD/CD-R/CD-RW/VCD/MP3/DVDR •Magnari 6 X 75 W RMS*Bassabox 75 W RMS*Stilling á Bassa og Diskant»Útvarp með 30 stöðva minni og RDS • Dolby Digital / DTS / Pro logic II* AUX inngangur og TV inngangur* AUX útgangur*“0pticai" stafrænn inngangur*Super VHS útgangur»Bassabox 13 x 36 x 36 cm»Bak- og Framhátalarar 11x15.5x76 cm»Miðjuhátalari 20 x 11 x 76 cm Utvarp. geislaspilarí o£ llDw magnarí! ir | IS-1 i i cr. Geislaspilari • Útvarp • Magnari 110 w RMS •1 x 50 djúpbassi • RCA inngangur • Allar uppl'ysingar á kristalsskjá • Útvarps með RDS og þrjátíu stöðva minni • Fullkomin fjarstýring LÉTTGREIÐSLUR \ í ÞRJÁ MÁNUÐI! BRÆÐURNIR Tónllstarprófessorinn Svanhvít dvaldi erlendis aö mestu eftir 1956 en flutti heim um áttrætt. ©ORMSSON RdDIOftóÖST I LÁGMULA 8 • SÍMI 530 2800 FURUVÓLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI 462 1300 I ! ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.