Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002
27
VINTERSWÍHT
DEILDIN
Staöan:
KR 7 6 1 620-525 12
Grindavík 7 5 2 623-538 10
Keflavík 6 4 2 611-497 8
Haukar 6 4 2 522-480 8
Njarðvík 6 4 2 477—466 8
Tindastóll 6 3 3 521-533 6
ÍR 6 3 3 485-529 6
Snæfell 6 2 4 460-481 4
Breiðablik 6 2 4 557-567 4
Hamar 6 2 4 579-654 4
Valur 6 1 5 436-526 2
Skallagrímur 6 1 5 449-544 2
Næstu leikir:
Leikir í kvöld
Skailagrímur-Breiðablik......19:15
Tindastóll-Njarövík..........19:15
ÍR-Hamar....................19:15
Snæfell-Haukar............. 19:15
Valur-Keflavík............. 19:15
Fimmtudaginn 28. nóvember
Haukar-Tindastóll.......... 19:15
Valur-tR .................. 19:15
Föstudaginn 29. nóvember
Hamar-Snæfell ..............19:15
Keflavík-KR..................19:15
Njarðvík-Skallagrímur.......19:15
Breiðablik-Grindavik....... 19:15
Stigahæstir aö meöaltali:
Stevie Johnson, Haukum ......36,5
Kenneth Tate, Breiðabliki....33,2
Darrell Flake, KR ...........32,0
Robert O’Keliey, Hamri........31,0
Darrel Lewis, Grindavik......27,3
Damon Johnson, Keflavík......25,0
Laveme Smith, Val............23,2
Peter Philo, Njarðvík .......22,5
Clifton Cook, Tindastóli ....22,2
Pálmi Freyr Sigurgeirss. Breiðab. 21,8
Flest fráköst aö meöaltali:
Darreli Flake, KR............15,9
Kenneth Tate, Breiðabliki....14,8
Hlynur Bæringsson, Snæfelli . . 13,8
Isaac Hawkins, Skallagrími.... 13,2
Stevie Johnson, Haukum ......13,2
Friðrik Stefánsson, Njarðvík . .. 12,2
Clifton Bush, Snæfelli.......11,3
Páli Kristinsson, Njarðvík...11,0
Páil Axel Vilbergsson, Grindavík . 9,7
Ómar Sævarsson, ÍR ...........9,7
Flestar stoösendingar í leik:
Pálmi Freyr Sigurgeirss. Breiðab. 6,3
Sævar Ingi Haraldsson, Haukum . 6,0
Lárus Jónsson, Hamri ...........5,7
Helgi Guðmundsson, Snæfelli ... 5,5
Clifton Cook, Tindastól ........5,3
Damon Johnson, Keflavík ........4,8
Peter Philo, Njarðvík...........4,8
Helgi Jónas Guðfmnsson, Grindav. 4,4
Steinar Kaldal, KR..............4,3
Magni Hafsteinsson, KR..........4,0
Flestir stolnir boltar í leik:
Damon Johnson, Keflavík..........3,7
Eugene Christopher, ÍR ..........3,5
Clifton Cook, Tindastóli.........3,2
Magni Hafsteinsson, KR...........3,1
Helgi Jónas Guðfmnsson, Grindav. 3,0
Pálmi Freyr Sigurgeirss. Breiðab. 2,8
Eiríkur Önundarson, ÍR...........2,7
Stevie Johnson, Haukum...........2,7
Friðrik Stefánsson, Njarðvík .... 2,5
Peter Philo, Njarövík............2,5
Flest varin skot í leik:
Michail Antropov, Tindastól .... 5,3
Magni Hafsteinsson, KR...........2,9
Friörik Stefánsson, Njarövik .... 2,8
Hlynur Bæringsson, Snæfelli ... 2,2
Hjörtur Þór Hjartarson, Val......2,0
Besta vítanýting:
Marel Guðlaugsson, Haukum . 95,7%
Guðmundur Bragason, Grindav. 93,8%
Jón Amar Ingvarsson, Haukum 92,9%
Magnús Þór Gunnarss., Keflav. 91,7%
Ragnar Ragnarsson, Njarðvík .. 88,9%
Besta skotnýting:
Predrag Bojovic, Haukum . . . 65,0%
Friðrik Stefánsson, Njarðvík . 61,0%
Darrell Flake, KR..............60,4%
Jón N. Hafsteinsson, Keflavík 59,3%
Kevin Grandberg, Keflavik . . 58,8%
Besta 3ja stiga nýting:
Gunnar Einarsson, Keflavík . . 72,7%
16 hitt af 22 skotum
Hafþór Ingi Gunnarsson, Skallagr. 46,7%
Páll Axel Vilbergsson, Grindav. 46,7%
Sigurður Þorvaldsson, IR .. . . 46,7%
Pálmi Freyr Sigm-geirss. Breið. 46,4%
Sport
Hengdum haus
O O rrA 1 T7'v»1 Av»l lr Tv\ m "Dnv-% vtnnnv\ TvTnlAvvn O wi w/IttÍIti v» rrn
- sagði Friðrik
„Eflaust hafa menn verið pínulít-
ið kærulausir eftir góðan sig-
ur gegn Keflavík á fostudag.
En það var svo sem ekki sleg-
ið upp kampavínsflöskunni
eftir leikinn á fostudag.
Við byrjuðum leikinn vel,
en svo lendum við í vandræð-
um með sóknina og þeir kom-
ast inn í leikinn. Þegar þeir
Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga
voru komnir í forystu fannst mér
við sökkva dýpra og
dýpra.
KR liðið spilaði góða
vöm og þeir eru hávaxn-
ari en við í nánast öllum
stöðum og ég held að það
hafi haft töluvert að
segja í þessum leik. Þeir
nýttu sér það vel sóknar-
lega og sóknin rann miklu betur hjá
þeim.
Við aftur á móti misstum líka
auðveld skot þó svo að KR spilaði
flna vöm. Það var líka skortur á
einbeitingu hjá mínum mönnum og
við hengdum haus heldur snemma í
síðari hálfleiknum," sagði Friðrik
Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvík-
inga, eftir leik. -EÁJ
Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari KR-liðsins:
Við nýttum
okkar styrk
„Það er
gaman þegar
menn eru að
leggja sig fram
og við upp-
skerum eftir
því. Við nýtt-
um okkar
styrk sóknar-
lega i kvöld og breiddina sömu-
leiðis. Mér fannst lykilmenn hjá
þeim virka þreyttir er leið á en við
vorum alltaf á tánum,“ sagði Ingi
Þór Steinþórsson, ánægður KR
þjálfari eftir leik.
Magni á meira inni
Þú hlýtur að vera ánægður með
frammistöðu Magna í kvöld?
„Já, Magni er að mínu mati
maður leiksins. Slekkur algjör-
lega í Páli í vörninni og spilaði
glimrandi sóknarleik. Hann
stígur upp með hverjum leiknum
og á meira aö segja meira inni,“
sagði Ingi Þór að lokum. -EÁJ
Grindavík-KR 71-82
2-0, 8-2, 8-6,18-8,13-22, (18-26), 20-26, 24-34,
24-40, 28-40, (28-45), 28-17, 30-47, 30-55,
37-55, 37-60, 44-66, (44-69), 44-71, 48-74,
52-74, 52-78, 63-78, 68-82, 71-82.
Stig Grindavikur: Darrel Lewis 24, Helgi
Jónas Guðfinnsson 12, Guðmundur
Bragason 10, Bjarni Magnússon 10, Páll
Axel Vilbergsson 6, Jóhann Þór Ólafsson 4,
Guðlaugur Eyjólfsson 3, Nökkvi Már
Jónsson 2.
Stig KR: Darrell Flake 28, Magni
Hafsteinsson 14, Óöinn Ásgeirsson 9, Amar
Kárason 8, Magnús Helgason 8,
Skarphéðinn Ingason 6, Baldur Olafsson 5,
Jóhaiuies Ámason 2, Steinar Kaldal 2.
Dámarar (1-10):
Kristinn Óskars-
son og Jón Bender
(8).
Gœði leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 300.
Maöur leiksins:
Magni Hafsteinsson, KR
Fráköst: Grindavik 36 (16 í sókn, 20 í
vöm, Lewis 8), KR 49 (14 í sókn, 35 í vörn,
Flake 13).
Stoósendingar: Grindavík 15 (Helgi
Jónas 5), KR 23 (Magni 6).
Stolnir boltar: Grindavik 8 (Pétur 2,
Lewis 2, Guðmundur 2, Helgi Jónas 2), KR 11
(Magni 6).
Tapaöir boltar: Grindavík 17, KR 16.
Varin skot: Grindavik 4 (Lewis 2), KR 9
(Magni 4, Steinar 2).
3ja stiga: Grindavik 20/5 (25%), KR 13/1
(8%).
Víti: Grindavík 24/16 (67%), KR 13/9
(69%).
- KR-ingar á toppnum
eftir öruggan sigur í toppleiknum í Grindavík
KR-ingar skutu Grindvíkinga niður
á jörðina (eftir sigurinn góða í Keíla-
vík) og sér á toppinn með öruggum
ellefu stiga sigri, 71-82, í Röstinni í
Grindavík í Intersportdeildinni í
körfubolta í gær.
Það má segja að Grindvíkingar
hafi bjargað andlitinu út á við með
því að skora 27 stig í fjórða og síðasta
leikhlutanum því fram að því áttu
þeir engin svör við góðum leik gest-
anna. Þrátt fyrir það náðu heima-
menn samt einungis stigaskori sínu
upp í 71 stig sem er lægsta stigaskor
Grindavíkurliðsins í Röstinni í deild-
inni í heil fimm ár.
Það má segja að KR-liðið hafði
kannski byrjað að fagna of snemma
og liðið af þeim sökum slakað á á
lokamínútunum en mest náði liðið 25
stiga forskoti, 30-55, í upphafi seinni
hálfleiks þegar Vesturbæingar gerðu
út um leikinn.
Byrjun leiksins lofaði þó góðu fyrir
heimamenn. Pétri Guðmundssyni
tókst að loka á sendingar inn á
Darrell Flake og á meðan opnaði hratt
spil þeirra Helga Jónasar Guðfinns-
sonar og Darrel Lewis fyrir auðveldar
körfur hinum megin. Grindavík
komst í 8-2 og Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari KR-inga, tók leikhlé eftir að-
eins tæpra tveggja mínútna leik. Það
er óhætt að segja að þetta leikhlé hafi
kippt hlutunum í lag þvi KR-liðið
vann næstu sex mínútur, 20-5, og var.
komið með níu stiga forustu.
Herbragð Grindvíkinga að reyna að
loka á sendingar inn á Darrel Flake
misheppnaðist algjörlega og kappinn
skoraöi tólf stig á þessum góða kafla
KR-liðsins. Það sem eftir var leiksins
höfðu gestimir fóst tök á leiknum allt
þar til í lokin er Grindvíkingar náðu
með ágætum lokaspretti að laga stöð-
una en fátt annað gat glatt stuðnings-
menn liðsins.
KR-ingar léku vel í gær, vömin var
gríðarlega sterk og sóknarleikurinn
er einfaldur og árangursríkur þar
sem miðpunkturinn er spil í kringum
Darrell Flake. KR-liðið skorar 35 af 36
körfum sínum fyrir innan þriggja
stiga línuna og á sama tíma og þaö
var að fá góð skot nálægt körfunni
tókst þeim að þvinga Grindavíkurlið-
ið í erfið skot hinum megin.
Magni afvopnaöi Pál Axel
Magni Hafsteinsson hefur verið að
spila feikivel í vetur og i gær undir-
strikaði hann styrkleika sinn í vörn
sem sókn. í vörninni afvopnaði Magni
Pál Axel Vilbergsson en Páll Axel,
sem hafði skorað 22,8 stig að meðaltali
fyrir leikinn, skoraði aðeins sex stig.
Tvö af þessum sex stigum komu af
vítalínunni og önnur tvö þegar Magni
var sestur á bekkinn. Magni sýndi
snilli sína á mörgum stöðum því auk
14 stiga, sendi hann sex stoðsending-
ar, stal 6 boltum, tók 5 fráköst og
varði 4 skot. KR-liðið nýtti hæð sína
enn fremur vel og það reyndist Grind-
víkingum erfitt sem og það vom allir
að skora fyrir KR í leiknum.
Á sama tíma fundu þrir helstu
skorarar Grindavíkurliðsins sig ekki.
Framlögum Páls Axels hefur þegar
verið lýst, Helgi Jónas Guðfmnsson,
klikkaði á 10 af fyrstu tólf skotum sín-
um en setti tvo þrista í blálokin og
Darrel Lewis skoraði 11 af 24 stigum
sínum í fyrsta leikhluta. Bestu menn
Grindavíkurliðsins vora gömlu ref-
irnir Guðmundur Bragason og Bjarni
Magnússon sem komu báðir inn af
bekknum. -ÓÓJ