Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 ' Sport DV 1 t > Ómar Smárason, nýskipaður leyfisstjóri KSÍ, á skrifstofu sinni í höfuöstöðvum KSI á Laugardals- velli. Fyrir framan hann sést hin rúmlega 100 blaðsíöna handbók sem Knattspyrnusambandið hef- ur heimfært upp á ísland úr upp- haflegu handbókinni frá Knatt- spyrnusambandi Evrópu. Pessi handbók fer fljótlega I þýöingu áður en hún veröur send til Knatt- spyrnusambands Evrópu þar sem hún verður tekin fyrir og vonandi samþykkt þannig að hægt verði að byrja aö vinna eftir henni sem fyrst hér á landi. DV-mynd Hari KSÍ tekur upp leyfiskerfi í Símadeild Allra h - segir Ómar Smárason, KSÍ mun á næstunni taka í notkun leyfiskerfí fyrir félög í Símadeildinni. Þetta kerfi verður innleitt að tilstuðlan Knattspymusambands Evrópu en sam- bönd allra þjóða innan Knattspymu- sambands Evrópu munu þurfa að fara eftir þessu leyfiskerfi frá og með næsta keppnistimabili. KSl hefur ráðið sérstakan leyfis- stjóra fyrir þetta umfangsmikla verk- efni en það er eitt af því sem Knatt- spymusamband Evrópu fer fram á við samböndin. Sá heitir Ómar Smárason en hann er langt frá því að vera ný- græðingur í starfi KSÍ. Ómar kom til starfa hjá KSÍ um mitt ár 1998 og hefur hingað til haft umsjón með mótamál- um, markaðsmálum Símadeildar karla og kvenna og samstarfi við fjölmiðla í kringum landsleiki. DV-Sport settist niður með Ómari í gær og ræddi við hann um leyfiskerfið og þær breyting- ar sem það mun hafa í fór með sér fyr- ir þau íslensku félagslið sem þurfa að beygja sig undir það. Viövörunarbjöllur glumdu „Ástæða þess að Knattspymusam- band Evrópu fór af stað með þetta leyfiskerfi er að fjárhagur margra fé- laga í Evrópu var orðinn mjög slæmur. Þetta kerfi er að mörgu leyti komið til vegna þess að félögin hafa sóst eftir auknu aðhaldi og hjálp við að reka fé- lögin á sómasamlegan hátt. Viðvörun- arbjöllur voru famar að glymja um alla Evrópu og mörg félög römbuðu á barmi gjaldþrots. Þetta kerfi hefur ver- ið við lýði i til að mynda Þýskalandi í mörg ár og menn fara fógrum orðum um það þar. Þau félög eru teljandi á fingmm annarrar handar sem eru í fjárhagsvandræðum þar og sérfræðing- ar vilja meina að það sé þessu kerfi að þakka. Knattspymusamband Evrópu hefur gefið út þykka handbók um þetta kerfi sem er að mestu leyti sniðið fyrir stærstu deildimar í Evrópu og því höf- um við þurft að sníða kerfið að íslensk- um markaði. Það er ljóst að ekki er hægt að gera sömu kröfur til ÍBV og Barcelona og því verðum að heimfæra þetta upp á okkar litla land. Það hefur nú verið gert og við munum senda okk- ar hugmynd að íslensku leyfiskerfi út til Knattspymusambands Evrópu í byrjun næsta mánaðar þar sem það verður tekið til athugunar og væntan- lega samþykkt án mikilla breytinga." Aukiö aöhald fyrir félögin „Þetta leyfiskerfi felur i sér fimm at- riði sem félögin þurfa að standa skil á gagnvart okkur. Það er fjárhagsleg at- riði, lagaleg atriði, mannvirkjaleg at- riði, atriði varðandi starfsfólk og stjómun og knattspymulega atriði sem varða þjálfun og þjálfaramenntun og æfingaaðstöðu. Það er ljóst að einn þessara þátta er mjög dýr, þaö er þátt- urinn sem snýr að mannvirkjum og endurbótum á þeim. Við vonumst til að félögin fái hjálp frá bæjarfélögum þar sem úrbóta er þörf og munum reyna að hjálpa þeim í samskiptum við bæjarfélögin þar sem það á við. Þetta kerfi veitir félögunum aukið aðhald en það er langt frá því að að við ætlum okkur að vera einhverjir varðhundar sem höngum yfir félögunum eins og vofur. Félögin þurfa að standa skil á þessum hlutum gagnvart okkur og fyrr munu þau ekki fá leyfi til að taka þátt í Símadeildinni á næsta ári. Þetta kerfi virkar hins vegar í báðar áttir því að við hjá KSÍ þurfum að standast ákveðnar kröfur gagnvart Knatt- spymusambandi Evrópu. Ég er hins vegar svo heppinn að hafa stjóm og aðra starfsmenn sambandsins á bak við mig og mér sýnist allir innan þess vera tilbúnir til að vinna að þessu verkefni af krafti. Það er ekki raunin alls staðar eins og ég kynntist á kynn- ingarfundi Knattspymusambands Evr- ópu um leyfiskerfið í Amsterdam í síð- ustu viku. Það er undir hælinn lagt hvemig stutt er við bakið á mönnum i mörgum samböndum í Evrópu þannig að miðað við þann stuðning sem ég hef fengið hjá mínu fólki er ég mjög bjart- sýnn á að þetta gangi vel hjá okkur.“ Félögin jákvæö „Við höfum kynnt þetta leyfiskerfi fyrir félögunum að undanfórnu og haldið einn kynningarfund. Á næstu tveimur vikum munum við hitta for- ráðamenn félaganna tíu og ræða við þá einslega en á heildina litið hefur mér fundist að menn séu mjög jákvæðir fyrir þessu. 1 byrjun gætti þó nokkurr- ar vantrúar á þetta kerfi en það var að- allega af því að menn þekktu ekki til þess. Þegar það var kynnt fyrir félög- unum sáu menn að það er bráðsniðugt og allra hagur að innleiða það. Þetta hefur að sjálfsögðu i fór með sér að rekstur félaganna verður undir meiri smásjá en verið hefur en það kemur þeim bara til góða. Reyndar hafa félög- in verið að vinna mjög vel í sínum málum á undanfomum árum og flest þeirra þurfa ekki að gera neinar stór- kostlegar breytingar á sínum rekstri til að fá leyfið. Við munum veita aðlögunartima í flestum þeirra þátta sem leyfiskerfið nær til og svo má ekki gleyma því að félögin hafa allan veturinn til að vinna í sínum málum. Við höfum ekki hugs- að okkur að grípa tfl róttækra aðgerða ef félögin standast ekki kröfur okkar heldur reyna að komast fljótt að rót vandans og vinna að því að finna lausn með viðkomandi félagi. Þetta mun ekki gera annað en styrkja íslenska knatt- spymu þegar til lengri tíma er litið og það er skemmtilegt að fá tækifæri tfl að taka þátt í þessu verkefni," sagði Ómar Smárason, leyfisstjóri KSl, i samtali við DV-Sport í gær. -ósk Grindvíkingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af því aö uppfylla ekki kröfur leyfiskerfisins um áhorfendaaöstöðu enda nýbúnir aö reisa glæsilega stúku viö völl sinn. DV-mynd PÖK Grindvíkingar sáttir við nýja leyfiskerfið: Færir okkur nær öðrum löndum - segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildarinnar Jónas Þórhallsson, formaður knattspymudeildar Grindavíkur, hefur verið virkur þátttakandi í innleiðingu leyfiskerfisins á ís- landi. Hann átti sæti í fimm manna leyfisnefnd sem hefur borið hita og þunga af undirbúningum og hann sagðist vera mjög sáttur við þetta kerfi, sem Knattspymusamband Evrópu ætlar að skylda öll aðildar- sambönd sín til að taka upp. þegar DV-Sport ræddi við hann í gær- kvöld. Eykur trúverðugleikann „Þetta kerfi mun færa íslenska knattspymu nær öðrum löndum í Evrópu. Það tryggir það að menn verða að standa fagmannlega að sínum rekstri og eykur trúverðug- leika félaganna sem gerir það jafn- framt auðveldara fyrir þau að sækja fjármagn til styrktaraðila. Það er því ekki spuming að þetta kerfi er hið besta mál. Það segir sig líka sjálft að Knattspymusamband Evrópu mun ekki halda áfram að dæla peningum í þau aðildarlönd sem streitast á móti og vilja ekki taka upp þetta kerfi. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mjög þeir peningar sem fé- lögin hafa fengið frá Knattspymu- sambandi Evrópu í gegnum KSÍ hafa skipt þau máli og það væri hræðilegt að verða af þeim pening- um bara af því að menn vilja ekki horfa til framtíðar og taka upp fag- mannleg vinnubrögð," sagöi Jónas. Þurfum aö gera ýmislegt „Við þurfum aö laga ýmislegt áð- ur en við stöndumst kröfur þær sem Knattspymusamband Evrópu gerir. Við höfum byggt upp glæsi- lega stúku en það sárvantar salem- isaðstöðu auk þess sem enn er eftir að girða völlinn samkvæmt ströng- ustu kröfum. Þá er félagsheimilið of lítið en við stefnum að því að ráða bót á þessum hlutum sem fyrst. Við höfum alltaf reynt að reka félagið á ábyrgan hátt án þess að steypa félaginu í skuldapytt og því verður haldið áfram,“ sagði Jónas Þórhallsson. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.