Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Page 29
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002
29
BEl ' 1L..
<Sf %
- IÚn -
Þrír tilnefndir
Alþjóða knattspymusambandið hefur
tilkynnt um það hvaða þrír leikmenn
koma til greina sem leikmenn ársins
2002.
Leikmennimir þrír eru þýski mark-
vörðurinn Oliver Kahn, sem leikur með
Bayem Mtinchen og Real Madrid-
tvíeykið Zinedine Zidane og Ronaldo en
þeir hafa báðir hlotið þessa vegsemd í
tvígang. -ósk
Maöurinn sem kom eistneskri knattspyrnu á kortið:
Gífurlegar
framfarir
- segir Teitur Þóröarson, fyrrum landsliösþjálfari Eista
Enginn íslendingur þekkir jafn vel
til eistneskrar knattspyrnu og Teitur
Þórðarson sem nú stýrir norska lið-
inu Brann.
Teitur var landsliðsþjálfari Eist-
lands á ámnum 1996-2000 auk þess
að þjálfa sterkasta lið landsins, Flora
TaUinn. Teitur vann þrekvirki þann
tíma sem hann dvaldi í Eistlandi og
vilja margir meina að það sé honum
að þakka að knattspyrna er nú vin-
sælasta íþróttagrein Eistlands. DV-
Sport ræddi við Teit í gær og spurði
hann um styrk eistneska liðsins og
hvað biði íslenska liðsins í leiknum
á morgun.
Mikið vatn runnið til sjávar
„Þegar ég kom til Eistlands árið
1996 var landsliðið þar ekki sterkt.
Það var strax tekin ákvörðun um að
byggja upp nýtt lið og það vildi svo
skemmtilega til að einn af fyrstu
leikjunum sem eistneska liðið lék
undir minni stjórn var gegn íslandi í
apríl 1996. Þá töpuðum við, 3-0, en
menn skulu átta sig á því að síðan
hefur mikið vatn mnnið til sjávar í
eistneskri knattspyrnu. Eistneska
landsliðið í dag er nánast skipað
sömu leikmönnum og léku undir
minni stjórn og þeir hafa öðlast
mikla reynslu. Þeir hafa leikið lengi
saman og íslenska landsliðið er ekki
að fara að spila gegn einu af slökustu
landsliðum Evrópu eins og raunin
var 1996. Liðið hefur hoppað upp um
71 sæti síðan í apríl 1996 og frekari
orða um gifurlegar framfarir liðsins
er ekki þörf,“ sagði Teitur.
Reynsla erlendis
„Þegar ég kom til starfa var mark-
miðið að búa til góða leikmenn sem
gætu komist utan og þannig bætt sig
sem knattspyrnumenn. Það hefur
gerst og í dag græðir eistneska lands-
liðið á því. Þeir eiga frábæran mark-
vörð, Mart Poom, sem hefur leikið
lengi í Englandi og auk þess verða
leikmenn islenska liðsins að vara sig
á framherjanum Andres Oper, sem
leikur með Álaborg í Danmörku.
Hann er langhættulegasti leikmaður
liðsins, eldfljótur og snöggur að refsa
liðum ef andstæðingarnir eru ekki á
tánum.
Að auki eru miðjumennirnir
Marko Kristal og Martin Reim, sem
báðir leika með Flora, mjög öflugir.
Eistneska liðið er skipað hæfdeika-
ríkum leikmönnum sem geta spilað
góða knattspyrnu. Þeir spila yfirleitt
4-3-3 eða 4-5-1 og hugsa meira um
varnarleik en þegar ég var með þá.
Þeir hafa sýnt það í leikjum í haust,
eins og gegn Króatíu, að það er erfitt
að brjóta þá á bak aftur. Ég sá þá
líka spila gegn Hollendingum í Tall-
inn í fyrra og þá voru þeir óheppnir
að tapa. Þeir komust tvisvar yfir og
voru miklu betri en hið frábæra lið
Hollands. íslenska liðið má því búast
við mjög erfiðum leik á miðvikudag-
inn og það væru mikil mstök hjá lið-
inu að vanmeta Eistana."
Spái jafntefli
„Undir eðlilegum kringumstæðum
ættu íslendingar að vinna leikinn.
Það verður hins vegar alls ekki auð-
velt eins og ég hef sagt áður og það
skiptir miklu máli hvernig leikmenn
íslenska liðsins koma stemmdir til
leiks. Ef ég ætti að spá fyrir um úr-
slit leiksins held ég að hann endi
með jafntefli. Það er kannski að
nokkru leyti óskhyggja þvi að það
má segja að ég sé með fæturna sinn
i hvoru stígvélinu. Ég er auðvitað ís-
lendingur en ég ber miklar tilfmn-
ingar til Eistlands þar sem ég átti
frábæran tíma. Ég hef hugsað mér að
fara og sjá leikinn en veit ekki hvort
ég kemst fyrr en á morgun (í kvöld),“
sagði Teitur Þórðarson, fyrrum
landsliðsþjálfari Eistlands og núver-
andi þjálfari Brann, í samtali við
DV-Sport. -ósk
Rafpostur: civsport@dv.is
Teitur Þórðarson, þjálfari norska liösins Brann, þekkir vel til eistneskrar
knattspyrnu eftír að hafa verið landsliðsþjálfari þar í fjögur ár auk þess að
stýra besta liöi landsins, Flora Tallinn, á sama tíma.
keppni í hveriu ordi
Eistneski landsliðsmaðurinn Meelis Rooba (í bláu) sést hér t baráttu við
Króatann Marko Babic í leik liðanna f undankeppni EM í Osijek f Króatfu f
september en leiknum lyktaði meö markalausu jafntefli. Reuters
ísland mætir Eistlandi í vináttulandsleik í Tallinn á morgun:
Sýnd veiði en ekki gefin
- Eistar hafa hækkað sig um 20 sæti á heimslistanum frá áramótum
Eistneska landsliðið sem mætir
því íslenska í Tallinn á morgun er
töluvert frábrugðið því liði sem ís-
land vann, 3-0, í vináttulandsleik í
Tallinn 24. apríl 1996. Bjarki Gunn-
laugsson skoraði öll þrjú mörk ís-
lands og Eiður Smári Guðjohnsen
kom inn á fyrir Amór foður sinn
gegn Eistum sem voru þá í 134.
sæti styrkleikalista Alþjóða knatt-
spymusambandsins.
Þessi leikur markaði tímamót I
eistneskri knattspyrnusögu því að
þetta var jafnframt fyrsti lands-
leikurinn þar sem íslendingurinn
Teitur Þórðarson stýrði eistneska
liðinu. Teitur byggði upp sterkt lið
og fjórum árum síðar, þegar hann
yflrgaf liöið og hélt til Noregs,
hafði liðið unnið sig upp um 58
sæti i 76. sæti.
Sjö sætum á eftir íslandi
í dag er liðið í 63. sæti styrk-
leikalistans, aðeins sjö sætum á
eftir íslandi og hefúr byrjað riðil
sinn í undankeppni EMágætlega.
Það hefur hækkað sig um tuttugu
sæti síðan á áramótum og er því á
hraðri uppleið, öfugt við íslenska
liðiö. Liðið gerði markalaust jafn-
tefli við Króata á útivelli í fyrsta
leiknum og tapaði síðan naumlega
fyrir Belgum á heimavelli, l-O.
Þetta var aðeins annað tap liðsins
á þessu ári og sýnir styrk liðsins
frekar en margt annað.
Ellefu leikmenn frá Flora
Að venju koma flestir leik-
manna eistneska landsliðsins frá
meistaraliðinu Flora Tallinn sem
hefur unnið eistnesku deOdina sex
sinnum á síðustu tíu árum. Alls
eru ellefu leikmenn frá Flora í
átján manna hópnum sem þjálfari
Eista, Arno Pijpers, sem einnig
þjálfar Flora, valdi fyrir leikinn
gegn íslendingum. Sex leikmenn
spila i liðum utan Eistlands, þrír i
Danmörku, einn I Finnlandi, einn
í Noregi og einn, markvörðurinn
Mart Poom, meö Sunderland í
Englandi en einn leikmaður,
Sergei Hohlov-Simson, kemur frá
Levadia Maardu í heimalandinu.
Hópurinn er skipaöur eftirtöld-
um leikmönnum: Mart Poom (í
láni hjá Sunderland frá Derby),
Andres Oper (AaB Álaborg),
Indrek Zelinski (AaB Álaborg),
Urmas Rooba (Midtjylland), Sergei
Terehhov (Haka), Kristen Viikmáe
(Válerenga), Sergei Hohlov-Simson
(Levadia Maardu) og Martin
Kaalma, Marko Kristal, Kert
Haavistu, Meelis Rooba, Andrei
Stepanov, Aleksander Saharov,
Raio Piiroja, Joel Lindpere, Erko
Saviauk, Martin Reim og Teet
Allas (allir frá Flora Tallinn).
Þekktasti leikmaður liðsins er
markvörðurinn snjalli Mart Poom
sem hefur leikið með Derby í
Englandi við góðan orðstír. Hann
hefur nú veriö lánaður til úrvals-
deildar liðsins Sunderland sem á í
miklum markvarðaerfiðleikum.
Aðrir leikmenn sem vert er að
taka eftir eru framherjinn Andres
Oper sem hefur skorað sjö mörk
fyrir danska liðið AaB Álaborg það
sem af er tímabili og binda Eistar
miklar vonir við að hann verði í
stuði gegn íslendingum. Hann
skoraöi þrennu fyrir lið sitt fyrir
skömmu og sagði í viðtali aö hann
vonaðist til að endurtaka þann leik
gegn íslendingum. -ósk