Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Qupperneq 32
■ ■
r r
BILHUSIÐ
Smiöjuvegi 60 (Rauö gata) - Kópavogi
Sfml 557 2540 - 554 6350
Allar almennar bílaviðgeröir
á öllum tegundum bifreiða
15% afsláttur til áramóta!
Vönduö vinna - aðeins unnin af fagmönnum
Viðbótarlífeyrissparnaður
Alllanz (ÍTD
- Loforð er ioforð
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Die Another Day:
Fjórir 007 á
frumsýningu
Nýjasta
James
Bond-mynd-
in, Die
Another
Day, var
frumsýnd í
Royal Al-
bert Hall í gærkvöldi. Miklu var
tjaldað til og er talið að um ein-
hverja glæsilegustu frumsýningu
sem um getur hafl verið að ræða.
Að sjálfsögðu var rauöi dregillinn á
sínum stað og tónlistarsyrpa úr
Jams Bond-kvikmyndunum hljóm-
aði utandyra. Allir klæddust sínu
fínasta, hvort sem það var drottn-
ingarfjölskyldan eða aukaleikarar í
kvikmyndinni, og meðal gesta voru
ijórir af fímm leikurum sem leikið
hafa James Bond, allir nema Sean
Connery, sem var við tökur á kvik-
í mynd. Þama voru einnig mættar
margar leikkonur sem hafa gert
garðinn frægan sem „Bond-stelpur.
Fagnaðarlæti fjölmargra aðdáenda
sem komu til að sjá frumsýningar-
gesti náði hámarki þegar Pierce
Brosnan, núverandi James Bond,
mætti eins og hann væri klipptur út
úr hlutverkinu.
Eins og kunnugt er var myndin
tekin að hluta til hér á landi, í Jök-
ulsárlóni þegar það var isi lagt.-HK
. Ekið á konu við
Vesturbæjarskóla
Ekið var á konu á áttræðisaldri á
móts við Vesturbæjarskóla um
klukkan átta í morgun þegar um-
ferð var hvað mest og fólk á leið til
vinnu. Sjúkrabíll flutti konuna á
slysadeild en samkvæmt upplýsing-
um DV var hún ekki talin alvarlega
slösuð. Ekki lá fyrir í morgun með
hvaða hætti slysið átti sér stað.-Ótt
Sjálfvirk slökkvitæki
fyrir sjónvörp
Sími 517-2121
H. Blöndal ehf.
Auðbrekku 2 - Kópavogi
Innflutningur og sata - www.hbtondal.com
112
EINN EINNTVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
LITLA STULKAN OG
ELDSPÝTURNAR!
Welskar vinkonur á ferö
Þessar frísklegu vinkonur frá Wales voru í dagsferð hér á landi á dögunum. í stað þess að fara í hefðbundna rútuferð austur að Gullfossi og Geysi í gullfallegu
veöri völdu þær að fara fótgangandi um miðborgina og njóta þess sem hún haföi upp á að bjóða. Höfnin og hvalbátarnir vöktu mikla hrifningu kvennanna en
þær enduðu íslandsdvölina í Bláa lóninu.
Yfirtökutilboð Kaupþings á JP Nordiska:
Kaupþing verður stærsta
fjármálastofnunin
- með heildareign upp á 194 milljarða króna
Mikill meirihluti hluthafa
sænska bankans JP Nordiska hefur
samþykkt yfirtökutilboð Kaupþings
í bankanum. Var tilboðið háð þeim
skilyrðum að yfir 90% hluthafa í JP
Nordiska samþykktu tilboðið en
Kaupþing átti fyrir um þriðjungs
hlutafjár. Endanleg talning atkvæða
liggur þó ekki fyrir fyrr en um há-
degi í dag. Ef 90% samþykki fæst er
Kaupþing orðið stærsta fjármála-
stofnun Islendinga með heildareign
upp á 194 milljarða króna. í kjölfar-
ið verður Kaupþing skráð á hluta-
bréfamarkað í Svíþjóð.
Ef tilskilin 90% nást ekki getur
Kaupþing fallið frá tilboðinu, fram-
lengt frestinn um tvær vikur eða
fallið frá kröfunni um samþykki
90% hluthafa. Yfirgnæfandi líkur
eru þó á að yfirtaka Kaupþings
verði að veruleika.
Yfirtökutilboð Kaupþings rann út
Kaupþing.
á fóstudag en póstatkvæði voru að
berast fram eftir degi í gær. Greitt
er fyrir JP Nordiska að verulega
leyti með hlutabréfum i Kaupþingi
eða 9,55 hlutir fyrir hvern hlut í JP
Nordiska.
Kaupþing stækkar um 56% eftir
samruna við JP Nordiska ef einnig
er tekið tillit til sameiningar við
Auðlind. Heildareignir í íslenskum
krónum fara úr 125 milljörðum
króna í 194 milljarða króna í sam-
einuðu fyrirtæki. Þá er hlutafé
Kaupþings banka hf. komið 1
1.890.737.060 krónur að nafnvirði eft-
ir hlutafjáraukningu sem samþykkt
var 11. nóvember. Þar er m.a. um að
ræða útgáfu nýrra hluta til hluthafa
Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf., í
tengslum við samruna Kaupþings
banka hf. og Hlutabréfasjóðsins
Auðlindar hf., samkvæmt samruna-
áætlun, dags. 17. september sl.
Einnig var samþykkt þann 11. nóv-
ember í tengslum við yfirtöku á JP
Nordiska að hlutum i Kaupþingi
banka hf. verði fækkað í hlutföllun-
um 10:1 þannig að hver hlutur í fé-
laginu verði 10 krónur að nafnvirði
í stað einnar krónu áður. -HKr
Renault Mégane II:
„Bíll ársins í
Evrópu 2003“
„Við sjáum mikla möguleika í þess-
um bíl enda er hann fiábær hönnun,"
sagði Helga Guðrún Jónasdóttir, kynn-
ingarstióri B&L, i morgun. Nýjasta kyn-
slóð Renault Mégane II hlaut í morgun
titilinn „Bíll ársins i Evrópu 2003“ en
hann er sá eftirsóknarverðasta á árinu í
bílaheiminum enda sjá 58 bílablaða-
menn frá 22 löndum í Evrópu um valið.
Fékk hann alls 322 stig, 20 stigum fleiri
Mazda 6 sem varð í öðru sæti. I þriðja
sæti varð svo Citroen C3 með 214 stig.
Renault Mégane II er væntanlegur til
landsins á allra næstu vikum. -NG
Innbrot í bíl
Brotist var inn í bíl á bilastæði við
Lindargötu i nótt. Voru rúður brotnar
og haíði einhveiju smálegu verið
stolið. Innbrotið uppgötvaðist um sex-
leytið í morgun þegar eigandinn vitjaði
bílsins. Þjófurinn er ófúndinn. -hlh
Vatnsleysustrandarhreppur:
Tíöir brunar af völdum
barna valda áhyggjum
Hreppsnefnd Vatnsleysustrandar-
hrepps lýsir yfir áhyggjum sínum
vegna tíðra bruna i sveitarfélaginu
síðustu mánuði sem taldir hafa ver-
ið af völdum barna. Síðast brann
eyðibýlið Grænuborg til kaldra
kola, ekkert stendur eftir nema út-
veggir og skorsteinn, en sveitarfé-
lagið hafði nýlega eignast húsið og
uppi voru hugmyndir um að gera
það að minjasafni. Það verður varla
úr því sem komið er. Böm eru
einnig talin hafa kveikt í bát og i
rusli undir húsvegg sem hefði getað
valdið miklu tjóni. Mikilvægt sé að
foreldrar upplýsi böm sín um að
þau eigi ekki að hafa eldfæri í fór-
um sinum og þær hættur sem em
samfara því að fikta með eld. Jafn-
framt beindi hreppsnefnd þeim til-
mælum til eldvamaeftirlits Bruna-
varna Suðumesja og lögreglu að
þessir aðilar standi fyrir fræðslu-
fundi fyrir nemendur Stóru-Voga-
skóla um alvarleika málsins. Jón
Ingi Baldvinsson, aðstoðarskóla-
stjóri Stóru-Vogaskóla, segir að
hvorki oddviti né sveitarstjóri hafi
haft samband út af samþykktinni,
en vonandi verði það fljótlega. Mál-
iö sé alvarlegt og nauðsynlegt að
börnunum sé gerö grein fyrir þvi
mikla tjóni sem fikt með eld getur
valdið. Nemendum Stóru-Vogaskóla
fjölgar ár frá ári í samræmi við auk-
inn íbúafjölda, eru 180 í dag, og nú
er töluvert um íbúðabyggingar í
sveitarfélaginu. íbúafjöidi 1. desem-
ber sl. var 841 maður. -GG
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI f STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
Brother PT-2450 merkivélin
Mögnuö vél
sem, meö þinni hjáip,
hefur hiutina í röö
ogreglu.
Snjöll og góö lausn á
óreglunni.
Rafnorf
Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 • www.rafport.is
!