Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2002, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2002, Side 29
MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2002 DV Tilvera LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT / Elvislokkur á tíu milljónir Skínandi svartur hárlokkur af höföi rokkkóngsins sáluga, Elvis Presley, var nýlega seldur á netupp- boði í BandaríkjUn- um fyrir tæpar 10 milljónir króna. Lokkurinn var í eigu Toms Morgans, sem hafði fengið hann að gjöf frá vini sínum, Homer Gille- land, fyrrum hár- snyrti Presleys, og hafði lokkurinn verið geymdur í loftþéttri gler- krukku í tæpa þrjá áratugi. Alls bárust 32 tilboð í lokkinn og tók Morgan auðvitað því hæsta. „Lokkurinn hlýtur að gefa sönnrnn aðdáendum Presleys mun meira gildi heldur en til dæmis einfóld eig- inhandaráritun og þess vegna voru menn tilbúnir að borga vel,“ sagði Morgan sem var hæstánægður með söluna, en lokknum fylgdi staðfest- ing sérfróðra að hann væri af hin- um eina og sanna Elvis. Madonna greyið þurfti að betla Poppsöngkonan og milljarðamær- ingurinn Madonna lenti heldur bet- ur í pínlegri aðstöðu á veitingastað i London um daginn. Hún þurfti að fá lánað fé til að eiga fyrir köku litla sonarins Roccos. Að sögn breska blaðsins The Sun gekk Madonna að tveimur systrum og sagðist hafa gleymt buddunni, hvort þær gætu ekki reddað henni um smáklink til að hún gæti borgað reikninginn. Systurnar, sem báru ekki kennsl á söngkonuna, lánuðu henni tvö pund svo Madonna gat borgað reikninginn. Systumar fá skuldina greidda bæði í fé og geisla- diskum með tónlist Madonnu. Það er kannski ekkert óeðlilegt við að það að gleyma buddunni heima svona einu sinni, en það sem vekur furðu hér er að eiginmaður Madonnu, kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, var með í for og hann virðist heldur ekki hafa átt krónu með gati i vasanum. Og ekki nein greiðslukort heldur. Liz vill ekki taka meölagid Breska fyrirsætan og leikkonan Liz Hurley er enn komin í illdeilur við bamsföður sinn, ameríska kvik- myndaframleiðandann Steve Bing. Stebbi hefur stefnt henni fyrir rétt vegna þess að hún neitar að taka við meðlaginu með syni þeirra. Með því vill hún greinilega sýna að hún hafi nú ekki lagt lag sitt við millj- ónerann tO að komast yflr pening- ana hans. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau Liz og Steve deila. Fyrst í stað neitaði hann að vera faðir bamsins og viðurkenndi það ekki fyrr en eft- ir að DNA-próf leiddi það í Ijós, svo ekki varð um villst. mOKMSSON Skoðið heimasíðuna DV-MYND Jl Ekki ráðalausir Þessir strákar heita Gunnar Örn og Guömundur Einar og eiga heima á Höfn. Þeir eru aö fara meö ónýtar umbúöir og rusi frá Smur og Dekk út í gámastöö. Þar sem þeir vilja vera sjálfstæöir í sinni vinnu fengu þeir lánaöa kerru og handafliö er notaö til aö koma ruslinu á áfangastaö en þangaö er dágóöur spölur. Guö- mundur Einar stendur uppi í kerrunni og passar aö þyngdarpunkturinn sé á rétt- um staö meðan Gunnar Örn dregur kerruna og fer létt meö þaö. okkar og kíkið á tilboðin Góbelíntöskur 2 stærðir — mikið úrval Vegna þessara tímamóta er hafin sérstök afmælistilboðsvika í versluninni í Lágmúla 8 vörutegunda er á sérstöku Nú áttu bað skilið bi að fá upppvottavél! 86050 u-w V wsr Þetta er sú heitasta á markaðnum, turbo þurrkun með heitum blæstri og svo hliððlát að þú hefur ekki hugmynd um að hún er ganai. Tekur tolf manna matarstell, hefur sex þvottakerfi, fiögur nitastig og er með “aquva control” vatnsöryggi. m r M • 28” Skjár • 2 x Scart tengi • Super-VHS • Tengi fyrir heyrnatól • Textavarp með islenskum stöfum • Nícam Stereo • Tðnjafnari • Fjarsfyring VISA-EUR0 LÉTTGREIÐSLUR / ÞRJÁ MÁNUÐI HJÁ BRÆÐRUNUM ORMSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.