Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Side 24
1
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2002
DV
~x
48
Hann er alveg að
drepaat úr þorsta
Gefðu honum vatn
fyrir lífstíð!
2.500 kr. framlag þitt nægir til þess að tryggja
5 fjölskyldum í Afríku hreint vatn alla ævi.
Gíróseölar í bönkum, sparisjóðum og á pósthúsum
Tilvera
Berst fyrir góðu málefni
Þessari fötlun fylgir meiri einangrun og erfiöleikar í skynjun á umhverfinu en viö getum ímyndaö okkur,
segir Ágústa um daufblinduna.
Fjáröflun fyrir daufblinda:
Upplýsingaflæðið
kom með tölvunni
- segir Ágústa Gunnarsdóttir í stjórn Daufblindrafélagsins
Daufblindrafélag íslands stend-
ur um þessar mundir í fjáröflun-
um með sölu hljómdisksins Tár
með Orra Harðarsyni. Diskurinn
er seldur bæði gegnum síma og í
öllum verslunum Skífunnar. Þá er
félagið að selja dagbækur fyrir
árið 2003 til fyrirtækja og stofn-
ana. Allur ágóði rennur óskiptur
til félagsins.
Einangrun og erfiðleikar
Ágústa Gunnarsdóttir er fulltrúi
Blindrafélagsins í stjórn Dauf-
blindrafélagsins. í stuttu spjalli
við DV byrjar hún á að lýsa dauf-
blindu, þó ekki af eigin raun því
hún hefur góða heyrn.
„Daufblindir eru þeir sem eru
alvarlega sjón- og heymarskertir.
í sumum tilfellum eru menn fædd-
ir með sjúkdóm sem erfist og upp-
götvast gjaman við fyrstu augn-
skoðun en ágerist þegar árin líða.
Einnig er um að ræða eldra fólk
sem farið er að tapa sjón og heym
verulega. Þessari fotlun fylgir
meiri einangrun og erfiðleikar í
skynjun á umhverfinu en við get-
um ímyndað okkur. Daufblindum
dugar til dæmis ekki að fara út i
glugga til að gá til veðurs eins og
okkur hinum finnst sjálfsagt."
Tölvurnar breyta
Ágústa segir félaga í Dauf-
blindrafélaginu vera um 40 talsins,
þ.e. 11 aðalfélaga og um 30 styrkt-
arfélaga. Hún býst þó við að þeim
eigi eftir að fjölga á næstimni.
„Við erum að reka endahnút á
rannsókn á fjölda og högum eldri
daufblindra á íslandi. Það er mik-
ilvægt því við höfum vissu fyrir
því að þetta fólk er ekki allt að fá
þá þjónustu sem það raunverulega
þyrfti," segir hún. En hvað gerir
Daufblindrafélagið fyrir skjólstæð-
inga sína?
„Við erum með starfandi dauf-
blindraráðgjafa í hálfu starfl sem
sér um að sinna félagsmönnum og
öllum daufblindum sem til hans
leita á mjög breiðum grundvelli.
Margir þeirra þurfa mikla hjálp
með samskipti við stofnanir,
lækna, verslanir og allt mögulegt.
Helst þyrftum við að hafa mann-
eskju í fullu starfi því mörg verk-
efni bíða úrlausnar. Við reynum
líka að aðstoða alla þá sem til okk-
ar leita varðandi upplýsingar og
ráðgjöf og Daufblindrafélagið er í
góðum samskiptum við Norður-
landaþjóðimar varðandi þróun á
þjónustu við daufblinda.
Svo erum við að gera átak í tölvu-
málum skjólstæðinga okkar. Allt
upplýsingaflæðið til fólks gegn um
fjölmiölana fór að miklu leyti fram
hjá daufblindum þar til tölvumar
komu. En með tilkomu þeirra og
hjálpartækja sem tengd eru við þær
hefur orðið gerbylting. Þar skipta
blindraletursskjáimir og stækkun-
arforritin sköpum. Nú kemst fólk
inn á Internetið og getur leitað sér
upplýsinga sjáift.
Áður áttu dauíblindir erfitt með
alla tjáningu og að meðtaka skila-
boð. Þeir gátu í mörgum tilfellum
aldrei átt trúnaðarsamband við
aðra þvi sérhæfða manneskju
þurfti til að túlka. Nú getur þetta
fólk skrifað tölvupóst og fengið
bréf til baka. Þetta breytir lifl
fólks alveg gríðarlega. í félaginu er
til dæmis ein alveg blind og heym-
arlaus kona sem býr á sambýli.
Hún hafði ekki samband við ætt-
ingja sína og vini dögum og jafn-
vel vikum saman því hún varð
alltaf að fá hjálp þriðja aðila. Nú
er þessi kona með tölvu og er í
póstsambandi við ættingja sína.
Það er beinlínis stórkostlegt.“
Flestir á örorkubótum
Hin dým hjálpartæki eru yfir-
leitt kostuð af ríkinu, að sögn
Ágústu, en hún segir öðru máli
gegna um tölvumar. Þær verði
fólk að kaupa sjálft og þær séu
ekki gefnar. Flestir verði að fram-
fleyta sér á örorkubótum og hafi
lítið fé handa milli.
„Fólk þarf líka að fá kennslu á
bæði tölvumar og hjálpartækin og
þetta er gríðarlega dýrt fyrir fólk.
Þess vegna viljum við létta undir
með þvi,“ segir hún.
Ágústa vill að lokum geta þess
að þeir sem vilja leggja málefnum
daufblindra lið og styrkja félagið
geti hringt í síma 552 1803 og pant-
að diskinn Tár. -Gun.
Heitasta búðin í bœnum !
100% mesta vöruúrval d ferm.
Alltfrá magadansbúningum til ektapelsa.
Hátíðafatnaður, perlujakkar og toppar, ektapelsar,
skinnúlpur, ekta mokkajakkarfrá 15þús.
Otrúlegt úrval gjafavöru.
, , Sigurstjaman í bliu húsi við Fákafen,
- I <//'. sími 588 4545.
Einnig opið um helgar.