Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002
Fréttir I>V
DV-MYNDIR GVA
Bragðgæðingar DV
Sigmar B. Hauksson, Dröfn Farestveit og Úlfar Eysteinssön hafa veriö bragögæöingar DV um árabil. Hér skoöa þau diska meö vænum sneiöum afhangikjöti
og hamborgarhrygg áöur en bragöprófunin hófst á veitingastaönum Þrír Frakkar hjá Úlfari í gærmorgun.
Árleg bragðprófun DV á úrbeinuðum hangikjötslærum og hamborgarhryggjum:
sagði: „Mjög góður hryggur, safarík-
ur og bragðgóður." Dröfn sagði hann
meyran og bragðgóðan og Sigmar
hrósaði fallegri sneið með hæfilegri
fitu en fannst eftirbragðið „gervi-
legt“.
Búrfellshryggurinn og SS-hryggur-
inn höfnuðu í 3.^4. sæti með 11
stjörnur hvor. Dröfn gaf SS-hryggn-
um hæstu einkunn og sagði: „Mjög
fallegt kjöt sem lítur vel út. Gott sam-
ræmi milli reyk- og saltbragðs." „Fal-
leg sneið og góð holdfylling. Safarík-
ur en eftirbragðið leiðinlegt,“ sagði
Sigmar. Búrfellshryggurinn þótti að-
eins of feitur en fitan góð sem og
reykbragðið af kjötinu.
Of salt eða þurrt
Dröfn og Sigmari fannst hamborg-
arhryggurinn frá Bautabúrinu of
saltur en kjötið fallegt. Úlfar var
hrifnari, talaði um holdfylltan, safa-
ríkan og bragðgóðan hrygg og gaf
honum 4 stjörnur.
Skiptar skoðanir voru um Ali-
hrygginn sem var í 6.-7. sæti ásamt
Óðals-hryggnum. Dröfn sagði hann
helst til þurran, Sigmari fannst að
hann mætti vera saltari og bað um
meira reykbragð en Úlfar hrósaði
góðu jafnvægi milli fitu og kjöts og
góðu bragði en fannst hann aðeins of
þurr.
Sigmari fannst Óðals-hryggurinn
með frábæru reykbragði og gaf hon-
um 4 stjörnur en bæði honum og Úlf-
ari fannst kjötið of þurrt.
Hryggurinn frá Bezt lenti í 8. sæti.
Dröfn og Úlfari fannst hann heldur
þurr en Sigmari fannst gott jafnvægi
milli salts og reykbragðs.
Hamborgarhryggurinn frá Kjama-
fæði fékk samtals 6 stjörnur. Hann
þótti heldur bragðlítill og í þurrari
kantinum og fitan helst til of mikil
fyrir smekk bragðgæðinga.
Noatunshryggur
og KEA-hangikjöt
- er besta kjötid að mati bragðgæðinga DV
Breytilegur smekkur
Ljóst er af framansögðu og ein-
kunnagjöf þremenninganna að sitt
sýnist hverjum. Kjöt sem lendir neð-
arlega í samanlagðri einkunnagjöf
getur samt verið að fá 4 stjörnur frá
einum bragðgæðinganna. En kjöt
sem fékk 5 stjörnur lenti þó ekki neð-
ar en í 3.-4. sæti.
Hafa verður í huga að hér eru þrir
einstaklingar á ferð, hver með sinn
smekk fyrir kjöti og ólikt bragðskyn.
Það sem einum þykir gott þykir öðr-
um sæmilegt. Þannig er þessu einnig
farið hjá fólki hvar sem er á landinu.
Á það ber einnig að líta að ef sam-
bærileg bragðprófun yrði gerð eftir
Norðlenska kemur mjög vel út úr
bragðprófun DV á hangikjöti og ham-
borgarhrygg, framleiðir þrjú efstu
vörumerkin í hangikjöti og tvö efstu
í hamborgarhrygg. Um það vitnar
samanlögð einkunnagjöf bragðgæð-
inga DV sem sjá má í meöfylgjandi
töflum.
Eins og fyrir mörg undanfarin jól
gekkst DV fyrir bragðprófun á hangi-
kjöti og hamborgarhrygg. Keypt voru
helstu vörumerki af úrbeinuðu
hangilæri og hamborgarhrygg, sam-
tals 8 hangilæri og 9 hamborgar-
hryggir. Þess var gætt í hvívetna að
lærin og hryggirnir væru myndarleg-
ir, valin voru „góð“ stykki frá hverj-
um framleiðanda. Keypt var inn í
Nóatúni í Austurveri, Hagkaupum í
Kringlunni og Skeifunni og í Bónusi
í Skútuvogi.
Að venju voru margreyndir bragð-
gæðingar fengnir til að bragða á kjöt-
inu. Það voru þau Dröfn Farestveit,
Sigmar B. Hauksson og Úlfar Ey-
steinsson. Bragöprófunin fór fram í
gærmorgun á veitingastaðnum Þrír
Frakkar hjá Úlfari. Tveir gamal-
reyndir kokkar staðarins, Sigurður
Karlsson og Gunnlaugur Guðmunds-
son, suðu kjötið daginn áður að Úlf-
ari fjarverandi. Kjötið var merkt þeg-
ar þaö var sett í pottana og síðan
merkt með tölustöfum frá 1-9 og 1-8
um leið og það var skorið í sneiðar.
Bragðgæðingarnir höfðu enga hug-
mynd um frá hverjum hver kjötsneið
var. Þeirra hlutverk var að gefa
hverjum bita frá einni og upp í fimm
stjörnur og gera viðeigandi athuga-
semdir.
Húrra fyrir KEA
Samanlögð einkunnagjöf bragð-
gæðinganna þriggja skipar hangi-
kjötinu frá KEA í efsta sæti með 12
stjörnur. Um þetta kjöt sagði Sigmar:
„Safaríkt kjöt með góðu reykbragði.
Fallegur vöövi. Ljómandi hangikjöt.
Hangikjöt ársins að minu mati.“
Sambandshangikjötið og Fjalla-
hangikjötið (sem einungis fæst í Bón-
us) voru jöfn í 2.-3. sæti, fengu sam-
tals 11 stjörnur hvort. „Falleg sneið
og bragðgott kjöt,“ sagði Úlfar um
Sambandshangikjötið en Sigmar
sagði: „Já, já. Gamaldags hangikjöt
með góðu reykbragði." Um Fjalla-
hangikjötið sagði Dröfn: „Of lítil fita
í kjötinu og var því aðeins of þurrt
en annars ágætt.“ Úlfar bætti hins
vegar um betur og gaf því fimm
stjörnur: „Þetta er gott hangikjöt,
sneiðin er falleg og bragðið mjög
gott.“
Gott reykbragö
í 4.-5. sæti var SS birkreykta
hangikjötið og Skagfirska hangikjöt-
ið frá KS. Úlfar gaf SS-kjötinu fiórar
stjörnur og sagði: „Falleg sneið og
bragðgott kjöt.“ Sigmar, sem gaf þvi
3 stjörnur, sagði: „Gott reykbragð og
hæfilega salt.“ Um Skagfirska hangi-
kjötið sagði Sigmar að það væri safa-
rikt en af því væri heldur lítið reyk-
bragð. Úlfari fannst fituröndin falleg
og kjötið safaríkt en bragðið milt.
Þurrt eða salt
Saman í 6.-8. sæti var hangikjötið
frá Kjarnafæði, Hólsfiallahangikjötið
og Húsavíkurhangikjötið. Um kjötið
frá Kjarnafæði sögðu öll að það væri
fallegt að sjá og bragðið þokkalegt en
of salt. Um Hólsfiallakjötiö sagði Sig-
mar að liturinn væri ágætur en kjöt-
ið of þurrt og eftirbragðið leiðinlegt.
Úlfar tók undir að kjötið væri of
þurrt. Um Húsavíkurhangikjötið
voru Sigmar og Úlfar sammála að
það væri þokkalegt á bragðið en of
þurrt.
Safaríkur frá Nóatúni
Nóatúns-hamborgarhryggurinn
fékk samanlagt ílestar stjörnur eða
13 og er því besti hamborgarhryggur-
inn að mati bragðgæðinga DV. Um
hann sagði Dröfn: „Kjötið er meyrt
og hæfilega salt.“ Og Sigmar, sem gaf
honum 5 stjörnur: „Safaríkur og góð-
ur hamborgarhryggur, hæfilega salt-
ur með góðu reykbragði." Úlfar tók
undir það álit að Nóatúnshryggurinn
væri safaríkur og bragðgóður og vel
holdfylltur að auki.
2.-4. sæti
KEA-hamborgarhryggurinn er í
öðru sæti með 12 stjörnur samanlagt.
Úlfar gaf þessum hrygg 5 stjörnur og
helgina gætum við lent á
kjötstykkjum sem mundu breyta röð
vörumerkjanna á listanum.
DV keypti allt kjötið í verslunum,
stóð í sömu sporum og hver annar
neytandi. Ekkert kjöt var sent frá
framleiðanda. DV tekur enga ábyrgð
á þáttum eins og geymslu kjötsins
hjá birgjum eða smásölum. Farið var
í einu og öll eftir leiðbeiningum um
suðu, þar sem þeim var til að dreifa,
en kjöthitamælir notaður til að
tryggja að kjamhiti færi ekki upp
fyrir 68 gráöur.
En hvað varð um kjötið sem ekki
rataði ofan í bragðgæðingana? Mikið
var eftir af kjöti að lokinni smökkun
og var það allt gefið í Rauðakrosshús-
ið við Hverfisgötu.
-hlh