Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2002, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 25 M agasm C i isteinar - Hilmar linarsson gullsmi&ur ritar um konung eðalsteinanna, demant Nú eru örfáir dagar til jólahátíð- arinnar og háir sem lágir þeytast um í leit að glaðningi sem vottar vináttu og væntumþykju. Ein af þeim vörutegundum sem er sígild til gjafa á slíkum stórhátíðum eru skartgripir í ýmsum myndum og er það einkum ein þeirra sem er sígUdust en það eru gripir skreytt- ir dýrmætum gimsteinum og þar er það einkum ein steintegundin sem er fremst meðal jafningja, demantur. Ævarandi fegurð demants og glitrandi geislaflóð sem brýst fram dýpst úr fylgsnum hans sem í upp- hafl var lítill kolamoli er einstakt fyrirbæri í heimi eðalsteinanna. Til þess að slíkur steinn njóti sín til fulls þarf hann að vera hreinn, bjartur og fallega slípaður. Form þeirra demanta sem flestir þekkja, t.d. brilliantur er ekki nein tilvilj- un því að steinaslíparar hafa um árahundruð þróað þau slípunar- form sem endurkasta birtunni sem fellur á steinana fullkomlega. Að finna fallega steina Demantaleit hefur verið stund- uð um árhundruð og þótt okkur finnist demantar nú til dags vera á hverju homi eru verulega góðir steinar fremur sjaldgæfir. Fyrstu demantanámumar fundust í Ind- landi um það bil 600 f.Kr. en á þessari öld hefur megin demanta- uppgröftur farið fram í Afríku og Rússlandi. í öllum tilfellum er það ærin fyrirhöfn að finna fallega steina. Þegar maður virðir fyrir sér eins carata stóran demant í fal- legum skartgrip ber að hafa það í huga að verkamenn í demanta- námunum hafa þurft að sprengja, grafa, mylja og hreinsa meira en 250 tonn af grjóti, möl og sandi. Þegar slípun er lokið kemur til kasta steinafræðinga við finflokk- un og greiningu steinanna, grund- vallarhugtök við flokkun demanta eru, þyngd, litur, hreinleiki og slípun sem á ensku eru kölluð hin fjögur C, carat, colour, clarity og cut en þaö eru grunn atriðin sem rannsaka þarf. Flestir vita að eð- alsteinar eru mældir í karötum (ct). og ræðst það af eðlisþyngd hverrar steintegundar hvert þver- mál hver steinn er. 1 karata dem- antur, brilliant slípaður, er um það bil 6,3 - 6,5 m.m. í þvermál en er þó háð gæðum slípunarinnar því öll hlutföll steinsins þurfa að vera sem réttust. Miklar kröfur skynsamlegar Þegar velja á demant í skartgrip þarf að taka tillit til allra þeirra at- riða sem nefnd hafa verið. Það sem viðskiptavinur gullsmiðs þarf að taka afstöðu til er hvaða kröfur hann gerir til einstakra þátta við flokkun steinanna. Hægt er að velja býsna stóran og fallegan stein á sanngjörnu verði með því að lækka gæðakröfur. Það getur verið skynsamlegt að gera miklar kröfur um lit en slá aðeins af hreinleikakröfum en það fer þó eftir eðli gallanna. Helmings verð- munur getur verið á steinum jöfn- um að stærð eftir gæðaflokkun. Þegar keyptir eru stærri steinar t.d. 0,5- 1 karat eða stærri getur verið mikill verðmunur á jafnstór- um steinum og er það mikil kúnst að finna nákvæmlega rétta sam- spilið I flokkun þeirra og grein- ingu til þess að fá það verðbil sem hver og einn sækist eftir. Með slíkum steinum á að fylgja vottorð um greiningu þeirra en með því eru þeir gjaldgengur gjaldmiðill út um víðan heim og ekki síðri fjár- festing heldur en hvað annað. Góðir demantar geta eðlilega verið dýrir en aðalatriðið er að kaup- endur þeirra eða skartgripa með þeim í séu þokkalega ánægðir með þá. Höfundur er gullsmiöur í Gulli og grœnum skógum í Grafarvogi. Demantshringir geta verið mjög fallegir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.