Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2002, Side 24
28
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002
M
agasm
*
>
Fyrir helgina voru í DV kynntar niður-
stöður mats á þvi hvað sé besta hangikjöt-
ið og hamborgarhryggirnir sem bjóðast á
markaðnum fyrir þessi jól. Það voru mat-
gæðingar DV sem voru fengnir til að kveða
upp sína palladóma í þessum efnum, en um
árabil hefur DV fengið þau Sigmar B.
Hauksson, Dröfn Farestveit og Úlfar Ey-
steinsson til þess hlutverks. Þeirra mat var
að bestir væru hamborgarhryggir frá Nóa-
túni og KEA-hangikjötið væri betra en það
sem aðrir byðu.
Hvort tveggja er Ijúffengt
„Ég er að sjálfsögðu stoltur af þessu mati
bragðgæðinganna, fyrst og fremst fyrir
hönd starfsfólks okkar sem leggur mikinn
metnað í þessa framleiðslu," sagði Leifur
Ægisson, kjötiðnaðarmaður hjá Norð-
lenska á Akureyri. Fyrirtækið framleiðir
hamborgarhryggi undir merkjum Nóatúns,
það er eftir þeim uppskriftum sem Nóatún
fylgdi áður meðan það rak eigin kjöt-
vinnslu. Alls fékk hamborgarhryggur Nóa-
túns þrettán stig bragðgæðinga, einu fleira
w
Hangikjötsmeistarinn. Hangikjötið framleitt samkvæmt langri hefð og aðferðum, segir Sigmundur Hreiðarsson. Magasín-mynd Jóhannes
en KEA-hryggurinn góði sem einnig er
framleiddur hjá Norðlenska.
Leifur kveðst ekki hissa á þessum litla
mun sem þykir vera á hamborgarhryggj-
unum sem framleiddir eru undir þessum
tveimur vörumerkjum. Verkunaraðferð-
irnar séu enda um margt líkar. „Nóa-
túnskjötið er auk þess reykt aðeins meira
og bragðið ekki alveg sama þar af leiðandi.
En mér finnast hamborgarhryggir undir
báðum þessum merkjum mjög ljúffengir og
gæti hugsað mér hvort tveggja sem er í
jólamatinn."
Ta&reykt er best
„Hér byggjum við á gömlum hefðum og
hér er líka afskaplega löng hefð fyrir fram-
leiðslu á hangikjöti," segir Sigmundur
Hreiðarsson hjá Norðlenska á Húsavík.
Þar á bæ er öll hangikjötsframleiðsla fyrir-
tækisins og kjötið framleitt undir ýmsum
vörumerkjum. En best þykir KEA-hangi-
kjötið sem fékk alls 12 stig hjá bragðgæð-
ingunum.
Hangikjötið góða frá Húsavík er reykt
með taði sem kemur frá útvöldum bænd-
txm, sem kunna sitt fag. Allt þetta er til
þess að neytendur vita að hverju þeir
ganga varðandi kjötið frá Norðlenska.
„Samkvæmt könnunum borða 97% lands-
manna hangikjöt um hátíðarnar og 70% af
þeim kjöt frá okkur. Það finnst okkur vera
frábær vitnisburður og segir allt sem segja
þarf,“ segir Sigmundur Hreiðarsson. -sbs
Frábærar jólagjafir frá Jóa Utherja
Sundpokar
Liverpool Training T-shirt