Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 25 Sigfús Sigurðsson og Rúnar Sigtryggsson voru vonbrigðin uppmáluð eftir tapið gegn Rússum. DV-mynd Hilmar Þór Sport Vladimir Maximov, þjálfari Rússa: Taugaveiklun í okkar liði Vladimir Maximov, þjálfari rússneska landsliösins, sagði eftir leikinn að taugaveiklunar hefði gætt í hans herbúðum fyr- ir leikinn. „Við vildum helst fara léttari leiðina og vinna íslendinga en ekki eiga yfir höföi okkar aö leika hreinan úrslitaleik um það sæti,“ sagði Maximov á blaðamannafundi eftir leik. „Þrátt fyrir sigurinn var ég ekki alveg sáttur við leik liðsins. Við gerðum tæknileg mistök framan af leiknum en það lagað- ist eftir því sem á leikinn leið. Þrátt fyrir allt er stigandi í leik okkar og þegar liðsheildin nær sér á strik erum við með gott lið í höndunum,” sagði Maximov. Mikill lettir Hann sagðist allt eins hafa bú- ist við því að heimsmeistara- keppnin yrði liðinu erfið. „Það kom í ljós í undirbúningnum að ýmsa þætti í þurfti að laga, okk- ur tókst að laga margt en ekki allt. Úr því sem komið var var það léttir að komast inn á ólymp- íuleikana." -JKS Guðmundur Hrafnkelsson, sem kom í markið í síðari hálfleik, varði nokkrum sinnum vel, þar á meðal vítakast, en allt kom fyrir ekki og rúss- neski bjöminn fagnaði sigri og sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu á næsta ári. Smávon vaknaði í stöðunni 26-28, en þegar íslendingar voru einum fleiri fékk liðiö þrjár sóknir tO að minnka muninn en þær runnu allar út í sand- inn. í þeirri síðustu fékk liöið dæmd- an á sig ruðning og kom sá dómur flestum í opna skjöldu og var honum harðlega mótmælt. Rússar fengu bolt- ann og skoruðu og þar með var draum- urinn endanlega úti. Patrekur meiddist í þessum leik meiddist Patrekur Jó- hannesson og Sigurður Bjamason var fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Það er ekki breiddinni fyrir að fara í liðinu svo það má alls ekki við skallafollum. Sömuleiðis náðu lykflmenn sér alls ekki á strik og þessir þættir drógu úr mætti liðsins til að vinna leik eins og gegn Rússum. Undir þessum kringumstæðum kom mikil ábyrgð á Ólaf Stefánsson og eins og áður var hann þvi orðinn þreyttur undir lokin. Ólafur skoraði samt drjúgt í leiknum og dró vagninn lengstum í honum. Á mikilvægum augnablikum fóm nokkur dýrmæt tækifæri einn á móti markverði en Andrey Lavrov var í miklum ham, varði í tvígang frá Einar Erni Jónssyni úr hominu og góð skot. Sigfús Sigurðsson var ekki sjálfum sér líkur á línunni en framan af leiknum var hann sterkur í vöminni. Bitleysið algjört Bitleysi sóknarleiksins á vinstri vængnum var algjört í þessum leik. Dagur var þar lengstum og ekki var maður til að leysa hann af því Patreks naut ekki lengur við og Sigurður Bjarnason var ekki í hópnum vegna meiðsla. Þegar lykilmenn liðsins bregðast er ekki þess að vænta að liðið hafi burði til að leggja Rússa að velli sem hafa oft áður verið með betra lið en þetta. Andrey Lavrov varði 20 skot í leiknum og sýnir aldursforseti keppn- innar engin veikleikamerki enn. Islenska liðið fór erfiðustu leiðina í baráttunni um ólympíusætið en leik- urinn við Júgóslava um 7. til 8. sætið í keppninni sker úr um hvor þjóð hreppir sætið í Aþenu á næsta ári. -JKS DV, Lissabon: Islenska landsliðið í handknattleik náði ekki fylgja eftir frábærri byrjun gegn Rússum í leik um 5. til 8. sætið í heimsmeistarakeppninni í Lissabon á laugardag og 27-30 tap þýddi að liðið spflaði um 7. sæti í gær. íslenska liðið lék á als oddi fyrstu 15 mínútur leiksins og náði íjögurra marka forystu, 6-2, allt virtist leika í lyndi. Vamarleikurinn var þéttur fyr- ir og áttu Rússamir í mestu erfiðleik- um með sóknarleik sinn. íslenska liðið náöi að loka fyrir miðjuna, sem var mjög hreyfanleg, nokkuð sem var ábótavant í leiknum gegn Spánverjum. Sóknin var sömuleiðis og góð og liðið skoraði úr hraðaupphlaupum. Ekki var Adam lengi í Paradís því að Rúss- ar náðu smám saman að stilla strengi sína og tókst að jafna leikinn, 6-6. Á þessum kafla gekk allt á afturfót- unum hjá íslendingum sem ekki tókst að skora mark í átta mínútur. Dagur Sigurðsson braut isinn þegar hann kom íslenska liðinu aftur yfir, 7-6. Tvö víti forgörðum I kjölfarið fór í hönd erfiður kafli, Guðjón Valur og Ólafúr Stefánsson létu veija frá sér vítaköst og enn frem- ur tapaðist boltinn í tveimur sóknum í röð. Rússar náðu í fyrsta skipti for- ystunni, 11-12, skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks og gaf það ekki góð fyrirheit þvi þeir virtust vera að ná tökum á leiknum. Roland Valur Eradze náði sér ekki á strik í markinu og varði aðeins þrjú skot en samt sem áður fóru Rúss- amir aðeins með eins marks forystu inn í leikhlé, 12-13. Rússar héldu uppteknum hætti og náðu fjögurra marka forystu fljótlega í síðari hálfleik. íslenska liðið rétti úr kútnum og skoraði þijú mörk í röð og jafnaði, 19-19. Nú var eins og íslenska liðið hefði tekið frumkvæðið en sóknarleikurinn var engan veginn nógu beittur og þá sérstaklega vinstra megin, þar sem Dagur Sigurðsson lék. Rússar með Al- exander Toutchkine í fremstan í flokki komust fjórum mörkum yfir á ný, 20-24, og þar má segja að Rússar hafi lagt grunninn að sigri sínum í leiknum. - „goðsagnirnar“, sem ekki virðast eldast, voru bestu menn Rússa íslenska liðið hélt ekki út og lá fyrir Rússum, 30-27, á laugardag: Rússneski björninn sterkari SPORTFEB»IR Akureyri - Mývatn Netfang: sporttoursðsporttours.is www.sporttours.is ■ simi 461 2968 norðan... upplifðu það!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.