Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Side 10
26 MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 Sport Spænski línumaöurinn Juan Perez tekur hér fast á fyririiöa Króata, Slavko Goluza, í leik liöanna í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar á laugardaginn en Goluza var markahæstur hjá Króötum meö átta mörk. Reuters Baráttan var hörð á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Portúgal á laugardaginn: Stórkostleg sýning - þegar Króatar og Þjóðverjar tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í keppninni DV, Lissabon Þýskaland sigraði Frakkland, 23-22, i æsispennandi leik í undan- úrslitum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Lissabon á laugar- dag og tryggðu sér sæti í úrslita- leiknum. Leikurinn var í hæsta gæðaflokki og sýndu bæðin liðin glæsileg tilþrif. Vamarleikur var í hávegum í fyrri hálfleik og mark- varslan var á köflum frábær. Þjóð- verjar leiddu í hálfleik, 11-10, en um miðjan síðari hálfleik náöu Frakkar fjögurra marka forystu. Út- litið var allt annað en glæsilegt fyr- ir Þjóðverja en þá fékk Jackson Ric- hardson tveggja minútna brottvís- un. Á meðan gerðu Þjóðverjar þrjú mörk og jöfnuðu síðan leikinn, 18-18. Þjóðverjar voru sterkari á endasprettinum og tryggðu sér sæti í úrslitum en það hefur ekki gerst í 25 ár. Þeir komust síðast í úrslit á HM í Danmörku 1978, og urðu heimsmeistarar með því að vinna Rússa í úrslitaleik. Henning Fritz átti stórkostlegan leik í marki Þjóðverja og varði 21 skot. Pacsal Hens var markahæstur Þjóöverja og skoraði sex mörk og Christian Schwarzer skoraði fimm mörk. Daniel Narcisse var marka- hæstur hjá Frökkum með sex mörk en þetta er ein mesta skytta sem komið hefur fram í sviðsljósið í langan tíma. Tvö frábær lið „Þama áttust við tvö frábær lið en við höfðum þetta af sem betur fer. Bæði liðin náðu að vinna upp fjögurra marka forystu hins og í það fór mikil orka,“ sagði Heiner Brand, þjálfari þýska liðsins, á blaða- mannafundi eftir leikinn. „Við reyndum allt hvað við gát- um í lokin en Þjóðverjar voru sterkari og sýndu mikla baráttu og styrk á endasprettinum,“ sagði Claude Onesta, landsliðsþjálfari Frakka, eftir leikinn. Króatar skelltu Spánverjum Krótar tryggðu sér sæti í úrslita- leik í annað sinn í sögunni þegar þeir sigruðu Spánverja, 39-37, í und- anúrslitaleik á heimsmeistaramót- inu í handknattleik í tvíframlengd- um leik. Það benti fátt til annars en Króatar yrðu lítil fyrirstaða fyrir Spánverja, sem höfðu töluverða yf- irburði framan af, en í hálfleik venjulegs leiktima voru Spánverjar með sex marka forystu, 14-8. Króat- ar mættu mjög ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og söxuðu jafnt og þétt á forskot Spánveija. Þeir gerðu gott betur og komust yfir, 22-20, en Iker Romero jafnaði, 25-25, úr aukakasti þegar leiktíminn var að fjara út. Spánverjar skoruðu þrjú síðustu mörk venjulegs leiktíma. I fyrri framlengingu var jafnt á öllum tölum og nú voru það Króat- ar sem jöfnuðu á elleftu stundu, 31-31. I síðari framlengingunni höfðu þeir meira úthald en Spán- veijar og tryggðu sér sigurinn. Allt ætlaði um koll að keyra meðal Króata í leikslok og hylltu leikmenn stuðningsmenn sína á áhorf- endapöllunum en um átta hundruð Króatar komu gagngert til Lissabon til að styðja liðið. Slavko Goluza skoraði 8 mörk fyr- ir Króata og Petar Metlicic skoraði 6 mörk. Hjá Spánverjum skoraði Enric Maasip 9 mörk fyrir lið sitt og Antonio Ortega skoraði 4 mörk. Það virðist ekki eiga fyrir Spánverjum að liggja að leika til úr- slita á stórmóti en þeir hafa verið hársbreidd frá því á síðustu árum. Áttum þetta skilið Ivica Udovic, þjálfari Króata, sagði eftir leikinn þetta vera einn mesta sigur Króata í handbolta lengi, þegar tekið væri mið af leikn- um, stöðunni í hálfleik og drama- tíkinni í tvíframlengdum leik. „Við áttum þetta skilið og liðið lagði stórkostlega vinnu á sig til að koma þessum sigri í höfn. Það hafa orðið miklar breytingar á liði okkar og við erum enn að byggja upp lið fyrir framtiðina. Það leit ekki vel út fyrir okkur eftir tapið fyrir Argent- ínu i fyrsta leiknum í keppninni en síðan hefur leiðin legið upp á við,“ sagði Udovic, þjálfari Króata, eftir leikinn. Það var annað hljóð í strokknum hjá Cesar Argiles, þjálfari Spán- verjanna, sem sagði það ótrúlegt að missa þægilega stöðu niður í jafn- tefli. „Þetta braut okkur niður en það var aðdáunarvert að sjá þó hvað mínir menn héldu út - en þetta er engu að síður áfall að komast ekki í úrslitaleikinn," sagði Argiles. Ungverjar á ólympíuleikana Ungverjaland sigraði Júgóslavíu, 34-33, í tvíframlengdum í leik lið- anna um 5.-8. sætið á heimsmeist- aramótinu í handknattleik í Lissa- bon á laugardaginn var. Leikurinn var í járnum lengstum en Júgóslavar voru þó þetta 1-2 mörk- um yfir í fyrri hálfleik en í leikhléi var staðan 12-11 fyrir Júgóslava. Sama spennan hélst eftir síðari hálf- leik en það voru Júgóslavar sem jöfnuðu metin, 25-25, og knúöu fram framlengingu. Hvort lið gerði að- eins tvö mörk í fyrri framlengingu og eftir hana var staðan, 27-27. Ungverjar voru sterkari í seinni framlengingu, komust tveimur mörkum yfir rétt undir lok fram- lengingarinnar en Júgóslavar minnkuðu muninn í eitt mark áður en yfir lauk. „Það var vamarleikurinn og markvarslan sem skóp þennan sig- ur og fyrir vikið skoruðum við mörg mikilvæg mörk úr hraðaupp- hlaupum. Þetta var gríðarlega mik- ilvægur sigur fyrir okkur. Ég ætla að vona að Júgóslavar komist með okkur á ólympíuleikana,“ sagði Laszio Skaliczky, þjálfari ungverska liðsins, eftir leikinn. Carlos Perez, Kúbveiji sem hefur fengið ungverskan ríkisborgara- rétt, gerði 13 mörk í leiknum. Hjá Júgóslövum var línumaðurinn Dragan Skribic markahæstur með átta mörk. -JKS x>v Johannsson gefst ekki upp Bengt Johannsson, þjálfari sænska landsliðsins í handknatt- leik, er ekki á þeim buxunum að gefast upp þrátt fyrir slæmt gengi sænska liðsins á heimsmeistaramót- inu í Portúgal. „Það var óraunhæft að stefna á gullið á þessu móti. Nú þurfum við að búa til lið sem getur unnið sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu á næsta ári en það gerum við með því að standa okkur eins og menn á Evrópumeistaramótinu í Slóveníu að ári. Við höfum tapað þremur úr- slitaleikjum á ólympíuleikunum í gegnum tíðina og skuldum sjálfum okkur það að komast þangað enn eitt skiptið og klára þá dæmið,“ sagði Johannsson sem hefur verið harkalega gagnrýndur af sænskum fjölmiðlum fyrir frammistöðu sænska liðsins á HM þar sem liðinu tókst ekki að verða meðal átta efstu liðanna. -ósk HANDBOLTI J T¥7~ caa 0 | Leikir um 5.-8. sætið Ungverjaland-Júgóslavla . . 34-33 Carlos Perez 13, Peter Lendvay 6, Ist- van Pasztor 6, Miklos Rosta 3, Balazs Kertesz 3, Laszlo Nagy 2, Csaba Bend 1 - Dragan Skrbie 8, Nedeljko Jovanovic 6, Zikica Milosavljevic 4, Nenad Perunicic 4, Ivan Lapcevic 3, Dragan Sudzum 3, Vladimir Petric 2, Nenad Maksic 1, Nikola Vojinovic 1, Mladen Bojinov 1. Ísland-Rússland.........27-30 Ólafur Stefánsson 9, Guðjón Valur Sigurðsson 4, Einar öm Jónsson 4, Aron Kristjánsson 3, Dagur Sigurðs- son 3, Patrekur Jóhannesson 2, Sigfús Sigurðsson 1, Róbert Sighvatsson 1 - Alexandre Toutchkine 8, Alexei Rast- vortsev 5, Denis Krivoshlykov 4, Vitali Ivanov 4, Eduard Kokcharov 4, Igor Lavrov 3, Dmtri Torgonanov 1, Eduard Moskalenko I. Undanúrslitleikir Þýskaland-Frakkland.....23-22 Pascal Hens 6, Christian Schwarzer 5, Christian Zeits 3, Florian Kehrmann 3, Markus Baur 3, Mark Dragunski 1, Stefan Kretschmar 1, Volker Zerbe 1 - Daniel Narcisse 6, Patrick Cazal 6, Jerome Femandez 3, Jackson Ric- hardson 3, Christophe Kempe 2, Bertrand Gille 1, Olivier Girault 1. Króatía-Spánn...........39-37 Slavko Goluza 8, Mirza Dzomba 6, Petar Metlicic 6, Ivano Balic 5, Bozidar Jovic 4, Blazenko Lackovic 4, Niksa Kaleb 3, Tonci Valcic 3 - Enric Masip 9, Alberto Entrerríos 6, Carlos Ortega 4, Manuel Colón 3, Talant Dujshebaev 3, Femando Hemández 3, Iker Romero 3, Juancho 2, Mariano Ortega 2, Mateo Garralda 1, Juanín 1. -ósk Leikmenn þýska liðsins fagna hér sigrinum á Frökkum í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar í Portúgal á laugardaginn. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.