Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Page 11
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003
27
DV
Sport
Umspil fyrir EM 2004:
Erfitt hjá
Portúgölum
- mæta Norðmönnum
í gær var dregið í umspil fyrir
Evrópumeistaramótið í Slóveníu á
næsta ári. Drátturinn fór fram í
Lissabon og voru tuttugu þjóðir í
pottinum. Sex lið eru örugg áfram,
Sviar, Þjóðverjar, Danir, íslending-
ar og Rússar sem fmun fyrstu þjóð-
imar á EM í Svíþjóð auk gestgjafa
Slóvena.
Hin tíu liðin koma úr þessum um-
spilsleikjum sem dregið var um í
gær. Portúgalar fengu erfiðasta
verkefnið af þeim liðum sem voru í
sterkari styrkleikaflokknum en þeir
mæta Norðmönnum.
Mats Olsson,
aðstoðarþjálfari
Portúgala, sagði
að þetta hefði
verið það versta
sem gat gerst
fyrir Portúgala
en Gunnar Pett-
erson, þjáifari
Norðmanna, var
himinlifandi og
sagði að Portúgalar væru ekki erfið-
ir andstæðingar.
í öðrum leikjum í umspilinu mæt-
ast Bosnía og Tékkland, ísrael og
Úkraína, Hvíta-Rússland og Króa-
tía, Austurríki og Pófland, Finnland
og Júgóslavía, Litháen og Spánn,
Makedónía og Ungverjaland, Grikk-
land og Frakkland og Tyrkland og
Sviss.
Fyrri leikimir fara fram helgina
14.-15. júní en seinni leikimir viku
seinna. -ósk
HANDBOLTI J ||f
fflca 0 [PCÐBfíilSKaaD^r A
Úrslitaleikur
Króatia-Þýskaland........34-31
Mörk Króaía: Mirca Dzomba 8, Pet-
er Metlicic 4, Renato Sulic 4, Babor
Lackovic 4, Ivano Balic 4, Slavko
Goluza 3, Bozidar Jovic 3, Nikisa
Kaleb 2, Domic Dominkovic 1, Tonci
Valgic 1.
Mörk Þjóðverja: Markus Baur 8,
Florian Kerhmann 7, Pascal Hens 5,
Christian Schwarzer 3, Christian
Zeits 2, Heiko Grimm 2, Christian
Rose 2, Mark Dragunski 1, Jan Olaf
Immel 1.
Leikur um þriðja sætið
Frakkland-Spánn..........27-22
Mörk Frakka: Daniel Narcisse 7, Pat-
rick Cazal 5, Joel Abati 4, Gregory
Anquetil 2, Bertrand Gille 2, Andrej
Golic 2, Jackson Richardson 2,
Francois Houlet 2, Cedric Burdet 1.
Mörk Spánverja: Antonio C. Ortega
7, Talant Dujshebaev 5, Femando
Hemandez 4, Alberto Entrerrios 3,
Manuel Colon 2, Enric Masip 1.
Króatar meistarar
- í fyrsta sinn eftir sigur á meiðslahrjáðum Þjóðverjum, 34-31, í úrslitaleiknum
Króatar fögnuöu gífurlega heimsmeistaratitlinum í hand-
knattleik sem þjóöin vann í fyrsta sinn í gær eftir sigur á
Þjóðverjum í úrslitaleik. DV-myndir Hilmar Þór
DV, Lissabon:
Króatar urðu í gær í fyrsta sinn
heimsmeistarar í handknattleik
þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu Þjóðverja í úrslitaleik í
Lissabon, 34-31, eftir að staðan í
hálfleik var 20-18 fyrir Króata.
Leikurinn var mjög vel leikinn
og mikil skemmtun fyrir 12 þús-
und áhorfendur sem troðfylltu
íþróttahöllina. Fyrir leikinn bjugg-
ust flestir við að Þjóðverjar myndu
hreppa titilinn en Króatar sýndu
hvers þeir eru megnugir, léku stór-
vel og skynsamlegan leik og átti
markvörður þeirra, Vlado Sola,
stórkostlegan leik, varði 18 skot og
tvö víti. Króatar fengu mikinn
stuðning í leiknum en talið var að
vel á annað þúsund Króatar hefðu
komið til Lissabon til að fylgja lið-
inu lokaspölinn í átt að heims-
meistaratitlinum.
Úrslitaleikurirm var í jámum
lengst af, Þjóðverjar höfðu fyrst yf-
irhöndina en Króatar komust síð-
an yfir og leiddu í hálfleik með
tveimur mörkum.
I upphafi síðari hálfleiks náðu
þeir þriggja marka forystu en Þjóð-
verjar jöfnuðu leikinn, 29-29.
Króatar vom sterkari á endasprett-
inum og tryggðu sér að lokum ör-
uggan sigur.
Óx ásmegin
Það vom ekki margir sem bjugg-
ust við því að Króatar myndu gera
rósir í mótinu eftir fyrsta tapið,
gegn Argentínu, í fyrsta leik riðla-
keppninnar en þeim óx ásmegin
jafnt og þétt og stóðu að lokum
og Volker Zerbe heföi verið of stór
biti að kyngja fyrir þýska liðið í
úrslitaleiknum.
„Liðið gerði allt sem það gat en
því miður var það ekki nóg. Króat-
ar spiluðu frábæran handknattleik
og voru vel að sigrinum komnir.
Ég óska þeim hamingju með titil-
inn en við munum koma sterkir til
leiks á EM í Slóveniu, vonandi
með okkar sterkasta lið,“ sagði
Brand eftir leikinn. -JKS
uppi með sterkasta og besta liðið.
Úrslitin eru mikið reiðarslag
fyrir Þjóðverja sem ekki hafa unn-
ið heimsmeistaratitilinn I 25 ár.
Þeir voru mjög kokhraustir fyrir
leikinn og það er talið hafa orðið
þeim að fafli. Þeir voru með van-
mat á króatíska liðið
sem kom, sá og sigraði.
Ivica Udovic, þjálfari
Króata, hefur unnið
hreint þrekvirki með
þetta lið en auk þess
starfs er hann þjálfari
Ademar Leon á Spáni
sem kom sem kunnugt
er til íslands í vetur til
að leika við Hauka í
Evrópukeppninni.
Hræröur
Udovic sagði eftir
leikinn að sig hefði
aldrei órað fyrir að liðið
myndi að lokum standa
uppi sem heimsmeist-
ari.
„Ég er hrærður og
svo hreykinn af þessu
liði. Þetta er ungt lið
sem á framtíðina fyrir
sér. Við er langt á und-
an áætlun og ég á bara
ekki til orð,” sagði
Udovic eftir leikinn.
Geröum allt
Heiner Brand, þjálf-
ari Þjóðverja, var gífur-
lega svekktur eftir leik-
inn en viðurkenndi að
missir lykilmanna eins
og Stefans Kretzschmar
Leikur um fimmta sætið
Rússland-Ungverjaland . . . 30-25
Mörk Rússa: Alexei Rastvortsev 9,
Alexandre Toutchkine 6, Eduard
Moskalenko 4, Igor Lavrov 3, Vitali
Ivanov 2, Alexei Kamanin 2, Eduard
Kokcharov 1, Denis Krivoshlykov 1,
Ivan Tchougai 1, Viatcheslav
Gorpichine 1.
Mörk Ungverja: Carlos Perez 7,
Laszlo Nagy 7, Miklos Rosta 3, Gyula
Gal 2, Gergo Ivancsik 2, Nandor
Fazekas 1, Balazs Kertesz 1, Istvan
Pasztor 1, Balazs Lalusk 1.
Leikur tun sjöxmda sætið
Ísland-Júgóslavía..........32-27
Mörk íslendinga: Ólafur Stefánsson
11, Aron Kristjánsson 4, Einar Öm
Jónsson 4, Patrekur Jóhannesson 4,
Guöjón Valur Sigurðsson 2, Sigfús
Sigurðsson 2, Gústaf Bjamason 2,
Dagur Sigurðsson 1, Runnar Sig-
tryggsson 1, Sigurður Bjarnason 1.
Mörk Júgóslava: Dragan Skrbic 7,
Nenad Maksic 4, Vladimir Petric 3,
Mladen Bojinovic 3, Zikica Milosa-
vljevic 3, Vladimir Mandic 2, Dragan
Sudzum 2, Ivan Lapcevic 2, Blazo
Lisicic 1. -ósk
Viljinn til þess að vinna
Þá er heimsmeistarakeppn-
inni í handbolta lokið og á
tímabili fannst manni að
áhorfið væri varla þess virði.
Of mikið um vonbrigði. En
kannski getur maður bara
sjálfum sér um kennt. Maður
ætti að vera búinn að læra það
að í alþjóðlegri keppni á mað-
ur að halda með útlendingum.
íslendingar höfum ekki nægi-
lega sterkt sálarlíf til að kom-
ast á verðlaunapall í stór-
keppnum. Gerist bara tvisvar
á öld eða svo. Og þeir sem
komast ekki á verðlaunapafl
tapa keppni. Svo einfalt er
það. Samt virðumst við Islend-
ingar eiga erfitt með að skilja
þá staðreynd, eða kannski
neitum við bara að sætta okk-
ur við hana. Þess vegna látum
við eins og við höfum sigrað
þótt við lendum bara 1 sjöunda
sæti. En við komumst á
ólympíuleikana eftir ár og fá-
um að tapa þar.
Þórunn Sigurðardóttir
menningarforkólfur sagði mér
á dögunum að hún héldi með
islenska landsliðinu vegna
markvarðarins, sem er víst frá
Úkraínu. Hún segir að hann sé
bæði faflegur og góður. Mér
fmnst það líka en ég er samt
hrifnari af króatíska mark-
verðinum, þessum sem er með
rauða litinn í hárinu. Hann er
svo broshýr og baráttuglaður
og er sífellt að hvetja lið sitt til
dáða.
Maður sá ekki króatíska lið-
ið fyrr en fór að líða að lokum
keppninnar. Þá var
maður nú eiginlega al-
veg að missa áhugann á
Imótinu. En þá léku Króatar
-við Spánverja. Ég hafði
ætlað að halda með Spáni í
þeim leik. Reyndar höfðu svo
að segja allir spekúlantar sagt
í fjölmiðlum að Spánverjar
yllu venjulega vonbrigðum á
stórmótum. Að því leyti eru
þeir víst alveg eins og íslend-
ingar. En stuðningur minn
við Spán entist ekki lengi. Þeir
höfðu yfirhöndina lengi vel en
Króatamir sýndu ótrúlegt
keppnisskap og tókst að vinna
upp fimm marka mun og
skora sjö mörk í röð og kom-
ast yfir. Þetta var afrek. Eigin-
lega bara snilld. Á svipstund
breyttist ég í kolóðan stuðn-
ingsmann Króata. Ég er hrifin
af fólki sem gefst ekki upp.
Sálarheill mín var komin und-
ir því að Króatar ynnu leik-
inn. Svo jöfnuðu Spánveijar á
síðustu sekúndu og ég var í
rusli. Tvöföld framlenging tók
á en Króatamir mínir unnu.
Ég var í sigurvímu.
Úrslitaleikur Króata og
Þjóðverja var æsispennandi.
Þegar þama var komið sögu
var ég orðin nokkuð jákvæð
gagnvart Þjóðverjum sem
sýndu í leik sínum gegn
Frökkum að vinnusemi, agi og
skipulagning koma mönnum
áfram í lífinu. Það er engin
vitleysa í Þjóðveijum og þeir
em lúsiðnir. Við getum margt
afþeimlært. Stundum er sagt
að íslendingar séu lokuð þjóð
og jafnvel kaldlynd. Það er
ekki rétt. Við sveigjumst frek-
ar í þá átt að vera taugabiluð
þjóð. Eigum afar erfitt með að
þoia álag og verðum stundum
svo hissa þegar okkur gengur
velaðvið glutrum tækifærum
og töpum þegar við hefðum átt
að vinna.
Króatíska liðið var lang-
skemmtilegasta liðið í keppn-
inni. Þar leika menn eins og
þeim finnist gaman að hand-
bolta. Þannig léku nú ekki öll
liðin i keppninni. Sumum
virtist þykja þetta óskaplega
erfitt og leiðinlegt. Það var því
ekkiannað hægt en falla fyrir
frískleika og leikgleði króat-
íska liðsins. Samt hafði maður
áhyggjur af þeim i úrslita-
leiknum á móti Þjóðverjum.
Maður óttaðist að þeir hefðu
ekki úthald. Viljinn til að
vinna varð þó allri þreytu yfir-
sterkari. Svona lið á allt gott
skilið. Ótrúlegt baráttulið.
Verðugir heimsmeistarar.