Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Síða 14
* 30
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003
i
-'J
Sport
DV
Agúst Jóhannsson metur íslenska liðið
lokaleikirnir tveir og samantekt á öllu mótinu
„Viö vorum með svör
við öllu og vorum miklu
betri, miklu einbeittari
og með miklu meiri
sigurvilja heldur en
Júgóslavarnir og
sýndum mikinn karakter
að klára þetta sterka
júgóslavneska lið á
sannfærandi hátt«
íslensku strákarnir fagna hér sigrinum gegn Júgóslövum í gær og má greina
mikinn létti í svipbrigöum þeirra. DV-mynd Hilmar Þór
Frábær árangur
- markmiðið náðist með sigrinum á Júgóslavíu í gær
íslenska landsliðið bar sigm-orð
af Júgóslavíu, 32-27, i leik um sjö-
unda sætið á HM í gær og tryggði
sér um leið sæti á Ölympíuleikun-
um í Aþenu á næsta ári. Á laugar-
daginn tapaði liðið fyrir Rússum,
30-27, sem þýddi að liðið þurfti að
leika um sjöunda sætið.
DV-Sport ræddi við Ágúst Jó-
hannsson, þjálfara Gróttu/KR, um
lokaleikina tvo og heildarframmi-
stöðu á mótinu.
Rússarnir of sterkir
„Ef maður skoðar leikinn á laug-
ardaginn þá má segja að rússneska
liðið hafi verið versti hugsanlegi
andstæðingur í þennan leik þvi að
Rússamir eru eins og vélmenni.
Þeir spiia nákvæmlega eins, hvort
sem þeir eru að spila um fyrsta sæt-
ið eða það fimmtugasta, og eru með
hörkugott lið. Rússamir vora of
sterkir fyrir okkur á laugardaginn.
Við náðum okkur ekki nægilega á
strik, markvarslan var lítil sem eng-
in, sérstaklega í fyrri hálfleik. Liðið
saknaði Sigurðar Bjamasonar auk
þess sem Patrekur tók lítinn þátt í
leiknum. Þegar við erum að spila
gegn liði eins og Rússum þá verðum
við einfaldlega að hafa okkar besta
lið ef við ætlum okkur að eiga
möguleika," sagði Ágúst.
Langbesti leikur liösins
„Leikurinn gegn Júgóslövum var
langbesti leikur liðsins á mótinu.
Hann var virkilega góður, bæði í
vörn og sókn, og loksins tókst liðinu
að halda út heilan leik þar sem spil-
að var af fullum krafti allan tímann.
Ólafur var ótrúlega góður og Guð-
mundur í markinu líka og það má
eiginlega segja að þeir tveir hafi
lagt grunninn að þessum frábæra
sigri með glæsilegri frammistöðu í
leiknum.
Liðið útfærði vömina vel, sem
skilaði sér í mörgum auðveldum
hraðaupphlaupsmörkum. Þetta var
eiginlega í fyrsta sinn á þessu móti
sem vörnin líktist þeirri vöm sem
liðið spilaði í Sviþjóð í fyrra. Það
var góður hreyfanleiki í mönnum,
þeir gengu vel út i skyttur
Júgóslava og þá var ekki að sökum
að spyrja.
Mér fannst sóknarleikurinn
einnig ganga mjög vel upp. Það
skipti engu máli hvort þeir tóku
Ólaf út eða spiluðu 6:0 eða 3:2:1
vöm.
Við vorum með svör við öllu og
voram miklu betri, miklu einbeitt-
ari og með miklu meiri sigurvilja
heldur en Júgóslavamir og sýndum
mikinn karakter að klára þetta
sterka júgóslavneska lið á sannfær-
andi hátt. Það var mikið í húfi í gær
og strákamir vissu það að allt ann-
að en sigur væru mikil vonbrigði.
Það var því pressa á liðinu en sem
betur fór stóðst liðið hana og
kláraði mótið með sæmd.“
Vel útfæröur sóknarleikur
„Liðið er búið að vera í vandræð-
um með vamarleikinn á mótinu.
Liðið hefur spilað ágætis varnarleik
á köflum en ekki náð að halda heila
leiki út nema gegn Júgóslövum í
gær. Markvarslan var svolítið í
samræmi við vamarleikinn en þó
var ég í heildina nokkuð sáttur við
Guðmund og Roland. Það er klárt að
við þurfum að spila góða vöm gegn
þessum bestu liðum til að fá hraða-
upphlaupin í gang.
Sóknarleikurinn hefur verið vel
útfærður. Ólafur hefur staðið sig
mjög vel og einnig homamennimir
Guöjón Valur og Einar Örn. Róbert
og Sigfús stóðu einnig fyrir sínu á
línunni en mér finnst að það hefði
mátt koma meira út úr leikmönnum
eins og Patreki og Degi.
Ég held samt að liðið geti borið
höfuðið hátt eftir þetta mót. Viö
unnum Portúgala, Pólverja og
Júgóslava og töpuðum gegn Þjóð-
verjum, Spánverjum og Rússum í
nokkuð jöfnum leikjum. Það er frá-
bær árangur að ná ólympíusæti og
glæsilegt að ná því markmiði sem
lagt var upp með fyrir mótið.
Þetta lið á mikiö inni
Ég er sannfærður um það að þetta
lið á mikið inni. Ég hef fulla trú á
því að liðið verði mjög sterkt á
næsta Evrópmnóti og á ólympíu-
leikunum og ég vona að Guðmund-
ur Guðmundsson haldi áfram á
þeirri braut sem hann hefur fetað.
Það fara að koma nýir leikmenn inn
í liðið en allir lykilmenn liðsins
eiga vonandi nokkur ár eftir þannig
að ég kvíði ekki næstu árum,“ sagði
Ágúst. -ósk
ANDAý