Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 31 úrvalsdeiidV ú n BGaoiL^caG) J Úrslit: Arsenal-Fulham.............2-1 1-0 Robert Pires (17.), 1-1 Steed Malbranque (29.), 2-1 Robert Pires (90.). Bolton-Birmingham..........4-2 1-0 Kenny Cunningham, sjálfsm. (12.), 1-1 Robby Savage (44.), 2-1 Henrik Pedersen (46.), 2-2 Clinton Morrison (60.), 3-2 Youri Djorkaeff (84.), 4-2 Delroy Facey (87.). Chelsea-Tottenham .........1-1 0-1 Teddy Sheringham (18.), 1-1 Gianfranco Zola (40.). Everton-Leeds..............2-0 1-0 David Unsworth, víti (56.), 2-0 Tomasz Radzinski (68.). Man. City-West Brom .......1-2 0-1 Neil Clement (18.), 1-1 Paul Gilchrist, sjálfsm. (22.), 1-2 Darren Moore (71.). Middlesbrough-Newcastle frestaö Southampton-Man. Utd......0-2 0-1 Ruud Van Nistelrooy (15.), 0-2 Ryan Giggs (22.). Sunderland-Charlton........1-3 0-1 Mark Fish (24.), 0-2 Michael Proctor, sjálfsm. (29.), 0-3 Michael Proctor, sjálfsm. (32.), 1-3 Kevin Phiilips, víti (81.). West Ham-Liverpool ........0-3 0-1 Milan Baros (7.), 0-2 Steven Gerrard (9.), 0-3 Emile Heskey (67.). Aston VUla-Blackbum.......3-0 1-0 Dion Dublin (1.), 2-0 Dion Dublin (39.), 3-0 Gareth Barry (81.). Staðan: Arsenal 26 17 5 4 56-28 56 Man. Utd 25 15 5 5 42-24 50 Newcastle 25 15 3 7 41-31 48 Chelsea 26 12 9 5 45-26 45 Everton 26 13 6 7 34-30 45 Liverpool 26 11 9 6 37-25 42 Southampt. 26 10 9 7 28-25 39 Charlton 26 11 6 9 34-33 39 Tottenham 26 11 6 9 36-36 39 Man. City 26 11 4 11 37-37 37 Aston Villa 26 10 5 11 30-27 35 Blackbum 26 8 10 8 31-31 34 Leeds 26 9 4 13 33-34 31 Middlesbr. 25 8 6 11 29-29 30 Fulham 25 7 6 12 26-33 27 Birmingh. 25 6 8 11 22-36 26 Bolton 26 5 9 12 29-43 24 West Brom 25 5 5 15 19-37 20 West Ham 26 4 8 14 28-51. 20 Sunderland 26 4 7 15 17-38 19 1 . D E 1 L D J BGaatL^Ga® Úrslit Bradford-Ipswich..............2-0 Bumley-Reading................2-5 Coventry-Watford .............0-1 Derby-Rotherham ..............3-0 Leicester-Crystal Palace .....1-0 MilwaU-Sheff. Utd.............1-0 Norwich-Stoke.................2-2 Portsmouth-Grimsby............3-0 Preston-GiUingham.............3-0 Sheff. Wed.-Wolves ...........0-4 WalsaU-Brighton...............1-0 Wimbledon-Nott. Forest........2-3 Staðan: Portsmouth 30 18 9 3 59-29 63 Leicester 30 18 7 5 47-28 61 Sheff. Utd 28 15 7 6 42-27 52 Nott. Forest30 13 9 8 47-31 48 Reading 29 14 4 11 34-29 46 Wolves 29 12 9 8 49-30 45 Norwich 29 12 9 8 41-28 45 Watford 30 13 6 11 36-45 45 Coventry 30 11 10 9 36-33 43 Millwall 30 12 7 11 38-43 43 C. Palace 29 10 12 7 42-31 42 Ipswich 29 11 8 10 44-36 41 Rotherham 30 11 8 11 48-42 41 Derby 30 12 5 13 38-39 41 Gillingham 28 10 9 9 36-39 39 Bumley 29 10 8 11 43-55 38 Wimbledon 28 9 8 11 4546 35 Preston 30 8 11 11 45-49 35 Bradford 29 9 7 13 35-49 34 Walsall 30 9 6 15 41-46 33 Stoke 30 5 10 15 34-54 31 Grimsby 30 6 7 17 34-59 25 Sheff. Wed 30 5 8 17 27-52 23 Brighton 29 4 8 17 26-47 20 Sport Eiður Smari Guðjohnsen smeygir sér hér fram hja Goran Bunjecevic og Ledley King, varnarmönnum Totfenham, i leik liðanna um helgina. Reuters mirdte Sjö leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn: - Manchester United gefur ekkert eftir í baráttunni um toppsætið við Arsenal Leikmenn Manchester United eru á miklu skriði þessa dagana og fá lið sem geta stoppað þá. Southampton fékk að kenna á því um helgina en lærisveinar Gordons Strachans geta þó kennt sjálf- um sér um að hafa borið skarðan hlut frá borði í viðureigninni því að þeir fengu næg tækifæri til að skora í leikn- um. Ruud Van Nistelrooy skoraði sitt 25. mark á tímabilinu strax á 15. mínútu, eftir frábæran undirbúning hjá Gary Neville og David Beckham. Ryan Giggs skoraði síðan annað markið sjö mínút- um síðar og þar við sat. Leikmenn Southampton hefðu sennilega átt að fá vítaspymu eftir hálftíma þegar Roy Keane reif Norömanninn Jo Tessem niður í teignum án þess að nokkuð væri dæmt. Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Southampton, vildi þó ekki kenna dómaranum um ósigurinn. „Ég hef ekkert að segja um þetta at- vik. Allt gekk okkur i hag næstu tíu mínútur eftir atvikið en því miður nýttum við okkur það ekki. Við spiluð- um betur en gegn Liverpool. Fyrsta markið þeirra var eiginlega hálfgert grin og það seinna var óheppni því að Ryan (Giggs) skaut á markið og fékk frákastið til baka,“ sagði Strachan eft- ir leikinn. „Það var mikilvægt að skora fyrsta markið í leiknum. Eftir það fannst mér við stjórna leiknum, við beittum skyndisóknum og lentum sjaldan í vandræðum með sterkt lið Sout- hampton," sagði Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester United, eftir leikinn. „Ég hef sagt það í allan vetur að ef við bætum okkur á útivelli þá eigum við möguleika á titlinum. Miðað við frammistöðuna í dag ætti enginn að veðja á móti okkur,“ sagði Ferguson. Tvö sjálfsmörk Michael Proctor, leikmaður Sunder- land, vill sennilega gleyma laugardeg- inum sem fyrst. Hann varð fyrir því óláni að skora tvö sjálfsmörk gegn Charlton með þriggja mínútna millibili sem gerði það að verkum að Charlton var komið í 3-0 eftir rúman hálftíma. Sunderland átti á brattann að sækja það sem eftir lifði leiks og situr nú á botni deildarinnar. Howard Wilkinson, knattspyrnu- stjóri liðsins, er þó ekki búinn að gef- ast upp. „Ég samþykki ekki þá fullyrðingu að við séum fallnir. Ég trúi því stað- fastlega að við getum bjargað okkur frá falli. Þessi úrslit voru vonbrigði en mínir menn lögðu sig alla fram. Það var óheppni sem kom í veg fyrir að við fengjum stig út úr þessum leik,“ sagði Wilkinson. Alan Curbishley, knattspyrnustjóri Charlton, var hógvær eftir sigurinn en sagði að sjálfstraust leikmanna skilaði góðum úrslitum. „Við erum á ótrúlegu skriði. Það er alveg magnað hvað sjálfstraust leik- manna getur skilað góðum úrslitum viku eftir viku,“ sagði Curbishley eftir leikinn. Breytt leikaðferö gaf sigur Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, breytti um leikaðferð, spilaði 4- 4-2 í fyrsta sinn f vetur og það skilaði fjórum mörkum og sigri gegn Birming- ham. „Ég breytti um leikaðferð og strák- amir virtust kunna vel við það. Þeir fengu meira pláss til athafna sig og komu sigrinum mikilvæga í hús. Það var nokkurt bil á milli okkar og Birmingham fyrir leikinn en við höf- um sett aukna pressu á þá með þessum sigri,“ sagði Allardyce. „Það er ekki hægt að verjast eins og við gerðum í úrvalsdeildinni. Það end- ar með ósköpum eins og sannaðist í dag. Við gerum grundvallarmistök í vörninni og töpum leik sem mér fannst við vera mun betri aðilinn í,“ sagði Steve Bruce, knattspyrnustjóri Birmingham, eftir leikinn. Zoia og Cudicini björguðu stigi ítalinn síungi Gianfranco Zola bjarg- aði stigi fyrir Chelsea gegn Tottenham á laugardaginn með glæsilegu marki beint úr aukaspymu og hélt liðinu á beinni braut í átt að sæti í meistara- deildinni að ári. Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea, hrósaði Zola eftir leikinn og sagði að fóturinn á honum væri eins og honum væri stjórnað af vélmenni. „Hann (Zola) hefur ótrúlegt vald yf- ir fætinum á sér og þessi aukaspyma var ótrúleg," sagði Ranieri sem þakk- aði einnig Carlo Cudicini, markverði Chelsea, fyrir stigið. „Carlo varði tvívegis frábærlega og það má eiginlega segja að við höfum tapað tveimur stigum en Carlo hafi fært okkur eitt,“ sagði Ranieri eftir leikinn. Lágt risið á Leeds Raunir Leeds héldu áfram um helg- ina þegar liðið mætti Everton. Eftir að hafa selt Robbie Fowler og Jonathan Woodgate fyrir helgi, til að stemma stigu við skuldasöfnun liðsins, tapaði liðið fyrir Everton, 2-0, og eftir að hafa verið betri aðilinn i fyrri hálfleik datt leikur liðsins niður í seinni hálfleik og leikmenn Everton gengu á lagið og tryggðu sér sigur. Terry Venebles, knattspyrnustjóri Leeds, sagði eftir leikinn að tímar eins og þessir reyndu á alla sem hlut ættu að máli en liðsandinn hjá Leeds væri enn í fínu lagi og á meðan svo væri hefði hann ekki stórar áhyggjur. David Moyes, knattspyrnustjóri Ev- erton, var sáttur við sína menn og sagði að Leeds-liðið hefði ekki ráðið við hraða Kanadamannsins Tomasz Radzkinski í seinni hálfleik og það hefði ráðið úrslitum. Fowler byrjaði með tapi Leikmenn West Brom komu skemmtilega á óvart og eyðilögðu fyrsta leik Robbie Fowlers með Manchester City með því að vinna óvæntan sigur á Maine Road á laugar- daginn og komu sér úr botnsætinu I bili. Fowler náði sér ekki á strik í leikn- um og ljóst að hann og Nicolas Anelka þurfa meiri tíma til að ná saman. Gary Megson, knattspymustjóri West Brom, sagði eftir leikinn að hann vonaði að þessi sigur gæti snúið tíma- bilinu við hjá liðinu. „Við erum ekki fallnir en við erum í erfiðri aðstööu sem við þurfum að berjast út úr,“ sagði Megson. -ósk Rio Ferdinand, John O’Shea og Gary Neville fagna hér sigri Manchester United á Southampton á laugardaginn. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.