Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 33 DV Sport Robert Pires Fæddur: 29. október 1973 Heimaland: Frakkland Hæö/þyngd: 188 cm/74 kg Leikstaða: Kantmaður Fyrri lið: Metz, Marseiile Deildarleikir/mörk: 119/30 Landsleikir/mörk: 49/7 Hrós: „Hann er hungraður 1 að skora og mér sýnist að hann sé kominn aftur í sitt besta form eftir meiðslin. Bæði mörkin hans voru glæsileg og vitnisburður um getu hans sem knattspymumanns." Arsene Wenger, stjóri Arsenal, um Robert Pires. Franski kantmaðurinn Robert Pires er af flestum talinn einn af bestu leik- mönnum ensku deildarinnar í dag. Það vqru margir sem ráku upp stór augu þegar Arsene Wenger borgaði 7,5 milljónir punda fyrir hann í júlí- mánuði árið 2000. Þeir efast ekki í dag en byrjun Pires hjá Arsenal var langt frá því að vera sannfærandi. Það tók hann dágóðan tíma að venj- ast ensku knattspymunni en á síð- asta tímabili fengu knattspymu- áhugamenn að sjá hvers hann er megnugur. Það er ekki á neinn hallað þótt því sé haldið fram að hann hafi verið yfirburðamaður í deildinni allt þar til einn örlagaríkan dag í mars þegar hann sleit krossbönd í hné. Draumur Pires um að spila í heims- meistarakeppninni með Frökkum fauk út um gluggann og er ekki vafi að Frakkar söknuðu mannsins, sem var búinn að gera grin að öllum hægri bakvörðum ensku úrvalsdeildarinnar, sárlega á HM. Við tók erfið endurhæfing en Pires hefur sýnt síðan hann byrjaði að spila á nýjan leik að hann hefur ekki verið eyða tímanum utan vallar í viUeysu. Hann æfði gífurlega vel og kom til baka í frábæru formi, hefur verið að spila eins og engill síðan og er aftur kominn á stallinn þar sem hann á heima, í hópi bestu leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar og sennilega í gjörvallri Evrópu. -ósk Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni i knattspyrnu í gær: Tímabilið byrjar núna - sagði Gerard HouUier, knattspyrnustjóri Liverpool, eftir sigur á West Ham Liverpool virðist vera vakna til lífsins og ekki er hægt að segja að liðið hafi átt í miklum erfiðleikum með botnlið West Ham á Upton Park í gær. Eftir tíu mínútna leik höfðu Milan Baros og Steven Gerr- ard komið Liverpool í 2-0 og það sem eftir lifði leiks náðu leikmenn West Ham aldrei að ógna marki Liverpool að neinu ráði. Emile Heskey bætti þriðja markinu við um seinni hálfleikinn miðjan og úr- slitin voru ráðin. Liverpool hefur ekki sagt sitt síð- asta orð í toppbaráttunni en West Ham situr niðurnjörvað við botn- inn, leikmenn þess enn í sigurvímu eftir fyrsta heimasigurinn á tímabil- inu í síöustu viku. Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, var himinlifandi eftir leikinn og tilkynnti sigurreifur að tímabOið hjá Liverpool byrjaði núna. Okkar eigin deild „Ég myndi segja að tímabOið hjá okkur byrjaði núna. Ég held að við getum ekki unnið meistaratitOinn eftir slæma tímabOið sem við geng- um í gegnum en við ætlum okkur sæti í meistaradeOdinni. Við erum nú um stundir að spOa í okkar eig- in deOd og ætlum að reyna að ná í eins mörg stig og kostur er. Okkur hefur gengið vel siðan við spOuðum við Arsenal á útiveOi og erum komnir á ágætt skrið núna. Mér fannst mínir menn leggja meira á sig heldur en leikmenn West Ham i leiknum og eftir að við skoruðum tvö fyrstu mörkin þá var þetta auðvelt. Þegar menn vinna vel og hafa hæfdeika eins og flestir minna manna hafa þá næst árang- ur,“ sagði HouOier. HouOier notaði einnig tækifærið og hrósaði EmOe Heskey í hástert fyrir góða frammistöðu að undan- förnu. „Þegar hann er í formi þá erum við hættulegir. Hann hefur verið að spOa mjög vel upp á síðkastið og það hjálpar okkur mikið. Með Heskey í gímum og Baros og Owen i formi þá geta fáir stöðvað okkur,“ sagöi HouOier. Hef samúð með Roeder Frakkinn sagðist hafa mikla sam- úð með Glenn Roeder, knattspymu- stjóra West Ham, og sagðist ætla að ræða við hann eftir leikinn og hug- hreysta hann. „Roeder er með gott lið í höndun- um en þvi miður fyrir hann og hans menn þá mættu þeir gífurlega sterku Liverpool-liði í dag,“ sagði HouOier. Af litlum neista Jóhannes Karl Guðjónsson hefur svo sannarlega hleypt nýju lífl í Aston VOla eftir að hann byrjaði að spOa með liðinu. I gær spOaði hann sinn annan leik með liðinu, gegn Blackbum á heimaveOi, og fóru Jóhannes Karl og félagar hans með sigur af hólmi, 3-0. Jóhannes Karl lagði upp fyrsta markið fyrir Dion Dublin með fal- legri sendingu og var mjög sterkur sem afturliggjandi miðjumaður hjá Aston VOla. Framherjinn Dion Dublin var samt maður leiksins. Hann skoraði tvö mörk og hélt vamarmönnum Blackbum við efnið aOan tímann. Með sigrinum komst Aston VOla upp fyrir Blackbum á töflunni og er útlitiö bjart þessa dagana hjá Gra- ham Taylor og lærisveinum hans í Aston VOla. -ósk Glenn Roeder, knatt- spymustjóri West Ham, fer ótroðnar sloöir, bæði i vali á liðinu og klæöaburði miðað við aðra knatt- spyrnustjora úrvals- deildarinnar. Hann klæddist forláta leðurjakka i leiknum gegn Liverpool i gær en það dugði þó ekki til sigurs. Reuters i OKKAR MENN Guóni Bergsson lék allan leikinn þegar Bolton vann mikilvægan botnbaráttu- sigur, 4-2, á Birmingham í ensku úrvaisdeildinni á laugardaginn. Lárus Orri Sigurósson kom inn á sem varamaður á 85. mínútu þegar West Brom vann óvæntan útisigur á Manchester City, 2-1, i ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Hermann Eióur Smári Guöjohnsen arsson' lék allan leikinn hjá Chelsea sem gerði jafntefli, 1-1, gegn Tottenham á heima- velli í ensku úrvalsdeildinni á laugar- daginn. Jóhannes Karl Guójónsson lék með Aston Villa í sigri á Blackbum í gær og lagði upp fyrsta mark liðsins. Hermann Hreióarsson lék sinn 100. leik fyrir Ipswich þegar liðið beið lægri hlut fyrir Bradford, 2-0, í ensku 1. deild- inni á laugardaginn. Hermann var rekinn af velli á 50. minútu fyrir að gefa and- stæðingi sínum oln- bogaskot en þá var staðan jöfn, 0-0, og hrundi leikur Hreið- IPswich ‘ kjölfarið. Brynjar Markvöróurinn Stefán Logi Magnússon sat á vara- mannabekk Bradford allan timann en hann gekk til liðs við félagið á fóstudag. Brynjar Gunnarsson skoraði fyrra mark Stoke með fostum skalla á 63. mín- útu þegar liðið gerði jafntefli, 2-2, gegn Norwich á útivelli í ensku 1. deildinni á laugardaginn. Bjarni Guöjónsson sat allan timann á varamannabekknum hjá Stoke. Pétur Marteinsson kom inn á sem vara- maður á síðustu mín- útu hjá Stoke. Heiöar Helguson spilaði allan leikinn fyrir Watford i mikilvægum sigri, Gunnars- a Coventry í póröur ensku 1. deifdinni á SQn laugardaginn. ívar Ingimarsson var ekki í leik- mannahópi Wolves sem vann öruggan sigur, 4-0, á Sheffield Wednesday í ensku 1. deildinni á laugardaginn enda á leið í eins mánaðar lán til 1. deildar liðsins Brighton í byrjun næstu viku. Helgi Valur Danielsson spilaöi allan leikinn á miðju Peterborough sem gerði jafntefli, 1-1, gegn Luton í ensku 2. deild- inni á laugardaginn. Þóröur Guðjónsson kom inn á sem varamaður á 74. mfn- útu hjá Bochum sem tapaði fyrir Energie Cottbus, 2-1, í þýsku 1. deildinni á laugar- daginn. Þórður skoraði mark Bochum með fóstu skoti frá vítateig á síðustu mínútu Guöjóns- leihsins- Eyjólfur Sverrisson var ekki í leikmannahópi Herthu Berlin sem tap- aði fyrir Stuttgart, 3-1, í þýsku 1. deild- inni á laugardaginn. -ósk f Dion Dublin Dion Dublin hefur sýnt og sann- að mikilvægi sitt fyrir Aston Villa á undanfömum vikum. Hann hef- ur skorað sjö mörk í síðustu sjö leikjum liðsins, þar af tvö um helg- ina í sigri á Blackburn. Dublin nýtur góðs af auka- spyrnum Jóhannesar Karls Guð- jónssonar en fyrsta mark hans í gær kom eftir aukaspyrnu frá hon- um. Dublin hefur þó ekki alltaf ver- ið í náðinni hjá Taylor því að hann var lánaður tii 1. deildar liðsins Millwall í fyrra þar sem hann raðaði inn mörkum. í dag er hann hins vegar ómissandi fyrir Graham Taylor. -ósk Michael Proctor Michael Proctor, leikmaður Sunderland, átti martraðarleik á laugardaginn þegar Sunderland mætti Charlton á heimavelli. Proctor byrjaði á því að skalla boltann fyrir fætur Mark Fish, varnarmanns Charlton, sem þakk- aði gott boð og skoraöi fyrsta mark leiksins. Proctor varð síðan fyrir því óláni aö skora tvö sjálfs- mörk með aðeins þriggja mínútna millibili og gerði þar með út um leikinn og sendi Sunderland í botnsæti deildarinnar. Bæði mörkin sem Proctor skoraði báru keim óheppni með sér. Hann fékk frákast frá Tomasi Sorensen, markverði Sunderland, í sig og í markið í fyrra skiptið en i það síðara fór homspyrna Claus Jen- sens, leikmanns Charlton, í bakið á honum og inn.-ósk Þriðjudagur 4. febrúar Birmingham-Man. Utd Laugardagur 8. febrúar Liverpool-Middlesbrough Birmingham-Chelsea Blackbum-Southampton Charlton-Everton Fulham-Aston ViRa Leeds-West Ham Tottenham-Sunderland West Brom-Bolton Sunnudagur 9. febrúar Man. Utd-Man. City Newcastle-Arsenal Laugardagur 22. febrúar Bolton-Man. Utd Everton-Southampton Charlton-Aston Villa Chelsea-Blackbum Leeds-Newcastle Man. City-Arsenal Sunderland-Middlesbrough Sunnudagur 23. febrúar Birmingham-Liverpool

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.