Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003
37
I>V
Sport
Haukar-Valur 96-74
Breiöablik—Snæfell 77-74
0-3, 75-5, 11-13, 15-18, (21-18), 21-30, 25-34,
30-34, 30-42, (38-12), 38-17, 48-55, 56-55,
(56-59), 58-61, 68-61, 74-69, 77-74.
Stig Breiöabliks: ísak Einarsson 22,
Pálmi Sigurgeirsson 16, Kenny Tate 14,
Mirko Virijevic 11, Loftur Einarsson 10,
Bragi Magnússon 2, Friðrik Hreinsson 2.
Stig Snœfells: Hlynur Bæringsson 27,
Clifton Bush 19, Sigurbjörn Þórðarson 8,
Lýður Vignisson 8, Andrés Hreiðarsson 5,
Helgi Reynir Guðmundsson 3, Jón Ólafur
Jónsson 3.
Dómarar (1-10):
Einar Einarsson
og Rögnvaldur
Hreiðarsson (7).
GϚi leiks
(1-10): 3.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins:
ísak Einarsson, Breiðabliki
Fráköst: Breiðablik 41 (12 í sókn, 29 í
vörn, Tate 20), SnæfeU 40 (11 í sókn, 29 í
vörn, Hlynur 14, Bush 13)
Stoósendingar: Breiðablik 11 (Pálmi 5),
Snæfell 12 (Hlynur 4).
Stolnir boltar: Breiöablik 12 (Pálmi 2,
Tate 2, Loftur 2, Mirko 2), Snæfell 5 (Helgi
2).
Tapaöir boltar: Breiðablik 10, Snæfell
17.
Varin skot: Breiöablik 2 (Mirko 2), Snæ-
fell 0.
3ja stiga: Breiðablik 16/5, Snæfell 27/9.
Víti: Breiðablik 24/14, Snæfell 19/13.
Sveiflukennt
- þegar Blikar lögðu Snæfell í mikilvægum leik fyrir bæði lið
Það var algjört lífsspursmál fyrir
Breiðablik að sigra Snæfell í Smáran-
um í gærkvöld, ef vonin um sæti í úr-
slitakeppninni átti að lifa áfram, því
tap hefði þýtt að of langt hefði verið 1
áttunda sætið. Blikum tókst ætlunar-
verkið og lögðu gestina 77-74 eftir
mikla baráttu en það var ekki fyrr en
í fjórða og síðasta leikhluta sem Blikar
sigu fram úr eftir að hafa verið að elta
gestina megnið af leiknum. Leikurinn
verður seint talinn áferðarfallegur en
svo vill oft verða þegar tímabilið er
nánast undir og geta bæði lið leikið
mun betur en þau gerði í gærkvöld.
Blikar leiddu með þremur stigum
eftir fyrsta leikhluta en þá kom skelfi-
legur kafli hjá þeim og leikmenn Snæ-
fells gengu á lagið og skoruðu 12 fyrstu
stigin í öðrum leikhluta. Annar leik-
hluti var vægast sagt mjög kaflaskipt-
ur og liðin skiptust á um að skora í
skorpum. Snæfell náði að komast mest
12 stigum yfir þegar skammt var til
leikhlés en Blikar náðu að rétta sinn
hlut með því að skora átta síðustu stig-
in í fyrri hálfleik og því munaði aðeins
fjórum stigum á liðunum, 38-42.
ísak að koma sterkur inn
Snæfell leiddi áfram með þetta 7-9
stigum í byrjun seinni hálfleiks en þá
náðu Blikar að gera átta stig í röð og
komast einu stigi yfir, 56-55, og voru
ekki búnir að segja sitt síðasta.
Sigurbjöm Þórðarson kom Snæfelli
aftur yfir í byijun fjórða leikhluta en
þá fór allt í baklás hjá gestunum og
skoruðu þeir ekki stig í rúmar sex
mínútur. Blikar gengu á lagið og náði
sjö stiga forskoti og lönduðu mikilvæg-
um sigri.
ísak Einarsson er heldur betur að
koma sterkur inn hjá Blikum þessa
dagana og átti annan stórleik á þrem-
ur dögum en ísak lék ekkert með Blik-
um fyrir áramót. Kenny Tate hefur
aldrei skorað eins lítið en hann reif
niður 20 fráköst. Pálmi var sterkur í
lokin og barátta Lofts Einarssonar
smitar ávallt út frá sér.
Hjá Snæfelli var Hlynur Bærings-
son bestur og Cliftin Bush var traust-
ur. Annars náði Snæfeilingar sér
aldrei almennilega á strik og kannski
með hugann við bikarúrslitaleikinn
um næstu helgi. Þessi leikur var þó
ekki síður mikilvægur fyrir liðið því
með sigri hefði það verið í góðri stöðu
í deildinni og með sæti í
úrslitakeppninni innan seilingar.
-Ben
Haukamaðurinn Stevie Johnson treður hér með tilþrifum gegn Val í
gærkvöld en hann átti enn einn stórleikinn og var með þrefalda tvennu, 23
stig, 16 fráköst og 10 stoðsendingar. DV-mynd Sigurður Jökull
Fráköst: Haukar 47 (13 í sókn, 34 í vörn,
Johnson 16), Valur 21 (7 í sókn, 14 í vörn,
Pryor 7, Priudokas 7)
Stoösendingar: Haukar 25 (Johnson 10),
Valur 10 (Craddock 3, Gylfi 3).
Stolnir boltar: Haukar 10 (Johnson 4),
Valur 5 (Craddock 2, Gylfi 2).
Tapaóir boltar: Haukar 13, Valur 15.
Varin skot: Haukar 4 (Johnson, Bojovic,
Davíö, Ingvar), Valur 1 (Hjörtur).
3ja stiga: Haukar 20/6 (30%), Valur 23/9
(39%).
Víti: Haukar 14/12 (86%), Valur 21/13
(62%).'
Átakalítið
- hjá Haukum sem unnu léttan sigur á Val, 96-74
Haukar unnu öruggan og fremur
auðveldan sigur á Valsmönnum þeg-
ar liðin áttust við í gærkvöld að Ás-
völlum í Intersport-deild karla í
körfuknattleik. Valsmenn, sem hafa
veriö á uppleið að undanförnu,
fundu aldrei taktinn að þessu sinni
og baráttuna, viljann og leikgleðina
sem var í liðinu í vikunni, þegar
Njarðvíkingar voru lagðir að velli,
var hvergi að sjá. Reyndar sýndu
Haukar strax í byrjun að þeir voru
tilbúnir og með Halldór Kristmanns-
son sjóðandi heitan var frumkvæðið
og forystan þeirra.
Valsmenn áttu einn góðan kafla í
fyrsta leikhluta en hann dugði
skammt. í öðrum leikhluta héldu
Haukar sínu striki og náðu mest
sautján stiga forskoti en Vals-
mönnum tókst aðeins að laga stöð-
una fyrir leikhlé. í þriðja leikhluta
gerðu Haukar svo endanlega út um
leikinn og þar fór fremstur í flokki
Sævar I. Haraldsson. Hann skoraði
tíu stig í leikhlutanum og Valsmenn
voru óttalega ráðvilltir. í lokaleik-
hlutanum var þetta svo bara spurn-
ing um lokatölur, Haukar leyfðu öll-
um að spreyta sig og fengu fin fram-
lög á móti.
Það sama má segja um gestina,
minni spámenn spreyttu sig og það
var jafnræði með liðunum í leik-
hlutanum. Hjá Valsmönnum var
Jason Pryor atkvæðamestur en fann
samt sem áður ekki taktinn nægilega
vel. Evaldas Priudokas var ekki í
takti í sókninni en spilaði sæmilega
vörn. Bjarki Gústafsson átti spretti
sem og Barnaby Craddock.
Stevie Johnson skoraði ekki
„nema" tuttugu og þrjú stig fyrir
Hauka, kappinn spilaði fina vörn,
frákastaði vel og þessi drengur gerir
einfaldlega það sem þarf fyrir lið sitt.
Sævar I. Haraldsson var öflugur og
það sama má í raun segja um liðs-
heild Haukanna. Bestur þeirra var
þó Halldór Kristmannsson sem var
virkilega góður í fyrri hálfleik og þá
sérstaklega í fyrsta leikhluta, en þá
setti hann fjórtán stig og gaf tóninn
fyrir sína menn. Hann sat síðan á
bekknum lungann úr seinni hálfleik
og lét fara vel um sig. -SMS
2-0, 2-2, 5-5, 8-9, 17-9, 17-18, 21-18, (26-20),
33-20, 35-25, 42-25, 46-30, (48-35), 48-38,
50-41, 56-41, 62-46, 70-50, (72-52), 75-52,
81-57, 85-63, 92-67, 92-74, 96-74.
Stig Hauka: Stevie Johnson 23, Halldór
Kristmannsson 22, Sævar Haraldsson 12,
Ingvar Guðjónsson 11, Davíð
Ásgrimsson 8, Predrag Bojovic 8, Ottó
Þórsson 5, Þórður Gunnþórsson 5, Marel
Guðlaugsson 2.
Stig Vals: Jason Pryor 23, Barnaby
Craddock 12, Evaldas Priudokas 11,
Bjarki Gústafsson 10, Ægir Jónsson 8,
Álexander Dungal 4, Gylfi Geirsson 2,
Hjörtur Hjartarson 2, Ragnar Steinsson
Dómarar (1-10):
Sigmundur Her-
bertsson og Eggert
Aöalsteinsson (8).
GϚi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 101.
Maöur leiksins:
Stevie Johnson, Haukum
KARLAR ~7 jÆm
□tM3aa?(3I?öEXlflg^
Staðan
Grindavík 15 13 2 1383-1223 26
KR 15 12 3 1330-1200 24
Keflavík 15 11 4 1494-1250 22
Haukar 16 10 6 1445-1374 20
Njarðvík 15 9 6 1221-1242 18
Tindastóll 15 8 7 1340-1320 16
ÍR 15 8 7 1299-1318 16
Snæfell 16 7 9 1297-1293 14
Breiðablik 16 6 10 1447-1499 12
Hamar 15 4 11 1405-1535 8
Skallagr. 15 2 13 1216-1370 4
Valur 16 2 14 1238-1486 4
Næstu leikir:
Grindavík-Skallagr. . 3. feb., kl. 19.15
Keflavík-Hamar .... 3. feb., kl. 19.15
Njarðvík-lR.........3. feb., kl. 19.15
Tindastóll-Breiðabl. 13. feb., kl. 19.15
Snæfeil-Njarðvík . . 13. feb., kl. 19.15
Valur-Hamar........13. feb., kl. 19.15
Skailagrímur-KR . . 14. feb., kl. 19.15
Grindavík-Keflavík 14. feb., kl. 19.15
ÍR-Haukar..........14. feb., kl. 19.15
Hamar-ÍR ..........16. feb., kl. 19.15
KR-Grindavík .... 16. feb., kl. 19.15
Breiðabl.-Skallagr. . 16. feb., kl. 19.15
Haukar-Snæfell ... 17. feb., kl. 19.15
Keflavik-Valur .... 17. feb., kl. 19.15
Njarðvík-Tindastóil 17. feb., kl. 19.15
KR-Keflavík........20. feb., kl. 19.15
Tindastóll-Haukar . 20. feb., kl. 19.15
Snæfeil-Hamar ... 20. feb., kl. 19.15
Skallagr.-Njarðvík . 21. feb., kl. 19.15
Grindavík-Breiðabl. 21. feb., kl. 19.15
ÍR-Valur ..........21. feb., kl. 19.15
Stefnum á
fjórða sætið
„Valsaramir hafa verið að sækja í
sig veðrið og við þurftum því að vera
tilbúnir allt frá byrjun og það er óhætt
að segja að sú hafi verið raunin. Allir
leikmenn lögðu sig fullkomlega fram
og það skilaði sér í mjög góðum sigri.
Við stefnum á fjórða sæti deildarinnar
og til þess að það takist verða menn að
leggja sig jafn vel fram og hér í
kvöld," sagði skyttan Halldór Krist-
mannsson sem lék mjög vel i liði
Hauka í gærkvöld. -SMS
Mathis farinn
Donte Mathis, sém leikið hefur
með Skallagrími í janúar, hefur
leikið sinn síðasta leik með félag-
inu. Mathis bað um að vera leyst-
ur undan samningi þar sem hann
fékk tilboð frá liði í Slóveníu fyr-
ir helgi sem hljóðar upp á mun
hærri tölur en hann fær hér á
landi. Mathis hélt af landi brott á
laugardag og verða Skallagríms-
menn því Kanalausir þegar þeir
heimsækja Grindavík í kvöld.
Mathis hafði leikið vel með Sköll-
um þann stutta tíma sem hann
dvaldi hér á landi og kemur sér
þetta illa fyrir liðið sem er að
berjast fyrir lífi sínu í deildinni.
Samkvæmt heimildum DV-
Sports eru forráðamenn að skoða
bróðir Damons Johnsons sem
leikur með Keflavík. -Ben