Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Qupperneq 24
40
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003
Stefán Logi
Markvöröurinn Stefán Logi Magnússon, sem er 22
ára gamall, skrifaði á föstudaginn undir samning við
enska 1. deildar liðið Bradford. Samningurinn giidir
út tímabilið en Bradford hefur leitað mikið að vara-
markverði að undanfömu.
Stefán Logi, sem var um tíma hjá þýska stórliðinu
til Bradford
Bayern Múnchen, hefur leikið með danska 1. deildar
liðinu B-1909 undanfarin ár en var laus undan
samningi.
Hann sat í fyrsta sinn á bekknum hjá Bradford um
helgina þegar liðið bar sigurorð af Hermanni
Hreiðarssyni og félögum hans í Ipswich. -ósk
Rafpostur: dvsport@dv.is
keppm i hverju orði
Dainis Rusko
á leið heim
- skrifaði undir starfslokasamning við Gróttu/KR
Forráðamenn Gróttu/KR hafa
sagt upp samningnum við lettnesku
skyttuna Dainis Rusko eftir að hann
kom meiddur heim frá Lettlandi nú
í janúar.
Rusko kom til liðsins fyrir síðasta
keppnistímabil en sleit krossbönd
og missti nánast af allri leiktíðinni í
fyrra. Hann hefur spilað alla leiki
Gróttu/KRá yfirstandandi tímabili
með misjöfnum árangri en meiddist
illa í leik með lettneska Jandsliðinu
fyrir skömmu og getur ekki spilað
meira á þessu tímabili.
Sú staðreynd gerði það að verk-
um að stjóm Gróttu/KR ákvað að
leysa hann undan samningi og
skrifa undir starfslokasamning við
kappann sem báðir aðilar eru víst
sáttir við.
Rusko, sem lék 16 leiki með
Gróttu/KR í vetur og skoraði í þeim
84 mörk, heldur aftur til Lettlands á
miðvikudaginn. Ágúst Jóhannsson,
þjálfari Gróttu/KR, sagði í samtali
við DV-Sport í gær að það væri
mjög slæmt aö missa Dainis enda
væri breiddin ekki mikil.
„Það var samt ekki annað að gera
fyrst hann getur ekki spilað meira
með í vetur,“ sagði Ágúst og bætti
við að Konráð Ólavsson ætlaði að
taka fram skóna að nýju og vera til
taks ef á þyrfti að halda.
„Við erum fámennir hvaö varðar
leikmenn fyrir utan og Konráð get-
ur hjálpað okkur mikið,“ sagði
Ágúst í gær. -ósk
Nýliöar í Símadeildinni styrkjast:
Olafur Þór til Vals
Blóðtaka fyrir Gróttu/KR í Essodeild karla:
38 milljóna króna
hagnaður hjá KSÍ
Knattspymusamband íslands var
rekið með miklum hagnaði enn eitt
árið en ársskýrsla sambandsins var
lögð fram fyrir helgi.
Hagnaður af heildarrekstri sam-
bandsins árið 2002 var 38,2 milljónir
en í þeirri tölu hefur verið tekið til-
lit til tæplega tíu milljóna króna
greiðslu til aöildarfélaga á árinu.
131 milljón í eigiö fé
Það er engum
blöðum um það
að fletta að
Knattspymu-
samband ís-
lands er lang-
öflugasta sér-
sambandið inn-
an Iþrótta- og
Ólympiusam-
bands íslands,
því eftir góð ár,
í rekstrarlegu
tilliti að undanfórnu er eigið fé sam-
bandsins 131 milljón króna.
Góður rekstur og miklir sjón-
varpspeningar frá Evrópu hafa
skapað sambandinu sérstöðu á ís-
landi sem lýsir sér kannski best í
því að á skrifstofu Knattspymusam-
bands íslands vinna jafnmargir og á
skrifstofum Körfuknattleikssam-
bandsins,
Handknatt-
leikssam-
bandsins og
íþrótta- og
Ólympíu-
sambands-
ins saman-
lagt.
Tæplega þriggja milljóna króna
tap var á reglulegri starfsemi Laug-
ardalsvallar en 19,6 milljóna króna
hagnaður ef tekið er tillit til fjár-
magnsliða. -ósk
Eggert Magnús-
son, formaöur KSÍ.
Zá
Islandsmótið
í bekkpressu
Kvennaflokkur - 60 kg
María Guðsteinsdóttir .77,5 kg
Kvennaflokkur - 90 kg
Freyja Kjartansdóttir.....60 kg
Karlaílokkur - 67,5 kg
Þorsteinn Magnús Sölvason . 110 kg
Karlaflokkur - 75 kg
Hörður Amarson ........75 kg
Karlaflokkur - 82,5 kg
Domenico Alex Gala.......180 kg
Gísli Þrastarson ......120 kg
Karlaflokkur - 90 kg
Hermann Hermannsson .... 206 kg
Axel Heiðar Guðmundsson . 202,5 kg
Jimmy Routhley 175 kg
Karlaflokkur - 100 kg
Hermann Haraldsson , 190 kg
Alfreð Bjömsson 180 kg
Skorri Rafn Rafnsson , 150 kg
Karlaflokkur - 110 kg
Ingvar Jóel Ingvarsson .... 240,5 kg
Terry Walsh 175 kg
Haraldur Jóhann Þórðarson . 150 kg
Karlaflokkur - 125 kg
Jón Bjöm Bjömsson......... 220 kg
Bjarki Þór Sigurðsson.....190 kg
Sigfús Fossdal.............165 kg
Karlaflokkur - +125 kg
Magnús Ver Magnússon .... 270 kg
Kristinn Haraldsson........210 kg
Baldur Erling Sigurðsson ... 190 kg
Keflvíkingar styrkjast
Stefán Gíslason skrifaði undir hjá liðinu í gær
Keflavíkingar ætla sér gremi-
lega ekki að staldra lengi
við í 1. deildinni í knatt-
spymu því aö þeir hafa
fengið gifurlegan liðs-
styrk í miðjumanninum
Stefáni Gíslasyni.
Stefán skrifaði í gær
undir tveggja ára samn-
ing við Keflavík en hann
hafði einnig átt í viðræð-
um við FH-inga.
Stefán, sem hóf feril
sinn með Austra á Eskifirði, hefur
leikið erlendis undanfarin ár, fyrst
sem unglingur hjá Arsenal, síðan
hjá norska liðinu Stramsgodset
með viðkomu í KRtímabilið 1998
og síðast hjá austurríska liðinu
Grazer AK þar sem hann hætti um
Stefán Gíslason.
áramótin vegna þess að forráða-
menn austurríska félags-
ins stóðu ekki við gerða
samninga.
Stefán sagði í samtali
við DV-Sport í gær að
hann hlakkaði mikið til að
spila með Keflavik.
„Ég hef æft með Kefl-
víkingum að undafómu og
líst vel á félagið. Þjálfar-
inn er mjög góður og ég
hef ekki trú á þvi að við
verðum lengi í 1. deildinni með
þennan mannskap," sagði Stefán í
samtali við DV-Sport í gær.
Ekki er búist við því að Haukur
Ingi Guðnason verði með Keflvík-
ingum næsta sumar heldur verði
lánaöur til annars félags. -ósk
skrifaði undir tveggja ára samning
Markvörðurinn Ólafur Þór Gunn-
arsson, sem leikið hefúr með
ÍA undanfarin fjögur ár,
skrifaði um helgina undir
tveggja ára samning við ný-
liða Vals.
Ólafur, sem átti í viðræð-
um við Val og KA, sagði í
samtali við DV-Sport i gær
að ákvörðunin hefði ekki
verið auðveld.
„Báðir kostirnir voru
mjög spennandi og það hefði
verið gaman að fara til Akureyrar og
spila þar. Mér bauðst hins vegar góð
vinna í bænum og það var eiginlega
það sem reið baggamuninn. Við ætl-
um að kaupa okkur íbúð í bænum
Olafur
arsson
þannig að frá hagkvæmnissjónarmiði
var Valur mun betri kostur.
Það skemmir heldur ekki
fyrir að Bjami Sigurðsson
mun að öllum líkindum sjá
um markmannsþjálfun hjá
Val en ég hef haft hann áður
og finnst hann mjög góður."
„Auðvitað kveð ég Skag-
ann með söknuði," sagði
Ólafur.
„Ég hef átt fjögur frábær
ár þar og fékk að kynnast
því hvemig það er að vinna íslands-
meistaratitilinn. Nú er það hins vegar
að baki og fram undan bíður
skemmtilegt og kreijandi sumar með
Valsmönnum." -ósk
Þór Gunn-
íslandsmet hjá Magnúsi Ver
Magnús Ver Magnússon, á myndinni aö ofan, setti glæsilegt íslandsmet f bekkpressu á íslandsmótinu í bekkpressu
sem fram fór um helgina. Hann lyfti 270 kg og hefur enginn íslendingur lyft slíkri þyngd í bekkpressu áöur. Þrír aör-
ir keppendur á mótinu, María Guösteinsdóttir, Hermann Hermannsson og Ingvar Jóel Ingvarsson, settu einnig ís-
landsmet í sínum þyngdarflokkum. María þríbætti íslandsmetiö í 60 kg fiokki kvenna og haföi aö lokum bætt þaö um
5,5 kg. Hermann lyfti 206 kg í 90 kg flokki karla og átti síöan góöa tilraun viö 210 kg en Ingvar Jóel lyfti 240,5 í 110
kg flokki og bætti íslandsmet Baldvins Skúlasonar sem haföi staöiö frá árinu 1993. DV-mynd Hari
Reykjavíkurmótið
í knattspyrnu
A-riðill
Úrslit
Fjölnir-lR .............2-4
ívar Bjömsson, Hálfdán Daðason -
Gunnar Konráðsson 2, Sigurður
Steinsson, Hörður Guðbjömsson.
Fram-Víkingur ..........3-1
Ágúst Gylfason, Ragnar Ámason,
Kristján Brooks - Ragnar Hauksson.
Staðan
Fram 3 3 0 0 10-3 9
Fylkir 3 1 2 0 10-3 5
Víkingur 3 1 1 1 7-5 4
ÍR 4 1 1 2 7-13 4
Fjölnir 3 0 0 3 4-14 0
Næstu leikir
Fylkir-Fram.......sun. 9. feb. kl. 19
Víkingur-Fjölnir . . sun. 9. feb. kl. 21
B-riöill
Úrslit
Þróttur-Valur .................0-2
- Jóhann Möller, Stefán A. Jónsson.
Léttir-Leiknir ................2-4
Amar Sigtryggsson, Óskar Þór
Ingólfsson - Pétur Svansson 2,
Haukur Gunnarsson, Helgi Ólafsson.
Staðan
Valur 3 2 1 0 5-2 7
Þróttur 3 2 0 1 14-3 6
KR 3 1 2 0 12-4 5
Leiknir 4 1 1 2 9-14 4
Léttir 3 0 0 3 2-19 0
Næstu leikir
KR-Þróttur ........fós. 7. feb. kl. 19
Valur-Léttir.......fös. 7. feb. kl. 21