Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2003, Side 17
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003
17
agasm
Hestaþáttur í DV-Magasíni:
HESTASPORT®
Umsjón: Guðmundur Guölaugsson - ek@ek.is
Jstölt
Fundu hamingjuna
Hestamennskuna getur brúað kyn-
slóðabil. Fjölskyldur geta sameinast
og verið saman í áhugamálinu og allir
jafnir. I dag er fjöldi af krökkum og
unglingum í hestamennsku og margir
af þeim hafa lært að sitja hest eins og
best gerist. Mig langaði að hitta slíka
tjölskyldu og þurfti ekki að leita lengi.
Ég kom mér á stefnumót við fjölskyldu
sem hefur fundið hamingju í því aö
sameinast í hestamennsku meö öllu
því sem því fylgir.
Ótrúleg heppni
Hjónin Auöur Margrét Möller og
Guðmundur Már Stefánsson sem
ásamt dætrum sínum, þeim Signýju
Ástu (17) og Eddu Rún (10), taka á móti
mér. Ásdís Björk (14) þriðja dóttirin
var vant við látin við próflestur,
þannig að það er ljóst hver forgangs-
röðunin er þrátt fyrir hestaáhugann.
Þau eru með 11 hesta í góðu hesthúsi í
Víðidalnum og hestamir báru það með
sér að vera vel hirtir og myndarlegir.
Kveikjan að hestamennskunni hjá
þeim hjónum á sér djúpar rætur þvi
faðir Auðar var með hesta. Guðmund-
ur kynntist þeim í sveitinni en afi
hans, Guðmundur Þorláksson bjó á
Seljabrekku í Mosfellsdal og var þekkt-
ur hestamaður. Auöur segir það ótrú-
lega heppni að fjölskyldan sé saman í
þessu áhugamáli. Þeim hjónum er um-
hugað um að halda fjölskyldunni sam-
an og telja aö síður sé hætta á að börn-
in fari rangar brautir.
Brennandi áhugi
Signý er ákveðin ung kona. Hún er
með fola sem hún er að temja og hefur
fengist viö tamningar í sveitinni eins
og reyndar Ásdís líka. Hún fer daglega
í hesthúsið og lítur á hestamennskuna
að hluta til sem vinnu. Hún keppir og
tekur hluti fóstum tökum enda með
brennandi áhuga. Hún hefur áhuga á
að starfa við dýr og er á náttúrufræði-
braut í menntaskóla. Gerir sér þó
grein fyrir því að ekki er sjálfgefið að
geta lifað af hestamennsku. í hennar
huga og foreldra hennar skiptir mennt-
un miklu. Þaö er greinilegt að hjá for-
eldrunum er lögð áhersla á að námið
sé mikilvægt sem grunnur fyrir lifið.
Metnaður stundum of
mikill
Edda Rún er ekki síður með hlutina
á hreinu en elsta systirin. Hún var ný-
stigin af baki og hafði farið ein í reið-
túr með vinkonu sinni. Kuldánn lét
hún ekki aftra sér. Henni finnst allt
skemmtilegt við hestamennskuna.
Keppa, fara í útreiðatúra og kemba og
snurfusa hestana og einnig vill hún
ferðast. Hún þjálfar hest fyrir keppni í
Reiðhöllinni. Það er hryssa á svipuð-
um aldri og hún sjálf. Áuður segir að
miklar kröfur séu gerðar til bama i
keppni og telur reyndar að það sé á
mörkunum við að ganga út í öfgar.
Metnaður foreldrana sé stundum of
mikill. Mikilvægara sé að hafa hlutina
jákvæða og láta þá þróast rólega. Auð-
ur segir að keppnisáhuginn sé mismik-
ill í dætrunum - kannski minnstur hjá
Ásdísi. Hún hafi meira gaman af út-
reiðum og hestaferðum á sumrin. Guð-
mundur segist ekki keppa enda myndi
hann ekki þola að tapa.
Signý lítur hestana sömu augum og
mannfólkið. Hún ber mikla virðingu
fyrir þeim og lítur á þá sem jafningja.
Margir eldri gætu lært mikið af þess-
ari ungu konu.
Þegar talið berst að ræktun glotta
þau hjón og viðurkenna að þau séu að-
eins byrjuð að fíkta, en hingað til hafa
þau keypt sína hesta að mestu, fyrir ut-
an það að stelpurnar hafa allar fengið
gefins folöld frá afa sínum. Guðmund-
ur segist reyndar hafa þá sérvisku að
vilja helst kaupa skagfirsk hross. Varð-
andi ræktun segir Guðmundur að það
verði líklega ekki annað en fikt hjá
þeim.
Nú eru margir hræddir við hesta og
að detta af baki. Guðmundur segir það
hluta af hestamennskunni að detta af
baki einhvern tíman. Edda Rún segist
hafa orðið hrædd og dottið af baki en
það hafi jafnað sig og mikilvægt er að
gefast ekki upp þó þetta gerist. Því á
fólk ekki að láta það hindra sig í að
byrja.
Guðmundur og Auður ferðast mikið
á hestum og telja eins og svo margir
hestamenn að það sé það skemmtileg-
ast við hestamennsku. í fyrra fóru þau
á hálendið og þá voru elstu dæturnar
með allan tímann. Stúlkunum finnst
gaman að ferðast en Signý er þó á því
að henni finnist skemmtilegast að
keppa og það haldi henni mikið við
efnið, þó allt sé þetta gaman. Guð-
mundur segir að ekki sé hægt að kom-
ast öllu nær náttúrunni en á þennan
hátt og snýst öll þjálfunin yfir veturinn
um að búa hestana undir ferðir.
Það getur verið happadrjúgt fyrir
fjölskyldur að sameinast í hesta-
mennsku ef tök eru á. Áhugasamt fólk
ætti ekki að hika við að tala við þá sem
reynsluna hafa og óska upplýsinga.
Hjónin Auður Margrét Möller og Guðmundur Már Stefánsson sem ásamt dætrum sínum, þeim Signýju Astu
(17) og Eddu Rún (10), taka á móti mér. Asdís Björk (14) þriðja dóttirin var vant við látln við próflestur
MULAR
TAUMAR
BEISLI
~ MÉL
VIKUTILBOD A
REIBTYGJUM
Istölt
BÆJARLIND 2 • KÓPAVOGI
SÍMI 555 1100
Krakkarnir skemmtu sér konunglega á námskeiðinu í Viðey.
Æskulýðsleiðtogar á námskeiái í > kirkj /iðe; junnar
Einstætt samfélag
og æskulýðsstarf
Um sl. helgi var haldið í Viðey námskeið fyrir leiðtoga í æskulýðsstarfi
kirkjunnar og KFUM og KFUK. Var það fjölsótt og að sögn Stefáns Más
Gunnlaugssonar á Biskupsstofu má skýra aukna aðsókn með áherslu þeirra
sem bera ábyrgð á kristilegu æskulýðsstarfi á menntun og þjálfun leiötoga.
Góð aðsókn sýni einnig vöxt sem er i æskulýðsstarfi kirkjunnar.
Ritning og helgistund
Námskeiðið hófst með ritningarlestri og bæn. Að því loknu hófst
námskeiðið sem fór fram í þremur aldurshópum. Var boðið upp á sérstakan
hóp fyrir leiðtogaefni 13-15 ára. Þau voru frædd meðal annars í því að flytja
texta og endursegja sögur. Á námskeiði fyrir 16-20 ára var meðal annars
fræðsla um leiðtogastafið almennt. Loks var boðið upp á námskeið fyrir 20
ára og eldri þar sem Haukur Ingi Jónasson fjallaði um óttann við sálina og
trúna. Námskeiðið endaði með helgistund og altarisgöngu í Viðeyjarkirkju.
Uppbyggilegar umræður
Þrátt fyrir aldursmun myndaðist einstætt samfélag þar sem fólk náði
saman þrátt fyrir ólíkan bakgrunn. „Það er mikilvægt að upplifa og eiga
samfélag með öðrum leiðtogum og taka þátt í frjóum og uppbyggjandi
umræðum um æskulýðsstarfið," segir Stefán Már Gunnlaugsson. „Leiðtogi
sem getur unnið með börnum og átt uppbyggilegar stundir með þeim tekur
flestu öðru fram í starfi með bömum og unglingum. -sbs
HJOLABORÐ
FAco/wPlastbakkar úmggur staður fyrir
fvrir öll verkfæri FACOM verkfærin,
* nn alM- q
og allt á
sínum stað!
Armúii 17, WB Reyhjavik
Sími: 533 1534 fax: 55B 0499
..það sem
fagmaðurinn
notar!
www.isol.is