Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 33 Sport Markahæstu menn í úrvalsdeildinni Thierry Henry, Arsenal.........18 James Beattie, Southampton .... 16 Alan Shearer, Newcastle.........14 Ruud Van Nistelrooy, Man. Utd . . 12 Gianfranco Zola, Chelsea.......11 Nicolas Anelka, Manchester City . 11 Harry Kewell, Leeds ...........10 Robbie Keane, Tottenham........10 Dion Dublin, Aston Villa.........9 Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea . 9 Michael Owen, Liverpool .........9 Tomasz Radzinski, Everton........9 Jason Euell, Charlton............8 Paul Scholes, Manchester United . 8 Robert Pires, Arsenal............8 Sylvain Wiltord, Arsenal.........8 Teddy Sheringham, Tottenham ... 8 Jimmy Floyd Hasselbaink, Chelsea 8 Tölfræðin: Hvaða liö standa sig best og verst í ensku úrvals- deildinni? í emdálkmum hér til hægri má sjá hvaða lið ensku úrvals- deOdarinnar skara fram úr á ákveðnum sviðum tölfræðinnar en þessir listar eru uppfærðir eftir leiki helgarinnar og verða hér eftir fastur liður á ensku síð- unum í mánudagskálfmum. -ÓÓJ „Eg er búinn aö fá mig fullsaddan af Brad Friedel. Hann er búinn aö kosta okkur fimm stig í vetur. Hann varði hetjulega í síðasta leik og hann var ekki lakari í dag.“ Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Southampton, hugsar bandaríska landsliðsmarkverðinum Brad Friedel hjá Blackburn þegjandi þörfina eft- ir frábæra frammistöðu hans gegn lærisveinum Strachans um helgina. Frieldel fór einnig á kostum í fyrri leik liðanna á heimavelli South- ampton fyrr í vetur og bjargaði þá einu stigi fyrir Blackburn. Þá talaði Strachan um Friedel sem ofurmenni og sagði við það tækifæri að það hefði ekki komið honum á óvart þó að Friedel hefði klæðst blárri peysu með stóru s-i á í þeim leik, slík voru tilþrifin sem þessi snjalli markvörður sýndi. -ósk Stórleikur helgarinnar í ensku knattspyrnunni var á Old Trafford: Grikkur Goaters - Shaun Goater tryggði Manchester City jafntefli gegn Manchester United í gær Shaun Goater, framherji Manchester City, væri sennilega til í að spila gegn Manchester United um hverja helgi. Hann skoraði tvö mörk í fyrri leik liðanna á Maine Road þegar Manchester City vann frækinn sigur, 3-1, og í gær kom hann af bekknum eins og draugur úr grárri forneskju til að gera Alex Ferguson og lærisveinum hans einn grikkinn enn. Hann jafnaði metin fyrir Manchester City fjórum mínútum fyrir leikslok og sá til þess að Manchester United tapaði tveimur dýrmætum stigum í baráttunni gegn Arsenal um enska meistaratit- ilinn. Fátt virtist stefna i annað en sig- ur Manchester United í fyrri hálf- leik. Liðið spilaði frábæra knatt- spyrnu og átti svo sannarlega skilið að komast yfir á 18. mínútu þegar Ruud Van Nistelrooy skoraði tólfta mark sitt í deildinni. Leikmenn Manchester United spiluðu eins og englar, sköpuðu sér fullt af færum en tókst ekki að bæta við mörkum. I síðari hálfleik tóku leikmenn Manchester City sig saman í andlit- inu, sóttu meira og uppskáru síöan laun erfiðisins fiórum mínútum fyr- ir leikslok. Manchester City fékk því fjögur stig í innbyrðis viðureignunum gegn stóra bróður og víst að stuðn- ingsmenn liðsins harma ekki þá staðreynd. Bara heppni „Ég vil nú yfirleitt gefa vara- mönnum mínum í það minnsta tíu mínútur til að komast inn í leikinn þegar þeir koma inn á en því var ekki aö heilsa í dag. Goater fékk fimm minútur og hann var ekki lengi að stimpla sig inn. Þetta var frábær afgreiðsla hjá frábærum leikmanni sem gerir aOt sem hann er beðinn um. Þessi skipting gekk upp hjá mér og það segja örugglega flestir að þetta hafi verið heppni. Ef Alex Ferguson og Arsene Wenger hefðu gert þetta væru þeir snilling- ar en hjá mér er þetta bara heppni," sagði Keegan um innáskiptingu sína en Goater hafði aðeins verið inná í eina mínútu og skoraði með fyrstu snertingu sinni. Áttu stigiö skilið Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var vonsvikinn eftir leikinn en viðurkenndi að leik- menn Manchester City hefðu átt stigiö skilið þar sem þeir hættu aldrei. „Við hefðum átt að vera komnir tveimur til þremur mörkum yfir í fyrri hálfleik en við vorum ekki nógu einbeittir inni í vítateignum hjá þeim.“ Ferguson sagði þaö vera mikil vonbrigði að hafa tapað tveimur stigum á heimavelli en það þýddi lítið að gráta það. „Við verðum að halda áfram og spila betur næst,“ sagði Ferguson. Óhræddir Eyal Berkovic, miðjumaður Manchester City, sagði eftir leikinn að það sem hefði gert það að verk- um að liöið náði 1 eitt stig á Old Trafford hefði verið hugarfarið. „Við mættum óhræddir og spiluð- um sóknarbolta.“ -ósk Leikmenn Manchester City fagna hér jöfnunarmarki Shaun Goater gegn Manchester United en Wes Brown, varnarmaöur Manchester United, er ekki alveg jafn hamingjusamur. Reuters Hvaða lið standa sig best og verst í ensku Éwi úrvalsdeildinni? Besta gengið Man. Utd, 19 stig af síöustu 24 möguleg- um. Markatalan er 14-7 í leikjunum. Með besta genginu er átt við besta árangur liðs í síðustu átta deildarleikjum. Flestir sigur- leikir í réð Charlton fjórir. Besta sóknin Arsenal hefur skor- aö flest mörk, eöa 57, í 27 leikjum, eða 2,11 aö meðaltali. Besta vörnin Man. Utd hefur feng- iö á sig fæst mörk, 25 í 27 leikjum, eöa 0,92 mörk í leik. Bestir heima Arsenal hefur náö í 37 stig af 42 mögu- legum, hefur unniö 12 af 14 leikjum. Markatalan er 33-13. Bestir úti Charlton hefur náö í 21 stig af 42 mögu- legum. Markatalan er 16-16. Bestir fvrir te Arsenal hefur náö f 55 stig af 81 mögu- legu og er meö markatöluna 30-11 í fyrri hálfleik. Bestir eftir te Man. Utd hefur náö í 52 stig af 81 mögu- legu og er meö markatöluna 25-11 í seinni hálfleik. Versta gentfift Sunderland er meö 1 stig af síöustu 24 mögulegum. Markatalan er 6-16. Versta séknin Sunderland hefur skoraö fæst mörk, eöa 18, í 27 leikjum, eöa 0,66 aö meöal- tali. Versta vörnin West Ham hefur fengið á sig flest mörk, 59 í 27 leikjum, eða 1,92 í leik. Verstir heima West Ham hefur náö í 9 stig af 42 mögu- legum, hefur tapaö 7 af 14 leikjum, marka- talan er 13-22. Verstir úti Middlesbrough hefur náö í 5 stig af 39 (ei mögul., hefur tapaö 10 af 13 leikjum. Markatalan er 4-14. Oftast haldift hreinu Liverpool hefur haldiö ellefu sinnum hreinu í 27 leikjum. Oftast mistekist að skora Aston Villa, Birming- ham og Sunderland hefur ekki tekist aö skora í 12 leikjum af 27.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.