Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Blaðsíða 24
>40
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003
Rafpostur: dvsport@dv.is
Eriksson
velur hóp
Larsson kjálkabrotinn
Celtic varö fyrir miMu áfalli í gær þegar
sænski markahrókurinn Henrik Larsson
kjálkabrotnaði í leik liðsins gegn
Livingston.
Larsson lenti í samstuði við vamarmann
Livingston og var fluttur á sjúkrahús þar
sem hann gekkst undir aðgerð. Hann verð-
ur að öllum líkindum frá í fjórar til sex vik-
ur og missir af Evrópuleikjum gegn Stutt-
gart og tveimur leikjum gegn Rangers. -ósk
Stjörnuleikur NBA-deildarinnar fór fram í Atlanta í nótt:
Garnett bestur
- skoraði 37 stig
Stjömuleikur NBA-deildarinnar, á
milli stjömuliða austur- og vestur-
deOdarinnar, fór fram í nótt í Atlanta.
Athygli vakti að Michael Jordan,
sem var að spOa sinn fjórtánda
Stjörnuleik, byrjaði inni á þrátt fyrir
að vera ekki valinn í byrjunarliðið af
aðdáendum. Tracy McGrady og Allen
Iverson buðust báðir tO að gefa eftir
sæti sitt í byrjunarliðinu til Jordans
en að lokum var það Vince Carter sem
vék fyrir hinum aldna snillingi.
Fymi hálfleikur var skelfOega slak-
ur, mikið um mistök á báða bóga, lé-
legar sendingar og misheppnaðar tO-
raunir við að troða. VesturdeOdin,
dregin áfram af stórleik hjá Kevin
Gamett, leiddi í hálfleik, 55-52, en í
þriðja leikhluta seig lið austursins
fram úr og náði sjö stiga forystu,
93-86. I ^órða leikhluta náði lið vest-
ursins sér aftur á strik og eftir að
Michael Jordan klikkaði á síðasta
skoti leiksins var ljóst að það þurfti
að framlengja leikinn því staðan var
jöfn, 120-120.
í fyrri framlengingunni var drama-
tíkin gífurleg og eiginlega eins og
besti reyfari. Michael Jordan kom
austurdeOdinni yfir, 138-136, með frá-
bæru skoti þegar fjórar sekúndur
voru eftir. Jermaine O’Neal braut síð-
an á Kobe Bryant fyrir utan þriggja
stiga línuna og Bryant skoraði úr
tveimur af þremur vítaskotum sínum,
jaihaði leikinn og því þurfti aðra
framlengingu í fyrsta sinn í sögunni.
Kevin Gamett, leikmaður
Minnesota Timberwolves, byrjaði
aðra framlengingu á því að skora sjö
fyrstu stigin og lagði þar með grunn-
inn að sigri vesturdeOdarinnar,
155-145.
Kevin Gamett var stigahæstur hjá
vesturdeOdinni með 37 stig og var val-
inn besti leikmaður leiksins, Kobe
Bryant skoraði 22 stig og Steve Franc-
is, hjá Houston Rockets, skoraði 20
stig.
AOen Iverson skoraði 35 stig fyrir
austurdeOdina, Tracy McGrady skor-
í sigri vesturdeildarinnar, 155-145, í tvíframlengdum leik
aði 29 stig og Michael Jordan skoraði
25 stig í sínum síðasta Stjörnuleik á
glæstum ferli. Jordan hitti ekki vel,
úr 9 skotum af 27,
Garnett, sem skoraði eins og áður
sagði 37 stig, tók 9 fráköst, stal 5
boltum, gaf 3 stoðsendingar og hitti úr
17 af 24 skotum sínum í leiknum, var
hógvær eftir leikinn og þakkaði þjálf-
urum og félögum sínum fyrir hjálp-
ina.
„Það voru miklar tOfmningar í
þessum leik því að þetta var síðasti
leikur Jordans og það var stórkostlegt
að fá að vera þátttakandi í því,“ sagði
Garnett eftir leikinn.
Þegar hann var spurður hvort það
væri of mikil byrði áð taka við af
Jordan svaraði Garnett að sú ábyrgð
hvOdi ekki á herðum eins manns.
„Við verðum aUir að axla þá ábyrgð
sem fylgir því að taka við af slíkum
snOlingi sem Jordan er og því sem
hann skOur eftir sig,“ sagði Garnett
eftir leikinn. -ósk
Stigahæstur
frá upphafi
Michael Jordan varð stigahæsti
leikmaður Stjörnuleiks NBA-deOd-
arinnar frá upphafi í nótt og
komst upp fyrir miðherjann Kar-
rem Abdul Jaabar.
Jordan skoraði tuttugu stig í
sínum fjórtánda Stjörnuleik og
sagði eftir leikinn að hann væri
sáttur við að hætta eftir þetta
keppnistimabO.
„Ég mun muna eftir þessum
leik vegna tveggja framlenginga og
taps. Það var gaman að spila með
ungu strákunum og ég er ekki í
vafa um að NBA-deUdin er í góð-
um höndum hjá þeim og öðrum
frábærum leikmönnum sem ekki
fengu tækifæri í dag. Ég er stoltur
af því að vera einn af þeim sem
ungu strákarnir taka við af og hef
sætt mig fuUkomlega við þá
ákvörðun mína að hætta," sagði
Jordan en hann var nálægt því að
tryggja austurdeUdinni sigurinn í
fyrri framlengingunni þegar hann
kom þeim yfír þegar fjórar sek-
úndur voru eftir. Það gerðist þó
ekki og því fór Jordan af veUi í síð-
asta Stjörnuleiknum sínum í
tapliðinu. -ósk
Kevin Garnett, framherji
Minnesota Timberwolves,
með bikarinn glæsilega
sem hann fékk fyrir aö
vera valinn besti leikmaöur
Stjörnuleiksins i NBA-
deildinni 2003 sem fram
fór í Atlanta í nótt. AP
Stjörnuhelgin í NBA-deildinni var um helgina:
Richardson troðslukóngur
Peja Stojakovic vann þriggja stiga keppnina annað árið í röð
Jason Richardson, bakvörður
Golden State Warriors, vann troðslu-
keppnina á Stjömuhelgi NBA-deOd-
arinnar annað árið í röð og varð þar
með annar leikmaðurinn í sögu
deOdarinnar tU að gera slíkt. Hinn
leikmaðurinn sem hefur náð því er
að sjálfsögðu Michael Jordan. Ric-
hardson vann öruggan sigur, 96-93,
eftir hafa mætt Desmond Mason hjá
Seattle Supersonics í úrslitum.
Richardson fékk fullt hús stiga
fyrir seinni troðslu sína en hún þótti
sérlega glæsUeg.
Þetta var þó ekki það eina sem
Richardson hafði fyrir stafni um
helgina því að hann átti einnig frá-
bæran leik þegar leikmenn á öðru
ári í deUdinni báru sigurorð af nýlið-
um deUdarinnar, 132-112, á laugar-
daginn. Richardson skoraði 31 stig
en það var þó félagi hans á öðru ári
hjá Golden State, GObert Arenas,
sem var valinn verðmætasti leik-
maðurinn. Arenas skoraði 30 stig í
leiknum en þetta var í fyrsta sinn
sem leikmenr, á öðru ári fara með
sigur af hólmi síöan byrjað var að
spOa þessa leiki árið 2000. Caron
Butler, framherji Miami Heat, var
stigahæstur hjá nýliðunum með 23
stig en þeir söknuðu Kínverjans
Yaos Mings sárlega en hann fékk
ekki að spUa þar sem hann var val-
inn í byrjunarlið vesturdeUdarinnar
í hinum eina og sanna stjörnuleik í
gærkvöldi.
Júgóslavinn Peja Stojakovic, sem
leikur með Sacramento Kings, sýndi
enn og aftur hversu hittinn hann er
með því að vinna þriggja stiga
keppninaannaö árið í röð. Hann bar
sigurorð af Wesley Person, bakveröi
Memphis Grizzlies, í úrslitum, 22-16.
Jason Kidd, leikstjórnandi New
Jersey Nets, var hlutskarpastur í
nýrri keppni á Stjörnuhelginni, sem
reyndi á knattmeðferð leikmanna og
hittni eftir harða baráttu við Gary
Payton, leikstjórnanda Seattle
Supersonics. -ósk
Sven Göran Eriksson. landsliðs-
þjálfari Englendinga, hefur valið
27 manna landsliðshóp fyrir lands-
leikinn gegn Áströlum á Upton
Park, heimaveUi West Ham, á mið-
vikudaginn.
Eriksson valdi hinn 17 ára
gamla framherja Everton, Wayne
Rooney, í hópinn og sagði þegar
hann tUkynnti hverjir væru í
hópnum að hann væri ekki í vafa
um að Rooney væri tUbúinn í slag-
inn.
Hópurinn er skipaður eftirtöld-
um leikmönnum:
Markverðir: David James
(West Ham), Paul Robinson
v (Leeds) og Richard Wright (Ev-
erton).
Varnarmenn: Gary NevOle
(Manchester United), Ashley Cole
(Arsenal), Danny MOls (Leeds),
Paul Koncheskey (Charlton), Rio
Ferdinand (Manchester United),
Sol CampbeU (Arsenal), Ledley
King (Tottenham), Wes Brown
(Manchester United) og Matthew
Upson (Birmingham).
Miðjumenn: David Beckham
(Manchester United), Paul Scholes
(Manchester United), Frank
Lampard (Chelsea), Owen Hargr-
eaves (Bayern Múnchen), Kieron
Dyer (Newcastle), Jermaine Jenas
(Newcastle), Sean Davis (Fulham),
Scott Parker (Charlton), Danny
Murphy (Liverpool) og Joe Cole
(West Ham).
Sóknarmenn: Michael Owen
(Liverpool), Wayne Rooney (Ev-
erton), James Beattie (Sout-
hampton), Darius VasseU (Aston
VUla) og Francis Jeffers
(Arsenal). -ósk
Jason Richardson, hjá Golden State
Warriors, vann troöslukeppnina
meö frábærum tilþrifum eins og
sést á þessari mynd. Richardson
vann þar með troöslukeppnina ann-
aö árið í röö en aðeins einum leik-
manni, sjálfum Michael Jordan, hef-
ur tekist þaö síöan byrjaö var aö
keppa í þessari keppni. Reuters