Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Blaðsíða 20
36 MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 J' > Sport DV Skautasamband íslands var stofnaö áriö 1994. Þaö skiptist í tvær deildir og er hlaupadeildin önnur þeirra. Undir -* hlaupadeild falla nokkrar ólíkar grein- ar en þar er listhlaup á skautum, sam- hæfður skautadans, ísdans og skauta- hlaup. Hér á landi er aðeins stundað listhlaup á skautum og samhæfður skautadans. Frá því að sambandið var stofnað hefur átt sér stað gífurleg þróun í íþróttinni. Fyrst má nefna að gífurleg breyting átti sér stað með yfirbyggingu skautahallanna í landinu. Það gerði íþróttamönnum kleift að sækja æfmg- ar í hverri viku, óháð því hvemig viðr- aði. Framfarimar urðu miklar og hraðar. Síðan má nefna inngöngu okk- ar í Alþjóða skautasambandið (ISU) því að það' var gífurlegt skref fram á við. Með því að vera aðili í ISU fáum i við tækifæri til þess að taka þátt í ýms- um námskeiðum, æfingabúðum, auk þess sem aðgengi að upplýsingum er mjög gott. Við fáum einnig tækifæri til þess að senda skautara á mót erlendis, reyndar að uppfylltum lágmarkskröf- um til skautara, sem er ákveðin hvatn- ing til þess að ná þessum lágmarks- kröfum. Það er óhætt að segja að inn- ganga okkar í ISU hafi opnað þann þrönga sjóndeildarhring sem við bjuggum við. Það sem helst háir okkur í dag er takmarkaður ístími og of stuttur tími * sem ísinn er opinn yflr árið. Hér á landi eru tvær skautahallir, ein í Reykjavík og önnur á Akureyri, og eru þær opnaðar í þyrj- un september og lokað í byrjun maí. Þetta eru átta mán- uðir á ári, sem er því miður allt of stutt. Æfingar þyrftu að standa yfir 11 mánuði á ári tU þess að vel megi vera. Einnig er þessi tími ekki í samræmi við það sem gerist erlendis. SkautatimabUið hefst 1. júlí og hefjast fyrstu keppnir i lok ágúst, en þá hafa íslenskir skautarar ekki enn komist á ís. Þetta hefur heft það að við getum tekið þátt í keppnum sem hefjast svo snemma og verður að breytast tU þess að við getum stefnt aö því að taka þátt i stórum keppnum í framtíðinni. Það stendur tU að opna aðra skautahöU í Reykjavík næsta haust og vonumst við sem stöndum að íþróttinni tU að hún muni laga aðstöðu okkar tU íþróttaiðkunar. Vegna sumarlokunar skautahall- anna hafa skautarar farið utan tU æf- inga yfir sumarið. Þetta er mjög kostn- aðarsamt því greiða þarf ílug, uppi- hald, ístíma og þjálfun. Þrátt fyrir þennan kostnað fara 10-20 skautarar utan á hverju sumri, eingöngu í þeim tUgangi að stunda íþrótt sína, og fer þeim fjölgandi á hverju ári. Ég trúi ekki öðru en það sé þjóðhagslega hag- kvæmara að reyna að hafa eina skautahöU i landinu opna yfir sumar- ið, og reyna frekar að fá skautara og þjálfara erlendis frá tU þess að nota hana, ásamt okkur sem stundum íþróttina hér heima. Við eigum landslið í samhæfðum skautadansi og fór það á síðasta ári tU keppni á heimsmeistaramótið í íþrótta- greininni. Liðið æfir stift fyrir heims- meistaramótið sem haldiö verður í Kanada í aprfl nk. Það er mikUl áfangi að eiga lið á stærsta mótinu sem hald- ið er í heiminum, en það er sama vandamál hjá þeim og í listhlaupinu, skortur á ístímum. Liðið er með 4 fasta æfingatíma í viku og eru flestir þeirra á mjög erfiðum timum, rétt fyrir mið- Elísabet Eyjólfsdótt- ir, formaður Hlaupadeildar Skautasambands íslands, skrifar: nætti eða kl. 6 á morgnana. Þau lið sem það keppir við æfa á is um 12 klst. á viku. Það gefur auga leið að við þess- ar aðstæður blöndum við okkur ekki í neina toppbaráttu, en það er mest um vert að ná lágmarkskröfunum tU þess að geta tekið þátt. Norðurlandamótið í listhlaupi á skautum var haldið í SkautahöUinni í Reykjavík dagana 6.-9. febrúar sl. Á þetta mót koma bestu skautarar frá Norðurlöndunum og eru nokkur þar á meðal sem eru með bestu skauturum í heiminum. Þetta er mikU lyftistöng fyrir skautaíþróttina aö fá tækifæri tU þess að horfa á frábæra skautara keppa, auk þess sem það er auglýsing fyrir ísland að mótið skyldi haldið hér. Aldrei hafa eins margir foreldrar og aðrir aðstandendur skautara fylgt þeim í keppni og raunin var nú því að það þótti mjög spennandi tækifæri að geta komið hingað tU lands. Þrátt fyrir að okkur finnist að að- staðan tU að stunda íþróttina mætti vera betri hefur orðið gjörbylting frá því að yfirbyggðar skautahaUir komu. Við lítum því með bjartsýni tU framtíð- arinnar og ætlum okkur stóra hluti þegar fram líður. Þetta tekur að sjálf- sögðu sinn tíma, en Róm var heldur ekki byggð á einum degi. Glímusamband íslands Oflugt kynningarstarf íslenska gliman er sú íþrótt sem stunduð hefur verið á íslandi frá þvi ;r land byggðist og er því nefnd þjóðar- íþrótt íslendinga. Þrátt fyrir skráðar heimUdir i margar aldir er ekki ljóst hvernig glíman og reglumar hafa verið i upphafi. Áhersla stjórnar GLÍ um þessar mundir er aukið unglingastarf og kem- ur það tU af ýmsu, kynslóðaskipti eru fram undan í glímunni og nýliðun hef- ur aUs ekki verið næg á undanfómum ámm þó að nægur efniviður hafi verið fyrir hendi. I september sl. samþykkti stjóm GLÍ afreksstefnu sambandsins tU ágúst 2004. Meginmarkmið með af- reksstefnunni er að starfið verði mark- vissara og skUi betri árangi, stór hluti af afreksstefnunni er stofnun úrvals- 'r* hóps glímumanna á aldrinum 15-20 ára. í hópinn hafa verið valdir 30 efni- legir unglingar sem hafa skarað fram úr í sínum aldursflokki og sýnt glímunni mikinn áhuga og góöa ástundun. Markmiðið með stofnun úr- valshópsins er að unglingamir skUi sér betur upp í fullorðinsflokkana, þannig að brottfaUið verði minna á þessu aldursskeiði. Einnig bindur GLÍ vonir við að áhugi bama og unglinga á glímu aukist með stofnum úrvalshóps- ins. Hópurinn mun koma saman reglu- lega tU æfinga og þá fá fjölbreytta glímuþjálfun með hæfustu glímumönn- -*• um landsins. Einnig verður mikið lagt upp úr fyrirlestrum er tengjast glímu og íþróttum almennt. Úrvalshópurinn er verkefni sem mun standa yfir tU ágúst 2004 og gert er ráð fyrir að endahnúturinn á þessu verkefni verði ferð með úrvalshópinn tU Montreal í Kanada dagana 30. júlí tU 8. ágúst 2004 en þar fer fram mikU há- tíð um þjóðlegar iþróttir og leiki. Á þessari hátíð er gert ráð fyrir að 70 þjóðir mæti tU leiks og þátttakendur verði um 1000 talsins. GLt ætlar að sýna glímu og þjóðlega leUd á þessari hátíð. Stjóm GLÍ vonast tU þess að með stofnun úrvalshópsins styrkist glíman á meðal bama og unglinga. Þama sjái börn og unglingar ýmsa möguleUca sem ekki hafa verið fyrir hendi áður. Ef vel tekst tekst tU, og jarðvegur verður fyrir hendi, væri verðugt verk- efni að upp úr þessum hóp komi at- vinnusýningarhópur sem sýndi glímu við öU helstu tækifæri í þjóðlífi íslend- inga og hefði sýningar fyrir erlenda þjóðhöíðingja og ferðamenn, ferðaðist um landið kenndi og sýndi þessa fom- frægu íþrótt. Eins og staðan er i dag er vart hægt að mynda svona hóp þar sem bestu glímumenn landsins eru bú- settir mjög dreift um landið og hafa ekki möguleika á að æfa saman og mynda heildstæðan sýningarflokk. Á árinu 2002 stóð Glímusamband ís- lands fyrir öflugu kynningarstarfi á glímunni, þjóðariþrótt íslendinga. Glíman var kynnt 6285 nemendum í 38 skólum, víðs vegar um landið. Mesta áherslan var lögð á kynningar í grunn- skólum, einnig var farið í framhalds- skóla og í íþróttaskóla íþróttafélag- anna. Sérstök áhersla var lögð á kynn- ingar á þeim svæðum þar sem glima er stunduð. Er það gert tU að styrkja fé- lögin á viðkomandi svæði og hefur sú stefna gefið góða raun en þetta er sú stefna sem stjóm GLÍ hefur markað sér á síðustu áram. Frá árinu 1987, þegar GLÍ byrjaði á því að kynna glímu í skólum, tU ársins 2002 hefur Glímusamband íslands kynnt 105.320 nemendum glímu sem verður að teljast mjög góður árangur. TUgangurinn með glímukynningun- um er tvíþættur, í fyrsta lagi að reyna að fá fleiri iðkendur í glímuna og í öðru lagi að kynna nemendum hana svo þeir viti hvað glíma er og út á hvað þjóðaríþróttin gengur. íþróttakenn- aramir hafa verið mjög jákvæöir gagn- vart kynningunum og vUja eindregið að glíman sé kennd í þeirra skóla. Nemendumir hafa einnig verið mjög jákvæðir og áhugasamir. En það mikla framboð af íþróttum og afþreyingu alls konar er helsta ástæða þess að börn og unglingar skUa sér Ula á glímuæfingar hjá félögunum. En eitt helsta vanda- mál glímunnar er skortur á glimuþjálf- uram og þó GLÍ hafi í mörg ár verið með glímukennara á sínum vegum er það fjarri lagi að vera nóg tU að auka tjölda iðkenda í glímu. Margir íþróttakennarar veigra sér við að kenna glímu í skólum e.t.v vegna lítUlar kunnáttu á glímu og skorts á kennsluefni. TU að bregðast við þessari þróun gaf Námsgagna- stofnun, í samvinnu við Glímusam- band íslands, út kennslubók í glímu sem heitir „Glíma - Þjóðaríþrótt ís- lendinga", bókin er sú fyrsta sem er gefin út sem kennsluefni í glímu fyrir grunnskóla. Henni er ætlað að styðja íþróttakennara og aðra er vUja kenna og kynna glímuíþróttina fyrir byrjend- um. TU að fylgja enn frekar eftir fræðslumálum glímunnar er stjórn GLÍ byrjuð að leggja drög að því að Kristján Yngvason, formaóur Glímu- sambands íslands, skrifar: samið verði kennsluefni um glímu á margmiðlunarformi. Efninu veröi dreift sem víðast t.d. í skóla, stefnt er á áð hafa margmiðlunardiskinn bæði á íslensku og ensku svo hægt sé að nota hann sem kynningarefni erlendis. Það er von stjómar GLÍ að slíkt kennslu- efni geti orðið okkur og öUum sem vUjum veg glímunnar sem mestan mikið hjálpartæki við útbreiðslu henn- ar og tU að auka möguleika á kennslu og jafnframt betri skilningi á eðli íþróttarinnar. Glímusamband íslands er stofnað árið 1965 og æ síðan hefur verið mark- mið stjómar GLÍ að skýra, skerpa og bæta þær reglur sem keppt er eftir, svo hefur og verið i tíð núverandi stjómar og við höfum farið þá leið að beita Glímudómarafélagi íslands í þeirri vinnu, sú vrnna hefur skUað okkur tU- lögum að breyttum glímulögum sem lagðar verða fyrir ársþing GLÍ í mars. Það er von stjómar GLÍ að niðurstað- an verði þetri og skýrari glímulög. Sunnudaginn, 16. febrúar fer fram þriðja og síðasta umferðin í íslands- mótinu í glímu, mótið fer fram í íþróttahúsi Hagaskóla og hefst keppni kl. 13. Búast má við spennandi keppni í öUum flokkum en fremsta glímufólk landsins er skráð tU leiks. Keppt verð- ur í sjö flokkum og eftir mótið verða krýndir sjö íslandsmeistarar í glímu. Stjóm GLÍ hvetur áhugafólk um glímu tU að líta inn í íþróttahús Hagaskóla næsta sunnudag. Stjóm GLÍ hefur metnað og sér mörg sóknarfæri á næstu misserum tU að efla og styrkja glímuna tU að hún geti lifað og dafnað með þjóðinni um ókomin ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.