Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Page 18
34 MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 Sport n>v m M1,1 i’i r. \ uj t :> ri 1 Teddy Sheringhain, Totienham Hotspur Teddv Sheringham Fæddur: 2. apríl 1966 Heimaland: England Hæð/þyngd: 180 cm/78 kg Leikstaða: Framherji Fyrri lið: Millwall, Aldershot, Nott. Forest, Manchester United. Deildarleikir/mörk: 757/300 Landsleikir/mörk: 51/11 Hrós: „Hann er stórkostlegur atvinnumaður. Hann er að verða 37 ára en er enn þá í frábæru formi. Hann er fyrirmynd allra ungra knattspyrnumanna.“ Glenn Hoddle, stjóri Tottenham, um Teddy Sheringham. Teddy Sheringham, framherji Tottenham, náði þeim merka áfanga helgina að skora 300. mark sitt í deildakeppninni þegar hann fjórða mark Tottenham i ör- uggum sigri á Sunderland. Sheringham, sem verður 37 ára í byrjun apríl, á að baki glæsilegan fer- il með Millwall, Nottingham Forest, Manchester United og var síðan tvisvar sinnum hjá Tottenham. Hann skapaði sér fyrst nafn hjá Millwall þar sem hann myndaði öfl- ugt framherjapar með íranum Tony Cascarino. Millwall, með þá félaga í fararbroddi, komst upp í efstu deild og Sheringham var 1 framhaldinu seldur til Nottingham Forest. Þar hélt hann uppteknum hætti, skoraði mikið og var seldur til Tottenham þar sem hann komst í guða tölu. Sheringham vildi hins vegar vinna titla og gekk til liðs við Manchester United. Hann átti stóran þátt í þrenn- unni frægu árið 1999 og skoraði meðal annars fyrra mark liðsins í úrslitaleik meistaradeildar Evrópu gegn Bayern Miinchen eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Sheringham fékk ekki nýjan samn- ing hjá Manchester United þegar sá gamli rann út vorið 2001 og hélt þá aft- ur til Tottenham. Hann hefur löngu sannað að hann er framherji í fremstu röð og aldurinn virðist lítið hafa hægt á honum. -ósk Tíu leikmenn Newcastle börðust hetjulega og náðu einu stigi gegn Arsenal: Hetja og skúrkur - Laurent Robert skoraði mark og fékk að líta rauða spjaldið með stuttu millibili Newcastle og Arsenal skildu jöfn, 1-1, í fjörugum leik í ensku úrvals- deildinni í gær. Þar með missti Arsenal af tæki- færi til að ná fimm stiga forystu á toppi deildarinnar en helsti keppi- nautur þess, Manchester United, gerði einnig jafntefli í gær. Newcastle komst aftur í þriðja sæt- ið með jafhteflinu en Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Chel- sea höfðu verið í þriðja sætinu í rúman sólarhring. Arsenal byrjaði mun betur í leiknum og voru leikmenn New- castle heppnir að vera aðeins einu marki undir í fyrri hálfleik. Markið kom eftir rúmlega hálftíma leik en þá splundruðu leikmenn Arsenal vöm Newcastle og Thierry Henry skoraði átjánda deildarmark sitt á tímabilinu. Newcastle tókst að jafna metin fljótlega í síðari hálfleik og var þar að verki Frakkinn Laurent Robert. Stuttu seinna fékk Robert síðan að líta annað gula spjaldið sitt í leikn- um og þar með rautt fyrir að standa of nálægt aukaspymu sem Dennis Bergkamp tók. Tíu leikmenn Newcastle börðust hetjulega og tókst Arsenal-leikmönnunum sjald- an að finna glufu á vörn Newcastle. Bobby Robson, knattspymustjóri Newcastle, var ósáttur við rauða spjaldið og sagði að mikilvægasta reglan í knattspymunni væri heil- brigð skynsemi. „Ég veit ekki hvað Robert átti aö gera. Hann gat varla láta sig hverfa," sagði Robson og hrósaði síöan mönnum sínum i hástert. „Við hefðum sennilega unnið leikinn ef við hefðum haldið öllum okkar mönnum inn á en við töpuö- um ekki þrátt fyrir að vera einum manni færri. Það sýnir styrk, sér- staklega gegn liði eins og Arsenal. sitt á tímabilinu fyrir Arsenal og hér sjást Thierry Henry skoraði átjánda mark markifi. Arsene Wenger, knattspymu- stjóri Arsenal, var ekki ósáttur við leik manna sinna. „Við spiluðum ágætlega og ég get ekki skammað mína menn fyrir að gefa ekki allt í leikinn. Leikmenn Newcastle vörðust vel. Það var erfitt að komast bak við varnar- menn liðsins og mér fannst leikur- inn ekki breytast mikið eftir að þeir leikmenn Arsenal fagna honum eftir Reuters urðu tiu. Við vorum allan leikinn í hlutverki stjómanda og það skipti engu máli hvort þeir voru tíu eða ellefu," sagði Arsene Wenger eftir leikinn. -ósk i OKKAR MENN Lárus Orri Sigurðsson sat allan tímann á varamanna- bekknum þegár West Brom gerði jafhtefli gegn Bolton á laugardaginn. Guðni Bergsson spilaði all- an leikinn í vöm Bolton í sama leik. spjald í leiknum. Eióur Smári Guðjohnsen spilaði allan leikinn fyrir Chelsea f sigri gegn Birmingham og skoraði annað mark liðsins með skalla. ívar Ingimarsson var ekki með í leik Brighton og Wolves í 1. deildinni á laugar- daginn en hann mun ganga til liðs við Brighton frá Wolves í vikunni. S'SwSfs; B°"rartart ÁQtnn Villn í tnni liðsins JOhnSen. Aston Villa í tapi liðsins gegn Fulham á laugardaginn. Hann fékk dæmda á sig vítaspyrnu fyrir að brjóta á Luis Boa Morte og fékk einnig gult inn fyrir Stoke í arsson. slæmu tapi gegn Grimsby og krækti sér í gult spjald. Bjarni Guó- jónsson kom inn á sem varamaður á 65. mínútu en Pétur Marteinsson sat á varamannabekknum allan tímann. Hermann Hreiöarsson spilaði ailan leikinn fyrir Ipswich í mikilvægum sigri á Sheffield United og fékk að líta gula spjaldið á 90. mínútu. Heiðar Helguson spilaði allan leikinn fyrir Watford sem tapaði óvænt fyrir Rotherham á heima- velli. Stefán Logi Magn- ússon sat allan tim- Rúnar ann á varamanna- rlunar bekk Bradford gegn son- Wimbledon. Helgi Valur Danielsson spilaöi allan leikinn í markalausu jafntefli Peter- borough gegn Chesterfield í ensku 2. deildinni. Þórður Guðjónsson spilaði allan leik- inn fyrir Bochum í sigri á Bayer Leverkusen í þýsku 1. deildinni. Eyjólfur Sverrisson var ekki í leikmannahópi Herthu Berl- lin sem vann Schalke örugg- lega. Rúnar Kristinsson spilaði allan leikinn fyrir Lokeren sem vann La Louviere í belgísku 1. deildinni. Rúnar skoraði tvö mörk í leiknum. Arnar Þór Viðarsson og Arnar Grétarsson spiluðu báöir allan leikinn en Marel Baldvinssyni var skipt út af á 75. mínútu. Kristins- f Andy Johnson Velski landsliðsmaðurinn Andy Johnson var heldur betur hetja West Brom um helgina þegar hann tryggði liðinu jafntefli gegn Bolton í botnbaráttuslag á heimavelli West Brom á laugardaginn. John- son, sem hafði komið inn á sem varamaður, skoraði af stuttu færi fram hjá finnska markverðinum Jussa Jaaskelainen á síðustu mín- útu leiksins en fram að því virtist allt stefna í að Bolton hefði sigur og myndi fjarlægjast þijú neðstu liðin. Johnson var ekki á sáma máli og mark hans gerir það að verkum að vonir West Brom um að halda sér í deildinni eru ekki fyrir bí. -ósk ( Freddie Kanoute Freddie Kanoute, framherji West Ham, er í tómu rugli þessa dagana, líkt og allir félagar hans í liðinu. Hann er nýkominn til baka eftir meiðsl og hafði knattspyrnu- stjóri West Ham, Glenn Roeder, alið þá von í brjósti sér að endur- koma Kanoutes gæti bjargað lið- inu úr þeim vandræðum sem það er í. Annað kom á daginn því að í leiknum gegn Leeds um helgina fékk Kanoute að líta rauða spjald- ið fyrir að slá til Seths Johnsons, miðjumanns Leeds. Þetta spjald þýðir að Kanoute fær þriggja leikja bann og nýtist því félögum sínum og liðinu lítið á meðan hann situr í stúkunni bannfærður af aganefnd enska knattspymusambandsins. -ósk Laugardagur 22. febrúar Bolton-Man. Utd Everton-Southampton Charlton-Aston Villa Chelsea-Blackbum Leeds-Newcastle Man. City-Arsenal Sunderland-Middlesbrough Sunnudagur 23. febrúar Birmingham-Liverpool Mánudagur 24. febrúar Tottenham-Fulham Laugardagur 1. mars Blackburn-Manchester City Fulham-Sunderland Middlesbrough-Everton Newcastle-Chelsea Southampton-West Brom West Ham-Tottenham Laugardagur 15. mars Aston ViUa-Manchester United Blackbum-Arsenal Charlton-Newcastle Everton-West Ham Fulham-Southampton Leeds-Middlesbrough Sunderland-Bolton Tottenham-Liverpool

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.