Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2003, Side 11
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
11
Auöur Jónsdóttir garöyrkju-
fræðingur við blómstrandi
töfratré í Grasagaröinum í
Reykjavík. Töfratréö byrjaöi
aö blómstra í desember en
tók sér hlé eftir áramót,
þaö byrjaðí aö springa út
aftur fyrir skómmu.
I'
Haustliljur
Litjurnar eru andstæða vorlaukanna
og blómstra seint að hausti, í lok
október eða byrjun nóvember, og
geta jafnvel staðiö í blóma fram í
janúar. Á sumrin eru liljurnar fremur
óásjálegar grænar þústir sem vaxa
allt sumariö.
verstu umhleypingunum. „Grein-
arnar virka eins og snjólag og
hlífa plöntunum."
Björkin vel aðlöguð
„Grasakonurnar" í Laugardaln-
um segja að norrænar tegundir
þoli svona veðurfar miklu betur
en þær suðrænu. „Birki fer ekki
af stað fyrr en daglengd hefur náð
ákveðnu lágmarki og er ekkert að
láta hitastigið rugla sig í ríminu.
Björkin er aðlöguð svona veðri
þannig að hún sefur bara í róleg-
heitunum.“
Auður segist reyndar ekki vera
frá því að loðvíðir sé eitthvað far-
inn að sperra sig. „Brumin eru að
þrútna og spurning hvort hann fer
ekki að opna sig.“ Dóra segist telja
núverandi hlýindaskeið óvenju-
langt. „Það hafa oft komið stutt
skeið en þetta er óvenjulangt og
við vitum hreinlega ekki hvaða
áhrif það hefur.
Hlýindi af þessu tagi eru hættu-
legri eftir því sem nær dregur
DVMYNDIR GVA
Gljámispillinn er farinn að laufgast
Dóra Jakobsdóttir grasafræðingur
segist vona að veður fari hægt
kólnandi til að hægja á gróðri og
draga úr hættu á kalskemmdum.
sumri því þá er meiri hætta á að
gróðurinn ruglist. Plöntumar eru
komnar lengra af stað og skemmd-
ir meiri."
Frostlyfting og rótarslit
„Allra best væri ef það kólnaði
svolítið, kæmi vægt frost og smá-
fól til að hlífa gróðrinum." Auður
og Dóra segja að það sé í raun
ósköp lítið sem fólk geti gert til að
verja gróður fyrir veðri. „Það má
leggja greinar og lauf að rótunum
til að koma í veg fyrir frostlyft-
ingu og rótarslit. Klippingatíminn
er að hefjast en þar sem sumum
tegundum, eins og gljávíði, reyni-
við, gullregni og kergi, er hættara
við sveppasýkingu ætti að geyma
að snyrta þær fram á vorið.“ -Kip
Trjágróður getur ruglast í rimlnu
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjumaö-
ur segir að það sé ekki enn komið
hættuástand fyrir gróðurinn en lík-
legt aö runnargeti látið á sjá ef
gróður springur meira út og svo
kólnar skyndilega.
„Það er samt viðbúið að einhverj-
ir runnar láti á sjá ef þetta endur-
tekur sig. Á íslandi er allra veðra
von á hvaða árstíma sem er.“
Gljámispill aö laufgast
„Víða í Reykjavík er farið að
bera á því að gljámispill sé farinn
að laufgast og hætt við að hann
láti á sjá eins og aðrir runnar á
svipuðu róli, til dæmis fjallarifs
og sírenur, sem ég hef séð að eru
farnir að bruma. Ég hef ekki trú á
að þeir guggni alveg, þótt þá geti
kalið eru þeir tiltölulega fljótir að
vaxa frá svona áföllum."
Hafsteinn segir það staðreynd
að meðalhiti á jörðinni fari hækk-
andi og að það gæti auðveldlega
haft áhrif á íslenska náttúru ekki
síður en garðyrkjuna eða land-
búnaðinn. „Hugsanlega er vetrar-
veðrátta hér að breytast af þessum
völdum en það hefur samt lítil
sem engin áhrif á sumarhitann
þannig að ég á ekki von á því að
hér vaxi upp aldingarðar og vín-
ekrur. Rófurnar spretta kannski
lengur fram eftir haustinu og
kýrnar verða ef til vill lengur úti
á beit en það er allt og sumt.“
-Kip
IJEILSIIUÁIM
Þjálfunar og æfingarpunktar
Sumir halda því fram að komi þeir ekki til með að æfa 6 sinnum í viku og
stunda erfiðar æfingar sé þjálfunin hálfgerð tímasóun, Eina leiðin til að ná
árangri sé að æfa eins og keppnisíþróttamanneskja. Þessi hugsunarháttur
fælir í raun fjölmarga frá því að stunda þjálfun. Rannsóknir sýna að öll þjálfun,
hversu Irtil sem hún er, er betri en engin. Til dæmis geta reglulegir göngutúrar
eða jafnvel vinna í garðinum bætt líkamástandið. Byrjaðu rólega. Eftir nokkurn
tíma þegar líkamsástandið hefur batnað og getan er orðin meiri ferðu að
gefa þér meiri tíma í þjálfunina. Hreyfing er fyrir alla.
Matseðill dagsins
Dagur 17
Morgunverður: Fitness morgunkorn Dreitill Gulrætur 3 dl 1 glas 2 stk.
Hádegi: Kjúklingasamloka 1 stk.
Miðdegisverður: Lagkaka 80 g = 1 með
Kvöldverður: Lúða, steikt Kartöflur, soðnar Grænmeti, blandað Létt viðbit 150 g 3 „eggstórar' 100 g + 1 msk.
Kvöldhressing: Rjómaís, 10% f ita 2 dl = 1 skál
Þeir eru margir sem hræðast tilhugsunina um að breyta matarvenjum sínum og segjast
vart getað hugsað sér að hætta að borða allt sem þeim þykir „gott" og borða aðallega
það sem þeim finnst „vont". Sem betur fer er ekki verið að fara fram á slíkt. Reyndar
heyrast því miður oft öfgakenndar yfirlýsingar þar sem því er slegið fram að hinar ýmsu
fæðutegundir séu bráðóhollar og jafnvel hættulegar. I því sambandi eru kjöt- og
mjólkurmatur gjarnan nefnd til sögunnar ásamt auðvitað öllu sem heitir sælgæti. Einnig
hefur verið í tísku að telja ger og þar með allar gerafurðir stórvarhugaverðar. Reyndar
hefur allur matur eitthvað að bjóða sem likaminn getur nýtt sér. Allflestir
finna sem betur fer einhverjar fæðutegundir í hverjum fæðuflokki sem
þeim finnst bragðast vel. Þetta er ekki spurning um að hætta að borða
„góðan" mat og fara að troða í sig „vondum" mat heldur spurning
um að setja hinar ýmsu fæðutegundir rétt saman. Mikið yrði nú Irfið
líka leiðigjarnt ef við myndum hætta að borða mat sem okkur finnst
svo einstaklega bragðgóður.
Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur
HReynnG