Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2003, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2003, Side 18
18 M Skoðun FÚSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 DV Ókeypis í strætó „Það ætti að vera tiltölulega auðvelt reikningsdœmi fyrir borgaryfirvöld að finna út hvað hægt væri að spara mikið með því að hafa ókeypis í strœtó - að því gefnu að vagnarnir myndu fyllast af fólki um leið og ferðum og leiðum myndi fjölga töluvert. “ Fyrir nokkrum árum var borgarbúum boðið að fara ókeypis í strætó einn dag. Vagnarnir fyllt- ust. Af því getum við lært að með því að stór- lækka fargjald með * strætisvögnum sé hægt að fjölga farþegum veru- lega. Og af hverju þá ekki bara að hafa það al- veg ókeypis? Nýlega hækkaði fargjald Strætó og í fréttum var vitnað í útreikninga um að mikið tap væri á rekstri vagnanna. Því yrði að hækka fargjaldið. Þessi þanka- gangur var tekinn gildur af öllum fjölmiölamönnum. Allir græða Við sem myndum hinn breiða hóp almennings hljótum þó að spyrja hvort það sé markmiðið með almenningssamgöngum að þær beri sig. Er það ekki í þágu borgarinnar að sem flestir noti al- menningsvagna og minnki þannig slit á götum, mengun, há- vaða og alla umferð? Að ekki sé talað um hvað borgararnir gætu sparað mikið persónulega í tíma, peningum og stressi ef almenn- ingssamgöngur í borginni væru ókeypis - og nothæfar. Við ætl- umst til þess að borgin leggi línu- net og greiðfærar götur fyrir það fé sem við reiðum fram með skattpeningum okkar. Það er því aðeins stigsmunur á því og aö borgin taki að sér að flytja fólk eftir þeim sömu götum án þess að rukka fyrir það sérstaklega. Það ætti að vera tiltölulega auðvelt reikningsdæmi fyrir borgaryfirvöld að finna út hvað hægt væri að spara mikið með því að hafa ókeypis í strætó - að því gefnu að vagnarnir fylltust af fólki um leið og ferðum og leiðum fjölgaði töluvert. í því dæmi væri hægt að reikna með að allir vagn- arnir gengju fyrir vetni og ímynda sér þannig að þetta væri tilraunaverkefni á heimsvísu sem miðaði að því að leysa umferðar- og mengunarvanda í borgum víð- ar en á íslandi. Slíkt væri mjög raunhæft því að eins og kunnugt er hefur Bandaríkjaforseti nú tek- ið undir með Hjálmari Árnasyni um að veita mikið fé til vetnis- rannsókna. Verkefnið ætti því að geta notið alþjóðlegra styrkja. Hagkvæmnisútreikningar af þessu tagi eru að minnsta kosti töluvert raunsærri en þær skýja- borgir sem verið er að reisa utan um háhraðalest til Keflavíkur til að flytja flugfarþega til og frá höf- uðborgarsvæðinu. Eins og almenningssamgöng- um í borginni er háttað er tómt mál að tala um að ökufærum manni detti í hug að notfæra sér þær - eigi hann kost á því að aka einkabíl eða nota hjólhest án þess að leggja sig í lífshættu vegna hálku og umferðar. Greiði menn fullt fargjald er oft meira að segja vafamál hvort það borgi sig í bensinsparnaði að taka strætó. Tvær leiðir eru færar tO að leysa vaxandi umferðarvanda í borg- inni: að breikka og fjölga götum með miklum tilkostnaði eða að nota sama fé til að stórefla ókeyp- is almenningssamgöngur. Bjargar heimsfriðnum Að efla ókeypis almennings- samgöngur með vetnisbílum hef- ur þann ótvíræða kost að vera umhverfísvæn leið sem gæti orð- ið að fordæmi fyrir borgir annars staðar í heiminum - þar sem glímt er við óbærilegan umferð- arvanda án þess að nokkur lausn sé nokkurs staðar í sjónmáli. Og það sem meira er: Þessi einfalda hugmynd gæti bjargað heims- friðnum ef hún næði eyrum réttra ráðamanna áður en tunglið endurnýjast í marsbyrjun með tilheyrandi loftárásavænum og dimmum nóttum yfir Bagdað og Babýlon og stórfljótunum Efrat og Tígris. Ef fólk yrði flutt ókeypis á vetnisknúnum almenningsfarar- tækjum um borgir í Bandaríkjun- um yrði ekki lengur neitt bit í þeim olíufélögum sem eru nú að láta kristna öfgamenn í þessu yngsta ríki jarðarinnar fara með eldi gegn vöggu siðmenningar- innar í frjósama hálfmánanum, þar sem mannkynið lærði að veita fljótum og rækta korn og þar sem kviðan um Gilgames var letruð í árdaga. Ánægjuleg aukaf- urð af þessari hugmynd væri að við gætum kannski sparað nóg í útblæstri til að eiga fyrir einu ál- veri innan hins alþjóðlega út- blásturskvóta. Slíkur sparnaður hlyti að gleðja íslensk stjómvöld. Spilling á J.M.G. skrifar: Ekki færri en 25 þjónar og mat- reiðslumenn voru atvinnulausir í síðustu viku í síðustu könnun um atvinnuleysi, auk fjölda ófag- lærðra á veitingahúsum borgar- innar. í umræðunni um nætur- klúbbana hefur gleymst að þeir sköffuðu fjölda fólks atvinnu. Minnist aðeins tveggja sem skrif- að hafa um að lokun klúbbanna raskaði stöðu og högum vinnandi fólks. Og það voru lögmenn. En hvar voru verkalýðsforingjarnir? Eitt af tónskáldum okkar, Jón Ásgeirsson, hefur lýst móðursýk- inni í garð nætuklúbbanna betur en aðrir. Hann ætti að semja óp- eru í minningu rjómatertunnar góðu. „Alþýðan þarf að hafna hinni nýju stétt Samfylk- ingarinnar en kjósa at- hafnamenn - þá sem skapa og efna til fram- kvæmda fyrir vinnufús- an almenning.“ Andúð á skemmtistöðum er ekki ný bóla en hefur tekið á sig skoplegar myndir og gengið lengst og grimmast út í kaffihúsið á Laugavegi 11. Aldrei var þó orð- ið við kröfum um að loka því. Ég fann aldrei spiilinguna á Lauga- vegi 11 og heldur ekki á nætur- klúbbunum. Þar eru dyraverðir í skemmtistöðum? Engin spilling - dyraveröir í smóking, borðalagöir þjónar af báöum kynjum ásamt skraut- klæddum dansmeyjum. smóking og borðalagðir þjónar af báðum kynjum á barnum ásamt skrautklæddum dansmeyjum. Þetta starfslið heldur uppi fáguðu og dempuðu andrúmslofti. Enn hefur ekki öllum klúbbunum ver- ið lokað, þökk sé m.a. Gunnari J. Birgissyni alþingismanni. Nú líður að kosningum og al- þýðan sem þarf að vinna fyrir sér þarf að taka eftir hverjir það eru sem berjast fyrir hana og hverjir vinna á móti henni. Alþýðan þarf að hafna hinni nýju stétt Samfylk- ingarinnar en kjósa athafnamenn - þá sem skapa og efna til fram- kvæmda fyrir vinnufúsan al- menning. Skattalækkun fyrir þinglok Ólafur Magnússon skrifar: í framhaldi af loforðum um skattalækkanir til almennings (ekki fyrirtækja í þetta sinn) vil ég gagnrýna boð formanns Framsóknarflokksins um ein- hverja 3% lækkun á tekju- skatti. Það boð er fyrir neðan virðingu formannsins, svo lágt er það. - Guð hjálpi okkur - og það á kjörtímabilinu!! Nú bíð- um við eftir hvað sjálfstæðis- menn boða; það verður að vera eitthvað bitastæðara en þessi ósköp framsóknarmanna. Og hvað leggur Samfylkingin til í skattalækkunarmálum? Engar tölur, ekkert borðleggjandi? Ég skora á formann Sjálfstæðis- flokksins að leggja til umtals- verða lækkun tekjuskattsins, segjum niður í 18%, til jafns við fyrirtækin. Og á þessu þingi. Ekki einhvern tíma - á kjörtímabilinu. Tekjuskattur- inn skiptir mestu máli fyrir flesta. Eða til vara: afnám tekjuskatts að 150 þús. kr. markinu. Ekkert minna en annað tveggja þessa er þolandi. Veruleg tekjuskattslækkun - og nú fyrir þinglok. Stephen Fry leikari. íslendingan í snjóhúsum! Pétur Sigur&sson skrifar: í kynningu með BAFTA-verð- laununum, sem sýnt var frá í sjón- varpi og margir fylgdust með hér á landi eins og ávallt - því hér er um fyrirtaks afþreyingarefni að ræða - sagði aðalkynnir hátíðar- innar, Stephen Fry, að nú væri áhorf í hámarki og tók sem dæmi að nú hefðu allir íslendingar safn- ast saman í einu stóru snjóhúsi (Iglow) tfl að horfa. Skellihlátur áhorfenda kvað við. En við hverju getum við íslendingar búist af (fá- fróðum?) almenningi í öðrum lönd- um sem hefur aðeins heyrt nafnið „Iceland" en ekki lesið sér til eða komið hingað? Auðvitað er nafnið „Iceland" ekkert annað en van- virðing við okkar góða land. Hér drýpur smjör af hveiju strái og veðurblíðan eykst með ári hverju. Hvað er athugavert við að skipta um nafn á landinu okkar góða? Mér blöskrar flialdssemin. Byggðastofnun dýn Jðn Árnason skrifar: Enn er Byggðastofnun, þessi dýri baggi á framfæri okkar, í sviðsljósinu. Nú er það starfsloka- samningur fyrrv. forstjóra stofn- unarinnar. Forstjórinn heldur full- um launum sem eru 650 þúsund krónur á mánuði fram á mitt ár 2004, samkvæmt starfslokasamn- ingi við hann, auk einnnar millj- ónar vegna búferlaflutninga! Og eru nú ekki færri en tveir for- stjórar Byggðastofnunar á stafslokasamningi, því sá fyrri hætti líka á sömu kjörum! Er þetta að verða lenska hér á landi að forstjórar hins opinbera jafnt og í einkageiranum verði að at- hlægi fyrir handvömm stjórnenda stofnananna eða fyrirtækjanna? Sannferðug ummæli Jðhann Jðhannsson skrifar: Mér finnst um- mæli forsætisráð- herra, svo og fyrr- verandi borgar- stjóra, mjög í anda þess sem al- menningur hefur haft uppi, að ofur- „ _______ laun, kaupaukar Daviö Oddsson. ega starfsloka- samningar upp á tugi og jafnvel hundrum mflljóna króna séu al- menningsálitinu hér ofviða og veki andúð á viðkomandi fyrirtækjum. Ég heyrði svo ummæli í morgunút- varpi í morgun (miðvikudag) höfð eftir Davíð Oddssyni sem hljóðuðu eitthvað á þá leið að velgengni stórfyrirtækja, eins og þeirra sem hafa verið í sviðsljósinu, ætti fyrst og fremst að koma viðskiptavinum þeirra til góða, en ekki bara for- stjórunum og hluthöfunum. Þetta eru sannferðug ummæli og í anda meirihluta þjóðarsálarinnar. - Fróðlegt væri að fá viðbrögð Ingi- bjargar Sólrúnar við þessu en hún virðist í einhverju pólitísku þagn- arbindindi þessa stundina. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Skaftahlíð 24,105 Reykjavik Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.