Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2003, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003
25
DV
Tilvera
Bíógagnrýni
Smárabíó/Laugarásbíó - Gangs of
New York ★★'i
Allir íþróttaviáburáir í beinni á risaskjám. Pnol. Eóáur matsuáill.
Tökum aá nkkur hápa, starfsmannafélng. Stórt ag gatt dansgólf.
Fæðingarhríðir heimsborgar
Gangs of New York hefst á því þeg-
ar „Presturinn" (Neeson) gengur með
keltneskan kross í hendi í gegnum
ótrúlegt völundarhús af neðanjarðar-
hellum með ungan son sér við hlið.
Við gönguna bætist fólk úr holum og
göngum, allt vopnað hnífum, sveðjum
og alls kyns heimatilbúnum vopnum
þar til það kemur á leiðarenda - að
dyrum sem liggja út á snævi þakið
Paradisartorg á krossgötunum Five
Points í New York um miðja 19. öld.
Hópurinn er skipaður írskum inn-
flytjendum en klíkan sem hann mæt-
ir eru „innfæddir“ Ameríkanar sem
hafa óbeit á írum, negrum og öðrum
aðskotahlutum. Við taka blóðug
slagsmál við undirleik tónlistar
þannig að höfuð og handleggir fjúka í
takt við trommuslátt og blóðið litar
snjóinn bleikan.
Atriðið er gríðarlega vel sviðsett og
tekið, blóðsúthellingin nánast eins og
ballett og snertir mann einkennilega
lítið. Presturinn fellur fyrir hendi
slátrarans Bills (Day-Lewis) fyrir
framan son prestsins sem Bill lætur
senda á munaðarleysingjahæli.
15 árum síðar snýr sonurinn,
Amsterdam (DiCaprio), aftur til Five
Points til að hefna fóður síns en slær
hefndinni á frest þegar Bill tekur
honum sem týndum syni, óvitandi
um ættir hans. Amsterdam hittir líka
og fellur fyrir fyrrverandi kærustu
BOls, Jenny Everdeane (Diaz), sem er
frökk stúlka og sérdeilis fingrafimur
þjófur. Five Points er hverfið þar sem
þjófarnir, morðingjarnir, hórurnar og
fátæklingarnir búa.
Bill og Amsterdam
Daniel Day-Lewis og Leonardo
DiCaprio í hlutverkum sínum.
Þegar Amsterdam snýr aftur ræð-
ur Bill slátrari algjörlega yfir Five
Points og hefur - eins og allir al-
mennilegir glæpamenn eftir hans dag
- einn spilltan stjórnmálamann í vas-
anum. New York er suðupunktur um
1860, skip streyma að höfninni á
hverjum degi full af vongóðu fólki að
flýja heimahagana i von um betra líf
í Ameríku. Á höfninni taka „innfædd-
ir“ á móti þeim með skítkasti og of-
beldi og útsendarar hersins veiða
unga hraustlega karlmenn í Þræla-
stríðið sem er í algleymingi.
Scorsese vill segja sögu af fæðing-
arhríðum heimsborgarinnar New
York með klíkustríðum, svikum og
blóðhefndum. Sagan á líka að vera
nær Shakespírskt drama um fóður-
hefnd og þar að auki ástarsaga. Úr
verður einkennilega langdregin og
samhengislaus kvikmynd.
Leonardo DiCaprio hefur oft túlkað
persónur sínar betur en hér og
Cameron Diaz er ekki minnisstæð
sem Jenny, enda er maður merkilega
áhugalaus um afdrif þeirra. írski
hreimurinn þeirra kemur og fer -
með kalda vatninu kannski - og þótt
áhorfandinn skynji ástríðu á milli
þeirra í byrjun lognast hún fljótlega
út af. Fjölmargar aukapersónurnar
lifa sterkar á tjaldinu en þau, til
dæmis Jim Broadbent í hlutverki
spillts stjórnmálamanns, Brendan
Gleeson sem málaliði og Neeson í of
stuttu atriði „prestsins". En það er
Daniel Day Lewis sem fyllir út í tjald-
ið og stelur hverri einustu senu sem
hann kemur nærri. Hann er magnað-
ur leikari og sá eini hér sem nær að
búa til margbrotinn mann úr persónu
sinni.
Scorsese hefur gengið með þessa
mynd í maganum í hartnær 30 ár og
sennilega hefur meðgangan verið of
löng því þaö er eins og þessi oft á tíð-
um meistaralegi leikstjóri nái ekki
utan um efnið, persónusköpun er
grynnri en vanalega hjá honum og
það vantar ákveðið flæði í myndina.
Þótt inn á milli séu atriði, glæsúega
tekin af Ballhaus, sem festa sig við
sjónhimnuna, þá eru heildaráhrifin
ekki eins sterk og við mætti búast af
þessum leikstjóra og metnaðarfullri
vinnu hans við þessa mynd. Það eru
aðrar sögur Scorsese af New York
sem eiga eftir að halda nafni hans á
lofti sem merkilegs leikstjóra.
Leikstjóri: Martin Scorsese. Handrit: Jay
Cocks, Steven Zallian og Kenneth Lonergan
Kvikmyndataka: Michael Ballhaus. Tónlist:
Howard Shore. Aöalleikarar: Leonardo
DiCaprio, Daniel Day-Lewis, Cameron Diaz,
Jim Broadbent, Brendan Gleeson og Liam
Neeson.
^SAL^ Sími 562-1717
'__________________________
Miklatorgi - á besta stað
Ford Escort, árg. 1996,
ek. 91 þ. km, beinsk.
V.440 þ. TILBOÐ 290 þ. stgr.
"Ágætis bíll og hörkudíll"
VW Polo 1,4, árg. 8/99,
ek. 40 þ. km, beinsk.
V. 820 þ. TILBOÐ 590 þ. Ahv. 350 þ.
“Allt er vænt sem vel er grænt."
Subaru Legacy 2,0, árg. 1995,
ek. 138 þ. km, sjálfsk. dráttarkúla, CD o.fl.
V. 770 þ. TILBOÐ 590 þ. stgr.
’Fjölnota fjölskyldubíir
Suzuki Swift, árg. 1995,
ekinn aðeins 81 þ. km. Beinsk., rafdr. rúður,
nýskoðaður '04.
V. 380þ. TILBOÐ 290 þ. stgr.
Suzuki Grand Vitara V6, árg. 1999,
ek. 97 þ. km, sjálfsk., álf., 6 cyl.
V. 1.780 þ. TILBOÐ 1.580 þ. (áhv.1.180)
= útborgun eða bfll, kr.400 þ.
"Bíll sem tekið er eftir."
Toyota Yaris Terra WTI, árg. 5/2000,
ek. 54 þ. km, beinsk., 5 dyra.
V. 820 þ. TILBOÐ 680 þ.
"Griptu hvítu gæsina á meðan hún gefst!"
MMC Pajero V6, árg. 1995,
32’, ek. 139 þ. km, sjálfsk., fjarstart, CD,
7 manna, sumar- og vetrardekk á felgum.
V. 1.240 þ. TILBOÐ 980 þ.
"Mikið fyrir lítið".
’ j
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is
Ford Explorer Eddie Bauer 5,0, árg., 1997,
V8. Leður, allt rafdr., topplúga. Ekinn aðeins 73
þ. km, '04 skoðun.
V. 2.350 þ. TILBOÐ 1.980 þ.
ilóar
"Glóandi gullmoli".
Nissan Patrol túrbó dfsil, árg. 1995,
ek. 200 þ. km, sumar- og vetrardekk, mælir,
'04 skoðun beinsk.
V. 1.540 þ. TILBOÐ 1.380þ.
“Bísna fagur’’
Mazda 323, árg. 1995,
ek. 126 þ. km. Beinsk., sumar- og
vetrardekk, nýskoðaður ‘04.
V. 370 þ.
“Léttur á fóðrum þessi!"
Toyota Corolla XLI, árg. 1995,
Ek. 126 þ. km, 5 dyra.
V. 490 þ.
"Lekkert eintak", nýskoðaður.
Suzuki Vitara 1,6 JXLI (stuttur), árg. 1996,
ek. 95 þ. km, beinsk., dráttarkúla, rafdr. rúður.
V.630 þ.
"Þrumugóður bfll"
Toyota Corolla L/B, árg. 1994,
ek. 139 þ. km. Nýskoðaður '04, góð
smurbók.
V. 490 þ.
"Ekki nýr en sem nýr"
Toyota Rav 4, árg. 11/99.
Ekinn aðeins 21 þ. km, sjálfsk., sumar- og
vetrardekk, dráttarkúla.
V. 1.720 þ„ áhv. 1.340 þ. Útb. aðeins 380 þ.
"Fullvaxinn smájeppi" “Góður bíll
Toyota Corolia XLI H/B, árg. 1994, Suzuki Sidekick Lim'ited, árg. 1992,
ek. 146 þ. km, beinsk., 5 d., ek. 153 þ., beinsk., leðurinnrétting.
góð smurbók, CD, álf. V. 490 þ.
V. 390 þ. "Vel þess virði"
... en er þetta besti bíllinn? Það er erfitt að segja."
SJÁ FLEIRI MYNDIR Á WWW.BILALIF.IS ASAMT FJÖLDA ANNARRA GLÆSIVAGNA