Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Síða 3
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
19
DV
Davíð Ólafsson átti góðan leik með Gróttu/KR gegn Sávehof á laugardaginn og skorar hér eitt af sex mörkum sínum í leiknum.
Grótta/KR mætti sænska liðinu Sávehof í 8-liða úrslitum Borgakeppni Evrópu á laugardaginn:
- gerði útslagið í átta marka tapi gegn öflugu sænsku liði, sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR
Grótta/KR mætti sænska liðinu
Savehof 1 fyrri leik liðanna í 8-liða
úrslitum Borgarkeppni Evrópu í
handknattleik fyrir fram sex þús-
und áhorfendur í íþróttahöllinni í
Gautaborg á laugardaginn.
Fyrir fram var vitað að leikmenn
Gróttu/KR ættu erfítt verkefni fyrir
höndum enda sænska liðið gifurlega
sterkt. Það kom líka á daginn því
þegar upp var staðið vann sænska
liðið nokkuð öruggan átta marka
sigur, 34-26, og tryggði sér ágætis
veganesti fyrir seinni leikinn á Sel-
tjarnamesi um næstu helgi.
21 mark í fyrri hálfleik
Það var jafnræði með liðunum
fyrstu tíu mínútur leiksins en síðan
náðu leikmenri Savehof yfirhönd-
inni. Þeir náðu góðri forystu og
leiddu i hálfleik, 21-14.
„Vamarleikurinn var skelfilegur
í fyrri hálfleik og það segir sína
sögu aö þeir skora 21 mark í hálf-
leiknum. Slikt má ekki gerast í leik
sem þessum en því miður var það
raunin. Markvarslan var engin og
þeir völsuðu um að vild þegar þeir
sóttu,“ sagði Ágúst Jóhannsson,
þjálfari Gróttu/KR, í samtali við
DV-Sport eftir leikinn.
í síðari hálfleik lagaðist leikur
Gróttu/KR til mikilla muna og náði
liðið að minnka muninn niður í
Öögur mörk um miðjan síðari hálf-
leik. Það reyndist hins vegar
skammgóður vermir, Svíamir náðu
góðum endaspretti og unnu að lok-
um öruggan sigur, 34-26. Grótta/KR
gat reyndar minnkað muninn i sjö
mörk á síðustu minútunni þegar
þeir voru einum leikmanni fleiri en
það gekk ekki.
Sárt aö tapa svona stórt
„Við vissum það fyrir leikinn að
hann yrði mjög erfiður. Sænska lið-
ið er gífurlega öflugt og það var al-
veg ljóst frá byrjun að við þurftum
að eiga toppleik til að eiga einhverja
möguleika gegn því. Vamarleikur-
inn var í molum og markvarslan
líka og það gengur ekki á móti
svona sterku liði. Ég var hins vegar
nokkuð sáttur við sóknarleikinn.
Hann gekk vel og það er eitthvað
sem er hægt að byggja á. Ég var að
vonast til að við myndum ekki tapa
með meiri mun en fjóram tO fimm
mörkum. Ef það hefði gerst þá væri
staðan allt önnur en nú er ljóst að
það er á brattann að sækja. Við er-
um hins vegar langt frá því að vera
hættir og ég hef enn þá trú á því að
með toppleik og fullu húsi á Nesinu
sé hægt að vinna þetta sænska lið
með átta mörkum eða meira. Þaö
var mikiil munur fyrir strákana að
spOa frammi fyrir sex þúsund
áhorfendur í leiknum í dag, sérstak-
lega þegar horft er á að það mættu
fimmtíu manns á leikinn hjá okkur
gegn Víkingi á miðvikudaginn."
Páll og Davíö bestir
Hamn sagði að PáO Þórólfsson og
Davíð Ólafsson hefðu verið bestu
menn liðsins en sagði jafnframt að
mikið hefði munað um að
Aleksandrs Petersons hefði ekki
náð sér á strik.
„Petersons náði sér því miður
ekki á strik og skoraði sex mörk úr
sextán skotum og það munar um
minna. Hann er burðarás í sóknar-
leik okkar og slæmt þegar hann nær
sér ekki á strik.“
Mörk Sávehof: Kim Andersson 14/1,
Anders Eliasson 6, Anders Henriksson 4,
Jan Lennartsson 4, Tonuny Atterháll 3,
Patrik Fahlgren 2, Erik Fritzson 1.
Mörk Gróttu/KR: Páll Þórólf§son 6,
Davíð Ólafsson 6, Aleksandrs Petersons
6, Magnús Agnar Magnússon 3/1, Gísli
Kristjánsson 2, Sverrir Pálrnason 2,
Kristján Þorsteinsson 1. -ösk
Vlssu ekkl hver ég var
- sagöi stórskytta Sávehof, Kim Andersson, sem skoraði 14 mörk
Sænska stórskyttan Kim Anders-
son fór hamföram í liði Sávehof
gegn Gróttu/KR á laugardaginn.
Hann skoraði fjórtán mörk í öllum
regnbogans litum og sagði eftir
leikinn að hann hefði verið auð-
veldur.
„Þetta var miklu auðveldara
heldur en venjulegur deildarleikur
hér í Svíþjóð. Það var eins og þeir
vissu ekki hver ég var,“ sagði Ánd-
ersson eftir leikinn í viðtali við
sænska dagblaðið Dagens Nyheter.
Blaðamaður Dagens Nyheter seg-
ir í grein sinni að ef orð Anders-
sons séu rétt þá sé það áfellisdóm-
ur yfir undirbúningi Gróttu/KR-
liðsins fyrir leikinn.
Andersson er talinn vera arftaki
Staffans Olsson hjá sænska lands-
liðinu og hefur veriö eftirsóttur
meðal sterkustu liða Þýskalands.
Alfreð Gíslason, þjálfari
Magdeburgar, vildi fá kappann sem
eftirmann Ólafs Stefánssonar en
Sávehof vildi ekki sleppa honum
strax og þvi gekk hann ekki til liðs
við Magdeburg.
Rustan Lundbáck, þjálfari
Sávehof, var nokkuð ánægður með
átta mark sigurinn á Gróttu/KR og
taldi lið sitt eiga góöa möguleika á
því að komast áfram.
„íslenska liðið er gott en við eig-
um að geta spilað betur og því er ég
ekki hræddur við seinni leikinn,"
sagði Rustu Lundbáck eftir leikinn
á laugardaginn. -ósk
Bnhvep hjálpaði
sænska liðinu
- sagöi Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR
Ágúst Jóhannsson, þjálf-
ari Gróttu/KR, sagði í sam-
tali við DV-Sport eftir leik-
inn á laugardaginn að
sænska liðið hefði haft
myndbandsupptökur af leikj-
um Gróttu/KR og undirbúið
sig eftir þeim. Ágúst sagði
jafhframt að einhver af þjálf-
urum í Essodeild karla hefði .
látið Svíana fá spólurnar Agúst
fyrir leikinn. hannsson.
„Það er með ólíkindum
að þjálfari í Essodeildinni
skuli vinna svona á móti
okkur og hjálpa Svíunum í
undirbúningi sínum fyrir
leikinn.
Ég veit eiginlega ekki al-
veg hvað ég á að kalla þetta
en það lyktar af öfund,“
sagði Ágúst ómyrkur í máli
við DV-Sport eftir leikinn á
laugardaginn. -ósk
Sport
Evrópukeppnir í
handknattleik:
Taphja
MagMurg
Evrópumeistarar Magdeburg,
með þá Ólaf Stefánsson og Sigfús
Sigurðsson innanborðs, og Al-
freð Gíslason við stjómvölinn
biðu lægri hlut fyrir spænska
liðinu Portland San Antonio,
22-26, í Bördeland-höllinni í
Magdeburg í gær í fyrri leik lið-
anna í 8-liða úrslitum meistara-
deildar Evrópu í handknattleik.
Magdeburg byrjaði leikinn
betur og leiddi, 4-1, eftir átta
mínútur. Portland San Antonio
komst síðan inn í leikinn og
leiddi í hálfleik, 12-9. Miklu
munaði að Magdeburg missti
stórskyttuna Nened Perunicic af
velli meiddan í fyrri hálfleik og
þurfti hann að fara á sjúkrahús
til aðhlynningar vegna háls-
meiðsla.
Spænska liðiö var mun
sterkara i siðari hálfleik og
leiddi á timabili með sjö mörk-
um. Magdeburg mátti teljast
heppið að hafa náð að minnka
muninn í fjögur mörk áður en
yfir lauk og seinni leikurinn
næstkomandi laugardag á Spáni
verður mjög erfiður fyrir ríkj-
andi Evrópumeistara.
Ólafur Stefánsson var besti
leikmaður Magdeburgar í leikn-
um. Hann skoraði sjö mörk og
var sá eini ásamt Bennet Wigert
sem eitthvað kvað að í sóknar-
leiknum. Sigfús Sigurðsson hafði
hægt um sig í leiknum og skor-
aði eitt mark. Mainer,
Yakimovitsch og Perez voru
markahæstir hjá Portiand San
Antonio með fjögur mörk.
Olsson skoraði átta
Danska liðið Kolding gerði sér
lítið fyrir og lagði hið gríðar-
sterka ungverska lið Fotex
Veszprem, 31-27, í Danmörku.
Prule 67 Ljubljana frá Slóveníu
og Kiel frá Þýskalandi gerðu
jafntefli, 33-33, í Slóveníu.
Svíamir þrír, Staffan Olsson,
Johan Pettersson og Stefán
Lövgren, voru markahæstir hjá
Kiel. Olsson skoraði átta mörk,
Pettersson skoraði sjö mörk og
Lövgren bætti fimm mörkum við
fyrir Kiel sem er með góða stöðu
fyrir seinni leikinn.
RKZagreb frá Króatíu og
Montpellier frá Frakklandi
gerðu einnig jafntefli, 28-28, í Za-
greb. -ósk
Sainz vann
Tyrklandsrallið
Spænski ökuþórinn Carlos
Sainz kom fyrstur í mark í Tyrk-
landsrallinu sem lauk í gær.
Sainz, sem ekur fyrir franska
bílaframleiðandann Citroen, var
47,9 sekúndum á undan Bretan-
um Richard Bums hjá Peugeot.
Francis Duval á Ford varði
þriðji og Bretinn Colin McRae
varð fjórði.
„Ég er mjög sáttur. Ég lagði
mig allan fram í rallinu og það
er gaman að uppskera sigur eftir
það,“ sagði Sainz að keppni lok-
inni.
Richard Bums hefur forystu í
samanlagðri
keppni
raÚöku-
manna en
Colin
McRae kem-
ur næstur,
einu stigi á
eftir Bums.
Richard Burns.