Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Side 6
22
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
Sport
Fram-KA/Þór 25-25
0-1, 3-1,7-3,9-6,11-9,13-11, <13-13), 14-13,
16-14, 13-16, 21-19, 22-22, 24-25, 25-25.
Frarn:
Mörk/viti (skot/viti): Rósa Jónsdóttir
8/2 (14/3), Þórey Hannesdóttir 5 (6), Guð-
rún Þóra Hálfdánardóttir 3/1 (5/2), Ásta
Bima Gunnarsdóttir 3/1 (9/2), Anna Mar-
ía Sighvatsdóttir 2 (3), Linda Björk Hilm-
arsdóttir 2 (5), Siguríina Freysteinsdóttir
1 (1), Katrín Tómasdóttir 1/1 (3/2), Elísa
Ósk Viðarsdóttir (1/1).
Mörk úr hradaupphlaupum: 1 (Anna
María). Vitanýting: Skorað úr 5 af 10.
Fiskuú viti: Anna María 3, Guðrún Þóra
3, Ásta 2, Katrín, Sigurllna.
Varin skot/viti (skot á sig): Guðrún
Bjartmarz 14/1 (39/7, hélt 5, 36%).
Brottvisanir: 6 mlnútur.
Dómarar (1-10):
Hilmar
Guölaugsson og
Svavar
Pétursson (8).
Gϗi leiks
(1-10): 6.
Áhorfendur: 25.
Best á vellinum:
Inga Dís Siguröardóttir, KA/Pór
KA/Þór:
Mörk/viti (skot/viti): Inga Dis Sigurðar-
dóttir 9/6 (17/7), Ásdís Sigurðardóttir 7
(16), Guðrún Helga Tryggvadóttir 3 (3),
Sandra Kristín Jóhannesdóttir 3 (5),
Katrín Andrésdóttir 1 (1), Elsa Birgisdótt-
ir 1 (1), Martha Hermannsdóttir 1 (2),
Eyrún Gígja Káradóttir (1).
Mörk úr hraúaupphlaupum: 1 (Katrin).
Vitanýting: Skorað úr 6 af 7.
Fiskuú viti: Guðrún Helga 4, Ásdís,
Martha, Inga Dis.
Varin skot/víti (skot á sig); Sigurbjörg
Hjartardóttir 9/3 (28/8, hélt 4, 32%, víti í
stöng), Elísabet Malmberg Amarsdóttir 1
(8, hélt 0,13%, víti i stöng).
Brottvisanir: 6 minútur.
Essodeild kvenna:
Jafntefií
botnslag
- langþráð stig hjá
Fram og KA/Þór
Leikur Fram og KA/Þórs í
efstu deild kvenna í handbolta
endaöi með jafntefli, 25-25, á
fostudagskvöld.
Framstúlkur voru alltaf skref-
inu á undan allan leikinn en
gestirnir hleyptu þeim aldrei
langt frá sér og uppskáru jafn-
tefli og hefðu jafnvel getað stolið
sigrinum í lokin. Þær fengu síð-
ustu sókn leiksins en náðu ekki
að skora úr henni og því varð
jafntefli niðurstaöan. Heima-
stúlkur byrjuðu leikinn betur og
höfðu yfir allan fyrri hálfleik.
Gestimir jöfnuðu rétt fyrir hlé
og þannig stóö leikurinn i hálf-
leik. Síðari hálfleikur var líkur
þeim fyrri hvað það varðaöi að
Fram leiddi leikinn.
Heimastúlkur jöfnuöu
KA/Þór komst yfir í annað
sinn í leiknum i stöðunni 24-25
en heimastúlkur jöfnuðu og síð-
asta sókn gestanna bar ekki ár-
angur.
Bæði lið voru greinilega búin
að sætta sig við það hlutskipti að
vera i neðstu sætum deiidarinn-
ar. Leikurinn bar þess merki og
var fátt um fína drætti hjá leik-
mönnum liðanna.
Það var einna helst Inga Dís
Sigurðardóttir, KA/Þór, sem var
sérlega atkvæðamikil í síðari
hálfleik og skoraði átta mörk,
þar á meöal fjögur síðustu mörk
Akureyrarliðsins í leiknum.
Hjá Fram var þaö Guðrún
Bjartmarz markvörður sem stóð
sig einna best.
Langþráö stig
Þetta var langþráð stig hjá
báðum liöum, Fram hafði tapað
13 leikjum í röö og ekki fengið
stig síðan í okóber og KA/Þórs-
liðið haföi tapað átta leikjum í
röð en liðið vann síðasta leik
gegn Fram 18. desember. -MOS
- sigraði Stjörnuna, 26-23, á föstudagskvöld í Essodeild kvenna
Harpa Ðogg
Vifiisdöttir skorar
hér eitt sjö marka
sínna gegn
Stjörnunni á
föstudagskvöldiö.
DV-mynd Sigurður
FH sigraði Stjömuna 26-23 í Esso-
deild kvenna í Kaplakrika á föstu-
dagskvöldið. Sigur FH-stúlkna var
sanngjam og Stjömustúlkur áttu
aldrei möguleika gegn baráttuglöð-
um Hafnfirðingum.
Stjaman byrjaði samt leikinn betur
en í stöðunni 2-4 tóku FH-stúlkur við
sér í vörninni og eftir að Jolenta
Slapieken, markvörður FH, skoraði og
jafhaði leikinn í 4-4 náöu heimamenn
yfírhöndinni í leiknum. Stjaman átti
möguleika á að jafna í stöðunni 7-6 en
Amela Hegic misnotaði vítakast og FH
náði að auka forskot sitt í 9-6. Eftir
það höfðu FH-stúlkur ávallt yfirhönd-
ina og vora yfir 17-13 í hálfleik.
FH hélt forskoti sinu í síðari hálf-
leik en þegar um fimm mínútur vom
eftir var staðan 26-23 og fengu gest-
irnir hraðupphlaup sem Jolanta
varði og við tóku fjöragar lokamínút-
ar þar sem hvoragu liðinu tókst að
skora; úrslitin vora ráðin og FH
vann verðskuldaðan og öraggan sig-
bær stig. Væntanlega er þetta liðið
sem við fáum í átta liöa úrslitunum
og þetta styrkir trú mína að við séum
með samkeppnishæft lið við þau þrjú
lið sem eru efst.
Við þurfum að spila góða leiki,
jafnt sókn sem vörn, og þær era að fá
meiri reynslu fyrir leiknum. Þetta
eru ungar stelpur og eiga skilið að fá
þessi stig þegar þær era að leika
svona,“ sagði Einvarður Jóhannsson,
þjálfari FH, að leik loknum en FH-
liðið hefur nú unnið fimm af síðustu
sex deildarleikjum sínum.
í liði FH átti Jolanta Slapieken góð-
an leik í markinu og í sókninn voru
þær Harpa Vífilsdóttir og Björk Æg-
isdóttir atkvæðamestar. Vörn FH-
inga var mjög sterk og ailir leikmenn
liðsins börðust af krafti.
Hjá Stjörnunni varði Jelena
Jovanovic vel í markinu en það dugði
ekki til. Elísabet Gunnarsdóttir átti
fin tilþrif en annars áttu Stjörnu-
stúlkur fá svör við góðum leik FH en
þetta var aöeins annað tap liðsins
eftir áramót. -ÞAÞ
ur.
„Þetta var mjög góður sigur og frá-
FH—Stjarnan 26-23
0-1, 2-4, 6-4, 9-6,13-9, (17-13), 17-14, 20-15, 21-18,
25-19, 26-23.
FH:
Mörk/viti (skot/viti): Harpa Dögg Vífilsdóttir 7
(12), Björk Ægisdóttir 6/3 (13/3), Eva Albrecht-
sen 5 (9), Berglind Björgvinsdóttir 4 (4), Dröfii
Sæmundsd. 2 (10), Jolanta Slapikiene 1 (1), Sig-
urlaug Jónsd. 1 (2), Sigrún Gilsd. (1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Eva 3, Harpa
Dögg 2). Vitanýting: Skoraö úr 3 af 3.
Fiskud viti: Harpa, Berglind, Eva.
Varin skot/víti (skot á sig): Jolanta Slapikiene
16/1 (38/7, hélt 6, 42%, eitt vítí í stöng, eitt vítí
yfir), Kristín María Guöjónsdóttir 0 (1/1, 0%).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Stjarnan:
Mörk/víti (skot/víti): Elísabet Gunnarsdóttir
6/1 (10/1), Amela Hegic 4/3 (9/4), Margrét Vil-
hjálmsdóttir 3 (6), Hind Hannesdóttír 3/1 (10/1),
Svanhildur Þengilsdóttir 2 (3), Rakel Dögg
Bragadóttir 2 (3/1), Sólveig Lára Kjærnested 1
(1), Kristin Jóhanna Clausen 1 (1), Jóna Margrét
Ragnarsdóttir 1 (5/1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Rakel Dögg,
Margrét, Svanhildur).
Vitanýting: Skoraö úr 5 af 8.
Fiskuö viti: Elísabet 2, Sólveig Lára 2, Margrét,
Rakel Dögg, Hind, Kristín Jóhanna.
Varin skot/viti (skot á sig): Jelena Jovanovic
14 (40/3, hélt 5, 35%).
Brottvisanir: 2 mínútur.
Dómarar (1-10):
Ingi Már
Gunnarsson og
Þorsteinn
Guönason (7).
Gϗi leiks
(1-10): 8.
Áhorfendur: 120.
Best a vellinum:
Jolanta Slapikiene, FH
Hristu af sér bikartap
~ Eyjastúlkur unnu sjö marka útisigur á Valsstúlkum
Eyjastelpur voru ekki lengi að
hrista af sér bikartapið gegn Haukum.
Á laugardaginn sigraði liðið Vals-
stelpur, 16-23, á Hlíðarenda, í nokkuð
kaflaskiptum leik.
Nær deildarmeistaratitli
Þar með færðist liðið enn nær því
að hampa deildarmeistaratitlinum en
það hefur ekki tekist áður. Það var
hörkuslagur í fyrri háifleik og ekkert
gefið eftir. Gestimir voru oftast á und-
an en heimastelpur gáfu alltaf hressi-
lega í með reglulegu millibili.
I hálfleik stóðu leikar jafnir, 9-9, og
allt útlit fyrir spennandi síðari hálf-
leik. Sú varð og raunin fyrstu ellefu
mínútur hálfleiksins en þá fór leikur-
inn að snúast Eyjastelpum í hag. 6-0
vöm þeirra varð smám saman þéttari
og þeim tókst að loka vel á línuspil
Valsstelpna og í kjölfarið kom hrina
af hraðaupphlaupum.
Þar fór fremst í flokki Anna Yakova
og staðan breyttist úr 13-14 í 13-19. Þá
voru aðeins sjö mínútur til leiksloka
og úrslitin því nánast ráðin. Á þess-
um kafla sýndi lið ÍBV hvers vegna
toppsætið er þeirra. Frábær vöm og
markvarsla og örugg og vel útfærð
hraðaupphlaup era jú lykillinn að
góðu gengi í þessari íþróttagrein.
Hjá Eyjastelpum lék Ingibjörg Jóns-
dóttir geysivel. Greip það sem að
henni var kastað og fiskaði þrjú víti.
Þá lék hún virkilega vel í vöminni og
gaman var aö sjá nokkrar glæsOegar
sendingar sem hún átti við mjög erfið-
ar og lokaðar aðstæður.
Anna Yakova var mjög sterk, bæði
í vöm og sókn, og hún verður ekki
auðveldlega stoppuð þegar hún brun-
ar í hraðaupphlaupin. Vigdís Sigurð-
ardóttir var traustið uppmálaö í
markinu og hún varði meðal annars
ein þrjú víti. Sylvia Strass átti marga
góða spretti og hún er mjög lunkin í
gegnumbrotum og í heildina séð mjög
skynsamur leikmaður. Alla Gokorian
stóð fyrir sínu og opnaði vel fyrir
aðra leikmenn auk þess sem hún er
alltaf vakandi fyrir línuspili. Vals-
stelpur léku vel í um það bil fjörutíu
mínútur en héldu ekki dampi eftir
þær. Berglind íris Hansdóttir átti
mjög góðan leik í markinu og Hafran
Kristjánsdóttir lék mjög vel í fyrri
hálfleik en var nánast lokuð úti í
þeim seinni. Drífa Skúladóttir átti
frekar erfitt uppdráttar en skoraði
engu að siður nokkur glæsileg mörk.
Besti leikmaður vallarins að þessu
sinni, harðjaxlinn Ingibjörg Jónsdótt-
ir, hafði þetta að segja í samtali við
DV-Sport eftir leik:
Allt annaö í seinni
• „Það var eitthvert stress í gangi hjá
okkur í fyrri hálfleik og vamarleikur-
inn var ekki að spilast vel. í seinni
hálfleik var allt annað uppi á teningn-
um, einbeitingin var miklu betri sem
og vamarleikurinn og þá komu hraða-
upphlaupin í kjölfarið og góður sig-
ur,“ sagði Ingibjörg. -SMS
UaluHBU 16-23
0-1, 3-2, 3-6, 6-6, 6-8, 3-8, 9-6, (9-9), 9-10,
12-12, 13-14, 13-19, 14-21, 16-22, 16-23.
Valur:
Mörk/viti (skot/viti): Drífa Skúladóttir 6/2
(20/3), Hafrtin Kristjánsdóttir 3 (4), Ama
Grímsdóttir 2 (3), Sigurlaug Rúnarsdóttir 2
(8), Kolbrún Franklín 2 (10/1), Elfa Björk
Hreggviösdóttir 1 (1), Díana Guöjónsdóttir
(1/1), Anna María Guömundsdóttir (2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Ama 2,
Elfa Björk, Kolbrún).
Vitanýting: Skoraö úr 2 af 5.
Fiskuó víti: Hafrún 2, Díana 2, Sigurlaug.
Varin skot/viti (skot á sig): Berglind Iris
Hansdóttir 18/2 (41/7, hélt 7, 44%).
Brottvisanir: 0 mínútur.
Dómarar (1-10):
Júlíus
Sigurjónsson og
Magnús
Bjömsson (8).
Gϗi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 55.
Ðest á vellinum:
Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV
iBV:
Mörk/viti (skot/viti): Alla Gokorian 6/4
(11/5), Anna Yakova 6 (14), Sylvia Strass 4
(6), Ingibjörg Jónsdóttir 2 (3), Birgit Engl
2/1 (3/2), Elísa Siguröardóttir 1 (1), Aníta Yr
Eyþórsdóttir 1 (1), Anna Rós Hallgrimsdótt-
ir 1 (1), Helle Hansen (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 8 (Yakova 4,
Ingibjörg 2, Srass 2).
Vitanýting: Skoraö úr 5 af 7.
Fiskuó viti: Ingibjörg 3, Strass 2, Gokorian,
Yakova.
Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís
Siguröardóttir 17/3 (33/5, hélt 8, 52%).
Brottvisanir: 4 mínútur.
I
I
f