Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Síða 10
26 MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 Sport flnnað sætifl trvant - hjá Keflavík og efsta sætiö enn þá möguleiki missi Grindavík flugið Keflavík tryggöi sér annaö sætið í Intersport-deildinni í gærkvöld með því að leggja Breiðablik, 73-93, í Smáranum. Á sama tima og Kefla- vik sigraði Blika töpuðu KR-ingar fyrir Njarðvík og því geta Keflvík- ingar ekki oröið neðar en í öðru sæti. Þeir eiga enn þá möguleika að ná efsta sætinu af Grindavík en til þess að það takist þarf Grindavik að tapa fyrir Haukum í kvöld og síðan fyrir Hamri á fimmtudaginn. Sjálfskarfa hjá Ðlikum Með ósigrinum misstu Blikar endanlega af sæti í úrskitakeppn- inni en með sigri hefði verið enn von. Keflvíkingar höfðu tögl og hagldir í þessum leik og komust mest 16 stigum yfir í fyrri hálfleik, 20-36. Sami munur var í hálfleik, 31-47, en Blikar urðu fyrir því óláni að gera sjálfskörfu á lokasekúndu fyrri hálíleiks. Keflvíkingar héldu áfram að bæta við forskotið í seinni hálfleik með pressuvöm og leiddu með 25 stigum um tíma, 46-71. Þá bitu Blikar loks- ins í skjaldarrendur og byrjuðu að saxa á forskot Keflavíkur. Það kom þó einfaldlega of seint og Keflvík- ingar fóru með öruggan 15 stiga sig- ur af hólmi. Damon öflugur aö vanda Damon Johnson var sem fyrr bestur í liði Keflavíkur. Hann og Edmund Saunders voru inni á nán- ast allan leikinn, sama hver staðan var og voru miðpunkturinn í leik liðsins. Aðrir leikmenn skipta meö sér þeim rúmum 120 mínútum sem eftir eru. Sverrir Sverrisson var sterkur og sama má segja um flesta leikmenn liðsins. Það er nánast sama hver er inni á, liöið veikist ekkert. Hjá Breiðabliki voru erlendu leik- mennimir, þeir Mirko Virijevic og Kenny Tate, atkvæðamestir. Blikar áttu stundum í basli með svæðis- vöm Keflavíkur til að byrja með en í fjórða leikhluta fóru Blikar að leita meira inn í teig í stað þess aö skjóta mikið fyrir utan þar sem hittnin fyrir utan var ekki góð. Héldum liaus á viðkvæmum timum - sagöi Eggert Garöarsson, þjálfari ÍR, eftir sigur á Snæfelli í framlengingu ÍR-ingar gerðu góða ferð í Stykkishólm í gær og unnu, 86-89, eftir framlengdan leik en iR-ingar léku án bandarísks leikmanns síns, Eugene Christopher sem er meiddur. Leikurinn var jafn allan timann og aldrei munaði meira en 8 stigum á liöunum. Sigurbjöm Þórðarson og Clifton Bush komu sterkir til leiks hjá heimamönnum og Sigurður Á. Þorvaldsson hjá ÍR. Þá byrjuðu dómararnir bara vel og fln tilfinn ing í öllum í húsinu eftir fyrsta leik hluta. Bæði lið söknuðu meiddra leik manna. Jón Ólafur Jónsson lék ekki með Snæfelli og Eugene Christoph er var úr leik hjá ÍR. Sama baráttan var uppi á ten ingnum í öðrum hluta en heima- menn skópu sér þá 8 stiga forskot um miðbikið en ÍR náði að éta það upp og komast tveimur yfir fyrir hálfleik. Þar munaði mest um að Helgi Reynir Guömundsson og Hlynur Bæringsson sátu og hvíldu sig á þeim tíma. í þriðja hluta léku ÍR-ingar held- ur betur og refsuðu heimamönnum jafnóðum og þeir gerðu mistök. Endasprettur leikhlutans var þó Snæfells sem náði að minnka mun- inn í 3 stig, mest fyrir atbeina Cliftons Bush sem átti stórleik. Helgi meiöist Helgi Reynir Guömundsson, leik- stjóri Snæfefls, hljóp á vamarmann í blálokin og meiddist og kom ekki meira við sögu, „svo heldur fór að þynnast flandaflokkur” ÍR-inga og þyngjast róður heimamanna. Sú tilfinning undirritaðs að dóm- aramir væm að missa tökin á leiknum í þriðja leikhluta dofnaði þegar lokahlutinn hófst því þeir tóku á sig rögg, þó ekki væru leik- menn alltaf sáttir við niðurstöður þeirra úr því. Snæfell skoraði 8 fyrstu stigin og komust yfir en ÍR svaraði með tveimur körfum og jafn- aði, 68-68. Svo tóku þeir sprett og höfðu yfir, 72-77, þegar rétt tæpar 2 mínútur voru eftir. Clifton skoraði úr einu víti og Andrés Heiðarsson gerði tvær síð- ustu körfumar og tryggði heima- mönnum framlengingu. Gestirnir höföu frumkvæði í upp- hafi hennar, en Hlynur kom Snæfelli yfir, 80-79, þegar Sigurður Þorvalds- son braut á honum og fékk sína fimmtu villu. Strax á eftir var dæmd ásetningsvilla á Hlyn, sem stöðvaði Eirík Önundarson í sniðskoti. Eirik- ur nýtti bæði vítin og skoraði tvö sig strax þar á eftir og staðan þá 80-83. Þennan mun náðu heimamenn aldrei að brúa, mest vegna mistaka sinna á vítalínunni, því Snæfell misnotaöi fimm vítaskot í framlengingunni en iR tvö. Eiríkur landaöi sigrinum Eiríkur Önundarson tók leikinn í sínar hendur í framlengingunni og landaði sigrinum fyrir ÍR. Sigurður Þorvaldsson átti mjög góðan leik og Hreggviður Magnússon og Ómar Sævarsson léku lika vel, sem og aðr- ir ÍR-ingar, liðsheildin var þétt og lið- ið bætti sér missi Eugene Christoph- er upp með aukinni baráttu hinna. Clifton Bush lék feiknalega vel fyr- ir heimamenn og Hlynur Bæringsson átti líka góðan dag. Sigurbjörn Þórð- arson og Andrés Heiðarsson stóðu sig með ágætum og Helgi Reynir Guðmundsson var í góðum gír, með- an hans naut við. Gæöasigur „Ég var ánægður með að mínir menn héldu haus á viðkvæmum augnablikum, en brotnuðu ekki. Þetta er gæðasigur hérna á erfiðum útivelli, án Eugene Christophers." sagði Eggert Garðarsson, þjálfari ÍR, að leik loknum. -HÞ Breiöablik-Keflavík 78-93 2-0, 6-2, 6-11, 11-19, 13-24, (18-24), 18-27, 20-36, 27-38, 2943, (31-47), 33-47, 39-60, 46-60. 47-71, (50-73), 53-76, 61-76, 61-83, 67-83, 71-85, 77-88, 78-93 Stig Breióabliks: Kenny Tate 27, Mirko Virijevic 22, Loftur Einarsson 9, Pálmi Sigurgeirsson 9, ísak Einars- son 6, Ágúst Angantýsson 3, Friðrik Hreinsson 2. Stig Keflavikur: Damon Johnson 35, Edmund Saunders 17, Gunnar Ein- arsson 11, Magnús Gunnarsson 8, Fal- ur Harðarson 7, Sverrir Sverrisson 6, Guðjón Skúlason 3, Gunnar Stefáns- son 3, Jón Hafsteinsson 1. Dómarar (1-10): Rögnvaldur Hreið- arsson og Karl Friðriksson, (7). Gœói leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 150. Ma&ur leiksins: Damon Johnson, Keflavfk Fráköst: Breiðablik 38 (15 í sókn, 23 í vöm, Tate 11, Mirko 11), Keflavik 29 (5 í sókn, 24 1 vöm, Saunders 14). Stoðsendingar: Breiðablik 21 (Tate 6), Keflavík 15 (Damon 5). Stolnir boltar: Breiðablik 15 (Tate 3, Mirko 3, Pálmi 3, Friörik 3), Keflavík 10 (Jón 3). Tapaóir boltar: Breiðablik 24, Keflavík 20. Varin skot: Breiöablik 3 (Tate, ísak, Ágúst), Keflavlk 13 (Sverrir 6). 3ja stiga: Breiðablik 18/4, Keflavik 17/8. Víti: Breiðablik 13/12, Keflavík 28/23. Skallagrímur-Hamar 77-81 0-6, 3-11, 7-19, 11-22, (14-24), 17-24, 23-24, 27-32, 34-34, (35-38), 37-45, 4949, 50-52, 54-57, (57-57), 61-59, 64-59, 69-63, 71-69, 77-81. Stig Skallagrims: JoVann Johnson 30, Darko Ristic 15, Egill Ö. Egilsson 14, Pétur M Sigurösson 6, Milosh Ristic 5, Finnur Jónsson 5, Hafþór Gunnarsson 2. Stig Hamars: Keith Vassel 32, Marvin Valdimarsson 24, Lárus Jónsson 16, Hallgrimur Brynjólfsson 4, Pétur Ingvarsson 3, Svavar Tálsson 2. Dómarar (1-10): Kristinn Óskars- son og Björgvin Rúnarsson (8.). Gœói leiks (1-10): 4 Áhorfendur: 350. Maöur leiksins: Marvin Valdimarsson, Hamri Fráköst: Skallagrimur 36 (4 í sókn, 32 i vöm, Johnson 12), Hamar 42 (13 i sókn, 29 í vöm, Marvin 13). Stoósendingar: Skallagrímur 17 (Valur 4), Hamar 14 (Lárus 10). Stolnir boltar: Skallagrímur 9 (Johnson 3), Hamar 14 (Pétur 4). Tapaóir boltar: Skallagrímur 15, Hamar 15. Varin skot: Skallagrímur 2 (D. Ristic, Johnson), Hamar 4 (Vassell 2). 3ja stiga: Skallagrímur 27/6, Hamar Viti: Skallagrímur 31/18, Hamar 30/19. Svaitup dagup i sögu Skallagríms - féll úr úrvalsdeildinni annaö áriö í röö í Borgarnesi í gær Skallagrímur tók á móti Hamars- mönnum í Intersportdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld í sann- kölluðum botnbaráttuslag. Tap þýddi að Skallagrimur félli í 1. deild og því miður fyrir áhugasama Borgnesinga varð það niðurstaðan. Hamarsmenn fóru með sigur af hólmi, 81-77, í jöfnum og spennandi leik. Svartur dagur fyrir körfuboltann í Borgarnesi og sá vafasami heiður aö falla úr úrvalsdeild í 2 ár. Mikil taugaspenna ríkti i íþrótta- húsinu í Borgarnesi enda geysilega mikflvægur leikur fyrir bæði lið og það voru gestimir sem náðu fyrst að hrista af sér skrekkinn og ná strax 10 stiga forskoti sem þeir héldu út fyrsta fjórðung. Ekki voru liðnar nema tæpar tvær mínútur af öðrum leikhluta þegar Skaflagrímsmenn voru búnir að jafna leikinn en það voru gest- imir sem leiddu með þremur stig- um í hálfleik og munaði þar mest um Marvin og Vassel sem voru búnir að gera 33 af 38 stigum gest- anna. í þriðja hluta var jafnræði meö liðunum, þau skiptust á að hafa for- ystu og í lokin vora liðin jöfn, 57-57. í fjórða leikhluta komu heimamenn mun ákveðnari til leiks og allt leit út fyrir að Skafla- gríms-menn ætluðu að halda lífi sínu í deildinni en á lokamínútun- um snerist leikurinn gestunum i vil sem unnu ótrúlega naumam baráttusigur í lokin. „Þetta var ótrúlegur baráttuleik- ur sem kom líkast til niður á gæð- um körfuboltans enda geysimikið í húfi fyrir bæði lið og nú horfum viö óvænt fram á það að eiga mögu- leika á sæti í úrslitakeppninni þrátt fyrir hörmulega lélegan vet- ur,“ sagði Pétur Ingvarsson, þjálf- ari Hamars, glaðbeittur í lok leiks. Bestu menn Skallgríms voru Egill Öm Egilsson og Finnur Jónsson sem áttu góðan dag en þrátt fyrir að JoVanni Johnson gerði 30 stig gekk leikur Skallagríms best er hann var hvíldur. Bestu menn Hamars voru Marvin, Vassel og Lárus sem vora allt í öflu. -Rag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.