Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Síða 11
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
27
Sport
K A R L A R
:zr
INTERSPORíT.DEILr
Staðan:
Grindavík 20 16 4 1855-1691 32
Keflavík 21 16 5 2105-1760 32
KR 21 15 6 1874-1721 30
Haukar 20 14 6 1812-1712 28
Njarövík 21 12 9 1742-1755 24
TindastóU 21 11 10 1871-1868 22
ÍR 21 11 10 1831-1883 22
SnæfeU 21 8 13 1689-1706 16
Breiðablik 21 7 14 1890-1974 14
Hamar 21 7 14 1896-2046 14
SkaUagr. 21 4 17 1725-1923 8
Valur 21 4 17 1697-1948 8
Næstu leikir:
Grindavík -Haukar . í kvöld kl. 19.15
Haukar-KR .. fim., 6. mars kl. 19.15
Keflavík-SnæfeU . . 6. mars kl. 19.15
Hamar-Grindavík . 6. mars kl. 19.15
Njarðvík-Breiðablik 6. mars kl. 19.15
Valur-Skallagrímur 6. mars kl. 19.15
ÍR-TindastóU.......6. mars kl. 19.15
Skallagrimur og Valur eru faUin í
1. deUd.
Breióablik, Hamar og Snœfell eiga
öU möguleika á áttunda sætinu f
úrslitakeppninni.
KR-Njarðvík 80-89
0-4, 2-21, (12-21), 14-21, 19-25, 24-30, 3040,
(35-49), 38-49, 40-59, 45-63, 50-69, (56-71),
56-77, 66-81, 75-83, 80-89.
Stig KR: DarreU Flake 28, Baldur
Ólafsson 14, Herbert Amarson 12,
Magni Hafsteinsson 7, Amar Kárason
6, Skarphéðinn Ingason 4, Jóel
Sæmundsson 3, Jóhannes Ámason 3,
Óðinn Ásgeirsson 3.
Stig Njarðvikur: Gregory Harris 25,
Teitur Örlygsson 21, PáU Kristinsson
16, Ólafur Ingvason 11, Friðrik
Stefánsson 7, HaUdór Karlsson 5,
Þorsteinn Húnfjörð 4.
Dómarar (1-10):
Leifur Garöarsson
og Bjami G. Þ6r-
mundsson (8).
Gœii leiks
(1-10): 8.
Áhorfendur: 250.
Maður leiksins:
Teitur Örlygsson, Njarðvík
Fráköst: KR 39 (11 i sókn, 28 í vöm,
Flake 12), Njarðvík 30 (6 í sókn, 24 i vöm,
Friðrik 10)
Stoðsendingar: KR 17 (Baldur 5),
Njarðvík 20 (Harris 7, Teitur 7).
Stolnir boltar: KR 4 (Magni 2), Njarðvík
19 (Teitur 7, Páll 5).
Tapaðir boltar: KR 23, Njarðvík 15.
Varin skot: KR 3 (Magni, Baldur, Flake),
Njarðvík 3 (Friðrik 2).
3ja stiga: KR 23/7, Njarðvík 18/5.
Víti: KR 21/17, Njarðvík 36/26.
Snæfell-ÍR 86-89
54, 12-6, 19-15, 24-19, 25-25 (27-28) 31-28,
40-32, 42-38, (4244) 4348, 49-53, (60-63)
68-63, 72-73, 72-77, (77-77), 78-79, 80-79,
82-83, 83-85 (86-89).
Stig Snœfells: Clifton Bush 30,
Hlynur Bæringsson 20, Sigurbjöm
Þórðarson 11, Andrés M. Heiðarsson
9, Helgi R. Guðmundsson 6, Lýður
Vignisson 5, Atli Sigurþórsson 5.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 34,
Sigurður Á. Þorvaldsson 20,
Hreggviður Magnússon 16, Ómar
Sævarsson 12, Ólafur Sigurðsson 5,
Fannar Helgason 2.
Dómarar (1-10):
Sigmundur Her-
bertsson og Eggert
Aðaisteinsson (7).
Gœði leiks
(1-10): 8.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins:
Eiríkur Önundarson, ÍR
Fráköst- Snæfell 39 (14 í sókn, 25 í
vöm, Hlynur 12, Bush 10), ÍR 29 (6 í
sókn, 23 1 vöm, Siguröur 11)
Stoðsendingar: Snæfell 17 (Bush
5), ÍR 14 (Ólafúr Jónas 5).
Stolnir boltar: Snæfell 9 (Hlynur
4), tR 11 (Hreggviður 4).
Tapaðir boltar: Snæfell 12, tR 10.
Varin skot: Snæfell 3 (Helgi, Bush,
Hlynur), ÍR 1 (Hreggviður).
3ja stiga: Snæfell 24/6, ÍR 19/9.
Víti: Snæfell 28/16, ÍR 21/16.
- gerði gæfu-
muninn hjá
Njarðvíking-
um gegn KR
Njarðvík sigraði KR, 89-80, í
DHL-höllinni í Intersportdeildinni í
körfubolta í gærkvöld. Eftir að hafa
komist í 21-2 á fyrstu mínútum
leiksins höfðu þeir sanngjaman
sigur í skemmtilegum en frekar
hörðum leik. Þetta tap þýðir það að
leikur KR við Hauka úti á Ásvöll-
um á fimmtudag er úrslitaleikur
um þriðja sætið í deildinni.
Það voru gestimir sem byrjuðu
miklu betur í gærkvöld og komust
í 21-2 með sterkum vamarleik og
auðveldum körfum úr hraðaupp-
hlaupum. Heimamenn töpuðu bolt-
anum oft og virtust þar að auki
eiga í verulegum erfiðleikum með
að koma boltanum í körfuna þótt
þeir fengju upplögð tækifæri til að
koma honum þangað.
Aðeins lagaðist það undir lok
fyrsta fjórðungs og enn náðu þeir
að minnka muninn í upphafi ann-
ars fjórðungs. En þegar Baldur
Ólafsson var tekinn út af, kominn
með þrjár villur, dró aftur í sundur
meö liðunum. Gríðarleg barátta
var og oft sáust glæsileg tilþrif í
fyrri hálfleik.
í siðari hálfleik hélt sama barátt-
an áfram. Njarðvíkingar vora alltaf
að auka muninn og virtist forskot
þeirra vera fremur þægilégt. Leik-
menn KR gerðu síðan harða atlögu
að þeim í síðasta fjórðungi leiksins
en komust aldrei í þá stöðu að ógna
gestunum verulega.
Sigurinn féll því í skaut íslands-
meisturum Njarvíkur sem era í
þægilegri stöðu til að tryggja sér
fimmta sætið í deildinni fyrir síð-
ustu umferðina. En þar eiga þeir
heimaleik gegn Breiðabliki sem
ekki kemst í úrslitakeppnina. ÍR og
Tindastóll era síðan tveimur stig-
um á eftir Njarðvík en eiga inn-
byrðis viðureign í síðustu umferð-
inni.
Hjá KR skoraði Darrell Flake 28
stig en var samt í gríðarlega
strangri gæslu allan tímann. Bald-
ur Ólafsson átti einnig góða spretti
en aðrir leikmenn liðsins vora að
spila undir getu.
Hjá Njarðvík átti Teitur örlygs-
son góðan leik en var greinilega
orðinn lúinn í lokin eftir að hafa
spilað allar 40 mínútur leiksins.
Aðrir leikmenn liðsins skiiuðu
mjög góðum leik. Vamarleikur
liðsins var sterkur og unnu allir
hver fyrir annan eins og góðu liði
Njarðvíkingurinn síungi Teitur
Örlygsson keyrir hér fram hjá KR-
ingnum Herbert Arnarsyni í leik
liöanna í Intersportdeildinni í KR-
heimilinu í gærkvöld. DV-mynd Hari
sæmir. í sóknarleiknum var áber-
andi hversu mikið sjálfstraust menn
höfðu. Voru óhræddir við að reyna
að sækja á körfuna með góðum ár-
angri.
„Ég er mjög óánægður með áræðni
leikmanna í byrjun leiks. Einstak-
lingsframtak vantaði en að sama
skapi verður liðið að vera nógu and-
lega sterkt til að vinna sig aftur inn í
leikinn. Lið hafa lent í verri aðstöðu
en þetta en það vantaði bara einhverja
trú hjá okkur,” sagði Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari KR, eftir leikinn.
„Við spiluðum góðan körfubolta-
leik í kvöld. Við komum gríðarlega
vel stemmdir til leiks og komumst i
21-2 í byrjun sem eru ótrúlegar tölur
og kom okkur á óvart. Það fór
auðvitað mikill kraftur hjá þeim í að
reyna að minnka muninn en eftir-
leikurinn var eiginlega auðveldur og
þetta var aldrei í hættu hjá okkur í
kvöld. Við héldum haus allan tímann
og ég er ánægður með það,” sagði
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarð-
víkur. -MOS
85-85(90-86)
Tindastóll mætti Valsmönnum á Sauðárkróki í gærkvöld:
Naumup sigup
- heimamanna sem kláruðu leikinn á síðustu mínútunni
Tindastólsmenn lentu í kröppum
dansi á Króknum í gærkvöld þegar
Valsmenn komu í heimsókn. Þó svo
að Hlíðarendapiltar væra nánast
fallnir börðust þeir hetjulega í
leiknum og vora hársbreidd frá því
að leggja Stólana á sínum sterka
heimavelli í Sikinu. Þó fór svo að
lokum að Tindastóll bar sigur úr
býtum, 90-86 eftir æsispennandi
lokamínútur.
Tindastólsmenn byrjuðu betur í
leiknum og vora komnir með mjög
góða stööu strax eftir fyrsta leik-
hluta, fimmtán stiga mun, en til að
byrja með skoraðu aðeins tveir
menn stigin hjá Val, Pryor 11 og
Ægir 5, í fyrsta leikhluta.
Kristinn Friðriks og Cook vora
mjög atkvæðamiklir fyrir Stólana á
þessum kafla, Kristinn með 13 og
Cook 12.
Valsmenn náöu sér heldur á strik
í öðrum leikhluta, minnkuðu
miminn og í hálfleik var staðan
50-40 fyrir Tindastól.
Heimamenn byrjuöu seinni hálf-
leikinn svo afleitlega og Valsmenn
gengu á lagiö með mikiili baráttu og
náðu smám saman að vinna upp
muninn. Ólafur Ægisson jafnaði svo
fyrir Valsmenn með tveimur
þriggja stiga körfum á síðustu and-
artökunum I þriðja leikhluta.
Síðasti leikhluti var æsispenn-
andi og þótt Tindastólsmenn næðu
aö halda frumkvæðinu var það ekki
fyrr en á síðustu 40 sekúndum leiks-
ins sem þeir náðu að knýja fram sig-
urinn. Kristinn og Cook bragðust
ekki á vítalínunni undir lokin og
Tindastólsmenn fógnuðu sigri,
90-86.
Hjá Tindastóli var Kristinn þjálf-
ari Friöriksson besti maður, en þeir
Adropov og Cook voru mjög góðir.
Þá börðust þeir Helgi Rafn
Viggósson og Óli Barðdal vel.
Hjá Val var Pryor besti maður og
Evaldas fimasterkur. Ægir sýndi
mjög góðan leik og Bjarki stóð fyrir
sínu. Þá áttu þeir Ólafúr Ægisson,
Bamaby og Ragnar Steinsson góða
spretti. -ÞÁ
Stig Tindastóls: Kristinn Friðriksson
27, Cliílon Cook 20, Mikhail Andropov
16, Helgi Rafn Viggósson 14, Einar Om
Aðalsteinsson 4, Sigurður G. Sigurðsson
4, Óli Barðdal 2, Axel Kárason 2, Gunnar
Andrésson 1.
Stig Vals: Jason Pryor 31, Ægir Hrafn
Jónsson 17, Ólafur Ægisson 10, Bjarki
Gústavsson 9, Evaldas Priudokas 8,
Ragnar Steinsson 6, Gylfi Geirsson 3,
Barnaby Craddock 2.
Dómarar (1-10):
Einar Einarsson og
Georg Andersen
(7).
Gœði leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 305.
Maður ieiksins:
Kristinn FriBriksson, Tindast.
FrákösL Tindastóll 34 (6 í sókn, 28 í
vöm, Antropov 9), Valur 41 (13 í sókn, 28
í vöm, Pryor 11)
Stoðsendingar: Tindastóll 14 (Cook 3,
Kristinn 3, Antropov 3), Valur 17
(Bamaby 5).
Stolnir boltar: Tindastóll 12
(Kristinn 4), Valur 10 (Priudokas 4).
Tapaðir boltar: Tindastóll 12, Valur
16.
Varin skoL Tindastóll 4 (Antropov 4),
Valur 3 (Hjörtur 2).
3ja stiga: Tindastóll 19/5, Valur 29/8.
Víti: TindastóU 26/17, Valur 34/24.